Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Blaðsíða 30
MyndlistartíMaritið Blatt Blað koMið út Mynd-
listartímaritið Blatt Blað númer 58 er komið út. Að þessu sinni gerir Huginn Þór Arason
kápu tímaritsins en aðrir sem eiga verk í blaðinu eru André Alder, Jóna Hlíf Halldórsdóttir,
Hlynur Hallsson, Ómar Smári Kristinssoni, Alexander Stieg, Volker Troche og Aðalsteinn
Þórsson. Blaðið er 16 síður að stærð í A5 broti. Upplagið er 100 tölusett eintök. Blatt Blað
hefur komið út frá árinu 1994. Upphaflega voru gefin út ný eintök annan hvern mánuð
en nú eru gefin út ný tölublöð tvisvar á ári. Hægt er að kaupa Blatt Blad á 400 krónur í Út-
úrdúr/Havarí í Austurstræti 6 í Reykjavík. Einnig er hægt að fá blaðið sent heim og gerast
áskrifandi. Upplýsingar gefur hlynur@gmx.net. Næsta tölublað kemur út í mars 2011.
sjötta alþjóðlega ljóðahátíð nýhil
Sjötta alþjóðlega ljóðahátíð Nýhil verður haldin dagana 21.–23. október. Hún
verður sett með opnunarkokteil í Norræna húsinu fimmtudaginn 21. október
og þá um kvöldið verður ljóðapöbbkvis á Næsta bar. Upplestrarkvöld með
íslenskum og erlendum skáldum og tónlistaratriðum verða haldin á Venue föstudagskvöldið 22.
og laugardagskvöldið 23. október. Einnig verður blásið til pallborðsumræðna um ljóðlist undir stjórn
Benedikts Hjartarsonar bókmenntafræðings í Norræna húsinu laugardaginn 23. október. Fjölmörg
íslensk skáld koma fram á hátíðinni, þar á meðal Þórdís Gísladóttir, Anton Helgi Jónsson, Ingólfur
Gíslason, Hildur Lilliendahl og Birkir úr Forgotten Lores, en einnig munu erlend ljóðskáld koma fram.
Upprisa Afflecks
Eftir nokkuð misjafnan feril sem leik-
ari hefur Ben Affleck sannað sig sem
góður leikstjóri. Fyrst með myndinni
Gone Baby Gone, sem skartaði bróð-
ur hans, Casey, í aðalhlutverki, og nú
með hasarmyndinni The Town þar
sem hann fer sjálfur með aðalhlut-
verkið.
The Town fjallar um Charlestown,
hverfi í Boston. Þar býr fólk af írskum
uppruna og glæpastarfsemi er áber-
andi. Sérstaklega þegar kemur að
vopnuðum ránum en það fag hefur
hreinlega gengið í erfðir. Við fylgjumst
með hópi ungra manna sem undir
forystu Doug MacRay (Affleck) ræna
banka og brynvarða bíla.
Þegar rán fer úrskeiðis neyðist hóp-
urinn til þess að taka bankastýruna
sem gísl. Þeir sleppa henni en kom-
ast svo að því að hún býr í næstu götu.
Upp frá því fer Doug að fylgjast með
ferðum hennar til þess að tryggja ör-
yggi hópsins en verður í leiðinni ást-
fanginn.
The Town er í alla staði vel heppn-
uð spennumynd, og ekki að ástæðu-
lausu að Affleck hefur verið sterklega
orðaður við Óskarverðlaunin sem
leikstjóri. Uppbyggingin í myndinni
er vel heppnuð og persónur mjög
áhugaverðar. Í fyrstu var ég ekki alveg
að kaupa þær. Þessi hreimur og þessi
heimur voru ekki alveg að ná til mín.
En þegar leið á myndina breyttist það.
Hægt og rólega skildi ég betur þau
bönd sem tengja persónurnar og það
sem á daga þeirra hefur drifið.
Hasarsenurnar í myndinni eru
magnaðar. Hraðar, vel útfærðar og
spennandi. Atriðið þegar Doug ger-
ir upp við blómasalann er hreinlega
magnað sem og langur skotbardagi
undir lok myndarinnar. Nett Heat-
skírskotun þar.
Sjálfur vinnur Ben Affleck mikið
á í myndinni. Hann á flotta spretti og
maður fyrirgefur honum drasl eins og
Reindeer Games, Gigli og næstum því
Daredevil. Jeremy Renner er tilvalinn í
hlutverk hins siðblinda James Cough-
lin og Jon Hamm úr þáttunum Mad
Men er einnig frábær sem FBI-harð-
jaxlinn.
Myndin er byggð á bókinni Prince
of Thieves eftir Chuck Hogan. Affleck
er sjálfur á meðal handritshöfunda
enda með Óskarsverðlaun í bakinu í
því fagi. Formúlan er eitthvað sem við
höfum oft séð áður en umhverfið, per-
sónurnar og framkvæmdin gera þetta
að frábærri mynd. Ásgeir Jónsson
30 fókus 15. október 2010 föstudagur
Finnski hestur-
inn FruMsýndur
Þjóðleikhúsið frumsýnir í dag, föstu-
daginn 15. október, Finnska hest-
inn en leikritið sló rækilega í gegn
í heimalandinu þegar það var fyrst
sýnt árið 2004. Síðan þá hefur leik-
ritið verið sýnt í fjölmörgum upp-
setningum í heimalandinu sem og
víðar í Evrópu og Bandaríkjunum.
Sögusviðið er bóndabær í Finnlandi
og persónusafnið er litskrúðugt.
Höfundurinn, Sirkku Peltola, er ein
af fremstu leikhúslistakonum Finn-
lands. Hún starfar bæði sem leik-
stjóri og leikskáld, og hefur hlotið
fjölda verðlauna og viðurkenninga
í sínu heimalandi. Hún hefur skrif-
að tvö ný leikrit um fólkið í Finnska
hestinum og virðist ekkert láta vera
á vinsældum þessara persóna. Leik-
stjóri er María Reyndal og Sigurð-
ur Karlsson þýddi verkið. Leikarar í
sýningunni eru þau Harpa Arnar-
dóttir, Jóhannes Haukur Jóhann-
esson, Kjartan Guðjónsson, Lára
Sveinsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdótt-
ir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og
Þórunn Lárusdóttir.
kvikmynd
Brim
Frábær
mynd sem
er byggð á
samnefndu leikverki Jóns Atla Jónasson-
ar. Vesturportshópurinn fer á kostum í
mynd sem fjallar um unga konu sem fer
á sjó. Hún er eina konan um borð og það
setur hlutina heldur betur úr jafnvægi
um borð.
leikverk
Enron
í Borgarleikhúsinu
Leikritið um
Enron er komið
til Íslands. Það er
lent á Stóra sviði Borgarleikhússins með
glæsibrag. Í afar vandaðri sviðsetningu
sem verður ekki annað séð en taki það í
meginatriðum réttum tökum.
tölvuleikur
Start thE Party
á PS Move
Úrvals samkvæmisleik-
ur en mynd er tekin
af hverjum keppanda
og fær hann að vera
með sitt sigurhljóð og
hvaðeina. Einnig er
síðar í leiknum hægt að taka upp hljóð
fyrir aðra. Pinninn er afar nákvæmur í
leiknum sem gerir spilun alveg frábæra.
Flottur leikur fyrir fólk frá 5–65 ára.
ópera
rigolEtto
Að mörgu leyti
var þar bæði
vel sungið og
leikið. Dómur
áhorfenda var
ótvíræður: Það
var Þóra Einars-
dóttir sem var sigurvegari kvöldsins.
Fagnaðarlætin í lok frumsýningarinnar á
Rigoletto síðasta laugardagskvöld tóku
af öll tvímæli um það.
mælir með...
thE town
leikstjórn: Ben Affleck
Handrit: Ben Affleck, Peter Craig,
Aaron Stockard
aðalhlutverk: Ben Affleck, Rebecca
Hall, Jon Hamm, Jeremy Renner, Blake
Lively, Pete Postlethwaite, Chris Cooper
kvikmyndir Ben affleck Er leikstjóri/leikari en ekki öfugt.
Hún semur tónlist um hluti sem eiga eftir að gerast, en leggur samt mest upp úr því að fólk geti dansað
við músíkina. Hún kemur frá Stokk-
hólmi, er 31 árs, og stígur á svið í
Listasafni Reykjavíkur á laugardags-
kvöld á Iceland Airwaves-tónleika-
hátíðinni. Þegar DV náði tali af Ro-
bin Miriam Carlsson, eða Robyn, þá
var hún að lenda í Osló. „Við erum
að spila hérna rétt fyrir utan borgina.
Þetta er hluti af sama tónleikaferða-
laginu,“ segir hún og kveðst ekki vera
þreytt. Það sé lítið mál að fljúga frá
Stokkhólmi til Oslóar.
Alþjóðleg velgengni Robyn hófst
með plötunni „Robyn“ sem hún gaf
sjálf út, árið 2005. Þar var meðal ann-
ars að finna lagið With Every Heart-
beat, sem náði fyrsta sæti á breska
vinsældalistanum, og varð gríðarvin-
sælt vítt og breitt um Evrópu. „Mér
gekk alveg frábærlega með þessa
plötu í Bretlandi, og raunverulega
líka í Þýskalandi, Ástralíu og fleiri
löndum,“ segir Robyn. „En hún gaf
mér líka tækifæri til þess að kynn-
ast bandarískum aðdáendum upp
á nýtt, jafnvel þótt platan hafi ekki
selst sérlega vel þar í landi.“ Banda-
rískir aðdáendur hafa nefnilega ver-
ið til staðar allt frá árinu 1997, þegar
platan Robyn is Here kom út. Þar var
meðal annars lagið Show me love,
sem notað var í kvikmynd Lukas
Moodyson, Fucking Åmål.
Gamlar leiðir eru ófærar
Allt frá því að Robyn stofnaði sitt eig-
ið útgáfufyrirtæki, Konichiwa Rec-
ords, hefur hún skipað sér í fram-
varðasveit þeirra sem nýta sér netið
til markaðssetningar. „Umræðan
virðist vera á villigötum. Fólk er allt-
af að velta fyrir sér ólöglegu niðurhali
og það fer mikil barátta fram til þess
að hindra slíkt,“ segir Robyn. „Þetta
er samt ekki kjarni málsins. Það er
netið sjálft sem er byltingin. Ólöglegt
niðurhal er hluti af þeirri byltingu, en
í staðinn höfum við fengið gríðarlegt
frelsi til allra mögulegra hluta,“ held-
ur hún áfram.
Með þessu er hún ekki að segja að
tónlist eigi að vera ókeypis. Tónlistar-
fólk verði að eiga möguleika á því að
draga fram lífið. „Fólk nálgast tón-
listina með öðrum hætti. Það er lið-
in tíð að útgáfurisi gefi út fimm plöt-
ur sem allir eiga svo að sameinast
um að hlusta á. Þessi leið er ófær og
týnd, sem betur fer. Netið hefur gef-
ið listamönnum tækifæri til þess að
vera í beinum samskiptum við hlust-
endurna og það er ekki til nein leið
framhjá þessu. Upp úr þessu sprettur
miklu nánara samband á milli lista-
manna og neytenda en nokkurn tím-
ann fyrr. Þess vegna er mikilvægt að
búa til alls kyns lítil myndskeið með
nýjum útgáfum af lögum og birta
jafnóðum á vefnum. Þarna eiga að-
dáendur möguleika á að verða þátt-
takendur í ferlinu. Það er ekki hægt
að horfa fram hjá þessu. Ég hef
reyndar verið svo heppin að geta selt
allmikið af plötum þannig að ég hef
getað leyft mér að gera tilraunir með
þetta nýja form, án þess að svelta.“
enGinn stýrir mér
Tónlistin sem Robyn hyggst spila á
laugardagskvöldið er fyrst og fremst
nýtt efni af þremur plötum sem hún
gefur út á þessu ári, ásamt lögum af
síðustu plötu. „Ég gef út þrjár plötur á
sama árinu af því að ég get það. Þetta
eru stuttar plötur. Einhvern tímann
áður fyrr hefði útgáfufyrirtæki skipað
mér að gera eina langa plötu og sagt
mér að fara í þriggja ára hljómleika-
ferðalag. En af því að öll útgáfa hefur
breyst með tilkomu netsins þá gilda
þessi lögmál ekki lengur.“
Þess í stað kveðst hún ætla í styttri
tónleikaferðir og stýra ferlinu betur
sjálf. „Iðnaðurinn hefur hingað til
stýrt því hvernig tónlist er gefin út og
við sitjum uppi með alls kyns skrýtna
staðla, til dæmis þá að hljómplata
verði að innihalda fimmtán lög
eða eitthvað slíkt. Ég held að
þetta henti alls ekki öllum lista-
mönnum og leyfi mér að efast
um að þetta sé endilega það
sem hlustendur eru að sækjast
eftir. Þetta hefur líka orðið til
þess að hljómlistarmenn verja
mánuðum í senn í hljóðveri til
þess að taka upp plötur. Síðasta
tónleikaferðalagið mitt varði
sleitulaust í fjögur ár. Ég hrein-
lega varð að athuga hvort ekki
væri önnur leið fær,“ segir Robyn.
Platan Body Talk, sem kemur út í
þremur hlutum á þessu ári sprettur
því upp úr þessari nýju hugmynda-
fræði, sem Robyn útskýrir að eigi
rætur að rekja í frelsi netsins. „Þarna
er mín leið til þess að leyfa öllum
hlutum að hafa eðlilegra flæði. Nú
get ég kannski verið oftar í hljóðver-
inu og farið í styttri tónleikaferðir inn
á milli.“
tilfinninGaríkt popp
En skyldi vera að þessi nýja nálgun
í markaðssetningu hafi áhrif á sjálfa
tónlistina? Hefur hún orðið á ein-
hvern hátt persónulegri eða frum-
legri? Robyn er ekki viss um að svo
sé. Góð tónlist hafi alla tíð grundvall-
ast á því að fólk sé tilbúið að leggja
allt í sölurnar og fylgja sannfæring-
unni. „Ég er bara að gera popptón-
list og það er fullt af fólki sem kann
að búa til popp. Kannski
hef ég náð að gera
poppið með
minni
sænska poppstjarnan Robyn stígur á svið á Iceland airwaves tónlistarhátíðinni á laug-
ardagskvöldið. Hún gefur út þrjár hljómplötur á árinu, er á tónleikaferðalagi og rekur
eigið útgáfufyrirtæki. Í samtali við dV segir robyn frá tónlistarbyltingu internetsins.
Hún segir að vel sé hægt að semja frumlega popptónlist. Það sé engin þversögn.
Semur lög
um óorðna hluti
Fólk nálgast tón-listina með öðr-
um hætti. Það er liðin
tíð að útgáfurisi gefi út
fimm plötur sem allir
eiga svo að sameinast
um að hlusta á. Þessi
leið er ófær og týnd,
sem betur fer.