Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 4
Eignarhaldsfélagið Fengur, móður- félag flugfélaganna Iceland Express og Astreus, fékk nærri 3,6 milljarða króna að láni frá móðurfélagi sínu í Lúxemborg, Nupur Holding. Pálmi Haraldsson fjárfestir er eigandi Ice- land Express og Astreus í gegnum Nupur Holding. Þetta kemur fram í ársreikningi Eignarhaldsfélagsins Fengs fyrir árið sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra. Félagið skilaði nærri 590 milljóna króna hagnaði árið 2009. Viðskipta- blaðið greindi fyrst fjölmiðla frá árs- reikningnum á fimmtudaginn. Þetta þýðir í reynd að Pálmi, sem á Nupur Holding þar sem hann er eigandi Iceland Express og Astreus, á annað hvort fleiri milljarða króna inni á reikningi Nupur í Lúxem- borg eða að Nupur hefur getað tek- ið lán fyrir láninu til Fengs. Lögheim- ili Pálma í dag er skráð í Lúxemborg en hann flutti lögheimili sitt þangað í fyrra. Sagðist ekki eiga falda sjóði Pálmi hefur hins vegar alltaf þvertek- ið fyrir að eiga falda sjóði. Í viðtali við DV í maí í fyrra sagði Pálmi til dæmis: „Ég á enga falda peninga hvorki hér né annars staðar.“ Tilefni þessarar spurningar til Pálma var sú kenning að slitastjórn Glitnis ætlaði að höfða mál gegn Pálma, og öðrum meðlim- um í Glitnisklíkunni svokölluðu, í New York í Bandaríkjunum, vegna þess að auðveldara væri að fá upp- lýsingar um og jafnvel sækja fé í falda sjóði þeirra þaðan en frá Íslandi. Þegar Pálmi var spurður að því í DV í fyrra hvar hann hefði fengið þær 500 milljónir króna sem hann greiddi slitastjórn Glitnis til að koma í veg fyrir að eignir hans, meðal ann- ars Iceland Express, yrðu kyrrsett- ar sagðist Pálmi hafa tekið lán fyr- ir greiðslunni. „Ég fékk bara lán fyrir þessu. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði Pálmi í samtali við blaðið. Pálmi vildi hins vegar ekki greina frá því hvaðan lánið hefði komið. Tók sér milljarða í arð Arðgreiðslur til félaga í Lúxemborg sem eru í eigu Pálma hafa verið um- talsverðar síðustu ár. Pálmi greiddi sér meðal annars 4,4 milljarða króna í arð út úr eignarhaldsfélagi sínu Fons árið 2007 vegna meints hagn- aðar félagsins árið 2006. Sú greiðsla rann til móðurfélags Fons, Matthew Holding S.A. í Lúxemborg. Lands- banki Íslands lánaði Fons fyrir arð- greiðslunni. Skiptastjóri Fons, sem varð gjaldþrota eftir bankahrunið haustið 2008, vill rifta arðgreiðslunni og hefur höfðað dómsmál til þess. Sú arðgreiðsla var að hluta til til- komin vegna eignarhluta Fons í verslanakeðjunni Iceland en félag Pálma átti 25 prósent í henni. Árið 2007 var greint frá því í fjölmiðlum að heildararður til Fons út af hagn- aði Iceland árið 2006 hafi numið 11,3 milljörðum króna. Svo virðist sem að minnsta kosti 4,4 milljarðar af þess- ari upphæð hafi runnið til móðurfé- lags Fons. Fons seldi síðar eignarhlut sinn í Iceland-keðjunni með 75 millj- óna króna hagnaði. Pálmi segir aðspurður í símtali frá Lundúnum að þessi 4,4 milljarða arðgreiðsla sé sú eina sem hann hafi fengið á árunum fyrir hrun. „Ég nýt ennþá lánstrausts“ Þegar Pálmi er spurður að því hvort hann hafi átt umrædda 3,6 milljarða í reiðufé í Lúxemborg eða tekið lán fyrir láninu frá Nupur til Fengs neit- ar hann að svara. „Það kemur þér bara ekkert við hvernig ég fjármagna mín félög,“ segir Pálmi. Það eina sem Pálmi vill segja um lánveitinguna frá Nupur til Fengs er að hún sýni að hann njóti enn lánstrausts. „Ég nýt ennþá lánstrausts,“ segir Pálmi. Pálmi neitar einnig að svara því nú hvort greiðslan til skilanefndar Glitn- is hafi verið tekin að láni frá Nupur. „Ég er búinn að svara þeirri spurn- ingu í samtali við blaðið og ykkur kemur það ekki við.“ Þetta svar Pálma getur þýtt að Nupur í Lúxemborg, félag Pálma, njóti enn lánstrausts og hafi því getað fengið lán sem síðar var lánað áfram til Fengs. En svarið getur líka þýtt að Fengur, annað félag Pálma, njóti enn lánstrausts og að lánveitingin frá Nupur sanni það. Líklegt verður að teljast að fyrra svarið sé það sem Pálmi var að meina þar sem seinna svarið fæli það í sér að Pálmi væri að segja að hann nyti enn lánstrausts hjá sjálfum sér. Ef fyrra svarið á við, og það er sannleikanum samkvæmt að Nupur hafi tekið lán fyrir láninu til Fengs, er hins vegar ekki þar með sagt að lánið til Nupur hafi ekki getað komið frá öðru félagi í eigu Pálma, til dæmis Matthew Holding sem tók við arðgreiðslunni út úr Fons fyrir rekstr- arárið 2006. Annar möguleiki er svo að lánið sé komið frá fjármálafyrir- tæki. Því er ómögulegt að fullyrða nokkuð um það hvaðan fjármunirn- ir sem Fengur fékk að láni frá Nupur séu komnir en ljóst er að Fengur fékk umrætt lán frá móðurfélagi sínu. 4 | Fréttir 28.–30. janúar 2011 Helgarblað Eignarhaldsfélagið Nupur skráð á fjögur Tortólafélög: Fært frá Kaupþingi í Lúx Eignarhaldsfélag Pálma Haraldsson- ar, Nupur Holding S.A., var skráð hjá Kaupþingi í Lúxemborg árið 2007. Í dag er félagið skráð í bankanum Banque Nagelmackers í götunni Boulevard de la Pétrusse, nr. 124. Bankinn sérhæfir sig í aflandsvið- skiptum. Þetta kemur fram í gögnum frá Lögbirtingablaðinu í Lúxemborg sem DV hefur undir höndum. Þrjú Tortólafélög, með heimil- isfesti á Bresku Jómfrúaeyjum, eru skráð sem umsjónarmenn Nupur í gögnunum frá árinu 2007. Félögin heita Waverton Group Limited, Bire- field Holdings Limited og Starbrook International Limited. Í gögnun- um frá árinu 2011 er hins vegar ekki minnst á Kaupþing í Lúxemborg, nú Banque Havilland, eða umrædd Tortólafélög. Einhver annar fyrir- svarsmaður er því væntanlega kom- inn með umsjón yfir félaginu og það er ekki lengur skráð hjá Kaupþingi heldur hjá Banque Nagelmackers. Hugsanlegt er að færslan á eignar- haldsfélaginu tengist eigendaskipt- unum á Kaupþingi í Lúx en bank- inn er sem kunnugt er ekki lengur í eigu íslenskra aðila heldur bresku Rowlands-fjölskyldunnar. Pálmi, og aðrir tengdir Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni, átti í góðum samskiptum við stjórnendur Kaupþings á árunum fyrir hrun og er hugsanlegt að þau tengsl hafi ýtt undir viðskipti þeirra við bankann. Ekki er vitað hvaðan nafngiftin á eignarhaldsfélaginu Nupur kemur. Hins vegar hefur Pálmi rætt um það í viðtali við DV að hann hafi verið sendur á heimavistarskólann á Núpi í Dýrafirði þegar hann var ungling- ur og að það hefði hjálpað honum mikið. „Ég hefði eflaust farið út af sporinu ef ég hefði ekki verið sendur þangað,“ sagði Pálmi í viðtali við DV í fyrra. ingi@dv.is Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? EURO Panelofn 50x120 cm 12.390 Hágæða ofnar á áður óþekktu verði MARGAR STÆRÐIR EURO handklæðaofn beinn hvítur 50x80 cm 7.290 EURO handklæðaofn kúptur króm 50x80 cm 13.490 VOTTUÐ GÆÐAVARA KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum - Flúðum MARGAR STÆRÐIR „Það kemur þér bara ekkert við hvernig ég fjármagna mín félög. n Móðurfélag Iceland Express fékk 3,6 milljarða lán frá Lúxemborg 2009 n Pálmi Haraldsson er eigandi Iceland Express n Lánið kom frá eina hluthafa móðurfélags Iceland Express n Neitar að svara því hvaðan lánið er komið Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Ég nýt ennþá lánstrausts“ Vill ekki svara Pálmi neitar að svara því hvernig hann fjármagnaði tæplega 3,6 milljarða króna lánveitingu frá félagi sem hann á í Lúxemborg til Fengs, móðurfélags Iceland Express. Hann segir þó að viðskiptin sýni að hann njóti ennþá lánstrausts. Eigandi Remax ákærður: „Ég er saklaus“ Þórarinn Arnar Sævarsson, einn af eigendum Remax-fasteigna- sölunnar sem hefur verið ákærð- ur fyrir skattsvik, segist í hjarta sínu vita að hann sé saklaus. DV greindi frá því á miðvikudag að Þórarinn hefði verið ákærður fyrir að koma sér undan að greiða um tólf milljónir króna í skatt. „Ég er saklaus,“ segir hann í samtali við DV. Þórarinn er ósáttur við að ákæra á hendur honum hafi ver- ið gefin út áður en mál hans fór sína leið í kerfinu. Ákæran snúist um túlk- un á því hvenær menn teljist vera í atvinnu- starfsemi. Ekkert sé í lögunum um það. Lögmaður hans hefur farið fram á að málinu verði vísað frá héraðsdómi. Þórarinn segir ákæruna á hendur sér ekki aðeins vera ranga heldur ferlega ósanngjarna. Í yfir- lýsingu sem Sigurjón Högnason hjá KMPG endurskoðun sendi skattrannsóknarstjóra þegar málið kom upp fyrst, er afstaða Þórar- ins reifuð. Þar segir að Þórarinn hafi talið hverja krónu rétt fram á árunum sem um ræðir. Engin bókhaldsrannsókn hafi farið fram í málinu, enda engu bókhaldi að dreifa þar sem Þórarinn hafi ekki með höndum bókhaldssylda starf- semi á umræddum árum. „Fjarri lagi er að Þórarinn kunni að hafa bakað sér refsi- ábyrgð með því að oftelja tekj- ur sínar fyrir misskilning, eins og raun ber vitni. Ágreiningsefni málsins er skilningur á hinu ólög- ákveðna hugtaki atvinnustarfsemi og þýðingu þess í skattarétti. Á þann ágreining kann að reyna við meðferð ríkisskattstjóra á skatta- hlið málsins. Ágreiningurinn getur hins vegar ekki orðið grundvöllur refsimeðferðar.“ valgeir@dv.is Þórarinn Arnar Nupur hjá Kaupþingi Eignarhaldsfé- lagið var skráð hjá Kaupþingi í Lúx á sínum tíma. Nú er félagið skráð hjá banka sem sérhæfir sig í aflandsviðskiptum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.