Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 17
Úttekt | 17Helgarblað 28.–30. janúar 2011
Einleikur eftir Brynhildi Guðjónsdóttur í flutningi höfundar
Nú í Þjóðleikhúsinu
Sun. 6. febrúar kl. 20
Fös. 11. febrúar kl. 20
Lau. 12. febrúar kl. 20
Sun. 13. febrúar kl. 20 Nánar á leikhusid.is / sími miðasölu 551 1200
Ekki missa af þessari frábæru verðlaunasýningu!
Næstu
sýninga
r
í Kúlunn
i
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
G
Ú
S
T
A
V
S
S
O
N
B
J
Ö
R
G
V
I
N
P
Á
L
L
„NOW eru klárlega fæðubótarefni í landsl iðsklassa fyrir al la
íþróttamenn. Mæli sterklega með þessum vörum fyrir þá sem
leita eftir styrk, úthaldi og snerpu -þær virka vel fyrir mig.“
NOW virkar vel fyrir mig!
NOW - Fullkomin l ína af íþróttafæðubótarefnum
– fáanleg í verslunum um allt land
Hjálpuðu íslenskum
vændiskonum úr landi
n Stígamót skjóta skjólshúsi yfir konur í vændi n Þörfin hefur lengi
verið ljós n Langt og strangt ferli að komast út úr vændi n Óttast for-
dæmingu og gera allt til að fela slóð sína n Gefast upp og svipta sig lífi
Leita að húsnæði
Fjármagnið er til staðar og núna
er bara verið að leita að hentugu
húsnæði fyrir athvarfið og aðra
starfsemi Stígamóta. Enn er óljóst
hvað hver kona mun dvelja lengi í
athvarfinu en Guðrún vill að þær
fái þann tíma sem þær þurfa. Í ná-
grannalöndum hefur reynslan ver-
ið sú að konur dvelja allt frá sex
mánuðum og upp í ár í slíkum at-
hvörfum. Við munum leitast við
að vera í sem bestri samvinnu við
þjónustukerfið á Íslandi, lögreglu,
félagsþjónustu, meðferðaraðila og
starfa náið með öllum þeim sem
gætu veitt þessum konum þjónustu
sem þær þurfa á að halda en geta
ekki fengið hjá okkur,“ segir Guð-
rún. „Draumurinn er að verða að
veruleika.“
„Þær eru flæktar í
net og þurfa að-
stoð við að slíta sig lausar.
Raunverulegt val?
Brot úr viðtali við vændiskonu sem birtist í Nýju Lífi árið 2009.
„Ég hef komið mér upp nokkrum reglum sem eru mér nauðsynlegar. Ég hef lagt mikið á
mig til að komast hjá því að kyssa kúnnann. Ég áttaði mig á þessu í dag og spurði mig af
hverju ég gerði það. Ástæðan er sú að ég á enn hluta af sjálfri mér sem er notalegur. Ég
get enn fundið til.“
„Við hverju hefðir þú búist? Að ég segði þér frá misnotkuninni sem ég var beitt fyrr
á ævinni? Að ekki aðeins faðir minn hefði yfirgefið mig heldur einnig móðir mín? Frá
angistinni og djöflunum sem leituðu mig uppi? Frekar hefði ég einfaldlega sagt: „Þetta
er það sem ég vil gera.““
„Komi konurnar inn í bransann af „fúsum og frjálsum vilja“ vita þær sjaldnast hvað þær
eru að fara út í. Fyrr en síðar verður konan að gera hluti og bjóða þjónustu sem hún hefði
aldrei samþykkt áður. Engin kona veit í raun hvað hún er að samþykkja fyrr en það er
orðið of seint.“
„Þegar talað er um vændi sem valkost er líka áhugavert að velta því fyrir sér af hverju
það eru nánast alltaf konur og stelpur sem enda í vændi. Getur það verið af því að
þær skortir völd? Peninga? Menntun? Valmöguleika? Af hverju ætli það séu alltaf
valdalausar konur eða stúlkur sem lifa á jaðri samfélagsins og eiga við erfiðleika að
stríða sem eiga að hafa valið þetta af fúsum og frjálsum vilja? Frelsi hlýtur að byggjast
á því að þú hafir val.“