Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 34
Kristín Laufey fæddist í Stykkis-hólmi en ólst upp í Reykjavík. Hún var í Miðbæjarskólanum
og stundaði nám við húsmæðraskóla
í Kaupmannahöfn veturinn 1930–31.
Kristín Laufey starfaði m.a. við salt-
fisksbreiðslu áður en hún gifti sig en þó
lengst af hjá Ársæli Árnasyni, bókbind-
ara og bókaútgefanda í Reykjavík. Hún
var síðan búsett með manni sínum í
Færeyjum á árunum 1933–45 og var
síðan húsmóðir á fjölmennu heimili
þeirra í Vesturbænum í Reykjavík.
Kristín Laufey vann mikið að mál-
efnum andlega fatlaðra hér á landi, var
einn af stofnendum Styrktarfélags van-
gefinna og einn helsti hvatamaður að
stofnun Bjarkaráss á sínum tíma.
Fjölskylda
Kristín Laufey giftist 1932 Margeiri S.
Sigurjónssyni, f. 22.11. 1907, d. 1.11.
1987, forstjóra G. Helgason og Mel-
sted og síðar forstjóra Steinvarar hf. í
Reykjavík frá 1960. Foreldrar Margeirs
voru Sigurjón Jóhannsson, söðlasmið-
ur og bólstrari í Hafnarfirði, og k.h.,
Margrét Þorleifsdóttir húsmóðir.
Börn Kristínar og Margeirs eru Mar-
grét, f. 22.5. 1933, fyrrv. fulltrúi í Reykja-
vík, ekkja eftir Gissur Jóel Gissurarson
skrifstofumann en börn þeirra eru Ívar,
útgefandi í Reykjavík, Margeir mat-
vælafræðingur, Snorri viðskiptafræð-
ingur, Laufey þroskaþjálfi, Lilja þroska-
þjálfi, og Ingólfur matvælafræðingur;
Lilja, f. 5.5. 1936, búsett að Bergi í Reyk-
holtsdal, ekkja eftir Flosa Ólafsson,
leikara og rithöfund, en sonur þeirra
er Ólafur, hljóðfæraleikari og tónlistar-
kennari; Guðjón Sigurgeir, f. 6.3. 1942,
forstjóri, búsettur á Seltjarnarnesi,
kvæntur Margréti Jónsdóttur snyrti-
fræðingi en börn þeirra eru Ragnheið-
ur snyrtifræðingur, Þorsteinn, við-
skiptafræðingur og framkvæmdastjóri,
Kristín Laufey, viðskiptafræðingur í
London, Árni verkfræðingur í Noregi,
og Daði hagfræðingur; Ingólfur, f. 4.5.
1948, sagnfræðingur og rithöfundur
í Reykjavík, kvæntur Jóhönnu Jónas-
dóttur lækni og er sonur þeirra Jónas
Margeir laganemi en börn Ingólfs og
fyrri konu hans eru Lilja, kvikmynda-
maður í Noregi, og Daníel læknanemi;
Sigurjón, f. 8.3. 1953, d. 4.9. 1953; Ósk-
ar Helgi, f. 11.6. 1954, starfsmaður við
Ás en kona hans er Jóhanna Magnús-
dóttir.
Systkini Kristínar Laufeyjar: Odd-
fríður Ingibjörg, f. 25.6. 1908, d. 23.3.
1995, húsmóðir í Reykjavík og um
skeið á Sauðárkróki; Elín Fanney, f.
15.9. 1912, d. 20.1. 2000, húsmóðir í
Reykjavík; Örn, f. 21.3. 1917, d. 3.11.
1922; Hrefna Sólveig, f. 19.9. 1921, d.
17.11. 1946; Erna, f. 9.5. 1924, nú lát-
in, lengst af húsmóðir á Long Island í
Bandaríkjunum; Dóra María, f. 20.10.
1926, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Kristínar Laufeyjar voru
Ingólfur Daðason, f. 22.12. 1886, d.
24.6. 1947, verkamaður og verkstjóri í
Reykjavík, og k.h., Lilja Halldórsdóttir,
f. 7.6. 1881, d. 6.11. 1956, húsmóðir.
Ætt
Ingólfur var bróðir Guðmundar, b. á Ósi
á Skógarströnd en hann varð hundr-
að og fimm ára, og bróðir Ingibjarg-
ar, húsmóður í Stykkishólmi en hún
varð hundrað og þriggja ára, auk þess
sem maður hennar, Sigurður hrepp-
stjóri varð hundrað og fjögurra ára.
Ingólfur var sonur Daða, b. á Setbergi,
bróður Kristjáns, afa Sigfúsar Daða-
sonar skálds. Daði var sonur Daníels,
b. í Litla-Langadal, bróður Þorbjargar,
langömmu Guðbergs, föður Þóris rit-
höfundar. Daníel var sonur Sigurðar,
b. í Litla-Langadal á Skógarströnd Sig-
urðssonar, skálds og hreppstjóra þar
Daðasonar, b. á Leiti á Skógarströnd
Hannessonar. Móðir Sigurðar Sigurðs-
sonar var Þorbjörg Sigurðardóttir, b. á
Setbergi Vigfússonar. Bróðir Þorbjarg-
ar var Sigurður stúdent, langafi Elíasar,
afa Elíasar Snælands Jónssonar, rithöf-
undar og fyrrv. ritstjóra. Sigurður var
einnig langafi Steinunnar, ömmu Þor-
steins Jónssonar ættfræðings. Móðir
Daníels var Ingibjörg Daðadóttir, systir
Sigurðar skálds.
Móðir Ingólfs var María, en hún
varð hundrað og sex ára. María var
systir skáldkvennanna Herdísar og
Ólínu. María var dóttir Andrésar, for-
manns í Skáleyjum Andréssonar, frá
Hellissandi Björnssonar. Móðir Andr-
ésar formanns var Guðrún Einars-
dóttir, systir Þóru, móður Matthías-
ar Jochumssonar skálds, og systir séra
Guðmundar á Kvennabrekku þar sem
María ólst upp, föður Theodóru Thor-
oddsen skáldkonu, ömmu Dags Sig-
urðarsonar skálds. Önnur dóttir Guð-
mundar og uppeldissystir Maríu var
Ásthildur, kona Péturs Jens Thorsteins-
sonar, kaupmanns og útgerðarmanns
á Bíldudal, móðir Muggs og Katrínar
Thorsteinsson Briem, móður Péturs
sendiherra. Móðir Maríu var Sesselja
Jónsdóttir frá Djúpadal, systir Sigríð-
ar, móður Björns Jónssonar, ráðherra
og ritstjóra, föður Sveins Björnssonar
forseta, og Ólafs, stofnanda og ritstjóra
Morgunblaðsins.
Lilja var dóttir Halldórs, b. í Mið-
hrauni í Miklaholtshreppi, bróð-
ur Kristjáns, föður Stefáns, föður Al-
exanders alþm. og Guðbjarts, föður
Gunnars, fyrrv. formanns Stéttarsam-
bands bænda. Halldór var sonur Guð-
mundar, b. í Miðhrauni í Miklaholts-
hreppi, bróður Guðnýjar, langömmu
Theodóru, ömmu Helga Ólafssonar
stórmeistara. Systir Guðmundar var
Elín, langamma Helgu, móður Svavars
Gests og ömmu Vilborgar Harðardótt-
ur blaðamanns, móður Marðar Árna-
sonar alþm. Þá var Elín langamma
Þórðar Kárasonar fræðimanns. Bróð-
ir Guðmundar var Jóhannes, langafi
Guðmundar J. verkalýðsleiðtoga. Guð-
mundur var sonur Þórðar, ættföður
Hjarðarfellsættar Jónssonar.
Móðir Lilju var Elín Bárðardóttir, b.
á Flesjustöðum í Kolbeinsstaðahreppi
Sigurðssonar og Solveigar, systur
Ragnheiðar, ömmu Jóhanns Gunnars
Sigurðssonar skálds og Guðríðar,
langömmu Björgvins, föður Ellerts B.
Schram, fyrrv. ritstjóra DV, forseta ÍSÍ
og alþm. Solveig var dóttir Árna, b. á
Borg Jónssonar, og Guðríðar Kársdótt-
ur, b. í Munaðarnesi Ólafssonar, bróður
Vigdísar, langömmu Þorbjargar, móð-
ur Ólafs Thors forsætisráðherra.
Útför Kristínar Laufeyjar fer fram
frá Dómkirkjunni, föstudaginn 28.1. kl.
13.00.
34 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
Merkir Íslendingar
Valgeir Helgason fæddist á Litla-
Sandi á Hvalfjarðarströnd,
sonur Helga Jónssonar,
bónda á Þyrli á Hval-
fjarðarströnd, og f.k.h.,
Guðleifar Jónsdóttur frá
Svarfhóli í Svínadal.
Valgeir lauk stúd-
entsprófum í Reykjavík
1925, guðfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1931 og
kennaraprófi sama ár. Þá
lauk hann einnig sund-
kennaraprófi.
Valgeir var kennari á Flat-
eyri, í Grindavík, Reykjavík og í
Skaftártungu. Hann var settur prest-
ur í Stóra-Núpsprestakalli 1932
og vígður í Þykkvabæjar-
klaustursprestakalli 1933.
Hann sat í Hlíð í Skaftár-
tungu í tvö ár, í Hrífunesi
1935-1942, í Ásum í tvö
ár, í Hemru 1944-1952 og
síðan eftir það í Ásum.
Hann varð prófastur í
1963. Valgeir var formað-
ur Félags áfengisvarnar-
nefnda í sýslunni frá 1961.
Prentaðar hafa verið eft-
ir Valgeir hugvekjur í Nýjum
hugvekjum og í Vestur-Skaft-
fellskum ljóðum frá 1962 er að
finna níu ljóð eftir hann.
Valgeir Helgason
prófastur og kennari f. 29.1. 1903, d. 23.1. 1986
Sigurjón fæddist í Reykjavík og ólst upp í Breiðholtinu. Hann stundaði nám á listabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og í Marg-
miðlunarskólanum.
Áður en Sigurjón snéri sér alfar-
ið að tónlistinni, starfaði hann m.a.
við snittugerð og veisluþjónustu hjá
föður sínum í Stúdíóbrauði, og hjá
stjúpföður sínum í Verkveri.
Sigurjón hóf ungur að leika á gít-
ar og semja lög. Hann var trommu-
leikari og lagahöfundur hljómsveit-
arinnar In Bloom. Hljómsveitin gaf
út breiðskífuna In Bloom, 1994, og
fór til Bandaríkjanna um það leyti en
hljómsveitin átti titillag sjónvarps-
myndarinnar Missing Brendan.
Sigurjón varð síðar gítarleikari og
aðalsöngvari hljómsveitarinnar Fla-
vors sem gaf út breiðskífuna Go Your
Own Way, 2004. Hann samdi öll lög-
in á plötunni og flesta textana. Hann
gaf síðan út sólóplötuna Sjonni Brink
fyrir jólin 2009 með lögum eftir sig
sjálfan og Gumma Jóns í Sálinni.
Auk þess samdi hann fjölda laga fyrir
aðra listamenn.
Þá starfaði Sigurjón með hljóm-
sveitinni Rokk undanfarin misseri,
en þeir gáfu út lagið Love is You, eftir
Pálma Sigurhjartarson, gefið út í til-
efni þess að 70 ár voru liðin frá fæð-
ingu Johns Lennons.
Sigurjón tók þátt í uppsetning-
um fjölmargra leikverka og tónleika.
Má þar nefna Le Sing, á Broadway,
sem hann sýndi í tæp níu ár, Cuck-
oos Cabaret, Footloose og Woyzek í
Borgarleikhúsinu. Hann var einn af
stofnendum leikhópsins Vesturports
og samdi m.a. tónlistina við leikrit-
ið Brim sem Vesturport setti upp.
Þá setti hann upp tónleikinn Bítl í
Loftkastalanum, árið 2005, ásamt
Jóhannesi Ásbjörnssyni, Hilmi Snæ
Guðnasyni og Pálma Sigurhjartar-
syni.
Sigurjón tók þátt í afmælistón-
leikum Sgt. Peppers Bítlaplötunnar
í Háskólabíói, John Lennon tribute-
tónleikum, Eagles tribute-tónleik-
um og minningartónleikum um Vil-
hjálm Vilhjálmsson. Að undanförnu
lék Sigurjón hlutverk Ritchie Valens
í söngleiknum Buddy Holly og söng
þar hið ógleymanlega La Bamba.
Undanfarið hefur lagið „Okkar
ástarvor“, sem Sigurjón flutti ásamt
Björgvini Halldórssyni á nýútkom-
inni dúettaplötu Björgvins, notið
mikilla vinsælda.
Sigurjón tók þrisvar þátt í úr-
slitum Söngvakeppni Sjónvarpsins
og var í úrslitum í fyrra með lagið
„Waterslide“. Til stóð að hann tæki
þátt í keppninni í ár, 29.1. nk., með
eigið lag við texta eiginkonu sinnar,
Þórunnar Ernu Clausen. Vinir hans
munu flytja lagið fyrir hann.
Sigurjón var áhugamaður um
hestamennsku, var félagi í hesta-
mannafélaginu Gusti, og lék og
keppti í golfi.
Fjölskylda
Sigurjón hóf sambúð árið 2002 með
eiginkonu sinni, Þórunni Ernu Clau-
sen, f. 12.9. 1975, leikkonu. Þau giftu
sig þann 15. 11. 2008. Hún er dóttir
Hauks Clausen, f. 8.11. 1928, d. 1.5.
2003, og k.h., Elínar Hrefnu Thorar-
ensen, f. 17.2. 1944.
Synir Sigurjóns og Þórunnar Ernu
eru Haukur Örn Brink, f. 3.5. 2005; Ró-
bert Hrafn Brink, f. 20.4. 2008.
Sonur Sigurjóns frá fyrra sam-
bandi er Aron Brink, f. 15.2. 1995.
Dóttir Sigurjóns frá fyrra sam-
bandi er Kristín María Brink, f. 6.7.
2000.
Bróðir Sigurjóns, sammæðra, er
Árni Filippusson, f. 12.1. 1982.
Stjúpsystir Sigurjóns, dóttir Fil-
ippusar Gunnars, er Nína Dögg Fil-
ippusdóttir, f. 25.2. 1974.
Systkini Sigurjóns, samfeðra, eru
Róbert Aron Róbertsson, f. 25.12. 1978,
Rannveig Hrönn Brink, f. 7.11. 1979,
og Magnús Þór Brink, f. 17.1. 1987.
Foreldrar Sigurjóns eru Róbert
Magnús Brink, f. 27.11. 1955, og Bjar-
ney Sigríður Sigurjónsdóttir, f. 17.10.
1955.
Eiginkona Róberts Magnúsar er
Þóranna Bjarnadóttir, f. 15.9. 1955.
Eiginmaður Bjarneyjar Sigríðar er
Filippus Gunnar Árnason, f. 14.7. 1956.
Sigurjón var jarðsunginn frá Graf-
arvogskirkju sl. fimmtudag. Blóm og
kransar voru afþakkaðir en athygli
er vakin á Áfram – hvatningarsjóði
barna Sigurjóns Brink. Sjóðurinn hef-
ur það markmið að hvetja og styðja
börn hans í framtíðinni.
Reikingsnúmer sjóðsins er 0546-
14-401730 og kennitala 251278-4909.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 8284 / 551 3485
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947
Sigurjón Brink
Tónlistarmaður f. 29.8. 1974, d. 17.1. 2011
Kristín L. Ingólfsdóttir
Húsmóðir f. 2.7. 1910, d. 22.1. 2011
Andlát
Andlát