Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Side 29
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 UMRÆÐA 29
Vafalaust skelfdi
það marga þeg-
ar það kom í
ljós fyrir tæpum
tveimur árum
að vinstristjórn
hefði tekið við í
landinu. Enda
hafa Íslending-
ar litla reynslu af
slíku, hér er oft-
ast sami flokkur-
inn við völd og
enginn vissi við
hverju yrði að búast þegar ný stjórn
tæki til starfa. Margir hafa ef til vill
óttast að vinstrimenn myndu nú fara
að endurskapa landið í sinni mynd,
og sækja innblástur sinn til Kúbu
Kastrós ef ekki Kampútsjéu Pol Pot.
Aðrir fylltust von af sömu ástæð-
um, þeir töldu að með vinstrimenn
við stjórnvölinn myndi hér verða til
fyrirmyndarsamfélag jafnaðar og
velferðar, hvort sem þeir sækja fyr-
irmyndir sínar til Skandinavíu eða í
aðrar og óáþreifanlegri hugmyndir.
Hvorugt af þessu hefur ræst
Vinstristjórnin er nefnilega ekki
vinstristjórn nema að nafninu til.
Hún er í besta falli hófsöm miðju-
stjórn. Þróunin á undanförnum
árum á Íslandi hefur á hinn bóginn
verið á þann veg að allir hafa færst
um nokkur sæti til hægri. Sjálfstæðis-
flokkurinn tók upp öfgafyllstu mynd
frjálshyggjunnar, sem jafnvel fyrir-
myndum hans í Bretlandi og Banda-
ríkjunum blöskraði. Framsóknar-
flokkurinn elti hann til að fá sinn bita
af kökunni. Samfylkingin reyndi að
endurskapa sjálfa sig sem Blair-ista,
sem gerði það að verkum að hún átti
í litlum hugmyndafræðilegum erfið-
leikum með að starfa með Sjálfstæð-
isflokknum þegar fram í sótti. Allir
þessir flokkar voru því komir langt
hægri við það sem áður hafði verið
miðjan, Sjálfstæðisflokkurinn sýnu
lengst. Eini miðjuflokkurinn sem var
eftir var svo Vinstrigrænir, sem er lík-
lega næst hófsömum sósíal-demó-
krataflokk, eins og hann þekkist á
Norðurlöndunum, sem hægt er að
komast á Íslandi . Það segir sitt um
hugmyndafræði góðærisins að VG
töldust öfgafullir vinstrimenn sem
varla þóttu stjórntækir.
Hvar er byltingin?
Því er ekki að undra að hér hafa ekki
orðið neinar róttækar þjóðfélags-
breytingar á tímum vinstristjórn-
arinnar. Það stóð aldrei til. Hinir
ríku eru ennþá ríkir og hinir fátæku
ennþá fátækir. Það hefur verið mun
meira um afskriftir auðmanna held-
ur en eignafærslu til verkalýðsins.
Það sem vinstristjórnin hefur hins
vegar boðið upp á, og sem Sjálfstæð-
ismönnum hefur mistekist svo hrap-
allega, er skynsöm hagstjórn. Sjálf-
stæðismenn tóku við góðu búi og
skiluðu því gjaldþrota, vinstristjórn-
in tók við gjaldþrota búi og mun
skila því af sér í mun betra horfi.
Þetta ætti að gleðja flesta Íslendinga,
sem eru þrátt fyrir allt frekar íhalds-
samir þegar kemur að kjörkassan-
um. Þess í stað eru flestir á móti rík-
isstjórninni. Hvað veldur?
Ein helsta ástæðan er kalda-
stríðsretórík sem enn virðist alls-
ráðandi. Margir kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn vegna þess að þeir treysta
honum best til að fara með hag-
stjórn landsins. Sjálfstæðismenn
hafa á hinn bóginn ítrekað sýnt,
og á eftirminnilegastan hátt í
hruninu, að þeir eru ekki trausts-
ins verðir þegar kemur að ein-
mitt þessu. Vinstristjórnin hef-
ur nú sýnt fram á að hún er mun
áreiðanlegri kostur til að stuðla að
hagvexti, jafnvel við mjög erfið-
ar aðstæður. Eigi að síður er það
óhugsandi að kjósendur Sjálfstæð-
isflokksins kjósi með veskinu og
færi sig til vinstri. Fyrir þeim eru
vinstrimenn alltaf bölvaðir komm-
únistar, sama hvað reynslan sýn-
ir þeim. Því mun vinstristjórnin
aldrei fá stuðning frá þeim vængn-
um, sama hvað hún gerir.
Stóreignamenn allra landa...
Það sem flækir síðan málið er að á
sama tíma og vinstristjórnin biðlar til
hægrimanna með þessum hætti, þá
er hún að miklu leyti búin að missa
stuðning sinna eigin manna. Margir
höfðu vonast til þess að ríkisstjórn-
in myndi stokka upp í bankakerf-
inu, brjóta upp auðhringi og reyna
að stuðla að jafnara og líklega réttlát-
ara þjóðfélagi. Tækifæri til þess gafst
á fyrstu mánuðunum, þegar margir
voru enn í byltingarham. En stjórn-
in missti af þessu tækifæri til þess
að efla eigin stuðningsmenn og ein-
beitti sér þess í stað að efnahagslegri
uppbygginu af gamla skólanum, í
stað þess að ráðast að rótum þess
kerfis sem hafði leitt landið til glöt-
unar. Því er hún nú í þeirri óöfunds-
verðu stöðu að hafa misst stuðn-
ing sinna manna, án þess að hafa
bætt við hann annars staðar frá. Lík-
lega hefði því verið pólitískt klókt af
henni að skera upp herör gegn spill-
ingunni, sem hefði að minnsta kosti
þétt hennar eigin raðir. En það tæki-
færi er óðum að renna úr greipum
hennar. Stóreignamenn og stuðn-
ingsmenn þeirra hafa hins vegar lítið
að óttast, þrátt fyrir allan áróður um
hið gagnstæða er lítið að þeim vegið.
Er (vinstri)stjórn í landinu?
Vinstristjórnin er nefnilega ekki
vinstristjórn nema að
nafninu til.
KJALLARI
Ummæli fráfar-
andi heilbrigð-
isráðherra um
að hætta beri
uppbyggingu
lítilla landspít-
ala um allt land
og beina frem-
ur athygli að
stærri eining-
um í Reykja-
vík og Akureyri
eru að mörgu
leyti dæmigerð
fyrir það óyndis-
kviksyndi sem umliðnir heilbrigð-
isráðherrar hafa svamlað í. Þessi
tilhneiging, að bera í svo úr verði
bákn, er hvorki þjónkun við hag-
sýni né manneskjur.
Í okkar fámenna samfélagi er
yfirgnæfandi hluti tilfella þess eðl-
is að ekki þarf sértækan búnað né
fagþekkingu. Langsamlega flesta er
hægt að meðhöndla á litlu sveita-
sjúkrahúsunum sem þegar eru til
staðar en sumpart vannýtt einmitt
vegna stefnu stjórnvalda. Skemmst
er að minnast glænýrra skurðstofa
á Suðurnesjum sem nú standa auð-
ar.
Út frá hagkvæmnissjónarmið-
um er miklu betra að nýta það hús-
næði sem fyrir er og auka atgervi
landsbyggðarinnar með þeim störf-
um sem til þarf. Að ógleymdum
þeim ávinningi fyrir sjúklinga að
geta gengið að tryggri læknishjálp
í sinni heimabyggð. Augljós er svo
hinn mannlegi þáttur sem fylgir
smærri einingum en tapast gjarna
í þeim stærri. Í ofanálag er marg-
sannað að alvarlegustu læknamis-
tökin gerast á stórum sjúkrahúsum,
þar er hraðinn meiri og upplýsinga-
flæði minna.
Fráfarandi heilbrigðisráðherra
talar um til mótvægis að bæta
sjúkraflutninga og gera þá skjót-
virkari. Gott og blessað í þeim til-
vikum sem það á við en enn og aft-
ur rekumst við á þá staðreynd að
yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem
veikjast eða slasast er hægt að með-
höndla í heimahéraði. Hinir fara
eftir sem áður á stærri sjúkrahús.
Með þessari stefnu stjórnvalda,
að færa allt undir sama hatt, er ver-
ið að ýta undir sérhæfingu sem ekki
er þörf fyrir. Fyrir fámenna þjóð
eins og Íslendinga er afleiðing-
in þessi, við höfum séð hana víða,
bæði í stjórnsýslunni og háskóla-
samfélaginu: Framboð sérhæfingar
verður meira en eftirspurn og gatið
fyllt með gagnslausum stjórnunar-
stöðum.
Við nýbakaðan heilbrigðisráð-
herra vil ég því segja þetta: Vertu
fyrsti heilbrigðisráðherrann um
langa hríð sem ekki þjónkar undir
þrýsti- og hagsmunahópa heldur
raunverulega þörf fólksins í land-
inu. Viðfangsefnin eru aukin öldr-
un samfélagsins, úrbætur örorku-
og sjúkratrygginga, vímuefnavarnir
og fyrirbyggjandi aðgerðir, ekki há-
tæknisjúkdómar og háskólamennt-
að heilbrigðisstarfsfólk. Gangi þér
vel.
Óyndiskviksyndi heilbrigðisráðherra
KJALLARI
SIMMI SÓLARMEGIN
n Sigmundur Ernir Rúnarsson
þingmaður hefur gjarnan verið
maður fjöldans. Það kom skýrt fram
þegar hann,
fjárlaganefnd-
armaðurinn,
kannaðist ekkert
við niðurskurð
í heilbrigðis-
þjónustu á
Húsavík. Lofaði
hann hástöfum
í pontu að
berjast gegn ófögnuði samherja
sinna. Á einu augabragði var hann
síðan kominn í frí til útlanda með
fjölskyldu sína. Viðbúið er að hann
berjist sólarmegin gegn áformum
flokkssystkinanna um niðurskurð.
ÁHUGALAUS UM
TÍSKUBÚÐIR
n Það vakti mikla athygli þegar
Arion banki upplýsti að Jóhannes
Jónsson kaupmaður, áður kenndur
við Bónus, hefði
ákveðið að hætta
við kaupin á
Zöru og fleiri
tískuverslunum
sem eru innan
Haga. Sjálfur
útskýrði hann
viðsnúninginn
þannig að hann
ætlaði að einbeita sér að því að ná
bata í erfiðum veikindum. Reyndin
er sú að Jóhannes var aldrei áhuga-
samur um að eignast tískubúðirnar
en það var sonur hans, Jón Ásgeir
Jóhannesson, aftur á móti. Þegar
Jón Ásgeir missti síðan áhugann var
hætt við.
GOGGAÐ Í BUBBA
n Tónlistarmaðurin Bubbi
Morthens skrifar reglulega pistla á
Pressuna. Á vefsíðunni amx.is hefur
því þó verið
haldið fram að
Bubbi, sem er
lesblindur, skrifi
ekki sjálfur pistl-
ana. Smáfuglar
AMX láta sér
einkar annt um
poppguðinn og
fjalla reglulega
um hann og dálæti hans á völdum
útrásarvíkingum. „Af ástæðum,
sem smáfuglunum er ókunn, er
á þessari vefsíðu sérstök áhersla
á varnir fyrir Pálma Haraldsson í
Fons sem var lykilmaður í íslenska
bankahruninu og nánasti við-
skiptafélagi Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar,“ segir í færslu smáfuglanna
sem nota hvert tækifæri til að gogga
í Bubba.
EVA Á ÚTOPNU
n Glæpasérfræðingurinn Eva
Joly situr ekki auðum höndum.
Hún er búin að vera á launum hjá
íslenska ríkinu
í á annað ár við
að fanga spillta
útrásarvíkinga
og bankamenn.
Ekkert bólar
þó á árangri í
þeim efnum. Nú
hafa þær Eva og
Björk Guð-
mundsdóttir söngkona náð saman
í baráttu gegn Magma. Ekki eru þó
grunsemdir um glæpi þar heldur
er baráttan gegn skúffufyrirtækinu
pólitísk. Nú velta menn fyrir sér
hvar Joly skjóti upp kollinum næst.
SANDKORN
VALUR
GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
LÝÐUR
ÁRNASON
læknir og kvikmynda-
gerðarmaður skrifar