Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Qupperneq 38
38 | Lífsstíll 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
Aðeins ljóshært
starfsfólk
Í tilraun sinni til að gera ljóskum hátt
undir höfði hefur litháíska fyrirtækið Olialia
tilkynnt að það hyggist opna ljóskuströnd
á Maldíveyjum, litlum eyjaklasa suðvestur
af Indlandi. Aðeins ljóshærðar konur og
karlmenn fá að starfa á ströndinni en hún
er hugsuð sem ferðamannastaður fyrir alla,
óháð hárlit. Ástæðan fyrir því að fá bara
ljóshært starfsfólk? „Það dregur að fólk rétt
eins og sólin,“ segir Lauryna Anuseviciute,
yfirmaður hjá Olialia, í samtali við Associated
Press.
Tæknilegt
minnisblað
NoteSlate kemur á markað innan tíðar en
það er spjaldtölva sem hægt er að nota eins
og minnisblað. Tölvan er mjög einföld og
kostar ekki mikið. Það er í rauninni ekkert
hægt að gera annað við hana en að nota
hana sem teikniborð eða minnisblað. Hún
býður upp á nokkra mismunandi liti og
er einstaklega einföld í notkun. Það sem
NoteSlate hefur umfram venjulegt blað er
að þú getur vistað og sent það sem þú hripar
niður á tölvuna.
H
ollenskt skófyrirtæki hef-
ur farið alla leið í að fram-
leiða umhverfisvæna skó.
Skórnir eru þannig gerð-
ir að þegar hefðbundinni notkun
lýkur og kominn tími til að fleygja
þeim, þá er hægt að grafa þá í mold
og af þeim vex tré. Skórnir eru hluti
af „Virgin Collection“ sem skó-
fyrirtækið OAT kynnti í síðustu
viku. Trjáfræ eru inni í skónum
en efni skónna er sérstaklega gert
með það í huga að það leysist upp
í mold með tímanum. Það gæti
reynst erfitt að eignast svona skó
því aðeins 900 skópör fara á mark-
að í vor, í allri Evrópu.
Skórnir hafa fengið umfjöllun
um allan heim og flestir telja þá
vera snilldarhugmynd. Stofnandi
OAT segir hugmyndina þó hafa
verið einfalda og að hún hafi í raun
verið augljós. „Þú skilur eitthvað
miklu betra eftir þig: tré, blóm eða
jafnvel bómullarplöntu sem gæti
gefið af sér efni í nýjan bol fyrir
þig,“ sagði hann í tilkynningu til
fjölmiðla.
OAT er ungt fyrirtæki og er þetta
fyrsta skólínan sem það sendir frá
sér. Skólínan hlaut fyrstu verð-
laun á Green Fashion-keppninni
þar sem hálfnaktar fyrirsætur, sem
áttu að tákna Adam og Evu, sýndu
skóna í hjólbörum með mosa og
litlu tré.
Upprúllað
lyklaborð
Með G-Tech Fabric Bluetooth-lyklaborðinu
getur þú á mjög einfaldan hátt notað lykla-
borð í fullri stærð með litlu ferðatölvunni
þinni. Þú getur brotið lyklaborðið saman,
vafið því upp og stungið í vasann. Lyklaborð-
ið, sem er úr mjúku efni, notar Bluetooth-
tækni til að tengjast við tölvuna. Takkarnir á
því eru merktir samkvæmt alþjóðlega enska
QWERTY-kerfinu og því ætti lyklaborðið
að nýtast Íslendingum. Lyklaborðið fæst
í vefversluninni ThinkGeek fyrir rétt tæpa
30 Bandaríkjadali, sem samsvara um 3.500
krónum. Lyklaborðið gengur fyrir tveimur
AAA-rafhlöðum.
Skórnir verða að tré:
PLANTAÐU SKÓM
Umhverfisvænir Skórnir eru ekki bara
flottir.
Android tekur
yfir hjá Símanum
IPhone-síminn sem hefur verið gífurlega
vinsæll á Íslandi hefur nú þurft að lúta í
lægra haldi fyrir Android-símum en notkun
á þannig símum hjá viðskiptavinum Símans
hefur nú farið fram úr notkun á iPhone.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá símanum
rauk notkun á Android-símum upp seinni
hluta ársins 2010. Fyrir þá sem ekki vita er
Android opið stýrikerfi frá Google sem tengir
farsímann fyrirhafnarlaust við hvers kyns
samskiptasíður, leiki og smáforrit á vefnum.
Jói Fel kann að gleðja eiginkonuna og gefur
lesendum góð ráð um hvernig má dekra við
elskuna sína á Valentínusardaginn.
Þ
ar sem Valentínusardaginn
ber upp á mánudag að þessu
sinni þarf maturinn að vera
léttur og góður og ekki of feit-
ur og grísí,“ segir Jói.
„Þar sem þetta á að vera róman-
tískt má maturinn ekki heldur vera
of þungur. Skemmtilegast er að vera
með þríréttað; forrétt, aðalrétt og svo
desert, eins og áður sagði ber daginn
upp á mánudag og er undirbúning-
urinn því frekar stuttur. Fólk að vinna
fram eftir degi og á svo eftir að kaupa
í matinn.“
Jói mælir því með léttri og góðri
veislu á Valentínusardaginn, forrétti
með melónu og parmaskinku og
trufflupasta með kjúklingi í aðalrétt.
FORRÉTTUR
Melóna með parmaskinku
n Gul melóna
n Parmaskinka í sneiðum
n Fersk basilíka
n Parmesanostur
n Ólífuolía
Skerið melónuna niður í báta og
vefjið einni sneið af parmaskinku
utan um. Saxið basilíkuna nið-
ur og stráið yfir, rífið parmesanost-
inn frekar gróft niður og sáldrið yfir,
hellið svo örlitlu af góðri ólífuolíu
yfir.
AÐALRÉTTUR FYRIR TVO
Trufflupasta með kjúklingi
n 2 stk. kjúklingabringur
n 200 g ferskt taglietelle-pasta
n 1 box kastaníusveppir
n 1 msk. þurrkaðir villisveppir
n 2 dl rjómi
n 2–3 msk. truffluolía
n 30 g parmesanostur + auka í restina
n Salt og pipar
„Grillið kjúklingabringurnar
í ca. 15 mínútur og takið til hlið-
ar. Sjóðið pastað eins og sagt er á
pakkanum. Á meðan pastað er soð-
ið er sósan gerð. Setjið þurrkuðu
sveppina í bleyti í ca. 10 mínútur.
Skerið sveppina frekar smátt nið-
ur ásamt villisveppunum og steik-
ið vel upp úr olíu. Þegar svepp-
irnir eru tilbúnir er truffluolíunni
og rjómanum blandað saman við,
kryddið með salti og pipar og lát-
ið suðuna koma upp. Þegar past-
að er tilbúið (al dente) er það sett
saman við sósuna ásamt rifnum
parmesan, slökkvið á hitanum og
blandið öllu vel saman. Setjið past-
að á disk og skerið kjúklinginn nið-
ur í sneiðar og setjið yfir pastað
ásamt rifnum parmesanosti.
Með þessu er svo drukkið EITT
glas af hvítvíni þar sem það er
mánudagur.“
Enginn tími fyrir eftirrétt
Jói mælir með að hér sé staldrað við.
Enginn tími sé til að búa til eftirrétt
þegar svona mikið stendur til í eld-
húsinu. „Þar sem það er ekki nægur
tími til að gera eftirrétt er gott að fara
út í næsta bakarí og kaupa t.d. súkk-
ulaðienglaköku eða góða skyr tertu.
Valentínusardagurinn hefur ekki
verið hátt skrifaður hjá mér en það
er alltaf gaman að gera eitthvað
skemmtilegt, ekki veitir af að hressa
upp á lífið og tilveruna eins og ár-
ferðið er. Þar sem flestir íslenskir
karlmenn eru að bíða eftir konudeg-
inum sem er um næstu helgi tökum
við því frekar rólega á Valentínusar-
daginn. Á sjálfan konudaginn tök-
um við tudda og béarnaise með öllu.
Annars virkar alltaf vel á konur, þeg-
ar karlmenn setja upp svuntuna og
sýna hvað í þeim býr.
Síðan kemur aðalatriðið og það
er desertinn, góð súkkulaðikaka
klikkar ekki, þá gleyma þær öllu
(samt ekki okkur körlunum) og allir
verða glaðir.“ kristjana@dv.is
á Valentínusardaginn
Dekur að
hætti Jóa Fel
„Þar sem flestir íslenskir karlmenn eru að bíða
eftir konudeginum sem er um næstu helgi
tökum við því frekar rólega á Valentínusardaginn. Á
sjálfan konudaginn tökum við tudda og béarnaise
með öllu.