Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 42
42 | Lífsstíll Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Blómaval, Á grænni
grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík,
Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækning-
abúðin, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja-
víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek
Vesturlands, Apótek Hafnafjarðar
Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi
apótek um allt land.
Safinn virkar vel á eðlilega
úthreinsun líkamans
Bætir meltinguna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr
líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Velkomin að skoða
www.weleda.is
Weleda vatnslosandi Birkisafi
unninn úr lífrænum
Birkilaufum
Inniheldur engin
gervi-litar eða
rotvarnarefni
Það er minnsta mál að lappa upp
á gömul – eða ný – IKEA-húsgögn.
Á heimasíðunni ThisIsMykea.com
geturðu keypt límmiða til að líma á
ýmis IKEA húsgögn til að breyta út-
liti þeirra. Límmiðarnir virka eins og
hálfgert veggfóður á húsgögnin og
gefa þeim algjörlega breytta mynd.
Meðal þeirra IKEA-húsgagna sem
boðið er upp á límmiða fyrir eru Bill-
y-bókaskápurinn, Malm-kommóða
og Malm-rúm. Panta þarf límmið-
ana frá Bandaríkjunum þannig að
þú þarft að sýna biðlund ákveðir þú
að fara þessa leið við að hressa upp
á húsgögnin.
Gerðu ferðalagið þægilegra
Notaðu tæknina í fríinu:
A
llir helstu og stærstu bíla-
framleiðendur heims hafa
lagt aukna áherslu á þróun
og framleiðslu rafmagns-
bíla. Bílarnir verða samhliða því betri
og ódýrari. Ein helsta hindrun þeirra
sem vilja stíga það skref að fá sér bíl
sem gengur fyrir grænni orku hefur
verið takmarkað framboð á rafmagns-
bílum. Það virðist vera að breytast.
Megacity frá BMW
Nýlega tilkynnti þýski bílaframleiðand-
inn Bayerische Motoren Werke, oftast
skammstafað BMW, að hann hygðist
hefja framleiðslu á rafmagnsbílum árið
2013. Þegar hafa fjögur hundruð millj-
ónir evra verið lagðar í verkefnið, sem
jafngildir um tæpum sextíu og fjórum
milljörðum króna. Rafmagnsbíll fyr-
irtækisins verður framleiddur í sömu
verksmiðju og Model 1- bíll fyrirtækis-
ins og því þarf ekki að byggja sérstaka
verksmiðju undir verkefnið. Bíllinn
hefur hlotið nafnið Megacity.
BMW hefur nú þegar hafið kynn-
ingarstarf vegna Megacity og hefur
gefið talsvert meiri upplýsingar um
verkefnið en við var búist. „Við höfum
aldrei verið jafnopinská um verkefni
sem við höfum í vinnslu. Við finnum
að fólk hungrar í upplýsingar,“ segir
Adrian van Hooydonk, aðalhönn-
uður BMW, í samtali við bandaríska
dagblaðið The New York Times.
Tesla Motors
BMW er aðeins einn af mörgum bíla-
framleiðendum sem hefur hafið inn-
reið sína á rafbílamarkaðinn. Tesla
Motors er hins vegar eini bílafram-
leiðandinn sem sérhæfir sig í fram-
leiðslu rafmagns-sportbíla. Fyrir-
tækið hefur þegar sent frá sér bílinn
Roadster sem hefur slegið í gegn
meðal rafbílaáhugamanna og fleiri.
Fyrirtækið hefur annan bíl í
vinnslu um þessar mundir og er
reiknað með að byrja að senda hann
úr verksmiðju fyrirtækisins á næsta
ári. Sá bíll er talinn valda straum-
hvörfum í þróun rafbíla í heiminum
en hann er fimm sæta fjölskyldu-
sportbíll. Bíllinn hefur hlotið nafnið
Model-S og hefur Tesla Motors sent
frá sér mikið af myndum og kynning-
arefni um bílinn.
Allir vilja vera með
Enn fleiri bílaframleiðendur hafa haf-
ið þróun rafbíla samhliða framleiðslu
hefðbundinna bensín- og dísilbíla.
Sumir hafa ákveðið að fara þá leið að
framleiða tvinn-bíla sem ganga bæði
fyrir rafmagni og öðru eldsneyti.
Toyota hefur verið leiðandi í fram-
leiðslu slíkra bíla og ættu flestir að
kannast við Prius sem gengur fyrir
rafmagni þegar rafgeymirinn er fullur
en bensíni þegar rafmagnið reynist af
skornum skammti.
Mykea-límmiðar
Það er gaman að ferðast og flestir hafa
gaman af því að ferðast til framandi
landa og sjaldnast man maður eftir öllu.
Grunnatriðin, eins og föt, tannbursta
skór og fleira, eru flestir með á hreinu en
fæstum dytti í hug að taka með sér ýmsa
hluti sem DV hefur tekið saman.
Sólar-hleðslutæki getur komið sér
vel ef þú kemst ekki í innstungu. Þú gæt-
ir verið á kaffihúsi á Markúsartorginu í
Feneyjum eða að á rölti á Kínamúrnum
þegar þú þarft að hlaða símann þinn.
Með sólar-hleðslutæki er það ekkert mál
en þú færð slíkt hleðslutæki á solio.com.
Smartsímar með GPS eða öðrum
kortaupplýsingum geta komið sér ótrú-
lega vel. Allir símar sem keyra á And-
roid-stýrikerfi, iPhone-símar frá Apple
og nýjar tegundir Nokia-síma eru allir
búnir ítarlegum kortum af nær öllum
heimshornum. Tækið þarf ekki að
kosta mikið en getur komið að
góðum notum.
Vatnssía getur komið sér
vel ef þú ætlar að drekka
vatn úr krana í framandi
löndum. Með SteriPEN
geturðu hreinsað hálf-
an lítra af vatni með
útfjólubláu ljósi á inn-
an við fimmtíu sek-
úndum. Þú getur því
verið nokkuð viss
um að fá hreint og
gott vatn, sama hvar þú ert í heiminum.
Handhægar HD-myndavélar eru
ekki nauðsynlegar en geta verið ansi
skemmtilegar. Þú getur tekið há-
skerpumyndbönd og -myndir hvar
sem er án þess að burðast með
risastóra myndavél á bakinu eða
í töskunni. Myndavélarnar eru
misdýrar en með Flip-mynda-
vélinni geturðu fengið
góða háskerpuupptökuvél
á fjörutíu og fimm þúsund
krónur.
Spilaðu á bolinn
Í vefversluninni ThinkGeek geturðu
keypt boli sem hægt er að spila
tónlist á. Bolirnir eru búnir
sérstökum búnaði sem gerir
þeim kleift að gefa frá sér
hljóð. Verslunin býður
upp á trommuboli og
gítarboli svo dæmi séu
tekin. Á gítarbolnum
eru flestir þeir hljómar
sem þú þarft til að spila ágætis
rokklag, þó að hljómurinn sé að
sjálfsögðu ekki alveg sá sami og
í góðum rafmagnsgítar. Til að
auka hljómgæðin geturðu
keypt þér aukalega lítinn
magnara sem þú smellir
á buxnastrenginn sem
tengist svo við bolinn.
Solio Classic Getur komið
að góðum notum hvar sem er
þar sem sólin skín.
n Rafmagnsbílar að verða raunverulegur kostur
n BMW hefur framleiðslu á Megacity-rafbílnum
n Bílarnir verða fallegir og notendavænir
rafbílamarkaðinn
BMW ræðst inn á
Megacity Nýr rafmagns-
bíll sem BMW hyggst setja
á markað eftir tvö ár.