Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 25
Nærmynd | 25Helgarblað 11.–13. febrúar 2011 að takast á við styrkjamálið svokall- aða, þegar í ljós kom að FL Group og Landsbanki Íslands hefðu styrkt flokkinn upp á samtals 50 milljónir króna á síðustu dögunum áður en lög tóku gildi sem kváðu á um 300 þús- und króna hámark styrkja og að öll fyrirtæki sem styrktu stjórnmálaflokka skyldu vera nafngreind í ársreikning- um flokkanna. Bjarni lýsti því yfir að hann teldi alla ábyrgð vera hjá þáverandi fram- kvæmdastjórum flokksins, sem hefðu samkvæmt því átt að vita af styrkj- unum. Það voru þeir Kjartan Gunn- arsson og Andri Óttarsson. Síðar dró hann til baka ummæli sín og sagði fráleitt að draga nafn Kjartans inn í at- burðarásina, hann hefði ekkert haft með þessi styrkjamál að gera. „Kjartan Gunnars- son er hins veg- ar full- Formaður flokksins Bjarni gekk þvert gegn afstöðu sterkra hægriafla innan Sjálfstæðisflokksins. Með því er talið að hann hafi styrkt stöðu sína sem formaður flokksins. mynd Karl Petersson fær um að svara því hvort þetta hafi verið með þessum hætti eða ekki. Þetta er að mínu áliti fráleitt, að draga nafn Kjartans inn í þessa atburðarás vegna þess að hann hafði ekkert með þau mál að gera, sem tengdust þess- um styrkjum. Samskipti vegna þessa máls fóru fyrst og fremst fram milli Andra Óttarssonar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra, og Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns flokksins, sem tók ákvörðun um að veita styrkjun- um viðtöku,“ sagði í athugasemd sem Bjarni sendi frá sér vegna frétta af styrkjamálinu. Þrátt fyrir þessi mál og önnur sem sköpuðu Bjarna litlar vinsældir var hann endurkjörinn formaður Sjálf- stæðisflokksins á landsfundi hans í lok júní í fyrra, sem haldinn var í kjöl- far þess að Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir sagði af sér sem varaformað- ur. Pétur H. Blöndal þingmaður bauð sig fram gegn Bjarna á fundinum en Bjarni sigraði með rúmlega 290 at- kvæða mun. Fleiri buðu sig fram til formanns en hlutu talsvert færri at- kvæði. skapaði ólgu innan flokksins Seint verður sagt að Bjarni hafi lægt öldurnar í flokknum en mikil ólga er innan hans vegna ákvörðunar Bjarna í Icesave-málinu. Einn viðmælenda DV sem hefur löngum verið stuðnings- maður flokksins segir að flestum inn- an flokksins sé mjög brugðið. „Nú er bara leitað að leiðum, hvað við eigum að gera,“ sagði viðmælandinn. „Það er öllum mjög brugðið, meira að segja þeim sem studdu Bjarna.“ Viðmæl- andinn segir að Bjarni hafi breytt um skoðun af augljósri ástæðu, ekki verði ráðist í aðgerðir í þágu skuldugra fyrir- tækja fyrr en Icesave hafi verið afgreitt. Félag fjölskyldu Bjarna, BNT, er í gjör- gæslu hjá Íslandsbanka vegna mikilla skulda fyrirtækisins og N1, dótturfé- lag BNT, er í sjálfsskuldarábyrgð fyrir félagið. Ef ekki verður ráðist í aðgerð- ir í þágu skuldsettra fyrirtækja munu þessi fyrirtæki að öllum líkindum ekki lifa af. „Það er svo sem ekki byrjað að leita að nýjum formanni en fólk veltir því fyrir sér hver geti tekið við af Bjarna,“ segir einn viðmælandi DV. Hann seg- ir að sá stuðningur sem Bjarni hefur fengið hafi komið úr tiltölulega litl- um armi flokksins og að stuðnings- mönnum Bjarna hafi verið smalað á fremstu bekkina á opnum fundi sem haldinn var í Valhöll, höfuð- stöðvum Sjálfstæðisflokksins, þar sem Bjarni kynnti afstöðu sína í Icesave-málinu. Skuldahalinn sem fylgir Bjarna virðist vera áhyggjuefni, að minnsta kosti hjá hluta sjálf- stæðismanna. Eru nokkrir innan flokksins sem telja Bjarna ganga eigin erinda en ekki erinda flokksmanna, og þjóðarinnar allrar, í málinu. Ekkert er hægt að fullyrða um það en Bjarni sagði að hann hefði breytt um skoðun í ljósi þess hversu hag- stæður samningurinn væri og óljóst er hvaða byrðar myndu leggjast á Íslendinga yrði dóm- stólaleiðin farin og málið tap- aðist. Glæsilíf í einkaþotu Í Rannsóknarskýrslu Alþing- is komu fram upplýsingar um Bjarna og tengsl hans við ís- lenskt viðskiptalíf á árun- um fyrir hrun. Meðal þess sem kom fram í siðfræðihluta skýrslunnar var að Bjarni flaug í einkaþotu Glitnis árið 2007, löngu eftir að hann settist á þing, til Skotlands. Svo virðist sem ferðin hafi verið golfferð á vegum Glitnis. Fjölskylda Bjarna átti 7 prósenta hlut í Glitni ásamt Milestone-bræðrum fyrir hrun- ið. „Einungis nafn eins stjórnmála- manns fannst á þeim listum. Bjarni Benediktsson alþingismaður ferðað- ist dagana 20.–22. september 2007 í einkaþotu með Glitnismönnum til Skotlands. Flogið var frá Reykjavík- urflugvelli og lent á Prestwickflug- velli við Glasgow. Í viðburðadagatali Glitnis kemur fram að dagana 20.–22. september hafi verið „golfferð fyrir- tækjaþróunar,“ sagði í siðfræðihlut- anum. Athygli vakti að á listunum er tals- vert um merkinguna „Unknown Pass- enger“ og því ekki hægt að fullyrða að Bjarni hafi verið eini stjórnmála- maðurinn sem flaug um í einkaþot- um bankanna fyrir hrun, þó að það líti þannig út. Með Bjarna í ferðinni voru aðrir lykilstarfsmenn N1 sem var í við- skiptum við Glitni banka. Bjarni er tal- inn hafa verið í ferðinni vegna tengsla sinna við olíufélagið en ekki vegna tengsla sinna við bankann, sem faðir og föðurbróðir hans áttu stóran hlut í, í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt Int- ernational. Í rannsóknarskýrslunni er einnig talað um fund Bjarna í höfuðstöðv- um eignarhaldsfélagsins Stoða, áður FL Group, í aðdraganda bankahruns- ins haustið 2008 og vegna skulda í ís- lenska bankakerfinu sem námu 174 milljónum króna í ársbyrjun 2008. Þetta sama fyrirtæki styrkti Sjálfstæð- isflokkinn um tugi milljóna króna en Bjarni hefur aldrei verið tengdur beint við þá styrki. Vafinn í milljarða flækju Í rannsóknarskýrslunni var einnig fjallað ítarlega um Vafningsmálið svo- kallaða sem snéri að tugmilljarða lán- um félaga í eigu föður og föðurbróður Bjarna og viðskiptafélaga þeirra, Mile- stone-bræðranna. Málið snérist um 30 milljarða króna lánveitingu Glitn- is, 3,4 milljarða króna lánveitingu frá Kaupþingi og 10 milljarða króna lán- veitingu frá tryggingafélaginu Sjóvá til tveggja félaga, Svartháfs og Vafn- ings, í eigu fjölskyldu Bjarna og Mile- stone-bræðranna. Peningarnir runnu í gegnum þessi félög til bandaríska fjárfestingarbankans Morgan Stanley til að greiða niður skuld vegna hluta- bréfakaupa. Áttu peningarnir að koma í veg fyrir veðkall bandaríska bankans í 7 prósenta hlut Þáttar International í Glitni. Bjarni var einn þriggja stjórnar- manna frá eignarhaldsfélaginu BNT sem skrifaði upp á umboð sem veitti honum heimild til að veðsetja hluta- bréf félagsins í eignarhaldsfélaginu Vafningi þann 8. febrúar 2008. Hinir tveir voru stjórnarmennirnir Gunn- laugur Sigmundsson og Jón Bene- diktsson. BNT er móðurfélag olíufé- lagsins N1 sem er í meirihlutaeigu fjölskyldu Bjarna. Þessi staðreynd sýnir að Bjarni, sem var stjórnarformaður BNT á þeim tíma, tók þátt í þeirri ákvörðun að skuldbinda BNT í Vafningsviðskipt- unum. Embætti sérstaks saksóknara hef- ur lánveitingu Sjóvár til skoðunar en Bjarni þvertekur fyrir að hafa verið yf- irheyrður í tengslum við málið. Þeg- ar DV hafði samband við hann fyr- ir nokkrum vikum til að spyrja hann hvort hann hefði verið yfirheyrður varð hann reiður og hækkaði róminn þegar hann neitaði að svara spurn- ingu blaðamanns. adalsteinn@dv.is Við tökum málin í okkar hendur! Sérsmíðum húsgögn fyrir heimili og fyrirtæki Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla í yfir 35 ár Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is Opnunartími mán – fös: 09.00 -18.00 lau: 11.00 -16.00 „Skuldahalinn sem fylgir Bjarna virðist vera áhyggjuefni að minnsta kosti hjá hluta sjálfstæðismanna. leiðtogahæfileikar Æskuvinur Bjarna segir hann hafa verið sterkan leiðtoga strax í æsku. mynd siGtryGGur ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.