Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Síða 12
12 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Samkvæmt heimildum DV þykir ólík-
legt að Dögg Pálsdóttir lögmaður og
Sigurður Örn Leósson, forsvarsmaður
Finanzas Forex, fái samþykkta beiðni
sína um greiðsluaðlögun hjá umboðs-
manni skuldara. Þau hafa bæði verið
til umfjöllunar í fjölmiðlum undan-
farið.
Bæði eru í þeirri stöðu að þurfa ekki
að standa skil á milljóna króna skuld-
um sem dómstólar hafa dæmt þau til
að greiða þar sem beiðni þeirra um
greiðsluaðlögun er til meðferðar hjá
umboðsmanni skuldara.
Svanborg Sigmarsdóttir, sviðs-
stjóri kynningarsviðs hjá umboðs-
manni skuldara, segir í samtali við DV
að embættið veiti ekki upplýsingar
er snúa að einstaklingum sem þang-
að leita. Hún segist því ekki geta gefið
upplýsingar um hvort beiðni frá Dögg
Pálsdóttur og Sigurði Erni Leóssyni
um greiðsluaðlögun verði hafnað.
Stórskuldugur lögmaður
Lögmaðurinn Dögg Pálsdóttir hef-
ur verið mikið til umfjöllunar í fjöl-
miðlum eftir bankahrunið vegna mála
sem snúa að fjármálum hennar. Í lok
apríl árið 2010 dæmdi Hæstiréttur
félagið Insolidum, sem er þrotabú í
eigu Daggar og sonar hennar, til þess
að greiða Saga Capital um 300 millj-
ónir króna vegna láns sem bankinn
veitti félaginu í júlí árið 2007 til kaupa
á stofnfjárbréfum í SPRON.
Stuttu síðar dæmdi Hæstirétt-
ur Dögg til þess að greiða Sögu Verk-
tökum 31 milljón króna vegna fram-
kvæmda við tvær íbúðir í eigu Daggar
og sonar hennar. Saga Verktakar gat
hins vegar ekki innheimt skuldina eftir
að Dögg hafði sótt um greiðsluaðlög-
un hjá umboðsmanni skuldara sem
tók við beiðni hennar þann 10. des-
ember árið 2010.
Ekki er vitað hvenær umboðs-
maður skuldara upplýsir hvort beiðni
Daggar um greiðsluaðlögun verð-
ur samþykkt eða synjað. Samkvæmt
heimildum DV er talið ólíklegt að
beiðni hennar verði samþykkt. Skuldir
hennar séu þess eðlis. Hins vegar geta
Saga Verktakar ekki innheimt skuld
sína fyrr en umboðsmaður skuldara
hefur úrskurðað í máli Daggar.
Dæmdur eftir beiðni um greiðslu-
aðlögun
Umboðsmaður skuldara tilkynnti
1.apríl síðastliðinn að Sigurður Örn
Leósson hefði lagt inn beiðni um
greiðsluaðlögun. Hann hefur starfað
sem grunnskólakennari en er þekkt-
astur fyrir að vera forsvarsmaður Fin-
anzas Forex hér á landi sem um eitt
þúsund Íslendingar lögðu um einn
milljarð króna í. Lofaði fyrirtækið fólki
ofsagróða eða um tíu prósenta ávöxt-
un á mánuði.
Tveimur vikum eftir að umboðs-
maður skuldara tók á móti beiðni frá
honum um greiðsluaðlögun dæmdi
Héraðsdómur Reykjaness hann og
Kristján Ingólfsson til að greiða Frið-
riki Þorbergssyni málarameistara 14,1
milljón króna. Málsatvik voru þau að
í lok ágúst árið 2009 tóku þeir Sigurð-
ur Örn og Kristján við tíu milljónum
króna frá Friðriki og lofuðu honum tíu
prósent ávöxtun á mánuði og tryggð-
an höfuðstól. Þrátt fyrir að hafa þeg-
ar greitt honum tilbaka 7,7 milljónir
króna dæmdi héraðsdómur þá til þess
að greiða Friðriki 14,1 milljón króna.
Byggðist það meðal annars á því að
þeir höfðu lofað Friðriki tíu prósent
ávöxtun á mánuði.
Umboðsmaður skuldara skipaði
umsjónarmann með greiðsluaðlögun
Sigurðar Arnar. Geta þeir sem telja sig
eiga kröfur á hendur honum lýst þeim
fyrir 13. maí næstkomandi. Það kemur
því ekki í ljós fyrr en þá hvort einhverj-
ir þeirra þúsund Íslendinga sem lögðu
peninga í Finanzas Forex leggi fram
kröfur á hendur Sigurði Erni. Sam-
kvæmt heimildum DV er talið ólíklegt
að beiðni Sigurðar Arnar um greiðslu-
aðlögun verði samþykkt. Byggist það
meðal annars á því að hann hafi ver-
ið dæmdur til greiðslu 14,1 milljónar
króna tveim vikum eftir að umboðs-
maður skuldara tók við beiðni hans
um greiðsluaðlögun. Auk þess sé ólík-
legt að hann geti sýnt fram á að hafa
stofnað til skuldbindinga sinna í sam-
ræmi við greiðslugetu.
Óhóflega skuldsettum
einstaklingum hafnað
DV hefur heimildir fyrir því að nokk-
uð sé um að einstaklingar sem hafi
stofnað til óhóflega mikilla skuldbind-
inga hafi sótt um greiðsluaðlögun hjá
umboðsmanni skuldara. Á það sér-
staklega við um einstaklinga sem telj-
ast hafa tekið þátt í eins konar braski
með bíla, fasteignir og jafnvel verið í
verðbréfaviðskiptum. Samkvæmt lög-
um um greiðsluaðlögun einstaklinga
er hægt að hafna slíkum umsóknum
teljist einstaklingar hafa skuldsett sig
óhóflega mikið og í litlu samræmi við
greiðslugetu sína. Svanborg Sigmars-
dóttir segir erfitt að svara fyrir þessa
fullyrðingu. „Ekki er fyrirliggjandi
greining á ástæðum synjana, en af 617
afgreiddum umsóknum hefur 50 um-
sóknum um greiðsluaðlögun verið
synjað,“ segir hún. Því hefur embætt-
ið hafnað um átta prósentum af þeim
umsóknum sem hafa komið frá ein-
staklingum, hjónum eða sambýlis-
fólki.
Viðurlög við undanskoti eigna
Svanborg segir ekki vitað um tilfelli þar
sem einstaklingar hafi reynt að koma
eignum undan á ólögmætan hátt á
meðan þeir hafa verið í greiðsluaðlög-
un hjá embættinu. „Samvæmt lögum
um greiðsluaðlögun getur umsjón-
armaður óskað eftir því við umboðs-
mann skuldara að greiðsluaðlögun-
arumleitanir verði felldar niður,“ segir
hún aðspurð um til hvaða úrræða um-
boðsmaður skuldara geti gripið ef
einstaklingar reyni að koma eignum
undan. Þetta eigi þó ekki við eftir að
samningur um greiðsluaðlögun kemst
á. Ef skuldari hefur hins vegar vanrækt
verulega skyldur sínar gangnvart lán-
ardrottnum sínum getur lánardrottinn
krafist þess að samningi verði rift eða
hann gerður ógildur.
n Talið að Dögg Pálsdóttir og Sigurður Örn Leósson fái ekki greiðslu aðlögun
n 50 af 617 umsóknum hafnað n Óhóflega skuldsettir fá ekki greiðsluaðlögun
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Þau tvö fá enga
greiðsluaðlögun
8 prósentum hafnað Svanborg segir að um
50 af 617 beiðnum hafi verið hafnað.
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
NÝTT BLAÐ KOMIÐ Í VERSLANIR
Tryggðu þér eintak!
Áskrift í síma 578 4800
og á www.rit.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Tveir dómar
Félag Daggar hefur
verið dæmt til að
greiða samtals 331
milljón króna.
Lofaði miklum
gróða Sigurður Örn
Leósson lagði inn beiðni
um greiðsluaðlögun hjá
umboðsmanni skuldara
þann 1. apríl.
Tryggvi ósáttur
og vill fund
Tryggvi Þór Herbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í
efnahags- og skattanefnd Alþingis,
hefur óskað eftir fundi í nefndinni.
„Mér hefur borist til eyrna að á fundi
þingmannanefndar Evrópusam-
bandsins og Alþingis þann 27. apríl
síðastliðinn hafi átt að ræða bókun
þar sem fram kemur viðurkenning
á að efnahagsleg aðlögun Íslands að
Evrópusambandinu, sem samþykkt
var í janúar síðastliðnum, með for-
gagnsröðun verkefna til ársins 2013,
sé komin af stað,“ segir Tryggvi í til-
kynningu sem hann sendi frá sér.
Tryggvi segir að þessi forgangsröðun
hafi hvorki verið rædd í efnahags- og
skattanefnd né á þinginu.
„Ég fer því fram á að nefndinni
verði hið fyrsta gerð grein fyrir hvaða
efnahagsleg áætlun var samþykkt
í janúar, hvaða markmið hún inni-
heldur og hvað sé yfirleitt í gangi hjá
framkvæmdavaldinu varðandi þessi
mál,“ segir Tryggvi í tilkynningunni
sem hann sendi frá sér á fimmtudag.
Verðbólga mælist
nú 2,8 prósent
Vísitala neysluverðs miðuð við verð-
lag í apríl hækkaði um 0,78 prósent
frá fyrra mánuði, samkvæmt nýjum
tölum Hagstofunnar. Vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis er hækkaði um
0,65 prósent frá mars.
Verð á bensíni og olíum hækk-
aði um 3,2 prósent og flugfargjöld
til útlanda hækkuðu um 16 prósent.
Þessir þættir vega þyngst til hækkun-
ar verðbólgu. Kostnaður vegna eigin
húsnæðis jókst um 1,4 prósent og er
það aðallega vegna hærra markaðs-
verðs. Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um 2,8
prósent og vísitalan án húsnæðis um
2,7 prósent. Undanfarna þrjá mán-
uði hefur vísitala neysluverðs hækk-
að um 2,9 prósent sem jafngildir
12,3 prósenta verðbólgu á ári.