Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 46
46 | Sport 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
Búlgarski framherjinn Dimit-
ar Berbatov hefur farið á kostum í
ensku úrvalsdeildinni á yfirstand-
andi tímabili. Hann er markahæsti
leikmaður deildarinnar með nítj-
án mörk og eru menn loks hætt-
ir að sjá á eftir þeim 30,75 milljón-
um punda sem Manchester United
pungaði út fyrir hann. Berbatov er
skrautfugl mikill sem teiknar í frí-
stundum og á að baki langan og
merkilegan feril. Hann var kom-
inn í aðallið stærsta liðs Búlgaríu
aðeins átján ára, en þar var hann
gerður að blóraböggli hvað varð-
aði titlaleysi liðsins. Honum var
meðal annars rænt á unlingsárum
af stórhættulegum mafíuforingja
í heimalandinu, en Búlgarar hafa
ekki alltaf tekið honum vel. Hann
er hættur að leika með landsliðinu
vegna sífelldra árása blaða og sjón-
varpsstöðva í sinn garð. Þrátt fyrir
að vera oft einfaldlega hataður sem
landsliðsmaður og fyrirliði búlg-
arska landsliðsins hefur hann ver-
ið kosinn besti knattspyrnumaður
landsins fjórum sinnum í röð og sjö
sinnum alls. „Þið verðið að hætta
að kjósa mig,“ sagði Berbatov þegar
hann var kosinn nú í sjöunda skipt-
ið í byrjun árs.
Vildi feta í fótspor föður síns
Dimitar Ivanov Berbatov fæddist
í Blagoevgrad í Búlgaríu 30. jan-
úar 1981 og verður því þrítugur á
sunnudaginn. Knattspyrnuferill
hans hófst í hverfisliðinu Pirin
Blagoevgrad þar sem hann var allt
til ársins 1998. Hæfileikar hans
höfðu ekki farið fram hjá neinum
og fékk hann boð um að koma og
reyna sig hjá stærsta liði Búlgar-
íu, CSKA Sofia. Aðeins sautján ára
gamall hélt hann til höfuðborgar-
innar með þann draum að feta í fót-
spor föður síns sem lék sem væng-
maður og síðar varnarmaður hjá
CSKA. „Pabbi minn er mín fyrir-
mynd. Hann er hetjan mín og besti
vinur. Alla mína ævi hef ég viljað
gera hann stoltan,“ sagði Berbatov í
viðtali við MUTV-sjónvarpsstöðina
fyrr í mánuðinum.
Berbatov lék sinn fyrsta leik með
CSKA aðeins átján ára en sama
tímabil vann liðið búlgörsku bikar-
keppnina. Á sínu öðru ári sló Ber-
batov algjörlega í gegn þegar hann
skoraði fjórtán mörk í tuttugu og sjö
leikjum. Þrátt fyrir þennan árang-
ur var Berbatov gerður að blóra-
böggli í sjaldgæfu titlaleysi CSKA
en stuðningsmenn liðsins voru því
vanir að fagna meistaratitli nánast
á hverju ári. Þetta var ekki í fyrsta
skiptið sem Berbatov þurfti að taka
á sig mikinn þrýsting frá stuðnings-
mönnum.
Mannrán og þýska deildin
Vegna stöðu sinnar sem blórabögg-
uls var ávallt baulað duglega á Ber-
batov. Baulið breyttist þó í morð-
hótanir eftir nágrannaslag gegn
Levski Sofia árið 2000 þar sem
framherjinn knái fór illa með nokk-
ur góð færi. Það var svo ekki til að
bæta stöðuna þegar Berbatov var
rænt af skósveinum mafíuforingj-
ans Georgi Illiev sem vildi að Ber-
batov skrifaði undir samning við
sitt lið, Levski Kjustendil. Það gerði
hann ekki og var Berbatov hepp-
inn að sleppa ómeiddur úr þeim
aðstæðum. Skiljanlega var Berbat-
ov orðinn vel þreyttur á verunni í
Búlg aríu og fór hann að hugsa sér
til hreyfings.
Berbatov var nærri því farinn
til Lecce sumarið 2000 en hætti
sjálfur við það á síðustu stundu.
Hann ákvað að taka slaginn áfram
í búlgörsku deildinni og skoraði
níu mörk í ellefu leikjum sem var á
endanum farseðill hans burt. Þýska
stórliðið Bayern Leverkusen keypti
hann fyrir 1,3 milljónir evra í byrj-
un janúar 2001 og fékk hann treyju
númer tólf. Hann lék sinn fyrsta
leik fyrir Leverkusen mánuði síð-
ar gegn Köln þegar hann kom inn
á sem varamaður fyrir Ulf Kirsten.
Fyrsta hálfa árið var honum þó ekk-
ert sérstaklega gott. Hann var not-
aður mikið sem varamaður og skor-
aði ekkert mark í þeim sex leikjum
sem hann fékk að spila.
Strax á næsta tímabili var Berb-
atov búinn að tryggja sér sætið sem
aðalframherji liðsins og eyddi hann
fimm árum til viðbótar hjá Leverku-
sen þar sem hann fór meðal annars
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
árið 2002. Þeim leik tapaði þó liðið,
2–1, gegn stjörnum prýddu liði Real
Madrid. Á sex árum hjá Leverkusen
vann Berbatov enga titla.
Reykir og teiknar
Sögu Berbatovs í ensku úrvalsdeild-
inni þekkja flestir. Hann var keypt-
ur til Tottenham þar sem hann lék
í tvö ár við góðan orðstír áður en
hann var fenginn fyrir metfé til
Manchester United sumarið 2008.
Með United vann hann sinn fyrsta
meistaratitil á ferlinum þegar liðið
hampaði Englandsmeistaratitlin-
um þarsíðasta vor. Hæfileikar hans
á knattspyrnuvellinum eru óum-
deildir en það er persónuleiki hans
sem hefur jafnan verið í sviðsljós-
inu. Hann þykir sérstakur karakter
en hann reykir eins og strompur og
teiknar myndir. Hefur hann meðal
annars teiknað myndir af Wayne
Rooney og Darren Fletcher og gefið
þeim þær. „Ég veit ekki hvort þeim
líkaði þær en ég held það,“ sagði
Berbatov um myndirnar.
Hann hefur ávallt verið nokkuð
lokaður og þjáðist af mikilli heim-
þrá fyrstu árin í Þýskalandi. Til allr-
ar hamingju fyrir hann var hann
með gervihnattasjónvarp þannig
að hann gat horft á allar búlgörsku
stöðvarnar. Hann fór lítið út að
skemmta sér með liðsfélögum sín-
um í Þýskalandi þrátt fyrir að vera
þar á sínum bestu árum. Hann
hékk að mestu leyti bara heima og
reykti og teiknaði.
Blóraböggull Búlgaríu
Dimitar Berbatov er markahæsti
leikmaður búlgarska landsliðsins
frá upphafi og, ásamt Hristo Stoich-
kov, talinn sá hæfileikaríkasti í sögu
landsins. Síðustu ár hafa þó ver-
ið landsliðinu slæm. Liðið komst
ekki á HM 2006, EM 2008 eða HM
2010. Hverjum er aðallega kennt
um þetta? Jú, fyrirliðanum Dimitar
Berbatov. Eftir hvern einasta lands-
leik sem hann skorar ekki mark í er
hann tættur í sundur og kallaður
letingi af helstu blöðum landsins.
Hann er jafnan sagður poppstjarna
sem nenni ekki að leggja sig fram.
Eftir harða gagnrýni árið 2008
svaraði Berbatov ásökunum með
löngum pistli en lokaorðin voru
mögnuð: „Ég er hundurinn sem
þið elskið að hata, sökum þess að
ég hef náð svo miklum árangri.“ Á
endanum gafst Berbatov upp og er
hættur að leika með landsliðinu.
Berbatov unir hag sínum ágæt-
lega í Manchester enda orðinn
þrítugur og vanur því að búa ekki
heima. Draumur hans í æsku var að
spila fyrir Newcastle en líklega hef-
ur það eitthvað breyst. Eitt er víst,
Berbatov hefur sjaldan ef aldrei
spilað betur og er kominn vel á
veg með að verða markahæsti leik-
maður ensku úrvalsdeildarinnar.
Búlgarinn er þó mikill liðsmaður
og sagði meðal annars eftir fimm
mörk sín gegn Blackburn seint á
síðasta ári: „Það skiptir engu máli
hvað ég skora mörg mörk á meðan
við vinnum leikina. Það er auðvit-
að gaman fyrir mig að skora en liðið
skiptir öllu máli. Leikmenn vinna
einstaklingsverðlaun sem skipta í
raun engu. Lið vinna titla og þá vilja
allir knattspyrnumenn vinna.“
Milljónirnar
farnar að
skila sér
n Dimitar Berbatov er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni
n Ávallt kallaður letingi en sjálfur sér hann ekki tilganginn í tilgangs-
lausum hlaupum n Var rænt af mafíuforingja á unglingsárum sínum
n Hataður sem landsliðsmaður en alltaf kosinn bestur í Búlgaríu
Markahæstur í
úrvalsdeildinni
Dimitar Berbatov
hefur verið magnaður
á leiktíðinni.
Nían Berbatov lék í treyju númer níu hjá Tottenham og nú hjá United. Treyjunúmer alvöru
markaskorara.
Fullt nafn: Dimitar Ivanov Berbatov
Þjóðerni: Búlgarskur
Fæddur: 30. janúar 1981 (29 ára)
Leikstaða: Framherji
Félög: CSKA Sofia, Bayern Leverkusen,
Tottenham Hotspur, Manchester
United.
Landsleikir: 79 (48 mörk)
Dimitar BerbatovTómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is