Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Page 50
50 | Lífsstíll 15.–17. apríl 2011 Helgarblað
E
f þú ætlar að eyða einni nótt
með kvenmanni án nokkurra
skuldbindinga eru nokkrir
hlutir sem þú verður að hafa
í huga. Þú mátt ekki gefa til kynna að
nóttin hafi meiri meiningu en hún
hefur í raun og veru en þú mátt samt
ekki vera dónalegur. Hér á eftir koma
fjórar lykilreglur til að hafa í huga við
einnar nætur gaman án þess að skilja
einhvern eftir með kramið hjarta.
Ekki senda röng skilaboð
Þú vilt ekki skilja eftir þig slóð af kon-
um sem þú hefur farið illa með. Aug-
ljóslega segirðu ekki „ég elska þig“
við kvenmann nema að meina það.
Það er samt miklu fleira sem þú mátt
ekki segja eða gera. Slík skilaboð fela
í sér að skyndikynnin hafi meiri þýð-
ingu fyrir þig en þau hafa í raun og
veru. Það þarf að vera ljóst frá fyrstu
stundu hversu mikla þýðingu nóttin
hefur fyrir þig áður en nokkuð ger-
ist. Meðal þess sem þú skalt forðast
er að skipuleggja hvað þið ætlið að
gera morguninn eftir og útbúa fyrir
hana dýrindis morgunverð, það er
að segja ef þú vilt ekki neitt meira en
eina nótt.
Gerðu þetta skemmtilegt
Þó að þú eyðir nóttinni með kven-
manni þýðir það ekki að þú mun-
ir stunda kynlíf í átta tíma. Passaðu
þig að gera eitthvað skemmtilegt
– annað en að stunda kynlíf – með
henni sem þið njótið bæði. Horfðu
með henni á góða kvikmynd eða tal-
aðu við hana um lífið og tilveruna á
meðan þið fáið ykkur rauðvín eða
bjór. Ef þú ætlar bara að eyða nótt-
inni passaðu þig þá að ræða ekki of
mikið um æskuárin eða hvar þið ól-
ust upp. Haltu umræðuefninu léttu
og skemmtilegu með hæfilega miklu
magni af daðri. Passaðu þig á að
verða samt ekki kjánalegur og ganga
of langt.
Haltu sumu fyrir sjálfan þig
Ef fagur kvenmaður býður þér heim
með sér þegar þú átt ekki endilega
von á því, passaðu þig þá á því að
falla ekki í þá gryfju að tala enda-
laust um sjálfan þig. Um leið og
þú tekur eftir því að þú ert farinn
að tala um þig stoppaðu þá strax.
Það nennir enginn kona að hlusta
á þig tala um sjálfan þig klukkutím-
um saman ef hún er að bjóða þér
óvænt heim. Leyfðu henni frekar að
tala. Það skemmir heldur ekki fyr-
ir að hafa smá dulúð. Þú mátt samt
ekki ganga of langt og segja henni
ekkert um þig. Þú verður að finna
milliveginn því engin kona eyðir
nóttinni með manni sem hún veit
akkúrat ekkert um.
Hafðu afsökun fyrir því að fara
Þó að þú hafir gert henni það ljóst
að þú viljir ekki meira en eina nótt er
aulalegt að fara morguninn eftir án
þess að hafa neina afsökun fyrir því.
Láttu hana vita áður en þið eyðið
nóttinni saman að þú farir morgun-
inn eftir til að gera eitthvað ákveð-
ið. Það er í rauninni sama hvað þú
ætlar að gera, þú verður bara að geta
sagt henni eitthvað. Þú getur sagst
þurfa að mæta í vinnuna, sækja vin
þinn eitthvert eða að þú hafir gert
plön með fjölskyldunni þinni. Pass-
aðu þig þó á því að ljúga ekki að
henni. Það sem þú segist ætla að
fara að gera þarftu þá að gera.
RegluR einnaR
nætuR gamans
n Fjórar lykilreglur til að hafa í huga ef þú ætlar að eiga einnar nætur gaman
n Ekki senda röng skilaboð eða
tala of mikið um sjálfan þig