Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Page 18
Bankahrun, fall krónunnar, verðbólga, auknar skuldir og rýrnun kaupmáttar undir oki fjármála-, gjaldmiðils- og skuldakreppu hefur valdið launafólki ómældum búsifjum undanfarin tvö og hálft ár. Nýir kjarasamningar gætu lagfært stöðu launafólks. Hnúturinn á almenna vinnumarkaðnum er þó þéttari en nokkru sinni og verkföll yfirvofandi þegar upp rennur 1. maí, baráttudagur verkafólks. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, telur að þær aðstæður sem upp eru komnar eigi að verða opinberum starfsmönnum, ríkinu og sveitarfélög- unum hvatning til að gera kjarasamn- inga án þess að láta pólitísk deilumál trufla slíka samningagerð. BSRB skori því á ríkisstjórnina að taka frumkvæði tafarlaust með opinberum starfs- mönnum um gerð nýrra kjarasamn- inga enda sé lag til þess. Engum sæmandi Elín gagnrýnir afstöðu atvinnurek- enda sem hún telur að hafi ekki sýnt heilindi í samskiptum við launa- menn á almenna vinnumarkaðnum með því að blanda óskyldum mál- um inn í gerð kjarasamningana. Þar á hún við kröfur atvinnurekenda um að ríkisstjórnin leggi á hilluna áform um grundvallarbreytingar á fiskveiði- stjórnarkerfinu. „Þessi staða er auðvitað engum sæmandi. Það verður að segjast eins og er. Við vöruðum við því strax á haustdögum, þegar viðræður hóf- ust um kaup og kjör, að láta það ekki verða sem nú virðist því miður vera að gerast. Þar á ég við að sérhagsmuna- hópar eru að taka gerð kjarasamninga í gíslingu. Við tilkynntum viðsemj- endum okkar, ríki og sveitarfélögum, að við myndum ekki taka þátt í neinu slíku. Síðan þá höfum við átt viðræður við samninganefndir ríkisins, sveitar- félaganna og Reykjavíkurborgar um raunar alla aðra þætti en launin sjálf. Viðsemjendur okkar vildu hinkra með launaliðinn vegna þess að þeir höfðu trú á því að eitthvað væri að gerast og vildu verða samferða al- menna vinnumarkaðnum. Við vorum til í að ræða samninga til lengri eða skemmri tíma. Það var að vísu meiri stemning fyrir því hér á bæ að gera samninga til skemmri tíma en það var og er sjálfsagt af okkar hálfu að skoða vel kjarasamning til lengri tíma. Það fer eftir innihaldi og tryggingum.“ Allt nema launahækkun á góðum rekspöl Elín og samninganefndir starfsmanna ríkis og bæja hafa af framangreindum ástæðum ekki rætt launahækkanir en önnur atriði hafa verið rædd. „Ekkert er frágengið fyrr en búið er að skrifa undir kjarasamninga. Einstök aðildarfélög innan okkar vébanda hafa verið að ræða önn- ur mál. Auk þess hafa BSRB verið falin ákveðin verkefni í þessu sam- bandi og þau eru komin vel á veg. Ég get nefnt lífeyrisskuldbindingar líf- eyrissjóðs LSR, persónuafsláttinn, almannatryggingar og leigumarkað- inn. Það er komið í skýrsluformi til velferðarráðherra um framtíðarskip- an húsnæðismála. Loks má nefna viðræður um 36 klukkustunda vinnu- viku, en það mál er komið styttra á veg en við vonuðumst til. Það er stórt mál sem ekki verður unnið á einum degi.“ Hamla gegn ólaunuðum störfum Velferðarkerfið hefur gengið í gegn- um miklar þrengingar í kjölfar banka- hrunsins og versnandi stöðu ríkis- sjóðs og sveitarfélaga. Búast má við einu niðurskurðarári enn sem gæti leitt til frekari fækkunar starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Spyrja má hvort BSRB hafi dregið einhverja varnarlínu í þessum efnum. „Við hittum ráðherra nokkuð oft og ræðum alltaf almannaþjónustuna og velferðarkerfið,“ segir Elín. „Félagar í BSRB eru 70 prósent konur og mik- ill hluti þeirra vinnur umönnunar- störf. Niðurskurður í almannaþjón- ustunni er af þeim sökum ávísun á fækkun kvennastarfa. Við höfum var- að við afleiðingum þessa. Hætt er við að umönnunin færist inn á heimilin og verði á ný að ólaunuðu starfi. Það er ekki svoleiðis samfélag sem við vilj- um byggja. Við viljum ekki að konur í þessum störfum fari unnvörpum aft- ur inn á heimilin og sinni umönnun launalaust. Við sjáum alveg hvað er að gerast í dagvistuninni og öldrun- arþjónustunni. Fólk hættir ekkert að veikjast eða eldast. Öðru nær.“ Skora á ríki og sveitarfélög Formenn aðildarfélaga BSRB og samninganefndir ríkis og bæja hafa fundað í vikunni og metið stöðuna, meðal annars í ljósi þeirra harkalegu átaka sem við blasa á almenna vinnu- markaðnum og yfirvofandi verkföll- um. Ástandið á íslenskum vinnu- markaði er því ótryggt í meira lagi þegar upp rennur 1. maí, baráttudag- ur verkafólks. „Við ætlum nú fyrir helgina að skora á fjármálaráðherra að ganga nú tafarlaust til samninga við aðild- arfélög BSRB. Við vekjum í því sam- bandi athygli hans á að ríkissjóður er stærsti launagreiðandi landsins og ábyrgð hans mikil á því að kjarasamn- ingar hafa nú verið lausir í 5 mánuði. Við skorum með öðrum orðum á ríki og sveitarfélög að taka nú frumkvæði og semja við sitt starfsfólk því það getur vitanlega ekki gengið að hags- munahópar á vinnumarkaði geti tek- ið kjarasamningaviðræður í gíslingu með þeim hætti sem gert hefur verið.“ Hvað er skynsamlegt og fært? Í viðtali við nýtt tölublað BSRB-tíð- inda segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að það sé fjárfest- ing í sjálfu sér að ná kjarasamning- um jafnvel þótt það geri glímuna við ríkisfjármálin tímabundið erfiðari en ella. „Þá myndi nást stöðugleiki og friður á vinnumarkaði og betri for- sendur fyrir hagstæðari þróun. Rík- isstjórnin er tilbúin til að teygja sig innan þeirra viðráðanlegu mark- miða sem sýnast skynsamleg og fær,“ segir Steingrímur. „Við sjáum það sem bæði skyn- samlegt og fært að verja velferðar- kerfið,“ segir Elín Björg. „Almenn- ingur á áfram að geta nýtt sér velferðarkerfið án tillits til tekna. Það er okkar sýn á hvað telja beri skyn- samlegt að gera.“ Samstaðan er málið Elín Björk ritar hvatningarorð til félagsmanna í nýju tölublaði BSRB og minnir á gildi samstöðunnar. „Samstaðan heldur gildi sínu. Eina leiðin til að byggja betra samfélag er að launafólk taki höndum saman. Við viljum sjá bætt og betra samfélag og áfangasigrarnir í þeirri viðleitni byggjast á samstöðunni.“ Elín segir að viðræðuslit og verk- föll á almenna vinnumarkaðnum sýni að ekki sé unnt að ganga til samninga með þeim kröfum sem atvinnurekendur geri. „Kröfur varð- andi kvótakerfið tengjast allt öðr- um hagsmunum. Þetta er pólitískt deilumál og kjarasamningum óvið- komandi. Slík mál verður að leysa við annað samningaborð, segir Elín Björg að endingu.“ n Skora á fjármálaráðherra og sveitarfélög að taka frumkvæði um gerð kjarasamninga n Kvóta- deilur á að leysa við annað samningaborð n Formaður BSRB segir ótækt að þröngir hagsmunir setji vinnumarkaðinn í herkví n Afturhvarf ef umönnunarstörf verða aftur ólaunuð á heimilum Lag að setjast strax að samningaborði „Kröfur varðandi kvótakerfið tengj- ast allt öðrum hags- munum. Þetta er pólitískt deilumál og kjarasamn- ingum óviðkomandi. Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is Lag að semja Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skorar á stjórnvöld að taka frumkvæðið og ganga að samn- ingaborði um kaup og kjör opinberra starfsmanna. mynd SigtRygguR ARi 18 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.