Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 47
Lífsstíll | 47Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011
Eignastýring • Markaðsviðskipti • Fyrirtækjaráðgjöf
Arctica Finance er framsækið, óháð og sjálfstætt
fjármálafyrirtæki sem hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.
Fyrirtækið er í eigu starfsmanna sem búa að áralangri og
víðtækri reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
www.arctica.is | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 513 3300
Fimm reglur sem hamingjusömum pörum er sagt að fylgja:
Reglur sem vert er að brjóta
Í viðtölum við konur sem hafa verið
giftar lengi hafa þær uppljóstrað að
þær hamingjusömustu eru þær sem
brjóta reglurnar. Hérna eru fimm
reglur sem pör mættu íhuga að brjóta:
1 Að fara aldrei í slæmu skapi í háttinn
Eitt af elstu ráðunum í bransanum.
Þetta er aftur á móti ekki bara óraun-
hæft tilfinningalega heldur einnig
líkamlega.
2Látið hvort annað vita hvað þið viljið í rúminu
Að segja að hamingjusöm pör sýni
og láti vita hvað þau vilja í rúminu
gerir ráð fyrir að tæknin skipti öllu
máli. Góð samskipti eru mikilvæg en
að tala um hvað eigi að gera þegar
skriðið er upp í rúm þarf ekki alltaf
að fylgja með.
3 Hann sér um sína foreldra og hún sér um sína
Sumir foreldrar eru búnir að finna
leiðir til að gera börnin sín brjáluð
frá unga aldri. Það skiptir ekki máli
hver sér um samskiptin við foreldr-
ana heldur hvernig. Stundum er auð-
veldara að láta tengdabörnin sjá um
samskiptin því að foreldrarnir líta
ekki á þau sem litlu börnin sín.
4Þið getið ekki breytt hvort öðru, hættið því að reyna
Auðvitað áttu ekki að neyða mak-
ann til að vera eitthvað sem hann er
ekki og öfugt. Aftur á móti á gott sam-
band að breyta ýmsu í lífi hins aðil-
ans. Gott samband á að hjálpa fólki
að vaxa og prófa nýja hluti sem það
myndi annars ekki gera.
5Hamingjusöm pör eru alltaf saman um hátíðirnar
Skilaboð samfélagsins eru skýr.
Hamingjusömu pörin eru alltaf sam-
an um hátíðirnar. Það sem skiptir
máli er að báðir aðilar séu sáttir. Ef
annar aðilinn er kominn með þrá til
að heimsækja fjölskylduna sem býr
langt í burtu en hinn aðilinn hefur
ekki tíma, finnið lausn sem
hentar ykkur báðum.
Hér að neðan eru nokkur einföld ráð
sem geta komið að góðum notum gegn
svefntruflunum. Ráðin eru fengin að láni
af vef landlæknis:
1 Mikilvægast er að fara á fætur á sama tíma á hverjum morgni. Forðastu að
leggja þig á daginn og farðu í háttinn á
sama tíma öll kvöld.
2 Ef þú getur ekki sofnað farðu fram úr og gerðu eitthvað annað – t.d. lestu
í góðri bók, hlustaðu á rólega tónlist.
Leggðu þig aftur þegar þig syfjar á ný.
3 Dagleg líkamleg áreynsla leiðir til dýpri svefns, en óreglulegar æfingar
einkum seint á kvöldin hafa engin eða
slæm áhrif á svefninn nóttina eftir. Ró-
legheit að kveldi auðvelda þér að sofna.
Forðastu mikla líkamlega áreynslu og
hugaræsingu.
4 Betra er að hafa daufa lýsingu í kringum sig á kvöldin.
5 Kaffi truflar svefn og rétt er að neyta þess í hófi og aldrei eftir kvöldmat.
Sama máli gegnir um te og kók. Forðast
ber neyslu áfengra drykkja. Alkóhól
truflar svefn.
6 Létt máltíð fyrir svefninn hjálpar mörgum að sofna, t.d. flóuð mjólk
og brauðsneið.
7 Heitt bað stuttu fyrir háttinn getur auðveldað sumum að sofna.
8 Hafðu hitastig í svefnherginu hæfilega lágt. Sofðu við opinn
glugga og hafðu dimmt í herberginu
meðan þú sefur. Athugaðu að rúmið þitt
sé þægilegt. Forðastu að horfa á sjón-
varpið úr rúminu og reyndu að draga úr
hávaða í kringum þig.
8 ráð til að sofa vel
KoMDu í áSKRiFt!
512
70
80
dv.is/askrift