Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 4
4 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Útvarpsstjóri
með 6,6 milljónir
króna í laun
Páll Magnússon útvarpsstjóri var
með 6,6 milljónir í laun á tíma-
bilinu frá 1. september í fyrra til 28.
febrúar á þessu ári. Ef útvarpsstjóri
er með sömu laun yfir árið má áætla
að hann hafi 13,2 milljónir í laun og
þóknanir á ári sem gerir 1,1 milljón
á mánuði. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá RÚV.
Þar kemur einnig fram að hagn-
aður af rekstri RÚV var 257 milljónir
á tímabilinu frá byrjun september
til loka febrúar. Afkoman er 52 millj-
ónum betri en áætlun rekstrarársins
gerði ráð fyrir.
Í árshlutareikningnum kemur
fram að heildarlaun og þóknanir til
tíu helstu stjórnenda félagsins hafi
numið 46,5 milljónum króna.
Tekjulágum
boðnar ókeypis
tannlækningar
Tryggingastofnun hefur opnað
fyrir umsóknir um ókeypis tann-
lækningar fyrir börn frá tekjulág-
um heimilum. Boðið verður upp á
þjónustuna frá 1. maí til 26. ágúst.
Það eru tannlæknar í tann-
læknadeild Háskóla Íslands sem
meta hvað teljast nauðsynlegar
tannlækningar og þar er þjónust-
an veitt. Umsóknarfrestur er til 1.
júní og er þjónustan fyrir börn á
öllu landinu.
Réttur til þjónustunnar mið-
ast almennt við að barnið búi og
hafi lögheimili hjá því foreldri/for-
ráðamanni sem sækir um og að
allar skattskyldar tekjur umsækj-
anda á árinu 2010 séu sem hér
segir:
n Einstæðir foreldrar/forráða-
menn með tekjur undir 2.900.000
kr.
n Hjón eða sambúðarfólk með
tekjur undir 4.600.000 kr.
n Tekjuviðmiðið hækkar um
350.000 kr. fyrir hvert barn um-
fram eitt.
n Heimilt er að víkja frá tekjuvið-
miði ársins 2010 ef um verulega
lækkun tekna á árinu 2011 er að
ræða svo sem vegna atvinnuleysis.
Karlkyns hænuungar eru aflífaðir eins dags gamlir:
Ungar drepnir með gasi
„Við höfum ekki gert athugasemdir
hvað varðar aflífun á karlkyns ungum
hér á landi,“ segir Brigitte Brugger,
sérgreinadýralæknir hjá Matvæla-
stofnun. Sjá má erlend myndbönd á
netinu þar sem dagsgamlir ungar eru
settir í tætara eða hent í tunnu þar
sem þeir kremjast og kafna til dauða.
Karlkyns ungar í varphænsnarækt
eru aflífaðir eins dags gamlir þar sem
yfirleitt er ekki hægt að nota þá og
segir Brigitte að á Íslandi séu ung-
arnir gasaðir með koltvísýringi.
Sif Traustadóttir, dýralæknir og
meðlimur í Velbúi, tekur í sama
streng og segist ekki vita til annars
en að ungar séu aflífaðir með gasi
hér á landi. „Tætarar eru ekki leyfðir
á Íslandi en það eru þó skiptar skoð-
anir á því hvort það sé ómannúð-
legra. Þó það sé mjög óhuggulegt þá
er það samt sem áður skjótur dauð-
dagi,“ segir hún. Varðandi fréttir að
undanförnu um tilfelli af dritbruna
og beinbrotum hjá fuglunum segir Sif
að mikilvægt sé að hafa strangt eftir-
lit með þessum málum. „Ef fyrirtæk-
in eru staðin að verki eiga að vera við-
urlög við því. Það ætti að vera eins og
með umferðarlagabrot þar sem þú ert
sektaður um leið og málið þarf ekki að
vera kært til lögreglu eða að fara fyr-
ir dóm,“ segir hún en bendir á að slys
geti orðið vegna mannlegra mistaka.
Ef slík tilfelli komi endurtekið upp
þurfi að skoða málið. Eins sé það hag-
ur bænda að halda fuglunum óbrotn-
um þar sem að við beinbrot blæði inn
í kjötið og það verður óhæft til sölu.
Jón Bjarnason landbúnaðarráð-
herra greindi frá því á málþingi í vik-
unni að ný lög um dýravernd yrðu
lögð fram í lok maímánaðar. Sif von-
ast til að með þeim verði eftirlitsað-
ilum veittur réttur til að sekta um leið
og brot verða uppvís. Sektirnar þurfi
einnig að vera nægilega háar til að
það borgi sig fyrir bændur að fylgja
reglunum.
gunnhildur@dv.is
Dagsgamall ungi Karlkyns ungar í varphænsnaframleiðslu eru aflífaðir því þeir eru ekki
nothæfir. MYND REUTERS
n Hjördís Aðalheiðardóttir er farin með dætur sínar til Danmerkur n Segir galla í
kæru Sveins Andra hafa orðið til þess að málið var ekki tekið upp aftur n Mistök
lögfræðings sögð á hennar ábyrgð n Faðir stúlknanna vill fá fullt forræði yfir þeim
Segir Svein Andra
hafa klúðrað málinu
„Og núna í fyrramálið þarf ég að fara
með systur minni og dætrum hennar
út til Danmerkur,“ skrifaði Ragnheið-
ur Rafnsdóttir, systir Hjördísar Svan
Aðalheiðardóttur, á bloggsíðu sína á
miðvikudag. „En við erum löghlýðn-
ar systur og hlýtum því þeim dómi
sem við höfum fengið,“ bætir hún
við. Hjördís kom hingað til lands frá
Danmörku með þrjár dætur sínar á
aldrinum þriggja til sjö ára í október
í fyrra, en hún bjó úti ásamt dönsk-
um eiginmanni sínum sem er faðir
stúlknanna. Hún hefur sakað hann
um að beita bæði sig og börnin and-
legu og líkamlegu ofbeldi og segist
ekki hafa átt annarra kosta völ en að
flýja.
Faðirinn vill varanlegt forræði
Hjördís hefur ekki fullt forræði yfir
börnunum og braut því bæði á for-
sjár- og umgengnisrétti föðurins með
því að fara með stúlkurnar úr landi
án hans leyfis. Hann hefur gengið
hart eftir því að fá börnin til Dan-
merkur aftur og Hæstiréttur Íslands
staðfesti dóm Héraðsdóms Austur-
lands í mars síðastliðnum þess efn-
is að Hjördís skyldi skila dætrunum
til föðurins. Samkvæmt bloggsíðu
Ragnheiðar hefur Hjördís nú fylgt
úrskurðinum eftir og er farin með
stúlkurnar til Danmerkur þar sem
faðirinn mun hafa óskað eftir varan-
legu forræði yfir þeim.
Mistök lögfræðings
á hennar ábyrgð
Hjördís segist í samtali við DV vera
mjög ósátt við þá meðferð sem málið
fékk fyrir dómstólum á Íslandi. Hún
segir Svein Andra Sveinsson lög-
mann, sem rak málið fyrir hana, hafa
orðað kæru málsins til Hæstaréttar
vitlaust og því hafi henni verið neit-
að um endurupptöku málsins þeg-
ar hún óskaði eftir því á grundvelli
nýrra gagna ásamt nýjum lögmanni
sínum, Hreini Loftssyni. Hjördís seg-
ir öll gögn í málinu benda til þess að
hag barnanna sé betur borgið á Ís-
landi, en hún er búin að koma sér fyr-
ir á Höfn í Hornafirði ásamt dætrum
sínum og 13 ára syni af fyrra hjóna-
bandi. „Það er bara verið að þvinga
þær til að fara grátandi. Þetta er mjög
undarlegt. Það kom ný sálfræði-
skýrsla um að það væri mjög hættu-
legt að senda þær til baka út af því
hvernig maðurinn væri. En samt, út
af þessum galla í kæru Sveins Andra,
vildu þeir ekki taka málið aftur upp.
Þeir segja að mistök lögfræðings
séu á mína ábyrgð.“ Hjördís segist
þó aldrei hafa fengið að sjá kæruna
sjálf því Sveinn Andri hafi aldrei sent
henni hana. Hún segir það þó varla
hafa breytt miklu því hún sjálf hafi
ekki þekkingu á því hvernig orða eigi
kæru rétt.
„Hef ekki heyrt neinar
athugasemdir“
„Ég kærði úrskurð héraðsdóms til
Hæstaréttar og eitt af því sem ég fór
fram á þar var að það yrði kvaddur til
nýr sálfræðingur en Hæstiréttur taldi
ekki skilyrði fyrir því,“ segir Sveinn
Andri aðspurður hvað kæran til
Hæstaréttar vegna úrskurðar héraðs-
dóms hafi falið í sér. „Eftir að Hæsti-
réttur kvað upp sinn úrskurð veit ég
ekki hvað hefur gerst. Það eina sem
ég veit er að hún ætlaði að reyna end-
urupptöku, en ég taldi ekki skilyrði
fyrir því. Lögin eru bara eins og þau
eru.“ Hann segir málið hörmulegt og
skilur Hjördísi vel, að sætta sig ekki
við úrskurðinn, en að aðkomu hans
að málinu, sem lögmanns, hafi lokið
þegar Hæstiréttur staðfesti dóm hér-
aðsdóms. „Ég hef ekki heyrt neinar
athugasemdir af hálfu míns umbjóð-
anda við okkar málatilbúnað,“ segir
Sveinn Andri að lokum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Farin til Danmerkur Hjördís segir galla
í kæru Sveins Andra til Hæstaréttar hafa
orðið til þess að henni var synjað um endur-
upptöku málsins.
„Þeir segja að mis-
tök lögfræðings
séu á mína ábyrgð.
Engar athuga-
semdir Sveinn
Andri segist engar
athugasemdir hafa
fengið frá Hjördísi.