Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
„Það var bara bilað veður hérna.
Það eru heilu hverfin sem eru ónýt
hérna rétt hjá okkur,“ segir Svein-
björn Ingi Grímsson, Íslendingur
sem stundar nám við Birmingham-
Southern College í Alabama. Skól-
inn er skammt frá því svæði sem
varð hvað verst úti eftir mikið óveður
í suðurríkjum Bandaríkjanna á mið-
vikudag. Hvirfilbylur eyðilagði heilu
hverfin í Tuscaloosa í Alabama-ríki
og olli gríðarlegum skemmdum.
Sveinbjörn var á leiðinni á ham-
farasvæðið í Tuscaloosa þegar DV
ræddi við hann síðdegis á fimmtu-
dag. Meira en eitt hundrað hvirfil-
byljir gengu yfir suðurríki Banda-
ríkjanna í óveðrinu. Að minnsta
kostir 131 hefur látið lífið í ham-
förunum og alla vega 89 til viðbót-
ar í fjórum öðrum ríkjum. Óttast er
að tala látinna eigi eftir að hækka
á næstu dögum þar sem umfang
hamfaranna er ekki þekkt.
Aðstoðar á hamfarasvæðinu
„Það eru krakkar sem við þekkj-
um sem eiga fjölskyldu þarna og
við erum á leiðinni þangað að gera
það sem við getum,“ sagði Svein-
björn tilbúinn til þess að leggja sitt
af mörkum til að hjálpa á hamfara-
svæðinu. Sveinbjörn segir að mik-
ill viðbúnaður hafi verið á svæð-
inu þegar óveðrið gerði vart við sig.
„Það sem gerist er að það fara síren-
ur í gang og viðvörunarkerfi. Þetta
er æft í skólanum og allir nemend-
ur eru sendir á öruggt svæði og við
bíðum þess að stormurinn gangi
yfir,“ sagði Sveinbjörn og bætti því
við að bið nemendanna hefði verið
um klukkutími. Sem fyrr segir varð
þó mikil eyðilegging og ljóst að mik-
ið uppbyggingarstarf bíður íbúa á
þeim svæðum sem verst urðu úti.
Ekki vitað um meiðsli á
Íslendingum
Ekki er vitað að svo stöddu hvort
einhverjir Íslendingar hafa hlotið
skaða í óveðrinu. DV hefur rætt við
nokkra nemendur í Birmingham
og Montgomery í Alabama sem all-
ir eru óhultir. Eins og fyrr segir var
það Tuscaloosa sem varð verst úti
vegna óveðursins og fór hvirfilbylur
meðal annars yfir háskólalóð Uni-
versity of Alabama í Tuscaloosa.
DV er ekki kunnugt um neina Ís-
lendinga sem stunda nám við skól-
ann. „Það eru einhverjir örfáir á
þessu svæði. Menn þurfa náttúru-
„Það var bara bilað
veður hérna. Það
eru heilu hverfin sem eru
ónýt hérna rétt hjá okkur.
lega ekki að skrá sig hjá okkur inn
í lönd þannig að ég get ekki sagt
hve margir Íslendingar eru þarna.
En við höfum ekki fengið neinar til-
kynningar um neinn Íslending sem
eitthvað amar að. Þannig að við
verðum bara að vona það besta,“
sagði Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins,
við DV um málið.
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
Sveinbjörn Ingi Grímsson Hjálpar
til á hamfarasvæðinu í Tuscaloosa.
„Heilu hverfin ónýt“
n Minnst 220 látnir í óveðri í Bandaríkjunum n Engar tilkynningar um slasaða Íslendinga
n Sveinbjörn Ingi Grímsson, Íslendingur í Alabama, leggur sitt af mörkum við aðstoð