Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 50
50 | Lífsstíll 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað Gunnar á Hlíðarenda fékk sér aldrei próteinduft L íkamsræktarstöðvar lands- ins bjóða flestar upp á margs- konar styrktarþjálfunar- og þrektíma, allt frá Zumba yfir í spinning og krossfit en bardaga- kapparnir hjá Mjölni vilja gera eins og víkingarnir forðum og stela því besta sem er í boði. Þeir leggja líka áherslu á að kreatín og próteinduft sé peningasóun. Tímana kalla þeir Víkingaþrek en þar eru gerðar æf- ingar að hætti Gunnars á Hlíðarenda og Grettis sterka svo fátt eitt sé nefnt. „Við ætlum að blanda saman því sem okkur þykir virka í þrek- og styrktarþjálfun. Ef við komumst að því að æfingarnar skila ekki æski- legum árangri þá bara hendum við þeim út. Það er svo mikið af bulli til í þessu, “ segir Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis. „Við tökum það besta úr ketil- bjöllutímum, frjálsíþróttum, kross- fit, kraftlyftingum og fleiru, viljum ekki festa okkur í einni leið. Svo not- um við sleggjur, kaðla, boxpúða og eigin styrk líkamans eins og í upp- hífingum, armbeygjum og slíku. Vík- ingaþrek er bara skemmtilegt nafn yfir þetta allt saman.“ Bæði æfingar og tímar heita í höfuðið á víkingum og atburðum úr Íslendingasögunum. Ein æfingin heitir til að mynda „Gunnar á Hlíð- arenda“ en þar leitast þátttakendur við að hoppa hæð sína líkt og Gunn- ar og líkja eftir því sem hann kunni og gat: „Hann var mikill maður vexti og sterkur og allra manna best vígur. Hann hjó báðum höndum og skaut ef hann vildi og hann vó svo skjótt með sverði að þrjú þóttu á lofti að sjá. Hann skaut manna best af boga og hæfði allt það er hann skaut til. Hann hljóp meir en hæð sína með öllum herklæðum og eigi skemmra aftur en fram fyrir sig. Hann var syndur sem selur. Og eigi var sá leikur að nokkur þyrfti við hann að keppa og hefir svo verið sagt að engi væri hans jafningi.“ Einnig fara fram styrktaræfingar þar sem konur og menn mæla sína eigin getu. Þá heitir þyngsta þraut- in í karlaflokki Óðinn og þar reyna menn að lyfta 48 kg lóði meðan ýmsar kúnstir eru framkvæmdar en kvennaæfingarnar heita í höfuðið á gyðjum úr goðafræðinni – Frigg, Freyja og svo framvegis og þá eru lóðin eitthvað léttari. Kennarar í tímunum eru allt af- reksfólk á sviði íþrótta, meðal ann- ars Íslandsmeistarar í karate, hnefa- leikum og frjálsum íþróttum svo fátt eitt sé nefnt. Ekkert bull í gangi Jón Viðar leggur mikla áherslu á að það sé ekkert bull í gangi í Mjölni og ef æfingarnar skili ekki þeim ár- angri sem fólk er að leita eftir verði þær teknar af kortinu. Það sama gildi um mataræðið, Mjölnismenn bjóði ekki upp á neina vitleysu í þeim efn- um. Hann hefur ákveðnar skoðanir á fæðubótarefnum og segir það út í hött hversu mikil áhersla er lögð á neyslu þeirra á mörgum líkamsrækt- arstöðvum. „Þú þarft engin fæðubótarefni til að komast í form. Það er alltaf verið að bulla svo mikið í fólki. Þér er sagt að borða þetta fyrir æfingu, þetta eft- ir æfingu, þetta áður en þú ferð að sofa, svona þegar þú vaknar og svo framvegis. Þetta er allt saman þvæla. Hér í Mjölni er enginn að nota svona fæðubótarefni og þó eru hér fremstu bardagamenn landsins í toppformi. Gunnar á Hlíðarenda tók ekki kreatíntöflur fyrir svefninn eða drakk próteinduft með jarðarberja- bragði og Grettir sterki lét þetta alveg eiga sig líka. Við gefum fólki góð ráð í sambandi við mataræði en þau fel- ast sannarlega ekki í hvatningu til að troða í sig pillum og dufti,“ segir Jón Viðar ákveðinn. Endurgreiddum öllum Hann segir mikið af vitleysu í gangi í heimi íþrótta og vaxtarræktar og að þar séu bardagaíþróttir heldur engin undantekning: „Við vorum einu sinni með nám- skeið hérna, fengum þjálfara til að vera með æfingabúðir sem margir skráðu sig í en fljótlega komumst við að því að æfingarnar voru tilgangs- laus tímasóun. Þá hættum við við tímana og endurgreiddum öllum. Við reynum að gera allt eins rétt og mögulega hægt er. Það er nóg af vit- leysunni,“ segir Jón Viðar að lokum. Til að fræðast meira um Víkinga- þrek og skráningu er hægt að fara á heimasíðu Mjölnis, mjolnir.is. margret@dv.is Æfingar í Víkingaþreki Gunnar á Hlíðarenda: Hér reyna þátttak- endur að stökkva eins hátt og hægt er, æfa snerpu, hraða og úthald. Grettir sterki: Hér æfa þátttakendur sinn eigin líkamsstyrk með því að lyfta eins þungu og líkaminn leyfir. Njálsbrenna: Í Njálsbrennu eru það hitaeiningarnar sem brenna, öllum gluggum er lokað og húsið hitað upp í topp. Gísli Súrsson: Í Gísla Súrssyni er reynt að hækka mjólkursýrumyndun í vöðvum. Örlygsstaðabardagi: Í einum stærsta bardaga Íslendingasagnanna réðust menn hver á annan en hér er m.a. ráðist á boxpúða. Egill Skallagrímsson: Þetta eru snargeð- veikar æfingar enda var Egill snargeðveikur. Drap mann aðeins sjö ára gamall og svona. Mjölnismenn kenna fólki að hoppa hæð sína í fullum herklæðum, berjast eins og Egill Skallagrímsson og taka á því eins og Grettir sterki. Með hamar Þórs Að sjálfsögðu eru til lóð í formi hamars Þórs, hvað annað? Stelpur eru líka víkingar Kvennaæfingarnar eru nefndar eftir gyðjum úr goðafræðinni. Víkingastyrkur Aðstaða til víkingaþreks er til fyrirmyndar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.