Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 19
Egyptaland og Þýskaland eru á barmi alvarlegra milliríkjadeilu. Ástæðan er 3.400 ára gömul brjóst- mynd af Nefertiti, drottningu og eiginkonu faraósins Akenaten. Brjóstmyndin er nú til sýnis í Neu- es Museum í Berlín, en hún hefur verið til sýninga í þýsku höfuðborg- inni síðan árið 1923. Það var þýski fornleifafræðingurinn Ludwig Borc hardt sem uppgötvaði brjóst- myndina, en hún fannst í grafhýsi við hina fornu borg Amarna árið 1912. Undanfarin 50 ár hafa Egypt- ar ítrekað reynt að fá Nefertiti skilað til heimalands síns, en án árangurs. Brjóstmyndin af Nefertiti er einn vinsælasti sýningargripur sem um getur í Þýskalandi, en talið er að um hálf milljón leggi leið sína þangað árlega til að berja Nefertiti augum. Egypska þjóðin réttmætur eigandi Þjóðverjar vilja því ólmir halda brjóstmyndinni í höfuðborginni. Á mánudaginn sendi Zahi Ha- wass, yfirmaður Egypska fornleifa- ráðsins, formlega beiðni til Prúss- nesku menningarstofnunarinnar (Preußischer Kulturbesitz), en sú stofnun sér um rekstur Neues Mu- seum – sem er að finna á hinni frægu „safna-eyju“ í miðborg Berl- ínar. Í beiðni Hawass stendur: „Við óskum eftir því að þessum fjársjóði verði skilað í hendur réttmæts eig- anda hans, hinnar egypsku þjóðar.“ Hawass sagði einnig að beiðn- in hefði verið send fyrir hönd Egyptalands alls, og nyti stuðnings egypsku ríkisstjórnarinnar – bæði forsætisráðherrans og menningar- málaráðherrans. Egyptar hafa lengi haldið því fram að brjóstmyndinni hafi í raun verið rænt, og að svik og prettir hafi verið í tafli þegar hún var flutt til Þýskalands á þriðja ára- tug síðustu aldar. Vilja ekki skila Nefertiti Á þriðjudaginn barst Hawass hins vegar svar frá Berlín, þar sem formlegri beiðni hans var hafn- að. Ástæðan sem Hawass var gef- in, var sú að beiðnin hefði hvorki komið beint frá egypskum stjórn- völdum né verið send til þýskra stjórnvalda. „Þetta var ekki form- leg beiðni,“ sagði talsmaður þýska utanríkisráðuneytisins Andreas Peschke. „Formleg beiðni er þeg- ar ríkisstjórn tiltekins lands hefur beint samband við ríkisstjórn ann- ars lands.“ Peschke bætti því við að Þjóð- verjar ætli sér að halda áfram að hafna beiðni Egypta um að fá Nef- ertiti aftur til heimalandsins. Hann sagði einnig að ekki kæmi einu sinni til greina að lána Egyptum brjóstmyndina til sýninga, hún væri of viðkvæm til að unnt væri að flytja hana. Erlent | 19Helgarblað 28.–30. janúar 2011 Vladimir Pútín er í þann mund að fá fjall í Kirgistan nefnt í höfuðið á sér: Vladimir Pútín fær fjall Forsætisráðherra fyrrverandi Sov- étlýðveldisins Kirgistan, Almazbek Atambajev, ætlar sér að nefna um 4.500 metra hátt fjall eftir Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands. Fjallið er eitt hæsta fjallið í Kirgist- an og er að finna í Tian Shan-fjall- garðinum við landamæri Kína. Atambajev, sem hefur löngum ver- ið þekktur sem mikill stuðnings- maður Pútíns og Rússlands, hefur uppskorið mikla reiði stjórnarand- stöðunnar í landinu. Telur hún að um ómerkilegt daður sé að ræða, þar sem Atambajev sé einung- is að gera tilraun til að slá valda- mesta manni Rússlands gullhamra með þessum mjög svo óvenjulega hætti. „Það verður hlegið að okkur,“ sagði þingmaðurinn Joomart Sap- arbajev. Hann situr á þingi fyrir Ata Mekin-flokkinn sem nú er í stjórn- arandstöðu. „Því miður eru nokkr- ir stjórnmálamenn í þessu landi að reyna að beita mjög vitlausum og heimskulegum aðferðum til að byggja upp gott samband við Rúss- land.“ Saparbajev hefur talsvert til síns máls, því fyrir utan hinn aug- ljósa „sleikjuhátt“ sem fólginn er í nafngift fjallsins þá er ólöglegt samkvæmt lögum í Kirgistan að nefna fjöll eða staðarheiti í höfuð- ið á lifandi manneskjum. Atambajev er þó staðráðinn í því að fá þá ósk sína uppfyllta að fjallið hljóti nafnið „Pútíntind- ur.“ Fyrir þinginu liggur nú frum- varp þess efnis að lögunum um nafngiftir á stöðum verði breytt, svo hann geti örugglega gefið Pút- ín fjallið sitt. „Ef við göngum svo langt að breyta lögum til þess eins að þóknast Pútín mun allur heim- urinn hlæja að okkur,“ sagði Sap- arbajev. Þess má geta að nú þeg- ar eru í Kirgistan Leníntindur og Jeltsíntindur. bjorn@dv.is „Við óskum eftir því að þessum fjár- sjóði verði skilað í hendur réttmæts eiganda hans, hinnar egypsku þjóðar n Egyptar hafa barist fyrir því í 50 ár að fá brjóstmynd af drottningunni Nefertiti skilað n Brjóstmyndin, sem er 3400 ára, situr sem fastast í Berlín og Þjóðverjar neita að skila henni n Einn vinsælasti sýningargripur í heimi gæti skapað milliríkjadeilu NEFERTITI FÖST Í ÞÝSKALANDI Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Virðir dýrgripinn fyrir sér Angela Merkel, kanslari Þýskalands, virðir fyrir sér brjóstmyndina af Nefertiti. Hún ætlar sér ekki að sleppa taki á drottningunni. Aðalmaðurinn Vladimir Pútín er vinsæll hjá stjórnmálaelítunni í nágrannalöndunum. Berlusconi vill ungar hjásvæfur Hinn 74 ára forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, sætir nú sem kunnugt er rannsókn vegna bólfara hans með vændiskonunni Ruby – en hún mun hafa verið aðeins 17 ára þegar þau sænguðu saman. Þó að vændi sé ekki ólöglegt á Ítalíu er það hins vegar ólöglegt að borga ólögráða einstaklingum fyrir kyn- líf. Nú hefur saksóknaraembættið í Mílanó grafið upp annað dæmi þess að Berlusconi hafi borgað ófullveðja stúlku fyrir kynlíf. Sú er frá Brasilíu og heitir Iris Berardi og er 19 ára í dag. Hún var aftur á móti aðeins 17 ára þegar Berlusconi borgaði henni fyrir að mæta í svallveislu í villu sinni í Sardiníu árið 2009. Hún var einnig tíður gestur á heimili glaum- gosans og fékk alls 16 þúsund evrur greiddar fyrir heimsóknir sínar. Nýr leiðtogi Fianna Faíl Síðastliðinn laugardag tilkynnti Bri- an Cowen, forsætisráðherra Írlands, að hann væri hættur sem leiðtogi Fianna Faíl-flokksins. Írar eru æfir út í flokkinn, en hann hefur verið við völd næstum óslitið frá því að land- ið fékk sjálfstæði árið 1932. Mikil spilling og einkavinavæðing hefur einkennt stjórnartíð flokksins und- anfarin ár og sá Cowen hag flokksins best borgið með afsögn sinni. Nú hafa flokksmenn valið sér nýjan leið- toga. Sá er Michael Martin, en hann gegndi stöðu utanríkisráðherra í ríkisstjórn Cowens eða allt þar til í síðustu viku þegar hann ákvað að seilast eftir leiðtogahlutverkinu hjá Fianna Faíl. Kosið verður á Írlandi í síðasta lagi í mars, eða jafnvel eftir aðeins fjórar vikur. Apple fjarlægir nasistasöng Tölvufyrirtækið Apple hefur ákveðið að fjarlægja lagið „Horst Wessel-Li- ed“ af tónlistarnetversluninni iTu- nes. Texti lagsins er eftir nasistann Horst Wessel, sem lést ungur að árum árið 1930. Réttur titill lagsins er Die Fahne Hoch og var það ein- kennislag Nasistaflokksins. Aðgerðir Apple koma í kjölfar gagnrýni þýska blaðsins Hannoversche Allgemeine Zeitung, en í grein blaðsins var bent á að fjölmörg lög nasista væru fá- anleg á iTunes og einnig á vefversl- uninni Amazon. Talsmaður Apple sagði hins vegar ekkert um hvort fleiri lög sem vinsæl eru hjá nýnas- istum yrðu fjarlægð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.