Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
Snorri Páll Úlfhildarson var handtekinn árið 2009:
Ákærður 20 mánuðum síðar
Snorri Páll Úlfhildarson, einn níu-
menninganna sem ákærðir eru fyr-
ir árás á Alþingi, hefur verið ákærður
fyrir annað brot aðfaranótt fimmtu-
dagsins 21. maí 2009. Snorri gengst
ekki við ásökununum og segir málið
lykta af pólitískum ofsóknum á hend-
ur sér.
Athygli vekur að ákæran var lögð
fram 20. janúar síðastliðinn, sama dag
og verið var að klára vitnaleiðslur í
máli ríkisins gegn níumenningunum
og heilum 20 mánuðum eftir að hið
meinta brot átti sér stað. Að mati lög-
fræðings er 143. grein sakamálalaga
sniðgengin, en verði Snorri fundinn
sekur í báðum málum, gæti það haft
refsihækkandi áhrif.
Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur
Snorra og Sunnevu Ásu Weisshappel
sem einnig er ákærð, segir óeðlilegt
að í tiltölulega einföldu máli þar sem
engin rannsókn hafi farið fram dragist
ákæra í 20 mánuði. Af lestri málskjal-
anna er ljóst að nærri öll málsgögn
voru klár samdægurs, eða þann 21.
maí 2009. Katrín bendir á 143. grein
sakamálalaga en hún kveður á um að
sé maður saksóttur fyrir fleiri en eitt
brot skuli það gert í einu máli. Sam-
kvæmt þessari lagagrein hefði því átt
að ákæra Snorra Pál fyrir hið meinta
brot samhliða ákæru fyrir árás á Al-
þingi. Katrín segir mikilvægt að virða
143. greinina: „Því að sé þessi regla
ekki virt, þá er hægt að halda fólki í
gíslingu í réttarkerfinu til lengri tíma.“
Katrín segir þennan drátt á mál-
inu vera „hið dularfyllsta mál.“ Hún
bendir einnig á að 18. grein saka-
málalaga sé meginregla sem kveði
mjög skýrt á um að það verði að
hraða ákæru eins og hægt sé. Ekki
sé hægt að beygja frá henni nema
þar sem um alvarlegar ásakanir sé
að ræða og rannsóknarhagsmun-
ir í húfi. Óvanalegt er að ákærur fyr-
ir brot þar sem engin rannsókn hafi
þurft að fara fram tefjist svo lengi.
Málið á rætur að rekja til þess að
lögreglan hafði afskipti af Snorra þar
sem hann og vinkona hans voru að
ganga heim til sín aðfaranótt 21. maí.
Ástæða afskiptanna var sögð sú að
hann hefði hrækt í áttina að lögreglu-
bíl. Í kjölfarið voru þau handtekin.
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 29.750 kr.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Snorri Páll Neitar sök í málinu.
„Strákurinn okkar, Karl Orri, er
með astma og við finnum fyrir því
þegar mengun er mikil í borginni,
þá verður hann verri af astmanum.
Í hans tilfelli lýsir það sér þannig
að það verður offramleiðsla á slími
í öndunarfærunum og það kem-
ur fyrir að hann kastar upp slími
á morgnana eftir að mengun hef-
ur verið mikil,“ segir Steinunn Þór-
hallsdóttir móðir 5 ára drengs sem
greindist með astma aðeins eins
árs gamall.
Mengun í Hlíðunum
Fjölskyldan býr í Lönguhlíð í Hlíð-
unum en mælingar sýna að loft-
gæðin þar eru mjög slæm miðað
við aðra borgarhluta enda skera
þungar umferðaræðar Hlíðarnar á
þrjá vegu. Steinunn segist fyrst hafa
farið að hugsa um loftgæðamál
þegar hún var í fæðingarorlofi með
dóttir sinni Bríeti en hún er yngri
systir Karls Orra. „Ég setti hana í
vagninn og út á svalir þar sem ég sé
út á Miklubraut og fór að velta því
fyrir mér hvernig loftið í vagninum
væri. Eftir það fór ég að setja hana í
vagninn fyrir aftan húsið sem snýr
frá Miklubrautinni, en þegar ég fór
að kynna mér málið betur komst
ég að því að það skipti í raun engu
máli. Áhrifasvæði mengunar eru
200 metrar frá stofnbrautum óháð
því hvernig húsin liggja.“ Þess má
geta að fjórir af fimm leikskólum
hverfisins og allir grunnskólar þess
eru inni á þessu helsta áhrifasvæði
mengunarinnar.
Áhyggjufullir foreldrar
Hægt er að fylgjast með loftgæðum
borgarinnar á vef Reykjavíkurborgar
og hefur Steinunn gert samkomulag
við leikskólann sem Karl Orri er á um
að halda honum inni þá daga sem
loftgæðin eru slæm. „Þannig höf-
um við náð að halda honum sæmi-
legum,“ segir Steinunn sem hefur
miklar áhyggur af vaxandi mengun
í borginni. „Það er til evrópsk reglu-
gerð um loftgæði sem gildir hér og
samkvæmt henni megum við fara
sjö sinnum yfir þessi heilsuvernd-
armörk á árinu 2011. Þann 17. jan-
úar voru við komin yfir það. Þessi
mál eru í algjörum ólestri hérna og
ég veit að margir foreldrar í Reykja-
vík hafa verulegar áhyggjur af loftinu
sem börnin anda að sér.“
Nagladekkin skaðvaldur
Steinunn er formaður íbúasamtaka
Hlíða en samtökin hafa barist út af
mengunarmálum í borginni í mörg
ár. „En það hefur ekkert breyst í
þessi fimm ár síðan við byrjuðum að
benda á þetta. Við í íbúasamtökun-
um tókum okkur meðal annars sam-
an í október 2009 og lokuðum Miklu-
brautinni í nokkrar mínútur en við
höfum prófað ýmsar aðferðir til að
vekja athygli á þessu máli. Við vild-
um með þeim aðgerðum heilsa upp
á fólkið sem ekur í gegn um hverfið í
og úr vinnu og vekja það til umhugs-
unar um áhrif umferðarinnar á loft-
gæðin.“
Steinunn vill benda fólki á að
stærstu þættirnir sem stuðla að
mengun eru mikill aksturshraði,
umferðarþungi og notkun nagla-
dekkja. „Meira en helmingurinn af
innihaldinu í svifrykinu er uppspænt
malbik út af nagladekkjum. Nagla-
dekkin eru rosalegur skaðvaldur í
loftinu og ég er ekki viss um að fólk
geri sér alltaf grein fyrir því. Marg-
ir virðast vera enn fastir í að þau sé
það eina sem dugi, þegar síðastliðin
tíu ár hafa komið margs konar betri
dekk á markaðinn. Þar að auki er
veðrið í Reykjavík allt öðruvísi í dag
en það var fyrir 10 árum, færðin er
orðin miklu betri,“ segir Steinunn og
bendir á að þó íbúar Hlíða séu með-
vitaðir um léleg loftgæði sé mikil-
vægt fyrir alla Reykvíkinga að huga
að mengunarmálum. „Við teljum að
þetta sé um alla borg. Þetta hefur
ekki verið mælt að neinu ráði nema á
þessum föstu stöðum sem hafa ver-
ið á Grensási og í Laugardalnum, en
það er klárlega þörf á betri mæling-
um svo fólkið í borginni geti sér sér
grein fyrir hvernig loftið sé. Við borg-
arbúar getum haft áhrif á þetta með
því að ganga og hjóla meira, og hætta
að nota nagladekk á bílana okkar,
en það er einnig hlutverk yfirvalda
að grípa til aðgerða og gæta þess að
reglugerðir séu ekki brotnar. Það er
til aðgerðaáætlun hjá borginni, en ég
veit ekki til þess að hún hafi nokkru
sinni verið virkjuð vegna mengunar.“
ASTMADRENGUR
LÍÐUR FYRIR
MENGUN
n Móðir barns með astma segir meng-
unarmál í ólestri n Leik- og grunn-
skólar inni á áhrifasvæði mengunar
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Meira en helm-
ingurinn af inni-
haldinu í svifrykinu er
uppspænt malbik út af
nagladekkjum.
Íbúar á Selfossi fá bréf:
„Pervert í
hverfinu“
Íbúar á Selfossi fengu í vikunni nafn-
laust dreifibréf inn um lúguna þar
sem varað er við dæmdum kynferð-
isbrotamanni sem býr í bænum.
Bréfið ber yfirskriftina „Pervert í
hverfinu“ og í því er nafngreindur 33
ára karlmaður, sem í síðustu viku var
dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir
að tæla 17 ára stúlku, gefa henni
vímuefni og nauðga henni.
Heimilisfang hans er birt auk
þess sem stór mynd er birt af hon-
um. Þá er vísað á dóm Hæstaréttar
frá því á fimmtudaginn í síðustu viku
með vefslóð.
Frá þessu er greint á vefnum
sunnlenska.is en þar er haft eftir lög-
regluvarðstjóra á Selfossi að lögregl-
unni hafi borist tilkynning um bréfið
og að málið sé í rannsókn.
Lýsingar á broti mannsins í
dómsskjölum vöktu mikinn óhug
þegar fjölmiðlar greindu frá niður-
stöðu Hæstaréttar. Stúlkan sem á var
brotið hefur glímt við fíkniefnavanda
frá þrettán ára aldri og átti að vera á
meðferðarheimili þegar brotin voru
framin. Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að maðurinn hefði tælt
hana til „samræðis“ og nýtt sér yfir-
burði sökum aldurs- og þroskamun-
ar. Hann hafi gefið henni áfengi og
amfetamín og nýtt sér bágar aðstæð-
ur stúlkunnar.
Lögreglan á Selfossi skoðar nú
hvort dreifibréfið brjóti gegn frið-
helgi einkalífs mannsins sem þar er
nefndur.
Gegn sameiningu
„Þessi vinnubrögð meirihlutans
eru til marks um óskýra forgangs-
röðun og handahófskennda nálg-
un gagnvart viðfangsefnum borg-
arinnar,“ segir í bókun Sóleyjar
Tómasdóttur vegna hugmynda
um sameiningu á uppeldis- og
menntastofnunum borgarinnar.
„Fulltrúar Vinstri grænna í ráðum
og nefndum borgarinnar hafa
ítrekað bent á mikilvægi þess að
einfalda stjórnkerfið með hag-
ræðingu og aukna nærþjónustu
að leiðarljósi – enda séu slíkar
breytingar forsenda fyrir öðrum
ákvörðunum.“ Hún segir jafn-
framt að vinnubrögð og nálgun
meirihlutans gagnvart verkefninu
séu óviðunandi með öllu. „Vinstri
græn munu ekki samþykkja þær
hugmyndir sem hér hafa verið
lagðar fram – og telja þær ekki
eiga að koma til umræðu fyrr en
áðurnefndar stjórnkerfisbreyting-
ar hafa komið til framkvæmdar.“
Steinunn með börnum sínum tveimur Steinunn segir mengunarmál í algjörum
ólestri og segir marga foreldra í Reykjavík hafa verulegar áhyggjur af loftinu sem börnin
anda að sér.