Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Síða 36
36 VIÐTAL 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
Ég hef alltaf jafngaman af þessu og er orðin háð því að heyra í þeim,“ seg-ir Gerður Unndórsdóttir á Egilsstöð-um en Gerður hefur verið gestur í
þætti Simma og Jóa á laugardagsmorgnum á
Bylgjunni um árabil. Félagarnir hringdu fyrst
í Gerði þegar þeir voru með útvarpsþáttinn
70 mínútur og göbbuðu hana upp úr skónum.
„Þeir gerðu at í mér og ég trúði þeim. Simmi
sagðist ekki koma heim um jólin því hann væri
að fara að gera útvarpsþátt úti í löndum og
sagðist ætla að taka pabba sinn með sér. Mér
brá ansi mikið enda er ég auðtrúa og trúi hlut-
unum þangað til annað reynist,“ segir hún en
Gerður er móðir Simma, Sigmars Vilhjálms-
sonar annars helmingsins af Simma og Jóa, og
eiginkona Vilhjálms Einarssonar, fyrrverandi
skólastjóra og afreksmanns í íþróttum.
„Þetta var afar illkvittnislegt af þeim. Ef Vil-
hjálmur væri ekki hjá mér um jólin væri búið
að eyðileggja fyrir mér hátíðina. Enda kom það
aldrei til greina af minni hálfu,“ segir Gerður
sem hefur fyrirgefið hrekkinn. „Ég er stundum
snögg upp á lagið en ég verð aldrei lengi reið.
Eftir þetta vildi Jói hafa mig með af því að ég
segi það sem ég meina. Og líklega er það rétt
hjá honum. Ef ég er spurð þá segi ég það sem
mér finnst. Stundum er það særandi en það er
ekki ætlunin. Ég vil bara ekki vera einhver já-
manneskja.“
Dönsuðu saman allt ballið
Gerður fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vestur-
bænum. Faðir hennar, Unndór Jónsson, er lát-
inn en hann var fulltrúi í stjórnarráðinu. Móðir
hennar, Guðrún Símonardóttir, er 96 ára og býr
enn í eigin íbúð. Gerður sá Vilhjálm fyrst þegar
hún var að vinna í ísbúðinni Dairy Queen. „Þá
var hann nýkominn heim úr námi frá Ameríku
og var enn á fullu í íþróttum. Sjálf var ég í körfu-
bolta og leikfimi en ég vissi ekkert hvað þrí-
stökk væri. Stelpurnar sem ég vann með voru
eldri en ég og sögðu að þessi maður væri alltaf
að horfa á mig. Ég skildi ekki hvað þessi gamli
maður væri að glápa,“ segir hún hlæjandi en
sjö ár eru á milli þeirra hjóna. „Svo bauð hann
okkur stelpunum til Þingvalla og þegar þang-
að var komið vildu stelpurnar fara á ball á Sel-
fossi en Ragnar Bjarnason var að spila. Ég vissi
að ég væri allt of ung og að pabbi yrði vitlaus
ef ég færi. Villi sagðist skyldu keyra mig heim
en ég þorði ekki að vera ein með honum og fór
frekar á ballið. Þar var ég allavega í fylgd með
fullorðnum. Hann dansaði við mig allt ballið og
sagði að ég væri með munninn fyrir neðan nef-
ið þegar ég tilkynnti honum að það væri dóna-
skapur að dansa við sömu stelpuna allt kvöld-
ið. Pabbi varð auðvitað bálreiður en hann var
fljótur að jafna sig.“
Yngsta skólastjórafrú landsins
Gerður og Vilhjálmur byrjuðu að búa árið
1958 þegar hún var 17 ára. „Hann var kennari
á Laugarvatni í tvö ár og á meðan ég kláraði
skólann kom hann reglulega í bæinn að heim-
sækja mig. Hann lagði ýmislegt á sig til að kom-
ast til mín og kom eitt skiptið í brjáluðu veðri á
traktor og þurfti að fljúga til baka. Svo flutti ég
til hans og varð þar með yngsta skólastjórafrú
Við bara elskum
hvort annað
Við vorum að pæla í að reyna við stelp-
una og það hefði verið gam-
an að sjá hvort hún hefði
verið 16. eða 18. barnið.
Gerður Unndórsdóttir
var 15 ára þegar hún
trúlofaðist manni sínum,
Vilhjálmi Einarssyni
fyrrverandi skólastjóra
og afreksmanni í íþrótt-
um. Gerður og Vilhjálm-
ur eiga sex syni og hafa
margir þeirra látið að
sér kveða í samfélaginu.
Sá yngsti, fjölmiðlamað-
urinn Sigmar, hringir
reglulega í mömmu
sína í útvarpsþættinum
Simmi og Jói á Bylgj-
unni.
Smitandi kátína Gerður er þekkt fyrir
hreinskilni og smitandi hlátur þegar þeir
félagar Simmi og Jói hringja í hana á laugar-
dagsmorgnum í þættinum sínum á Bylgjunni.