Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 52
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
K
ínverjar upplýstu í vikunni
um áform sín um að byggja
og starfrækja sína eigin geim-
stöð innan næstu tíu ára.
Minna en áratugur er síðan Kínverjar
sendu mannað geimfar á sporbaug
um jörðu og fyrir þremur árum tókst
þeim í fyrsta skipti að framkvæma
svokallaða geimgöngu, það er þeg-
ar geimfarar athafna sig fyrir utan
geimfarið.
Geimferðaáætlun Kínverja er
viðamikil og margþætt, tunglið er á
meðal markmiða þeirra en takmark-
ið er að senda þangað ómannað
geimfar innan tveggja ára og á end-
anum mannað far innan fimmtán
ára.
Flotanum lagt
Töluverðar breytingar eru nú að
verða á geimbrölti stórveldanna,
Bandaríkjamenn leggja öllum
geimskutluflota sínum í júní næst-
komandi og eru þá aðeins Rússar
eftir til að ferja geimfara, búnað og
vistir til og frá Alþjóðlegu geimstöð-
inni í bili. Geimstöðin sjálf, sem er
samvinnuverkefni Evrópumanna,
Bandaríkjamanna, Rússa og Japana,
er komin til ára sinna og var upphaf-
lega áætlað að taka hana úr notkun
árið 2015 en líklegt þykir nú að hún
verði starfrækt framundir 2030 þrátt
fyrir að búast megi við síauknu við-
haldi og bilunum.
Yfir í einkageirann
Áhugi Bandaríkjamanna á að veita
þeim gífurlegu fjármunum sem til
þarf af almannafé í rannsóknir og til-
raunir í geimnum hefur dvínað veru-
lega síðasta áratuginn. Stjórnvöld
þar horfa nú frekar til þess að fjár-
festa í hátæknifyrirtækjum með það
að markmiði að koma á fót nokkurs
konar geimskutluþjónustu og örva
um leið bandarískan efnahag.
Kínverska geimstöðin
Geimstöðin sem Kínverjar ætla sér
að koma á sporbaug um jörðu mun
vega um 60 tonn og því talsvert
minni í sniðum en Alþjóðlega geim-
stöðin (419 tonn) eða hin rússneska
MIR (137 tonn) sem var í notkun frá
1986 til 2001.
Stöðin verður þrískipt en tveir hlut-
ar hennar verða sérhæfðar rannsókn-
arstofur þar sem ætlunin er meðal
annars að rannsaka þyngdarafl í lág-
marki (micro gravity) og áhrif geim-
geislunar með tilliti til líffræði. Stöð-
inni er ætlað að hýsa þrjá geimfara og
stefnt að því að hún verði nothæf í allt
að áratug. Kínverjar eru nú að hanna
flutningaferju sem ætlað er að ferja
vistir og búnað til stöðvarinnar og
seinna á þessu ári hefjast tilraunir úti
í geimnum vegna ýmissa tæknilegra
þátta við uppsetningu hennar.
Apple og Google
kölluð fyrir nefnd
Fulltrúar tæknirisanna Apple og Google
hafa verið boðaðir fyrir nefnd bandaríska
þingsins sem fjallar meðal annars um
friðhelgi og tækni. Boðunin kemur í kjölfar
frétta undanfarið þar sem kom meðal annars
fram að í Android- og iOS-stýrikerfunum eru
skráðar upplýsingar um þráðlausa punkta
og fjarskiptaturna í umhverfi notandans
marga mánuði aftur í tímann. Steve Jobs,
aðalframkvæmdastjóri Apple, sagði í viðtali
í vikunni að Apple hefði og myndi aldrei
safna upplýsingum um notendur, Apple
hefði aldrei reynt að fela tilvist þessara
upplýsinga heldur væri einungis um að ræða
hluta af staðsetningarþjónustu iOS (location
services). Hugbúnaðaruppfærsla, sem meðal
annarra breytinga myndi stytta þann tíma
sem viðkomandi upplýsingar væru geymdar í
kerfinu, kæmi væntanlega innan fárra vikna.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Google Docs
fyrir Android
Það færist æ meir í vöxt að eigendur snjall-
síma nýti þá til ýmiss konar skjalavinnslu
en eigendur Android-síma og spjaldtölva
sem nota Google Docs að jafnaði geta nú
náð í sérhæfða útgáfu af Docs fyrir Android.
Forritið gerir á auðveldan máta kleift að leita
að og deila skjölum, senda skjöl eða myndir
beint úr símanum inn í Docs eða vinna í þeim
skjölum sem eru til staðar.
Háskerpa
fyrir útivistarfólk
Samsung hefur sett á markað HMX-W200
vasaupptökuvélina sem er högg-, ryk- og
vatnsheld og ætti því að henta útivistarfólki
vel. Vélin getur tekið upp háskerpumynd-
skeið í 1080p og þar sem vélin er vatnsheld og
linsan sérstaklega húðuð er einnig hægt að
taka upp myndskeið neðansjávar eða undir
vatnsyfirborði, niður á
allt að þriggja metra dýpi.
Fyrir upptökur í vatni
er hægt að setja vélina
á svokallaðan „Aqua
Mode“ sem finnur þá
sjálfvirkt bestu mögulegu
stillingar við þær
aðstæður. HMX-W200 er
búin 5 megapixla CMOS-
skynjara og getur einnig
tekið ljósmyndir (5,5
megapixla).
Geimganga
Kínverja árið
2008 Geimfar-
arnir Liu Boming,
Zhai Zhigang og
Jing Haipeng veifa
til mannfjöldans
áður en þeir stíga
um borð í geimfarið
Shenzhou-7 í sept-
ember 2008.
Tæknileg og fjárhagsleg
geta Kínverja er orðin
það mikil að áður en
langt um líður gætu þeir
orðið þjóða fremstir í
geimkönnun og geim-
ferðum.
Kínverjar
byggja geimstöð
Á sporbaug um jörðu Kínverska geimstöðin eins og nú er gert ráð fyrir að hún komi til
með að líta út.