Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 36
36 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 28.–30. janúar 2011 Helgarblað L itlu mátti muna að Christopher Wilder kæmist ekki til manns og má til sanns vegar færa að margir hefðu talið það bless- un hefði hann geispað golunni fljót- lega eftir fæðingu eins og allt leit út fyr- ir þegar hann fæddist 13. mars 1945 í Ástralíu. En anginn, sonur bandarísks hermanns og ástralskrar konu, hafði það af og engu líkara en hann væri í bernsku verndaður af æðri máttarvöld- um því hann slapp einnig með skrekk- inn um tveggja ára aldur þegar litlu mátti muna að hann drukknaði í sund- laug. Það varð ljóst fyrir tuttugu ára aldur hvaða stefnu líf hans tæki því á átjánda eða nítjánda ári játaði hann á sig aðild að hópnauðgun á strönd í Sydney og fékk skilorðsbundinn dóm og var gert að gangast undir raflostsmeðferð sem hugsanlega jók ofbeldishneigð hans sem var að stærstum hluta af kynferð- islegum toga. Ein bók virtist hafa ver- ið honum sérstaklega hugleikin, The Collector, Safnarinn, eftir John Fowles. Bókin fjallar um karlmann sem heldur konu fanginni í kjallara hans þar til hún deyr og kunni Wilder skáldsöguna nán- ast utanbókar. Afbrot í Bandaríkjunum Árið 1968 gekk hann í hjónaband en hin nýbakaða brúður lét sig hverfa eftir eina viku og Wilder tók þá ákvörðun að flytjast búferlum til Bandaríkjanna þar sem hann settist að á Boynton-strönd í Flórída. Þar tókst honum að efnast eitt- hvað á fasteignaviðskiptum auk þess sem hann fékk áhuga á ljósmyndun. En litlar breytingar var að sjá hvað varðaði ofbeldishneigð hans og á ár- unum 1971 til 1975 var hann fasta- gestur í dómsölum vegna afbrota sem öll tengdust vafasamri kynferðislegri hegðun. Að lokum fór svo að Wilder nauðgaði ungri konu sem hann hafði lokkað inn í bíl sinn undir því yfirskyni að hann hygðist ljósmynda hana vegna fyrirsætusamnings. Þetta verklag átti eftir að einkenna nauðgana- og morð- feril hans síðar. En örlögin áttu eftir að haga því þannig að Wilder var aldrei sakfelldur fyrir glæpi sína. Wilder tengdur við morð Á meðan hann var í heimsókn hjá for- eldrum sínum í Ástralíu árið 1982 var Wilder ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur fimmtán ára stúlkum sem hann hafði neytt til að sitja naktar fyrir. Foreldrar hans borguðu tryggingu fyrir og hann fékk heimild til að fara til Bandaríkjanna og vera þar uns réttar- höld í málinu hæfust en þeim var ítrek- að slegið á frest. Að lokum fór þó svo að ákveðið var að réttarhöldin hæfust í apríl 1984, en þegar sá dagur rann upp var Wilder liðið lík, en nánar verður vik- ið að dauðdaga hans síðar. Fyrsta morðið sem Wilder var eign- að var morðið á fyrirsætunni Rosario Gonzalez. Hún sást síðast 26. febrúar 1984 á Miami Grand Prix-kappaksturs- keppninni þar sem hún hafði verið ráð- in til starfa og Wilder keppti. Skömmu síðar, 5. mars, hvarf Eliza- beth Kenyon, fyrrverandi kærasta Wilders, sem hafði komist í úrslit í Ung- frú Miami-fegurðarsamkeppninni. Lík hvorugrar stúlkunnar fannst nokkurn tíma. Vegna upplýsinga frá einkaspæj- ara á vegum foreldra Elizabeth tókst lögreglu að tengja Wilder við hvarf stúlknanna, en þann 15. mars tók Wild- er til fótanna. Morð á morð ofan En því fór fjarri að Christopher Wilder hygðist taka því rólega og 18. mars lokk- aði hann Terry Ferguson frá verslunar- miðstöð við Satellite-strönd og myrti hana. Lík hennar fannst nokkrum dög- um síðar. Næsta fórnalamb Wilders var nítján ára stúdína við ríkisháskóla Flór- ída. Wilder nam hana á brott úr Talla- hassee-verslunarmiðstöðinni í Flórída 20. mars. Þegar hún neitaði að leyfa honum að ljósmynda sig vafði hann hana í teppi, skellti henni í farangurs- geymslu bifreiðar sinnar og fór með hana til Bainbridge í Georgíu. Í Bain- bridge fór hann með hana á herbergi á vegahóteli og nauðgaði henni. Síðan notaði hann ofurlím og hárblásara til að líma aftur á henni augnlokin og gaf henni síðan raflost. Stúlkan beitti kjafti og klóm gegn Wilder sem ákvað að leggja á flótta þeg- ar henni tókst að læsa sig inni á bað- herbergi og barði þar veggi í skelfingu. Wilder ók á brott með persónulegar eigur hennar en henni tókst að fanga athygli annarra gesta og eiganda vega- gistihússins. Wilder verður óstöðvandi Daginn eftir varð Terry Walden, 24 ára kona frá Beaumont í Texas, þess vafa- sama heiðurs aðnjótandi að fá tilboð um að sitja fyrir hjá Wilder. Terry hafn- aði tilboðinu en hvarf tveimur dögum síðar. Lík hennar fannst þann 26. mars og sama dag fannst lík hinnar 21 árs Suzanne Logan í Oklahoma-borg. Suz- anne hafði horfið daginn áður og ljóst var á ummerkjum að henni hafði verið nauðgað og hún sætt pyntingum áður en hún var stungin til bana. Þegar þar var komið sögu var ljóst að Wilder var kominn á bragðið, því þrem- ur dögum síðar voru örlög Sheryl Bona- ventura ráðin. Sheryl og Wilder sáust saman á veitingastað í Silverton í Colo- rado 29. mars og sögðu þau starfsfólki staðarins að þau væru á leið til Las Ve- gas. Sheryl komst aldrei til borgar ljós- anna því undir lok mars banaði Wilder henni í Utah, en lík hennar fannst ekki fyrr en rúmum mánuði síðar. Wilder komst hins vegar alla leið til Las Vegas, til allrar ólukku fyrir Mi- chelle Korfman, 17 ára upprennandi fyrirsætu, sem hvarf í Las Vegas 1. apríl. Lík hennar fannst 13. maí. Wilder fær aðstoðarmanneskju Í grennd við Torrance í Kaliforníu komst Wilder í kynni við sextán ára stúlku, Tinu Mariu Risico, sem sam- þykkti að sitja fyrir hjá honum. Í kjöl- farið nam Wilder hana á brott og fór til El Centro þar sem hún fékk að finna til tevatnsins. Wilder komst að þeirri niðurstöðu að hún gæti orðið viljugt verkfæri í höndum hans og veitt honum aðstoð við að lokka til sín fleiri fórnarlömb. Þetta varð Tinu til lífs og hún komst lif- andi frá kynnum sínum við Wilder. En ekki fyrr en eftir að hún hafði farið með honum til Taos í Nýju-Mexíkó og þaðan til Gary í Indíana þar sem hún þurfti að lokka sextán ára stúlku, Dawnette Wilt, í gildru Wilders. Á meðan Tina ók sem leið lá til New York nauðgaði Wilder Dawnette ítrekað í bílnum. Í grennd við Rochester var Wilder búinn að fá nóg af nýjustu bráð sinni og fór með Dawnette inn í skóglendi þar sem hann reyndi að kæfa hana áður en hann stakk hana tvisvar með hníf og skildi síðan við hana. Dawnette lifði af og upplýsti lögregluna um að Wild- er væri á leið til Kanada. Enn var þætti Tinu ekki lokið. Wilder handsamaður Wilder var nú sá glæpamaður sem al- ríkislögregla Banda- ríkjanna, FBI, vildi hvað heitast hafa hendur í hári á og var þess skammt að bíða að Wilder yrði stöðv- aður. Á leið sinni til Kan- ada komu Wilder og Risico við í Victor þar sem Risico lokkaði Beth Dodge, 33 ára, inn í bíl þeirra skötu- hjúanna. Wilder ók bíl þeirra en Risico fylgdi á eftir í bifreið Beth. Eftir skamma ökuferð skaut Wilder Beth til bana og fleygði líki hennar í malargryfju og héldu Risico og Wilder síðan ferð sinni áfram á Trans-Am-bíl Beth. Var áfangastaður þeirra Logan- flugvöllurinn í Boston. Þar skildi leiðir Risico og Wilders og hann keypti handa henni flugmiða til Los Angeles. Þann 13. apríl gerði Wilder mis- heppnaða tilraun til að ræna ungri konu í Beverly í Massachusetts, en lýs- ingu á flóttabifreið hans hafði þá verið dreift til allra löggæslumanna. Þegar Wilder stoppaði á bensínstöð í Cole- brook í Nýja-Hampshire ráku tveir lög- reglumenn, Leo Jellison og Wayne Fortier, augun í hann. Þegar þeir nálguðust Wilder hljóp hann að bífreið sinni og hugð- ist grípa til vopna en þeir urðu fyrri til. Jelli son náði að taka utan um Wilder aftan frá og hefta hand- leggi hans, en í ryskingunum fór ekki betur en svo að Wilder skaut sjálfan sig í bringuna og fór kúlan í gegnum hann og í Jellison. Christopher Wilder var allur, en Jelli son alvarlega særður. Jellison náði sér að fullu og snéri síðar til starfa. Tengdur við nokkur óupplýst morð Wilder yfirgaf ekki jarðlífið slyppur og snauður, ef hægt er að taka þannig til orða. Þegar lík hans var brennt í Flórída skildi hann eftir persónulegar eignir að andvirði tveggja milljóna bandaríkja- dala. Auk þeirra átta kvenna sem vitað er að hann myrti frá febrúar til apríl 1984 hefur hann verið nefndur til sögunnar í fjölda annarra mála sem varða morð og hvarf kvenna og í tengslum við líkams- leifar kvenna sem fundust á sömu slóð- um og hann hélt til á þeim tíma. Einnig hefur Christopher Wilder verið bendl- aður við óupplýst morð sem kennd eru við Wanda-strönd í Ástralíu. Í Bandaríkjunum báru tvær stúlkur kennsl á Wilder af ljósmynd og sögðu hann líkjast manni sem neyddi þær til kynferðisathafna í skóglendi í grennd við Boynton-strönd. Í Ástralíu fundust tvær konur myrtar, árið 1965, og höfðu síðast sést í fylgd karlmanns sem svip- aði til Wilders í útliti. Árið 1981 voru tvær táningsstúlk- ur numdar á brott í Lee-sýslu í Flór- ída. Lík annarrar þeirra, Mary Hare, fannst síðar og hafði hún verið stungin til bana. Lík hinnar, Mary Ortiz, fannst aldrei. Árið 1982 fundust beinagrindur óþekktra kvenna grafnar skammt frá landareign í eigu Wilders í Loxahatchee í Flórída. Svo má nefna Tammi Leppert, tán- ingsstúlku sem var numin á brott á Merritt-eyju í júlí 1983, Melody Gay, sem hvarf í Collier-sýslu í Flórída í mars 1984 og fannst liðið lík þremur dögum síðar og Colleen Osborne sem hvarf úr svefnherbergi sínu í Daytona í mars 1984. n Ef Christopher Wilder hefði dáið við fæðingu hefði fjölda ungra kvenna orðið lengra lífs auðið n Wilder skildi eftir sig slóð morða, misþyrminga og nauðgana n Hann lokkaði stúlkur til sín með fyrirheitum um fyrirsætuferil Morðóði ljósMyndarinn Christopher Wilder Þrátt fyrir að hafa myrt fjölda ungra kvenna kom hann aldrei fyrir dóm vegna þeirra glæpa. Fórnarlömb Wilders Sumar kvennanna féllu fyrir fyrirheitum um fyrirsætustörf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.