Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Qupperneq 10
Fjárfestingarbankinn Straumur-
Burðarás beitti ítrekað blekkingum
við að upplýsa um hluthafa sína á
árunum 2006 og 2007. Hægt var að
komast upp með ógagnsæið vegna
bankaleyndar í Lúxemborg. Lands-
bankinn í Lúxemborg veitti íslensk-
um fjárfestum rúmlega 50 millj-
arða króna lán til hlutabréfakaupa
í Straumi frá desember 2006 til ág-
ústloka 2007. Svo virðist sem Björg-
ólfur Thor Björgólfsson hafi ekki
ráðið við að bola þeim Magnúsi
Kristinssyni og Kristni Björnssyni
út úr hluthafahópi Straums sum-
arið 2007 þegar FL Group keypti 22
prósenta hlut Magnúsar og Krist-
ins í Straumi á 42 milljarða króna. Í
desember 2006 seldi FL Group aft-
ur þennan 22 prósenta hlut. Fjár-
magnaði Landsbankinn í Lúxem-
borg að mestu þau kaup. Meðal
annars með lánum til félaga í eigu
Björgólfsfeðga, Guðmundar Krist-
inssonar í Brimi og starfsmanna
Straums.
Starfsmenn hjá Straumi fengu
6 milljarða lán
Í desember árið 2006 veitti Lands-
bankinn þremur félögum sem skráð
voru á Bresku Jómfrúaeyjum sex
milljarða króna lán til að kaupa 5,1
prósents hlut í Straumi. Félögin voru
í eigu starfsmanna Straums. Aldrei
var upplýst hver stóð á bak við þessi
félög. Fyrst um sinn voru þau á hlut-
hafalista Straums en síðar voru þau
færð sem eign Landsbankans í Lúx-
emborg. Félögin heita Visgan Corp-
oration, Omicron Association S.A.
og Criollo S.A. Landsbankinn gaf
aldrei út veðköll (e. margin call) þeg-
ar hlutabréf þessara félaga í Straumi
lækkuðu. Ragnhildur Sverrisdóttir,
talsmaður Novator, segir að Björg-
ólfur Thor þekki ekki til þessara við-
skipta og geti því ekki tjáð sig um
þau.
Guðmundur í Brimi fékk
5 milljarða lán
Á sama tíma veitti Landsbankinn í
Lúxemborg félaginu Hafnarhól um
fimm milljarða króna lán til kaupa
á 4,2 prósenta hlut í Straumi. Fé-
lagið Hafnarhóll var lýst gjaldþrota
í fyrra. Fundust engar eignir í félag-
inu. Hafnarhóll var í eigu útgerðar-
mannsins Guðmundar Kristjáns-
sonar í Brimi. Nafn Hafnarhóls kom
aldrei fram á hluthafalista Straums.
Í lánabók Landsbankans þann 31.
mars árið 2007 kemur fram að fé-
lögin Tjaldur og Línuskip hafi lagt
fram sjálfskuldarábyrgð vegna hluta-
bréfakaupa Hafnarhóls. Samkvæmt
heimildum DV var þessari sjálf-
skuldarábyrgð síðar aflétt af útgerð-
arfélögum Guðmundar. Í lánabók
Landsbankans þann 31. mars 2008
hefur lán Hafnarhóls hækkað um 30
prósent, upp í 6,4 milljarða króna. Á
sama tíma höfðu hlutabréf í Straumi
hríðlækkað. Landsbankinn virðist
þó ekki hafa gert veðkall vegna bréf-
anna. Þess skal auk þess getið að árið
2007 fékk félagið Hafnarhóll um 185
milljónir króna í arð af þessari fjár-
festingu sinni sem Guðmundur virð-
ist hafa borið takmarkaða ábyrgð
á. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að
Björgólfur Thor kannist ekki við lán-
veitingarnar til Guðmundar. Þess
skal getið að Björgólfur Thor og Guð-
mundur sátu saman í stjórn Straums
frá því í mars 2007 og þar til bankinn
féll í mars 2009.
Óljóst um erlenda
„huldufjárfestinn“
Þann 17. ágúst árið 2007 tilkynnti
Straumur að erlendur fjárfestir hefði
keypt 5,3 prósenta hlut í bankanum
og námu viðskiptin 10,2 milljörð-
um króna. Aldrei hefur fengist gefið
upp hver þessi erlendi fjárfestir var.
Vilhjálmur Bjarnason fór í mál við
stjórn Straums vegna viðskiptanna
þar sem bréfin höfðu verið seld und-
ir markaðsverði. Héraðsdómur og
Hæstiréttur sýknuðu stjórn Straums
í málaferlum Vilhjálms gegn þeim.
Eignarhluturinn var geymdur á
vörslureikningi í Landsbankanum í
Lúxemborg. Samkvæmt heimildum
DV veitti Landsbankinn í Lúxemborg
aflandsfélögum í eigu bræðranna Ól-
afs Steins og Kristjáns Sigurðar Guð-
mundssona, sona Ernu Kristjáns-
dóttur lyfjafræðings sem fjallað var
um í DV á miðvikudag, lán fyrir hluta
af þessum viðskiptum. Landsbank-
inn hafi að stærstum hluta fjármagn-
að þau kaup. Stuttu áður höfðu þeir
selt bréf sín í Actavis og einnig í búlg-
arska símafyrirtækinu BTC. Lausa-
fjárstaða þeirra var því góð en auk
fjárfestingarinnar í Straumi keyptu
þeir stóran hlut í félaginu Nova-
tor Pharma Holding sem var eitt fé-
laga Björgólfs Thors Björgólfssonar
sem tók þátt í yfirtökunni á Actavis
sumarið 2007. Samkvæmt lánabók
Landsbankans nam lán fjölskyld-
unnar um átta milljörðum króna í
mars 2007. 31. janúar 2008 eru lán-
in komin upp í rúmlega 18 milljarða
króna þrátt fyrir að fjölskyldan hafi
selt bréfin í Actavis og búlgarska fé-
laginu BTC.
Í fyrirspurn sem DV sendi Ragn-
hildi Sverrisdóttur, talsmanni Nova-
tor, vegna þessara kaupa segir hún að
það sé rangt að synir Ernu Kristjáns-
dóttur hafi verið hinir raunverulegu
kaupendur. „Nei, þetta er rangt. Að
baki viðskiptum með hlut í Straumi
í ágúst 2007 var erlendur aðili. Eft-
ir því sem Björgólfur Thor best veit
tók umræddur aðili engin lán vegna
fjármögnunar á þessum kaupum,
heldur greiddi 100 prósent með eig-
in fé í erlendum gjaldeyri, sem styrkti
stöðu Straums gífurlega,“ segir í svari
Ragnhildar.
Straumur seldi eigin bréf
Þegar salan á 5,3 prósenta hlutnum
fór fram var Straumur að selja eigin
bréf. Gengi bréfa Straums fór hæst í
23,25 krónur á hlut 20. júlí 2007. Þeg-
ar salan fór fram mánuði síðar höfðu
bréf Straums lækkað um 20 prósent.
Þrátt fyrir að hlutabréf í Straumi
hefðu lækkað um tugi prósenta frá
nóvember 2007 og allt fram í októ-
ber 2008 var aldrei tilkynnt um veð-
köll hjá félögum sem Landsbankinn
í Lúxemborg hélt utan um.
Lánasafnið í Lúx fært heim
Í Rannsóknarskýrslu Alþingis er haft
eftir Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrver-
andi bankastjóra í Landsbankan-
um, að viðskiptavinir bankans hafi
óskað eftir því að taka lán í gegnum
Landsbankann í Lúxemborg til þess
að hægt væri að viðhalda banka-
leynd um þá. Með því móti komust
til dæmis Guðmundur Kristjánsson
og synir Ernu Kristjánsdóttur frá því
að láta upplýsa um eignarhlut sinn í
Straumi. Hið sama átti við um kaup-
réttarsamninga starfsmanna sem
áttu félög á Bresku Jómfrúaeyjum.
Í aðdraganda bankahrunsins
báðu forsvarsmenn Landsbankans
í Lúxemborg móðurfélagið á Íslandi
um að fá að færa stórar áhættuskuld-
bindingar heim til Íslands. Var um
að ræða lán upp á 784 milljónir evra,
eða um 120 milljarða íslenskra króna.
Má telja líklegt þetta hafi verið gert
þar sem Fjármálaeftirlitið í Lúxem-
borg hafði sett út á of mikla áhættu
í lánasafni Landsbankans í Lúxem-
borg. Stór hluti þeirrar áhættu var
vegna lána til íslenskra auðmanna
sem höfðu fengið lán til hlutabréfa-
kaupa í félögum sem höfðu hríð-
lækkað í verði allt frá haustinu 2007.
Landsbankinn í Lúxemborg virðist
hins vegar í flestum tilfellum hafa
sleppt því að gera veðköll hjá þess-
um félögum.
Landsbankinn í Lúx á bak við
hluthafa
Straumur-Burðarás varð til árið 2006.
Fljótlega eftir sameininguna fór að
bera á átökum á milli þeirra Magnús-
ar Kristinssonar og Björgólfs Thors
Björgólfssonar. Endaði þetta með því
að Magnús og Kristinn Björnsson,
viðskiptafélagi hans, seldu 22 pró-
senta hlut sinn í Straumi til FL Group
í lok júní 2006. Á stjórnarfundi um
sumarið komu Jón Ásgeir Jóhann-
esson og Hannes Smárason inn í
stjórn Straums. Þann 22. desember
2006 seldi FL Group síðan hlut sinn
í Straumi og véku þá Jón Ásgeir og
Hannes fljótlega úr stjórn Straums.
Var söluverðið 42 milljarðar króna.
Keypti Hafnarhóll fjögurra pró-
senta hlut, þrjú aflandsfélög starfs-
manna Straums fimm prósenta hlut,
Straumur sjálfur fimm prósenta hlut
og Landsbankinn í Lúxemborg um
átta prósenta hlut. Líklegt má telja
að Landsbankinn í Lúxemborg hafi
veitt lán fyrir nánast öllum þessum
hlutum og því var ekkert eigið fé lagt
fram í viðskiptunum. Hluti þessara
bréfa fór síðar til félagsins Samson
Global Holding sem var félag í eigu
Björgólfsfeðga.
Björgólfur Thor virðist því hafa
lent í vandræðum með að losa þá
Magnús og Kristin út úr hluthafahópi
Straums. Lauk þeim átökum með því
að Landsbankinn í Lúxemborg veitti
um 42 milljarða króna lán til hluta-
bréfakaupa í Straumi í lok desember
2006. Hið sama virðist hafa gerst þeg-
ar hlutabréf Straums fóru að lækka í
lok júlí 2007. Þá lánaði Landsbank-
inn í Lúxemborg tveimur aflands-
félögum í eigu sona Ernu Kristj-
ánsdóttur fyrir stórum hluta af 10,2
milljarða króna viðskiptum með bréf
í Straumi sem voru í eigu bankans
sjálfs.
Þegar síðustu viðskiptin fóru fram
með bréf Straums, þann 3. októ ber
2008, var bankinn að langstærstum
hluta í eigu þeirra eigin félags og
Landsbankans og Straums þar sem
þeir voru jafnframt stærstu hluthaf-
arnir. Átti Samson Global Holding
34 prósent í Straumi, Landsbankinn
í Lúxemborg 23 prósent, Straum-
ur sjálfur fimm prósent og Lands-
bankinn á Íslandi fimm prósent. Var
því um að ræða nærri 70 prósent af
hlutafé bankans sem var alfarið í
eigu nátengdra aðila. Aðrir hluthafar
voru að mestu íslenskir lífeyrissjóð-
ir og hlutabréfasjóðir Kaupþings og
Glitnis sem fóru allir með minna en
fimm prósenta hlut.
10 | Fréttir 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
OPIÐ
10-17
virka daga
10-12
laugardaga
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
STRAUMUR BLEKKTI
HLUTHAFA ÍTREKAÐ
n Starfsmenn fengu sex milljarða króna lán til þriggja aflandsfé-
laga n Guðmundur í Brimi fékk fimm milljarða lán til félags sem
nú er gjaldþrota n Íslenskir bræður á bak við „hulduviðskiptin“
„Ragnhildur
Sverrisdóttir
segir að Björgólfur
Thor kannist ekki við
lánveitingarnar til
Guðmundar.
Kannast ekki við lánveitingar Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Novator, segir
að Björgólfur Thor Björgólfsson þekki ekki til lánveitinga til aflandsfélaga starfsmanna
Straums.