Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 39
Lífsstíll | 39Helgarblað 11.–13. febrúar 2011
WWW.GÁP.IS
Ný sending af Infinti Þrektækjum.
ALVÖRU TÆKI!!!
HRIKALEGA FLOTTUR!
INFINITI VG-40
Frábært fjöþjálfi hvort sem er fyrir
þol eða fitubrennslu!
Mjög sterkt, vandað mælaborð og
einstaklega einfalt í notkun.
INFINITI VG - 40
25%
KYNNINGARAFSLÁTTUR
111.000.-
148.000.-
n Sumir keyra um á gljáfægðum drossíum sem virðast ekki einu sinni safna ryki n Aðrir eru ekki jafn
séðir n Hver kannast ekki við úldin æfingaföt, gamalt bananahýði og klístraðar kvittanir?
1Ekki borða í bílnum.
2 Geymdu klúta og sprei í hanskahólfinu og strjúktu reglulega af mælaborðinu.
3Geymdu kort af Stór-Reykjavíkur-svæðinu í plastvasa í hanskahólfinu.
Þá villistu ekki þegar þú ert að leita að
íþróttamóti í Garðabæ eða álíka á síðustu
stundu.
4Hafðu andlits-blautþurrkur fyrir börn í hanskahólfinu. Þær fást í apótekum
og eru með ávaxtalykt. Nauðsynlegt til að
þurrka sinnep, ís og fleira af litlum puttum
og bílsætum.
5Bílaþrifdagur er einu sinni í viku, alveg eins og á heimilinu. Þá er gott að tæma
rusl og allt dótið sem hefur safnast fyrir yfir
vikuna. Ryksugaðu sæti og gólf og þurrkaðu
rykið af (það er ótrúlegt hvað bílar geta
safnað ryki) og skolaðu svo af bílnum. Það
er svo æðislegt að geta farið fínn á hreinum
bílnum í leikhús eða í helgarbíltúrinn.
6Ef bíllinn lyktar illa er hér eitt örþrifaráð: Stráðu matarsóda yfir sætin og
nuddaðu inn í áklæðið og leyfðu að
standa í hálftíma eða lengur. Þegar sódinn
hefur legið og sogið í sig illa lyktandi agnir í
svolítinn tíma geturðu ryksugað hann upp
(og lyktina vonandi um leið).
7 Skipuleggðu skottið. Geymdu hanska hjá felgulyklinum. Hafðu stígvél og regnslá
í skottinu líka.
8 Athugaðu hvort ekki sé sjúkrakassi í bílnum, það er nauðsyn!
9 Það er óþolandi að vera klinklaus og þurfa að leggja í miðbænum. Kauptu
rúllu af 50 kr. peningum fyrir 2.000 kr. í
bankanum og geymdu hana í bílnum.
10 Hafðu ruslapoka í bílnum. Og taktu hann með þér og hentu honum í lok
dags.
Bíllinn til prýði – 10 ráð