Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Qupperneq 34
34 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
MORÐIN Í BELANGLO
n Raðmorðingi lék lausum hala í Belanglo-skógi í Nýja Suður-Wales í Ástralíu
á 10. áratug síðustu aldar n Fórnarlömbin voru bakpokaferðalangar og morðin
kölluð The Backpacker Murders n Af sjö fórnarlömbum voru fimm útlendingar
Á
rið 1992 hittust tveir breskir
ferðalangar, Caroline Clarke
og Joanne Walters, í Ástralíu
og ákváðu að verða í samfloti
á ferð sinni um suðurhluta landsins.
Í apríl sama ár yfirgáfu þær farfugla-
heimili í Sydney og tóku stefnuna á
suðausturhluta Nýja Suður-Wales.
Segir ekki meira af för þeirra en þann
20. september sama ár hnaut hópur
þátttakenda í ratleik um rotnandi lík
í Belanglo-skóginum og daginn eftir
fundu tveir lögreglumenn annað lík
í um 30 metra fjarlægð frá því fyrra.
Fyrsta ályktunin sem dregin var af
fundinum var að um væri að ræða lík
Caroline Clarke og Joanne Walters
en það var í reynd ekki sjálfgefið því
tveir þýskir ferðalangar, Gabor Neu-
gebauer og Anja Habschied, höfðu
einnig horfið á svipuðum slóðum,
reyndar þó nokkru fyrr – milli jóla
og nýárs 1991 – og Simone Schmidl,
einnig frá Þýskalandi, hafði verið
týnd í rúmt ár.
Einnig kom til greina að um væri
að ræða ástralskt par, Deboruh Ever-
ist og James Gibson, sem höfðu verið
týnd frá 1989.
Lík finnast, eitt af öðru
Umrædd lík voru reyndar af Caro-
line Clarke og Joanne Walters, en
rúmu ári síðar, í október 1993, fund-
ust tvö lík til viðbótar við sama slóða
í Belanglo-skógi. Rannsókn leiddi
í ljós að um var að ræða líkamsleif-
ar James Gibsons og Deboruh Ever-
ist. Rannsókn leiddi enn fremur í ljós
að sennilega væri um að ræða sama
morðingjann og í máli Caroline og
Joanne.
Nú fóru að renna tvær grímur
á lögregluna enda virtist sem um
einn allsherjargrafreit væri að ræða
á þessu svæði í Belanglo-skóginum.
Í nóvemberbyrjun sama ár fannst
fimmta líkið. Einungis var hægt að
bera kennsl á það með því að not-
ast við tannlæknaskýrslur. Í ljós kom
að þar var fundið líkið af Simone
Schmidl. Fatnaður sem fannst við lík
hennar tilheyrði þó ekki henni held-
ur Önju Habschied, en lík hennar var
þegar þar var komið sögu ófundið.
Skothylki á tjaldstæðum
En öll kurl voru ekki komin til graf-
ar enn, ítarleg leit var sett í gang og
afraksturinn var tvær hauskúpur
sem fundust þann 4. nóvember. Þær
reyndust vera af Önju Habschied og
Gabor Neugebauer.
Anja hafði verið afhöfðuð og hún
og Gabor bæði verið stungin ítrekað,
sem átti reyndar við í öllum tilvik-
um því fórnarlömbin höfðu öll verið
stungin eða skotin eða hvort tveggja.
Ljóst var af verksummerkjum
að morðinginn, eða morðingjarn-
ir, höfðu eytt þó nokkrum tíma með
fórnarlömbunum bæði fyrir og eftir
morðin því skammt frá öllum líkun-
um fundust tóm skothylki og merki
um tjaldstæði.
Á meðal þeirra möguleika sem
lögreglan velti fyrir sér var að ódæðin
hefðu verið framin af nokkrum
morðingjum, í það minnsta tveimur.
Áttunda fórnarlambið
Eðli málsins samkvæmt voru allar
mögulegar vísbendingar sem fund-
ust á svæðinu rannsakaðar, þar á
meðal skothylki – 22 kalibera úr Ru-
ger-riffli – sem fannst skammt frá líki
Caroline Clarke.
Lögreglan bætti mögulegu átt-
unda fórnarlambi á listann; lík Di-
ane Pennachio, 29 ára móður, hafði
fundist í skóglendi árið 1991. Hún
hafði verið stungin til bana og, líkt og
hin líkin, lögð á grúfu með handleggi
fyrir aftan bak.
Líkin áttu það einnig sameig-
inlegt að hafa fundist við fallið tré.
Píramída laga skýli úr greinum og
burkna hafði verið reist yfir líkin.
En um þetta leyti gekk hvorki né
rak í rannsókn lögreglunnar og engar
nýjar vísbendingar fundust.
Vitni kemur lögreglunni á sporið
En 13. nóvember hljóp á snærið hjá
lögreglunni þegar hún fékk sím-
hringingu frá Paul Onions, breskum
ferðalangi sem hafði verið á ferða-
lagi um Ástralíu nokkrum árum
áður. Paul hafði þegið far hjá manni,
„Bill“, en ekki litist á blikuna þeg-
ar Bill beindi að honum byssu og
reyndi að koma á hann böndum.
Paul tókst að komast út úr bílnum, fá
far hjá öðrum bílstjóra, Joanne Berry,
og hringja í lögregluna og segja frá
svaðil för sinni.
Frásögn Pauls var síðar studd af
Joanne Berry. Joanne gerði sér ferð á
lögreglustöðina í fylgd vinkonu sinn-
ar en kærasti vinkonunnar vann með
manni að nafni Ivan Milat og taldi
hún að Ivan kynni að vera bílstjórinn
sem ógnað hafði Paul.
Rannsókn lögreglunnar beindist í
kjölfarið að Ivan Milat og í ljós kom
að ýmislegt mælti með því að hann
yrði rannsakaður í þaula. Hann hafði
setið inni og verið ákærður fyrir rán á
tveimur konum árið 1971 og fyrir að
hafa nauðgað annarri þeirra – reynd-
ar voru kærurnar síðar felldar niður.
Milat handtekinn
Einnig kom í ljós að Ivan og Richard
bróðir hans unnu báðir í vegavinnu-
flokki við þjóðveginn á milli Sydney
og Melbourne, og Milat átti land-
areign í grennd við Belanglo-skóg.
Milat hafði selt Nissan Patrol-jeppa
skömmu eftir að lík Joanne Walters
og Caroline Clarke fundust og var,
að sögn þeirra sem til þekktu, mikill
áhugamaður um vopn.
Þegar lögreglunni tókst að sýna
fram á tengsl á milli frásagnar Pauls
Onions og Belanglo-morðanna var
Paul beðinn að fljúga frá Bretlandi til
Ástralíu til að aðstoða við rannsókn-
ina.
Þann 5. maí 1994 bar Onions
kennsl á Milat á mynd úr ljósmynda-
safni lögreglunnar. Milat var hand-
tekinn 22. maí á heimili sínu í fjöl-
mennri lögregluaðgerð.
Lögreglan rannsakaði einnig
heimili Richards, Alex, Boris, Walt-
ers og Bills, bræðra Ivans, en hafði
lítið upp úr krafsinu. Á heimili Ivans
fannst aftur á móti mikið magn
vopna, þar á meðal riffill sömu teg-
undar og hafði verið notaður við
morðin. Einnig fannst fatnaður, úti-
legubúnaður og myndavélar úr eigu
fórnarlambanna.
Árangurslaus varnaraðgerð
Í fyrstu lotu, 23. maí, var Ivan Milat
aðeins ákærður fyrir þjófnað og
ólöglega vopnaeign, en svaraði þeim
ákærum engu. Þann 30. maí, í kjöl-
far nánari rannsóknar lögreglunnar,
var Ivan einnig ákærður fyrir morðin
á ferðalöngunum sjö og réttarhöldin
hófust í mars 1996.
Verjandi Ivans bar því við að þrátt
fyrir haug af vísbendingum væri ekki
að finna nokkra sönnun þess að Ivan
væri sekur. Reyndi verjandinn einnig
að varpa sök á ættingja Ivans, eink-
um og sér í lagi á Richard bróður
hans.
Þann 27. júlí 1996 komst kvið-
dómur að því að Ivan Milat væri
sekur um morðin. Hann var einnig
sakfelldur fyrir morðtilraun, frelsis-
sviptingu og rán í máli Pauls Onions
og fékk sex ára dóm fyrir hvert þeirra
brota.
Fyrir morðin á Caroline Clarke,
Joanne Walters, Simone Schmidl,
Önju Habschied, Gabor Neuge-
bauer, James Gibson og Deborah
Everist fékk Ivan Milat lífstíðardóm
fyrir hvert og eitt. Dómana skal
hann afplána hvern á fætur öðrum
án möguleika á reynsulausn.
„Anja hafði
verið afhöfðuð
og þau bæði verið
stungin ítrekað, sem
átti reyndar við í
öllum tilvikum því
fórnarlömbin höfðu
öll verið stungin eða
skotin eða hvort
tveggja.
Ivan Milat Lík fórnarlambanna fundust í skógi skammt frá landareign hans.
Fórnarlömbin sjö Þau voru öll á bakpokaferðalagi um
Ástralíu þegar þau féllu í hendur Ivans.