Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Blaðsíða 46
46 | Lífsstíll 15.–17. apríl 2011 Helgarblað Þeir sem taka lýsi daglega draga úr hættu á alvarlegum geðsjúkdómum: Undramáttur lýsis Niðurstöður nýrrar rannsóknar gefa til kynna að þriggja mánaða lýsis­ kúr sé jafn áhrifaríkur og sterkustu geðlyf og lýsi dragi úr tíðni geðsjúk­ dóma eins og geðklofa um 25 pró­ sent. Áhrifin stafi af ómega­3 fitusýr­ unum í lýsinu sem vitað sé að hafi góð áhrif á hjarta og heila manna. Niðurstöðurnar byggja á rann­ sókn sem náði til 80 einstaklinga sem taldir eru í sérlegri áhættu vegna fjölskyldusögu um geðklofa og aðra geðsjúkdóma. Helmingur hópsins fékk lýsi en aðrir duft án nokkurrar virkni. Í ljós kom að mun færri í lýsishópnum urðu veikir en í hópnum sem fékk duftið. Vísindamennirnir staðhæfa út frá rannsókninni að þeir sem taka lýsi daglega geti bætt geðheilsu sína og dregið úr hættu á alvar­ legum geðsjúkdómum með því að taka eina lýsistöflu á dag. Niður­ stöðurnar sýni að meðferð með lýsi geti komið í veg fyrir eða að minnsta kosti seinkað geðtruflunum. Þeir telja það að auki mikinn kost að lýsi hefur engar aukaverkanir eins og geðlyf. Þvert á móti breyta ómega­3 fitusýrur taugavirkni í heilanum til góðs. Lýsi hefur verið notað á Íslandi til heilsubótar í áratugi og margir hafa á því tröllatrú. Það inniheldur mikil­ væg efni eins og A­ og D­vítamín en einnig ómega­3 fitusýrur. Ómega­3 fjölómettaðar fitusýrur eru mikil­ vægar í uppbyggingu frumuhimna og eru hvarfefni fyrir efni sem kall­ ast eikósanóíðar. Eikósanóíðar eru mikilvæg efni sem hafa áhrif á ýmsa ferla í líkamanum svo sem í sam­ bandi við viðnám æða, það hvernig sár gróa og bólguviðbrögð. Grænt te í hófi Eftir að grænt te fór að verða vinsælt vegna jákvæðrar verkunar þess á lík­ amsstarfsemina hafa æ fleiri notað ýmis fæðubótarefni sem innihalda virk efni úr grænu tei. Grænt te á að geta dregið úr líkum á hjarta­ og æðasjúk­ dómum og myndun ýmissa krabba­ meina. Það er hins vegar ástæða til þess að vara fólk við því að í þessum efnum getur verið mun meira magn af virkum efnum en í hefðbundnum te­ bolla. Ofneysla slíkra efna getur valdið skaða og tilkynnt hefur verið um ein­ staklinga þar sem alvarlegar breyting­ ar á lifrarstarfsemi hafa verið raktar til neyslu á vörum úr grænu tei. Natalie syndir á hverjum degi Natalie Portman er ávallt í góðu formi og leggur hart að sér í rækt­ inni. Hún heldur tryggð við sundið til að halda heilsu og úthaldi með­ an hún er með barni en meðan hún kom sér í form fyrir The Black Swan synti hún í meira en klukkustund á hverjum degi. Nú tekur hún því aðeins rólegar og segist halda að barninu líði jafn vel og henni með­ an hún er í sundlauginni. Uppáhaldsæfing Heidi Klum Heidi Klum er margra barna móðir í fantaformi. Hún er með réttu genin og hefur starfað sem háleggjuð fyrir­ sæta árum saman. Hún stundar þó stífa heilsurækt og hefur kynnt þjálf­ unarprógramm sitt víða um heim. Ein uppáhaldsæfing hennar er ball­ ettstaða sem kallast „plie“. Plié – Beygjur með kálfalyftum Vöðvar: Rass, mjaðmir og kálfar Tími: 1 mínúta Stattu með axlabreidd á milli fóta. Tær ættu að snúa út í 45 gráður frá líkamanum. Beygðu þig niður eins og þú ætlir að setjast á hækjur þér. Láttu rassinn standa út í loftið þegar þú beygir þig og láttu líkamsþungann hvíla á hælunum. Þegar þú ert komin niður í beygjuna tekurðu þungann af hælunum og rennir þér upp á tábergið. Setur svo hælana aftur í gólfið og spennir innri lærvöðva og rassvöðva áður en þú réttir úr þér aftur. Passaðu upp á hné og neðra bak þegar þú gerir þessa æfingu. Ef þig verkjar í mjóbakið ertu ekki að spenna magavöðvana nægilega vel í æfingunni. Þessa æfingu er hægt að gera með öðrum eins og sést á myndinni. Lýsi Ómega-3 fitusýrur í lýsi hafa jákvæð áhrif á starfsemi heilans. Ég er hæstánægð og spennt og þetta er gott tækifæri fyrir mig sem atvinnumann,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, nýtt andlit Reebok og atvinnumaður í CrossFit. Anni Mist er aðeins 21 árs en er mikil afrekskona í íþróttum. Hún skrifaði nýlega undir samning við hið heimsþekkta íþróttamerki Reebok í Bandaríkjunum. Fyrirtækið ætl­ ar í sérstakt samstarf við CrossFit. Ástæðan er vinsældir þessa æfinga­ kerfis um allan heim. „CrossFit­kerf­ ið eykur bæði styrk og þol og byggir einnig á hinum ýmsu æfingum eins og hlaupi, ólympískum lyftingum, ketilbjölluæfingum, fimleikum og fleira. Það er fyrir alla, það er alveg sama hvert líkamlegt ástand þitt er eða geta, þú getur hafið æfingar. Þú getur æft á líkamsræktarstöð, heima eða úti við,“ segir Annie Mist frá. „Að auki eru markmiðin mjög heilbrigð, þau felast í auknu úthaldi og styrk og því að koma innri starfsemi líkamans í lag. Í CrossFit er enginn að horfa á vigtina,“ segir Annie og hlær. Borðar 6 egg í morgunverð Reebok vinnur nú að því að hanna nýja skó­ og fatalínu með Annie og öðrum CrossFit­iðkendum og verð­ ur línan hönnuð sérstaklega með CrossFit í huga. Annie Mist fær borg­ uð laun á ársgrundvelli, kemur fram í auglýsingum á vegum fyrirtækis­ ins og fær að taka þátt í hönnunar­ ferlinu. Forsvarsmenn fyrirtækisins fagna því að fá svo flotta íþróttakonu til liðs við sig en Annie Mist á lang­ an íþróttaferil að baki sem nýtist henni vel til framúrskarandi árang­ urs í CrossFit­íþróttinni. Hún æfði fimleika með Gerplu, stangarstökk og BootCamp áður en hún ákvað að leggja fyrir sig CrossFit fyrir tveim­ ur árum. Hún leggur hart að sér á hverjum degi, æfir 11 sinnum í viku, tvisvar á dag, og gætir að því að borða fæðu sem uppfyllir orkuþörf hennar. En hvað skyldi hún fá sér í morg­ unverð? „Ég fæ mér sex eggja omme­ lettu með haframjöli, tvö heil egg og fjögur bara með hvítunni. Svo fæ ég mér möndlur líka til þess að fá góða fitu.“ Annie Mist Þórisdóttir er nýtt andlit Reebook, hún er atvinnumaður og þjálfari í CrossFit og segir lesend- um DV frá íþróttinni og hvernig má ná góðum árangri með markvissum æfingum. Annie Mist hefur náð langt í íþróttinni þrátt fyrir ungan aldur, hún er aðeins 21 árs og lenti í öðru sæti á heimsleikum CrossFit í fyrra. Íslensk afrekskona er nýtt andlit Reebok Hvað er CrossFit? Markmið CrossFit er að auka lífsgæði og heilsu. Kerfið er hannað þannig að hægt er að aðlaga það getu allra, óháð líkamlegri færni, og er því tilvalið fyrir hvern sem er. Sömu æfingar eru gerðar af eldri borgurum og afreksíþróttamönnum, en lagaðar að getu og líkamsástandi hvers og eins. Þeir sem æfa CrossFit eiga að borða það sem gagnast þeim en sleppa óþarfa. Þegar búið er að ná tökum á æfingunum má æfa hvar sem er – heima, úti eða á líkamsræktarstöð. Æfingarnar eru kröftugar, stuttar og árangursríkar. Lykilatriði n Borðaðu magurt kjöt, fisk, grænmeti, ávexti og hnetur n Taktu lýsi og ómega-fiskiolíu n Korn- og mjólkurvörur í lágmarki og enginn viðbættir sykur n Borðaðu hóflega 5–6 sinnum á dag n Gerðu fjölbreyttar æfingar 5–6 sinnum í viku n Gerðu styrktar-, liðleika-, þol- og þrekæfingar – ekki festast í rútínu. Góð ráð n Nartaðu í möndlur yfir daginn eins og Annie Mist, úr þeim færðu úrvals fitu. n Fáðu þér úrvals morgunmat og sjáðu til þess að orkuþörfinni sé fullnægt. Annie Mist fær sér ommelettu með haframjöli. Flott afrekskona og nýtt andlit Reebook Annie Mist Þórisdóttir er á mikilli uppleið í atvinnuheimi CrossFit-íþróttar- innar sem verðu æ vinsælli um heim allan. Mynd sigtRyggUR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.