Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Side 22
22 fréttir 15. október 2010 Föstudagur
Bandaríski eðlisfræðingurinn Fred
Singer er ekki eins og fólk er flest,
hvorki í skoðunum né í útliti. Hann
er einn helsti efasemdarmaður um
loftslagsbreytingar í heiminum í dag,
og einnig einn sá háværasti. En ef
fólk myndi ímynda sér hvernig aldnir
umhverfisverndarsinnar ættu að líta
út, myndi það sennilega teikna mynd
af einhverjum eins og Singer í höfð-
inu. Hann er orðinn 86 ára gamall en
skartar síðu gráu hári, gengur um í
flauelsbuxum og ber ætíð steingerv-
ing fastan í leðurband um hálsinn.
Hinn hippalegi Singer er hins vegar
alls enginn umhverfisverndarsinni,
þvert á móti. Segir hann að ef jörðin
sé að hlýna sé það alls ekki af manna-
völdum, heldur vegna náttúrunnar
sjálfrar. „Náttúruna ber að óttast, hún
er einstaklega grimm og einstaklega
hættuleg,“ segir Singer.
Fundar með áhrifafólki
Í septembermánuði síðastliðnum
var Singer staddur í Berlín og hélt fyr-
irlestur sem var skipulagður af Frjáls-
lyndum demókrötum en þingmenn
allra flokka þýska þingsins voru við-
staddir, en þýska vikuritið Der Spieg-
el greindi frá þessu. Hlustuðu þing-
mennirnir á erindi Singers af mikilli
athygli, sem kann að skjóta skökku
við, en Þýskaland hefur kynnt mjög
metnaðarfullar aðgerðir í umhverf-
ismálum – ekki síst til að sporna við
loftslagsbreytingum. Engu að síð-
ur sagði Marie-Luise Dött fundinn
hafa verið „einstaklega upplýsandi“,
en hún starfar sem talskona ríkis-
stjórnar Angelu Merkel í umhverfis-
málum. Það var einmitt Merkel sem
Singer langaði helst að ná sambandi
við en hún er menntuð í raunvís-
indum, er með doktorsgráðu í efna-
fræði. Singer sagðist „vona að Merk-
el, sem er ekki heimsk, sjái ljósið. Það
eru ekki mannlegar aðgerðir sem
sem stjórna loftslaginu, heldur nátt-
úran. Vandamálið er ekki loftslagið
sem slíkt, heldur stjórnmálamenn-
irnir sem ætla sér að bjarga því.“ Að
mati Singers eru loftslagsfræði því lít-
ið annað en froða og telur hann enn
fremur umhverfisverndarsinna yfir
höfuð hafa lítið annað á prjónunum
en að eyðileggja heiminn – með því
að koma á sósíalísku þjóðskipulagi.
Afsprengi kalda stríðsins
Ótti Singers við sósíalískt þjóðskipu-
lag er skiljanlegur þegar tekið er mið
af starfsferli hans. Sem táningi tókst
honum að flýja til Bandaríkjanna frá
Austurríki, en Singer er gyðingur og
var ekki vært í fæðingarlandi sínu
sökum ofsókna nasista. Hann þótti
afburðanámsmaður og var farsæll
sem slíkur en jafnframt námi sínu
tók hann að starfa fyrir bandaríska
sjóherinn við þróun eldflauga og
rannsóknir á loftslagi. Hann varð síð-
ar prófessor við Maryland-háskóla
og síðar Virginíu-háskóla en hélt
þó ætíð tengslum sínum við varn-
armálaráðuneyti Bandaríkjanna og
lutu rannsóknir hans oftar en ekki að
framþróun eldflauga og geimvísinda
– sem var einn helsti vígvöllur kalda
stríðsins. Singer var því alinn upp
sem dyggur þjónn hins bandaríska
markaðshagkerfis, og trúir hann
umfram allt á afskiptaleysisstefnu
stjórnvalda, að hans mati eru eftirlit
og reglugerðir aðeins til trafala. Ekki
hefur það orðið til að breyta skoðun-
um hans, að bandarískir umhverfis-
sinnar fyrirfinnast yfirleitt á vinstri
væng stjórnmálanna í Bandaríkj-
unum, en Singer kallar þá alla einu
nafni: kommúnista.
Studdi tóbaksfyrirtækin
Þrátt fyrir allt hefur Singer tekist að
efla málstað efasemdarmanna um
loftslagsbreytingar. Hann er heldur
ekki óvanur því að skipta sér af um-
deildum málefnum en á sínum tíma
hafnaði hann því að göt væru að
myndast í ósónlaginu og þá tók hann
einnig upp hanskann fyrir stóru tób-
aksfyrirtækin á 10. áratug síðustu
aldar. Sagði hann engar sannan-
ir vera fyrir því að óbeinar reykingar
væru slæmar heilsunni og sagði allar
rannsóknir sem sýndu fram á annað
vera „léleg vísindi“. Hann gaf upplýs-
ingafulltrúum stóru tóbaksfyrirtækj-
anna góð ráð um hvernig mætti gera
lítið úr vísindalegum rannsóknum,
en skilaboðin sem tóbaksfyrirtækin
sendu frá sér voru að „vísindi eru allt
of oft notuð til að ná fram pólitísk-
um markmiðum.“ Þegar Umhverfis-
verndarstofnun Bandaríkjanna birti
skýrslu árið 1993 þess efnis að árlega
létust 3.000 Bandaríkjamenn af völd-
um óbeinna reykinga, hafði Singer
svar á reiðum höndum – þetta væri
allt áróður kommúnista.
Ódýr rök
Nú hefur Singer gengið til liðs við
samtökin EIKE (Europäische Institut
für Klima und Energie) en þrátt fyrir
íburðarmikið nafn eru samtökin lít-
ið annað en póstfang í borginni Jena
í Þýskalandi. Singer ætlar sér núna
að ná fótfestu fyrir málstað sinn í
Evrópu en hann hefur viðurkennt
að það gæti reynst erfitt því „Evr-
ópu er stjórnað af stjórnmálaelítum
sem virðast trúa á loftslagsbreyting-
ar, ólíkt venjulegu fólki.“ En það er
staðreynd að vísindamönnum hef-
ur reynst erfitt að sannfæra hinn al-
menna borgara um að loftslagsbreyt-
ingar eigi sér stað um þessar mundir.
Singer og skoðanabræðrum hans
hefur tekist að telja fólki trú um að
vísindasamfélagið sé klofið í afstöðu
sinni til loftlagsbreytinga þrátt fyr-
ir að nýleg bandarísk könnun sýndi
fram á að 97 prósent þeirra vísinda-
manna sem stunda loftslagsrann-
sóknir telja jörðina vera að hlýna af
völdum gróðurhúsalofttegunda.
Hans Joachim Schellnhuber er yf-
irmaður Potsdam rannsóknarstofn-
unarinnar í loftslagsfræðum og einn
helsti ráðgjafi Angelu Merkel. Seg-
ist hann vera tilbúinn til að ræða
við Singer og aðra EIKE-vísinda-
menn, en það geti ekki verið á jöfn-
um grundvelli. Það sé nákvæmlega
það sem Singer stefni að, að búa til
ræðukeppni um vísindi fyrir framan
almenna borgara. „Vísindi geta oft
verið mjög flókin og því miður get-
ur almenningur ekki alltaf haft full-
an skilning á því sem við erum að fást
við. Efasemdamenn um loftslags-
breytingar vilja hins vegar einfalda
hlutina og það er auðvelt að kaupa
ódýr rök,“ segir Schellnhuber og bæt-
ir við: „Ímyndið ykkur að Einstein
hefði þurft að verja afstæðiskenn-
ingu sína í þýskum spjallþætti, það
myndi bara ekki takast.“
Eðlisfræðingurinn Fred Singer
freistar þess að ná eyrum stjórn-
málamanna í Evrópu. Hann er einn
háværasti gagnrýnandi kenning-
arinnar um hlýnun jarðar. Hann
fær mikla athygli þrátt fyrir að 97
prósent loftslagsfræðinga séu hon-
um ósammála. Hann starfaði áður
við að verja tóbaksframleiðendur í
Bandaríkjunum.
björn teitSSon
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
HLÝNUN JARÐAR EKKI
AF MANNA VÖLDUM
Það eru ekki mannlegar að-
gerðir sem sem stjórna
loftslaginu, heldur
náttúran. Vandamálið
er ekki loftslagið sem
slíkt, heldur stjórnmála-
mennirnir sem ætla sér
að bjarga því.
Úlfur í sauðargæru? FredSingerer
ekkiumhverfisverndarsinni,þóhannsé
„hippalegur“íútliti.
Angela Merkel Talskonu
hennarfannstfundurinn
meðSingerafarupplýsandi.