Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Blaðsíða 41
Lífsstíll | 41Helgarblað 28.–30. janúar 2011
Að leysa kynork-
una úr læðingi
Ef svefnherbergið er bæði fráhrindandi og ópersónulegt
er ekki líklegt að umhverfið hvetji sérstaklega til afreka
í ástamálum. Margt má gera til þess að gera svefnher-
bergið að sannkölluðu ástarhreiðri. Taktu þér Carrie
Bradshaw og mr. Big til fyrirmyndar og gerðu svefn-
herbergið að góðum stað til að slaka á. Góður rúmgafl
og rúm sem er hægt að stilla í setustöðu er fyrirtaks
hugmynd. Náttborð, kerti og örvandi myndlist og bækur.
Bjartsýnir lifa lengur
Samkvæmt nýrri rannsókn er hjarta bjartsýnisfólks sterkara en hjarta ólundar-
seggja. Í rannsókn hollenska sálfræðingsins Erik Gitay var ólíklegra að þeir sem lýstu
sér sem afar jákvæðum einstaklingum fyrir áratug væru látnir vegna hjartasjúk-
dóma eða af öðrum orsökum. Fyrir níu árum voru spurningalistar lagðir fyrir 999
einstak linga á aldrinum 65–85 ára. Þá höfðu 397 af þátttakendum látist. Meiri líkur
voru á að þeir sem eftir lifðu hefðu lýst sér sem sem bjartsýnum einstaklingum.
Þeir bjartsýnu voru 55 prósent ólíklegri til að hafa dáið af einhverjum ástæðum á
tímabilinu og 23 prósent ólíklegri til að láta lífið vegna hjartasjúkdóma. Enn meiri
munur mældist á lífslíkum bjartsýnna karlmanna og svartsýnna kynbræðra þeirra.
Gitay segist ekki vita ástæðuna. „Ein möguleg útskýring á því af hverju bjartsýni
virðist hafa jákvæðari áhrif á karlmenn en konur gæti einfaldlega verið sú að fjöldi
karlmanna sem lést á tímabilinu var meiri en fjöldi kvenna.“
Settu hveitikím í morgundrykkinn og pönnukökurnar:
Næringarríkasta fæðutegund í heimi
Heilsubúðir og heilsudeildir flestra
stórverslana bjóða nú upp á hveitik-
ím (e. wheat germ), eina næringar-
ríkustu fæðutegund sem fyrirfinnst.
Hveitikím er sannkölluð undrafæðu-
tegund því hún inniheldur 23 nær-
ingarefni og magn næringarefna í
hverju grammi er meira en í nokkru
öðru grænmeti eða korni. Vegna þess
að hveitikím er svo ríkt af næringar-
efnum, vítamínum, járni og trefj-
um er hægt að leggja að jöfnu u.þ.b.
30 g af hveitikími og 250 g af græn-
meti. Einfaldasta leiðin til þess að
koma hollu hveitikími inn í daglegan
matseðil er að bæta honum í morg-
unverðinn. Það má gera með því að
setja það í morgundrykkinn, nota
það í morgunverðarpönnukökur eða
hræra því saman við AB-mjólk eða
jógúrt. Hveitikímsdrykkur með hind-
berjum og banönum er kraftmikil
byrjun á deginum. Í slíkan drykk þarf
hnefafylli af hindberjum, 1/2 ban-
ana, bolla af AB-mjólk (má sleppa),
1 msk. hveitikím og 1 bolla af ávaxta-
safa. Öllu þeytt saman í blandara og
hellt í glas.
Pönnukökur með hveitikími
1/2 bolli hafrar
2 msk. hveitikím
1 bolli mjólk
1/2 bolli AB-mjólk eða jógúrt
3/4 bolli heilhveiti
1 1/2 tsk. vínsteinslyftiduft
3/4 tsk. matarsódi
1/2 tsk. kanill
1/2 tsk. salt
2 stór egg
2 msk. matarolía
1 tsk. sykur
Vætið í höfrunum og hveitikíminu
með mjólkinni. Leyfið að standa í 10
mínútur. Hrærið saman öðrum þurr-
efnum. Þeytið saman egg, olíu, sykur
og jógúrt í annarri skál, bætið blönd-
unni saman við hafrana og hveitik-
ímið.
Hitið pönnu og rennið smá smjöri
yfir. Hellið deigi á pönnu og steikið
litlar pönnukökur.
Pönnukökurnar má vel frysta.
Setjið þær í plastpoka sem er hægt að
loka og leggið bökunarpappír á milli
hverrar köku.
Góð leið til að byrja daginn Hveitikím er ein næringarríkasta fæðutegund sem völ er á.
5 gullnar reglur að fara eftir til að
bæta samskiptafærni þína:
Þetta þarftu
að kunna!
Góð samskiptafærni skiptir öllu máli þegar
kemur að því að ná árangri. Jákvæð og góð
samskipti auka líkur á því að þú finnir
þér farsælan farveg hvort sem um er að
ræða fjölskyldulíf eða frama. Ef þú átt í
vandræðum með hvort tveggja er ekki úr vegi
að kanna hvort þú getir ekki bætt hæfni þína.
Eftirfarandi reglur eru gullnar fyrir þá sem
eiga það til að hrasa:
Náðu góðu sambandi
Vertu slök og afslöppuð og passaðu upp á
líkamstjáninguna. Brostu og vertu glaðleg.
Ekki standa með krosslagðar hendur og
horfðu á viðmælandann. Það er megnasta
ókurteisi að eiga í samræðum við manneskju
en horfa annað á meðan, til dæmis á
tölvuskjáinn, út um gluggann eða annað.
Ekki naga neglurnar, borða eða laga fötin og
gættu þess að standa ekki of nálægt eða of
fjarri manneskjunni.
Náðu athyglinni
Talaðu skýrt. Þegar þú kynnir þig skaltu
segja: Komdu sæl, ég heiti Jóna, í stað:
Komdu sæl, Jóna heiti ég. Áherslan týnist í
seinna tilvikinu.
Ekki tala í kringum hlutina, hafðu skilaboðin
skýr, hlýleg og yfirveguð. Hugsaðu um
innihaldið og lærðu að greina kjarnann frá
hisminu. Það er ekki samasemmerki milli
þess og að vera of hátíðlegur. Í uppistandi,
grínleik og ræðuhaldi er þetta lykilatriði.
Ekki gera ráð fyrir því að viðmælandinn geti
lesið hugsanir þínar eða viti allt um þig og
skoðanir þínar. Slíkt er hroki.
Hlustaðu vel
Ekki bíða eftir að fá að tala og ekki hugsa
of mikið um hvað þú ætlar að segja af
keppnisanda, á meðan viðmælandinn er að
tala við þig. Leyfðu samtalinu að eiga sér
stað og hlustaðu vel áður en þú svarar.
Vertu heiðarlegur
Ekki hræðast það að taka á hlutunum eða
gefa erfiðar upplýsingar. Vertu heiðarlegur
og ekki forðast að svara. Þetta er lykil-
atriði. Hugsaðu um alla þessa illa liðnu
upplýsingafulltrúa sem ætti frekar að kalla:
„gefa-ekki-upplýsingarfulltrúa“. Þeim tekst
að gera öll mál að stórmálum. Þeir bestu í
þessum bransa detta ekki í þá gryfju heldur
lægja allar öldur með því að svara erfiðum
spurningum á opinskáan og yfirvegaðan
máta.
Þolinmæði
Ekki flýta þér úr samræðum. Dragðu djúpt
andann og sýndu manneskjunni sem þú ert
að tala við þá virðingu að hún finni að hún sé
þess virði að tala við.
H
vernig laðar þú til þín það
góða? Ertu ein af þeim sem
eru móttækilegar fyrir þeim
tækifærum sem bjóðast eða
fjölgar fíflunum sífellt í kringum þig?
Sigríður Arnardóttir, betur þekkt
sem Sirrý, kennir fólki að takast á
við neikvæða strauma, efla tjáningu
sína og sjálfsöryggi í framkomu og
með því laða til sín tækifæri. Hún
vill meina að þeir sem búa yfir góðri
samskiptafærni öðlist forskot á
mörgum sviðum lífins. Þeir sem tjá
sig af öryggi og jákvæðni auki líkur
sínar á farsæld í fjölskyldulífi, vina-
tengslum, frama og hverju því sem
sóst er eftir í samfélaginu.
Sirrý hefur haldið fjöldann allan
af skemmtilegum fyrirlestrum um
samskiptafærni. Hún er félags -og
fjölmiðlafræðingur og öllum lands-
mönnum kunn vegna starfa sinna á
fjölmiðlum. Hún byggir á víðtækri
reynslu sinni þegar hún heldur fyr-
irlestra og sérlega dýrmæt er henni
reynslan úr starfsnámi hennar á fjöl-
miðlum í Bandaríkjunum.
„Bandaríkjamenn kunna sam-
skipti. Það er til að mynda innbyggt
í menningu þeirra að fólk tekur eft-
ir nöfnum samferðamanna. Þeir eru
líka skýrir, hnitmiðaðir og glaðleg-
ir. Við getum lært ýmislegt af þeim í
munnlegri tjáningu og þeir af okkur
í öðru.“
En hvað þarf til þess að ná
góðum árangri?
„Það geta allir þjálfað sig betur í að tjá
sig af öryggi og þeim sem hafa hæfi-
leika á þessu sviði farnast betur, sér
í lagi þegar á móti blæs,“ segir Sirrý.
„Við Íslendingar erum svo mikil bóka-
þjóð og tjáum okkur skriflega. Það
er gott og gilt en áherslurnar leiða til
þess að mörg okkar þurfa verulega á
því að halda að styrkja þessa færni í
persónulegum samskiptum.“
Sirrý telur að til þess að ná góðum
árangri þurfi að hlusta á aðra, tjá sig
skýrt og skilmerkilega og greina og
skilja tilfinningar. „Við þurfum líka að
vera jákvæð og detta ekki í volæði. En
það er þó eðlilegt að detta ofan í holu
í skamman tíma en ef við ætlum ekki
að vera volæðisfíklar þurfum við að
leitast við að fylla á tankinn og sinna
okkur andlega og líkamlega. Það er
svo mikilvægt líka að fara á manna-
mót og umgangast annað fólk. Það er
hægt að læra góð samskipti en þau
þarf að æfa rétt eins og allt annað.“
Að laða til sín það góða
Sirrý segir andann eftir kreppu vera
áskorun. Margir hafi þurft að hugsa
tilveru sína upp á nýtt og forgangs-
raða á annan hátt en áður því sem
máli skiptir í lífinu. „Þegar illa geng-
ur er mikilvægt að reyna að finna
sér hlutverk og þekkja óskir sínar og
vera bæði bjartsýn og svolítið upp-
litsdjörf,“ segir Sirrý. „Þannig löðum
við að okkur góða strauma og tök-
umst á við þá neikvæðu. Ég hef ver-
ið að halda fyrirlestra sem bera heit-
ið Að fylla á tankinn, og þeir fjalla
um það hvernig við sköpum jarðveg
velgengni með viðhorfum okkar og
hegðun. Ég sjálf finn að þegar ég er í
essinu mínu þá gerast góðir hlutir en
þegar ég er orkulaus og hef ekki hug-
að að eigin vellíðan og styrk þá fjölgar
fíflunum í kringum mig og mér finnst
allt sem ég geri ómögulegt. Þetta er
auðvitað gróft til orða tekið en það
eiga allir neikvæð tímabil til skamms
tíma og það er mikilvægt að læra að
tækla þau til góðs. Þegar við fyllum
á tankinn, eins og ég tek til orða, þá
verðum við umburðarlyndari gagn-
vart okkur sjálfum og sendum ekki
bara frá okkur pirruð þreytumerki
heldur löðum við til okkar ævintýrin
með jákvæðu hugarfari.“
Sigríður heldur af og til fyrirlestra
hjá Heilsuborg og hefur alltaf verið
uppselt svo að framhald verður á
því. Fylgjast má með dagskránni á
sirry.is.
Sigurvegarar
kunna á samskipti„Ertu að missa af
tækifærum vegna
þess að þú ert neikvæð
og óframfærin?
Mikilvægt að
fylla á tankinn
Sirrý segir mikil-
vægt að bjóða til
sín tækifærunum
með því að leggja
áherslu á jákvæð
samskipti og
vellíðan.
MyNd KArl PEtErssoN
Ég sjálf finn að þegar ég er í essinu mínu þá
gerast góðir hlutir en þegar ég er orkulaus
og hef ekki hugað að eigin vellíðan og styrk
þá fjölgar fíflunum í kringum mig og mér
finnst allt sem ég geri ómögulegt.