Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 20
F áir vöktu jafnmikla athygli í vik-unni og skokkarinn í Hvera-gerði, sem ákvað að tukta til unglingspilt í bænum. Lýsingin var dramatísk. Alda hneykslunar reið yfir landið þegar fréttist af því að hann hefði tekið piltinn kverkataki og ýtt honum í jörðina. Fáir tóku hins vegar upp hanskann fyrir skokkarann. H lið skokkarans hefur ekki heyrst. Maðurinn hafði komið frá höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að láta sig fljóta um gangstétt- ir hins friðsæla Hveragerðis. Hann skokkaði framhjá þremur unglings- piltum, sem ákváðu þá að hlaupa á eftir honum og áreita hann. Jónas Kristjánsson ritstjóri er einn fárra sem stigið hefur fram skokkaranum til varnar og segir hann hafa veitt unglingnum „hæfilega ráðningu“. „Það er úti af kortinu, að gerð séu hróp að fólki á almannafæri,“ skrifaði hann á bloggsíðu sína. Jónas vill að Hveragerðisbær fái skokkar- ann í vinnu við að siðvæða börnin í bænum. Jónas er af gamla skólanum. Þegar hann var barn hefði þótt vera skylda hvers uppalanda að berja barn sem áreitti ókunnugan mann. F yrir nokkrum vikum steig Mar-grét Pála Ólafsdóttir leikskóla-stjóri fram á Rás 2 og bað fólk um að hætta að hrósa börnum fyrir að gera hlutina illa. Hún vildi ekki að þeim yrði hrósað fyrir að teikna ljótar myndir sem þau leggðu engan metnað í. Margrét sagði síðan við Press-una að börnin væru búin að taka völdin af foreldrunum á heimilinu. „Það var alveg óhugs- andi hér áður fyrir að börn opn- uðu munninn á meðan fullorðnir töluðu, hvað þá þegar kvöldfrétta- tíminn var í gangi. Nú er það orðið þannig að barnið er komið í miðj- una og foreldrarnir á jaðarinn þar sem börnin voru áður. Nú þegir öll fjölskyldan á meðan barnið talar.“ Margrét varaði við því að við vær- um að ala upp kynslóð risastórra egóista. Auðvitað á maður ekki að berja börn. Barin börn læra sjálf að berja. En hvað á skokkari að gera þegar unglingar elta hann með hrópum og köllum? Svar nútíma- samfélagsins er einfalt. Börnin eru að koma – hlauptu hraðar! Í pistli hér um daginn velti ég því fyr-ir mér hversu leiðinleg útvarpsdag-skrá mætti vera og fékk bágt fyrir hjá starfsfólki Rásar 2, sem væntanlega er hafið yfir gagnrýni. Í sama pistli spurði ég að því hversu heimskum þingmönnum leyfðist að vera. Og svo kom svarið, með hreinni og tærri núllstillingu, þegar dæmdur glæpa- maður, Árni Johnsen, réðst að sjálf- kjörnum verðlaunaþega RÚV, Eiríki Guðmundssyni, eftir að Eiríkur hafði vogað sér að gagnrýna störf skila- nefndar Hæstaréttar. Og auðvitað snýst deila þeirra kumpána um keis- arans skegg einsog allt annað hjá keis- aralausri og heimskri þjóð; þjóð sem skiptist í heimska og heimskari; slef- bera og rassasleikjur; siðleysingja og siðblindingja. Keisarinn er ekki leng- ur rónavernd við Hlemm, nú er okk- ar fyrrverandi keisari blaðasnápur hjá LÍÚ-tíðindum og hefur efni á að ráða til sín dæmda glæpamenn til að sinna slefburði. Og það tókst Árna Johnsen með prýði. Hann náði að mæra Davíð Oddsson. En það eitt er þrekvirki sem er ekki á færi annarra en þeirra sem komist hafa í kast við lögin. Ef fyrirsögnin hér að ofan espir þig ekki, kæri lesandi, þá ætla ég svo sannarlega að vona að mér takist að vekja þig með eftirfarandi setn- ingu: Ég held því fram að við tilheyr- um heimskustu þjóð veraldar. Ég gef mér þetta rétt einsog trúaður maður gefur sér það að Guð hljóti að vera til. Þjóð sem á hafsvæði sem telur hvorki meira né minna en 758.000 ferkíló- metra, er rík þjóð, því ef við deilum þessu niður á íbúana, fáum við út að 2,5 ferkílómetrar koma í hlut hvers og eins einasta Íslendings. Við erum að tala um að hverju heimili í land- inu tilheyri u.þ.b. 10 ferkílómetra haf- svæði. Til samanburðar má geta þess að landið sjálft er u.þ.b. 100.000 fer- kílómetrar að flatarmáli. Og það sem meira er, við erum að tala um að haf- svæðinu fylgi auðlind; auðlind sem örfáum er falið að græða á. Já, örfáum er bókstaflega falið að græða á auð- lindinni á sama tíma og verið er að selja þökin ofan af þúsundum heimila í landinu. Hafsvæði okkar getur svo orðið enn stærra ef landgrunnskröfur okkar verða samþykktar hjá Samein- uðu þjóðunum. Það er væntanlega heimskulegt að spyrja, en ég spyr nú samt: Hef- ur eitthvert ykkar komið auga á einn þingmann sem við getum verið 100% viss um að hafi ekki þegið mútur frá Launasjóði íslenskra útvegsmanna? Ef svo er þá væri gaman að fá það skjalfest. Þjóðin kann í þrætum hér svo þreytt og lúin stefin og henni tekst að haga sér sem heimsk og illa gefin. 20 | Umræða 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað „Ég efast bara um að þær segi okkur allar frá því ef eitthvað slíkt er í gangi.“ n Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, starfsmaður barnaverndar, um ungar stelpur í eiturlyfjaneyslu. – DV „Ég hélt við værum félagar. Við vorum bara félagar.“ n Guðlaug Matthildur Rögnvalds- dóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, um morðingja hans, Gunnar Rúnar Sigurþórsson. – DV „Ég get ekki leyft mér nokkurn skapaðan hlut.“ n Kristín H. Tryggvadóttir, 74 ára eftirlaunaþegi sem býr á Hrafnistu í Hafnarfirði. – DV.is „Þeir eru í öllum stærðum og gerðum og allir fara alla leið.“ n Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri um uppfærslu nokkurra bænda á sýningunni Með fullri reisn. – DV.is Við áfrýjum Nýja Ísland átti að snúast um gegnsæi. Almenningur átti að fá meiri upplýsingar en áður. Sérstaklega um fjármál. Á fimmtudag féll dómur í Héraðs- dómi Reykjavíkur, sem skyldaði und- irritaðan til að borga Eiði Smára Guð- johnsen fótboltamanni miskabætur, vegna þess að birtar voru upplýsing- ar um hundraða milljóna króna lán- tökur hans hjá íslensku bönkunum. Dómurinn hefur ákveðið að það sé saknæmt að segja frá fjármálum Eiðs. Það þýðir í reynd að bannað verður að greina almenningi frá hundraða millj- óna króna lántökum og fjárfestingum, nema ef vera skyldi að gerendur í mál- inu komi til viðtals um það. Dómurinn velur á milli tvenns konar hagsmuna. Annars vegar eru það hagsmunir Eiðs Smára og bank- ans, að enginn fái að vita þegar hann tekur stórfelld lán hjá bankanum, og hins vegar eru það hagsmunir al- mennings, að fólk fái almennt upp- lýsingar. Í því felst almennt málfrelsi, sem heimilar blaðamönnum að gefa fólki upplýsingar um fjármál, án þess að hljóta refsingu fyrir. Dómurinn valdi hagsmuni hins auðuga á kostn- að upplýsingafrelsis almennings. Afbrot fjölmiðlamanns er ekki að fjalla um fjármál auðmanns. Afbrot væri að gera það ekki. Skylda fjöl- miðlamannsins á að liggja við ykkur, við fólkið í landinu. Skylda dómstól- anna ætti líka að liggja þar. Í túlkun sinni á lögum eiga þeir að horfa til til- gangs laganna og þeirra hagsmuna al- mennings sem þeim er ætlað að gæta. Undirritaður skrifaði leiðara skömmu eftir hrun, þar sem boðuð var harðari blaðamennska. Þar voru færð rök fyrir því að blekkingin hefði verið eitt höfuðmeina samfélags- ins og ein af höfuðástæðunum fyr- ir efnahagshruninu. Auk þess sagði að fjölmiðlar hefðu átt að vera lækn- ingin. Þeir hefðu átt að segja meira. Þeir hefðu átt að vera móteitur við blekkingum stjórnmálanna og við- skiptanna, en tóku þess í stað þátt í þeim. Dómskerfið hefur nú úrskurð- að að það sé saknæmt að gegna þessu hlutverki. Við megum ekki segja frá fjármálum, nema auðmönnum eða bankamönnum þóknist að segja frá þeim í viðtölum. Við eigum aftur að bregðast skyldum okkar. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lög- maður Eiðs Smára, sagði að dóm- urinn í gær væri „Wake up call“ fyrir fjölmiðla, eða vakning fyrir þá. Aug- ljóst er hins vegar að dómurinn biður fjölmiðla ekki að opna augun, heldur loka þeim. Það er verið að biðja fjöl- miðlamenn, með dómsúrskurði, vin- samlegast um að fljóta aftur sofandi að feigðarósi. Við áfrýjum. Leiðari Bókstaflega Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Við megum ekki segja frá fjármálum, nema auðmönnum eða bankamönnum þóknist að segja frá þeim í viðtölum. Heimskasta þjóð í heimi Skáldið skrifar Kristján Hreinsson „ Já, örfáum er bók- staflega falið að græða á auðlindinni á sama tíma og verið er að selja þökin ofan af þús- undum heimila í landinu. Ummæli ársins n Alþingismenn hafa verið sakaðir um að stýrast af hrossakaupum, sér- hagsmunum og tækifærismennsku. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, varpaði nýju ljósi á þankagang þingmanna í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í vikunni. Hún sagði Bjarna Benediktsson, formann flokksins, hafa stigið það „óvenjulega“ skref í Icesave-málinu að „standa bara fyrir því sem hann telur rétt fyrir þjóðina“. Hún missti út úr sér merkustu ummæli ársins og kom óvart upp um mesta löst lýðræðisins. Hirð Jóns stóra n Afbrotafræðingurinn virti Helgi Gunnlaugsson tjáði sig um „glam- úrvæðingu“ ofbeldis á dögunum. Fáum duldist að hann talaði þar um Jón „stóra“ Hallgrímsson, sem hefur verið áberandi í fjölmiðlum í kjölfar misheppnaðra lögregluaðgerða gegn honum og útgáfu bókar fyrir jólin. Helgi sagðist óttast að viðkvæmustu hópum samfélagsins myndi þykja hann spennandi, ef ekki væri fjallað um hann á gagnrýn- inn hátt. Tekið hefur verið eftir því að Jón stóri hefur fengið hundruð „like“ frá viðhlæjendum þegar hann hefur gert lítið úr ungum stúlkum á Facebook-síðu sinni. Bölvun á Hannesi n Undanfarna daga hefur gengið milli fólks á Facebook bölvun á Hannesi Smárasyni, áður elskuðum útrásarvíkingi. Tilefnið er að Hannes var á þriðjudag sýknaður af 400 milljóna króna kröfu skilanefnd- ar Glitnis vegna sjálfsábyrgðar á 3,5 milljarða kúlulánum. Lesendur DV.is birtu seið um Hannes á ummælakerfi við fréttina. Hann hljóðar svo: Fyrirlít- um þennan fýr/ finni hann aldrei grið/ bölvun fylgi hvar sem býr/ brotni líf og fái ei frið. Sterkur karakter n Mörgum kom í opna skjöldu að Jón Gnarr borgarstjóri skyldi vera lagður inn á sjúkrahús í vikunni. Jón hefur um mánaðaskeið kljáðst við þráláta sýkingu í ennisholum, sem veldur stöðugri þreytu og höf- uðverk. Á sama tíma hefur líklega enginn borgarstjóri lent í erfiðari aðstæðum, enda hafa forverar hans í borgarstjórn skilið borgina eftir í fjárhagslegu svaði. Á stuttum stjórnmálaferli hefur Jón orðið fyrir mörgum persónulegum áföllum og erfiðleikum. Hann missti tengda- föður sinn í kosningabaráttunni í fyrra, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu. Á annan í jólum missti Jón svo móður sína. Jóni hefur hins vegar tekist að halda ró sinni og eiga regluleg samskipti við kjósendur þrátt fyrir mótlæti á flestum sviðum. Sandkorn tRyGGVaGötu 11, 101 ReykjaVÍk Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Svarthöfði Skokkari réttvíSinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.