Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 18
18 | Erlent 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað Loksins sér fyrir endann á réttar- höldunum yfir Charles Taylor, fyrr- verandi forseta Líberíu. Réttarhöld- in hafa nú staðið yfir í næstum fjögur ár, eða síðan í júní árið 2007. Taylor er ákærður fyrir stórfellda stríðs- glæpi, en þar á meðal má nefna morð, limlestingar og nauðganir. Það eru saksóknarar á vegum Sam- einuðu þjóðanna sem sækja málið á hendur Taylor, en honum er gefið að sök að hafa fjármagnað borgara- styrjöld í Sierra Leone með viðskipt- um með „blóðdemanta.“ Sierra Leone er nágrannaland Líberíu en við landamærin, inn- an Sierra Leone, er að finna miklar demantanámur. Borgarastyrjöld- in snerist að miklu leyti um þessa demanta, en Taylor sveifst einskis til að ná tökum á demantanámum ná- granna sinna. Hann studdi Bylting- arherinn svokallaða (Revolutionary United Front) með ráðum og dáð, en hermenn hans beittu morðum og limlestingum til að skila Taylor demöntunum sem hann þráði svo heitt. Lögmaðurinn gekk út Verjandi Taylor, Courtenay Griff- iths, gekk út úr réttarsal í vikunni til að mótmæla því að dómarar í mál- inu neituðu að taka við öllum þeim skjölum sem Griffiths taldi skipta máli fyrir málsvörnina. Segja dóm- ararnir við dómstólinn að skjölin hafi borist of seint, sem er reynd- ar ekki óvenjulegt í þessu máli sem einkennist mjög af töfum og mála- lengingum hvers konar. Griffiths brást illa við þessum úrskurði. „Ég mun ekki veita þessum skrípaleik lögmæti með viðveru minni,“ sagði hann er hann skellti hurðinni á eft- ir sér. „Hvernig munu komandi kyn- slóðir meta trúverðugleika dóms- ins, þegar 90 prósent af málsvörn hins ákærða er ekki tekin til greina?“ spurði Griffiths fréttamenn sem biðu fyrir utan salinn. Dómararnir virðast gefa lítið fyrir málflutning Griffiths og ljóst er að dómur fellur í máli Taylors á þessu ári. Munu þeir þá væntanlega anda léttar þegar málinu er lokið og Taylor kominn á bak við lás og slá. Þess má geta að Taylor er nú að- eins að svara til saka vegna aðildar hans að borgarastyrjöldinni í Sierra Leone, en Taylor hefur mun meira blóð á sínum höndum. Tók þátt í valdaráni Það er óhætt að segja að Taylor sé öllu vanur þegar kemur að blóðsút- hellingum, styrjöldum og spillingu. Hann komst fyrst til metorða í Líber- íu þegar hann studdi valdarán Samu- els Doe árið 1980. Doe og stuðnings- menn hans myrtu þáverandi forseta William R. Tolbert og hrifsuðu til sín völdin. Sagan segir að Doe hafi myrt Tolbert á meðan hann svaf, með því að rista á honum kviðinn svo innyfl- in lágu út um allt rúm. Næstu 10 daga á eftir voru allir 13 ráðherrar í ríkis- stjórn Tolberts teknir opinberlega af lífi og voru líkin höfð til sýnis dögum saman. Ekki óvanur borgarastyrjöldum Taylor fékk áhrifamikla stöðu í nýrri stjórn Doe, en hann sá um öll erlend innkaup á vegum Líberíu. Árið 1983 var hann hins vegar rekinn, eftir að í ljós kom að hann hefði lagt stærst- an hluta þess fjár sem hann hafði til umráða inn á persónulegan banka- reikning í Bandaríkjunum. Upphæð- in var um ein milljón Bandaríkjadala. Taylor flúði til Bandaríkjanna en var handtekinn þar árið 1984. Ári seinna tókst honum þó að flýja til Líbíu, en enn þann dag í dag heldur hann því fram að Bandaríkjastjórn hafi í raun sleppt honum með það fyrir aug- um að hann snéri heim til Líberíu og rændi völdum, en þá hafi Bandaríkja- menn verið orðnir langþreyttir á ógn- arstjórn Doe. Í Líbíu hitti Taylor fyrir einræðis- herrann Muammar al-Gaddafi. Tayl- or og Gaddafi urðu brátt hinir mestu mátar og tók Gaddafi að sér að skóla Taylor í byltingarfræðum og skæru- hernaði. Árið 1989 sneri Taylor svo aftur til Líberíu og stofnaði stjórn- málaflokk, sem var í raun hern- aðarsamtök, Þjóðernisher Líberíu (NPFL). Með fjárstuðningi og vopn- um frá Líbíu hóf Taylor borgarastyrj- öld í heimalandi sínu, gegn fyrrver- andi samherja sínum Samuel Doe. Ári síðar hafði Taylor lagt undir sig nánast allt landið, fyrir utan höfuð- borgina Monróvíu. Það kom í hlut fyrrverandi sam- herja Taylors, Prince Johnson, að ná höfuðborginni og handsama Doe for- seta. Johnson var hershöfðingi í Þjóð- ernishernum en stofnaði árið 1990 sinn eigin flokk. Þegar Doe var hand- samaður var hann tekinn af lífi. Af- takan var kvikmynduð og var hægt að sjá hana í fréttum um allan heim. Þar mátti til að mynda sjá Prince Johnson gæða sér á bjórsopa í sömu andrá og verið var að skera eyra af Doe. „Hann drap mömmu, hann drap pabba“ Eftir aftöku Doe hélt borgarastríðið í Líberíu áfram til ársins 1996. Afleið- ingarnar voru vægast sagt hræðilegar. Voru þar framin voðaverk sem hægt er að telja með þeim verstu í mann- kynssögunni. Stríðið skildi eftir sig rúmlega 200 þúsund fórnarlömb en auk þess neyddist rúmlega milljón manns til að flýja landið og hafast við í flóttamannabúðum við landamær- in í nágrannalöndum. Bjuggu þar flóttamenn við ömurlegar aðstæður, þar sem hungur, glæpir, nauðganir og barnamisnotkun voru daglegt brauð. Eftir að stríðinu lauk var boðað til op- inberra forsetakosninga árið 1997, og þar var Charles Taylor í framboði. Þótt ótrúlegt megi virðast þá sigr- aði Taylor örugglega í kosningun- um. Ekki er talið að brögð hafi verið í tafli, en fulltrúar Sameinuðu þjóð- anna voru á staðnum til að ganga úr skugga um að allt færi vel fram. Ástæðan var hins vegar einföld. Fólkið kaus Taylor því það var orð- ið þreytt á blóðugum átökum. Hefði Taylor tapað, hefði hann einfaldlega haldið stríðinu áfram. Engu breytti þótt Taylor hefði boðið sig fram und- ir slagorðinu: „Hann drap mömmu mína, hann drap pabba minn. En ég ætla samt að kjósa hann.“ Blóðugar hendur Taylors Þrátt fyrir að skrifað hafi verið undir vopnahlé í borgarastyrjöldinni 1996, þá háði Taylor ennþá borgarastríð í Sierra Leone. Friðurinn entist held- ur ekki lengi í Líberíu. Árið 1999 var hafin önnur borgarastyrjöldin þar í landi, en talið er að þá hafi ríkisstjórn Gíneu stutt skæruliða í baráttu gegn Taylor. Upp úr aldamótum fór fljót- lega að halla undan fæti hjá Taylor, en hann neitaði að játa sig sigraðan. Borgarastyrjöldin ílengdist allt fram á sumar 2003, þegar Taylor viður- kenndi ósigur. Í seinni borgarastyrj- öldinni í Líberíu féllu um 150 þús- und manns, en eftir þennan ósigur var ólíklegt að Taylor kæmist nokkru sinni aftur til valda. Hann ákvað að n Réttarhöld yfir Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líb- eríu, hafa staðið yfir síðan árið 2007 n Hefur verið viðriðinn þrjár borgarastyrjaldir n Fórn- arlömbin orðin hálf milljón Blóðdemantar og Blóðþorsti Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Charles Taylor í Haag Saksóknarinn lýsir Taylor sem „blóðþyrstum og valdagráðugum.“ „Hann drap mömmu mína, hann drap pabba minn. En ég ætla samt að kjósa hann. „Þangað reyndi hann að komast á Range Rover-lúxus- jeppa, sem var stútfullur af seðlabúntum ásamt nokkrum kílóum af heróíni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.