Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 19
Fréttir | 19Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011 Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 13–16 Jökull Snær Þórðarson Verðmatsdagur í Galleríi Fold myndlist – antík 30. apríl – 15. maí Opnun kl. 15 • allir velkomnir Tíð Vefuppboð nr. 3 Öll verkin eru til sýnis í Gallerí Fold 30. apríl – 9. maí Sérfræðingar frá Antikbúðinni munu meta antik, hönnun, silfur, postulín og skartgripi Af því tilefni bjóðum við þér uppá ókeypis verðmat sunnudaginn 1. maí, kl. 13–16 Næsta uppboð verður 16. maí „Almennt séð er staða barna á Ís- landi góð þegar við horfum á stóra mælikvarða eins og barnadauða, menntunarstig og læsi. Þessir grunn- þættir eru mjög góðir í alþjóðlegum samanburði,“ segir Stefán Ingi Stef- ánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Fyrr í mánuðinum kom út skuggaskýrsla sem UNICEF á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Barnaheill – Save the Children á Ís- landi tóku saman um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða Barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Stef- án Ingi segir að þó sé ákveðinn hópur sem búi ekki við rétt sinn. Stjórnvöld og þeir sem vinna að þessum málum þurfi alltaf að vera vakandi fyrir því og fylgjast með stöðu mála. Skýrslan verður send nefnd Sameinuðu þjóð- anna um réttindi barnsins. Stöðugt verið að breyta og bæta „Það sem stendur upp úr hjá mér í þessari yfirferð eru þeir jákvæðu hlutir sem hafa gerst. Þar má nefna tiltölulega nýleg lög sem kveða á um bann við líkamlegum refsingum, sem er fagnaðarefni. Svo er stöðugt verið að breyta og bæta barnavernd- arlögin og önnur lög og reglur sem snúa að börnum. Einnig eru komin metnaðarfull grunnskólalög svo það er margt sem er gert vel,“ segir Stefán Ingi en bætir við að þó séu fjölmörg atriði sem þarf að bæta í sambandi við réttindi barna. Góðir punktar ekki komnir í framkvæmd Á heimasíðu UNICEF segir að meðal helstu niðurstaðna skýrslunnar sé að þrátt fyrir að ýmsar aðgerðaráætlanir í málefnum barna hafi verið sam- þykktar hafi einungis lítill hluti þeirra komið til framkvæmda. Samtökin hvetji því stjórnvöld til að nýta sér markvisst þær fjölmörgu upplýsingar sem fyrirliggjandi eru til að bregðast við og bæta aðbúnað og stöðu barna hér á landi. „Stjórnvöld hafa gert áætlanir og það er mikilvægt að þau fylgi þeim. Árið 2007 var til dæmis gerð áætlun um stöðu barna og ung- menna sem var samþykkt á Alþingi. Í henni voru lagðir fram margir metn- aðarfullir og góðir punktar sem hafa ekki enn komið í framkvæmd. Það vantar stundum eftirfylgnina,“ segir Stefán Ingi. Suma hópa þarf að styðja sérstaklega Stefán segir að stjórnvöld verði að vera með sérstakar varnaraðgerðir í tengslum við niðurskurð og efna- hagsþrengingar, sér í lagi í sambandi við hópa sem séu í erfiðri stöðu. „Það þarf að huga að þeim hópum sem standa höllum fæti en meðal þeirra eru börn af erlendum uppruna, lang- veik börn, börn sem lifa við fötlun og þau sem koma frá tekjuminni heim- ilum. Þetta eru hóparnir sem þarf að styðja sérstaklega við og þetta verð- um við að hafa í huga.“ Hann segir að einnig sé mikilvægt atriði að hags- munir barnsins séu hafðir að leiðar- ljósi og sérstaklega eigi þetta við í for- ræðisdeilum og fyrir dómstólum. Í Barnasáttmálanum sé kveðið skýrt á um að bera eigi hagsmuni þeirra fyrir brjósti í slíkum málum. Virkar ekki sem skyldi Ísland hefur ekki lögbundið Barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna en Noregur er eina þjóðin sem hefur gert það. Samningurinn hefur ver- ið fullgiltur og er hluti af íslenskum alþjóðasamningum en hefur ekki verið lagður fyrir Alþingi sem þing- skjal. Það sem stendur í vegi fyr- ir því er 37. grein Barnasáttmálans þar sem kemur fram að ungmenni sem brjóta af sér og þurfa að sæta fangelsisrefsingu beri að vera að- skilin frá fullorðnum föngum. Seg- ir á heimasíðunni að þó samning- ur sé á milli fangelsismálastofnunar og Barnarverndarstofu um vistun ungra afbrotamanna virki hann ekki sem skyldi. Það sé því brýnt fyrir hagsmuni ungmenna í slíkum að- stæðum að úr verði bætt hið fyrsta. Aukin þátttaka í samfélaginu Stefán Ingi segir að þrátt fyrir þau atriði sem þurfi að bæta hafi margt jákvætt gerst í málefnum barna og unglinga á síðustu árum, svo sem aukin þátttaka þeirra í samfé- laginu. „Í grunnskólalögum er kveð- ið á um að börnin taki meiri þátt í skólastarfinu. Eins hefur eitthvað verið um það að börn séu farin að taka aukinn þátt á sveitarstjórnar- stigi með ýmsum ungmennaráðum. Þetta er að potast í rétta átt og það er jákvætt.“ Bæta þarf réttindi barna á Íslandi n Stjórnvöld hvött til að fylgja áætlunum í nýútkominni skýrslu um réttindi barna og unglinga n Ýmislegt sem betur mætti fara á Íslandi að mati framkvæmdastjóra UNICEF n Ísland hefur ekki lögbundið Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna„Samtökin hvetji því stjórnvöld til að nýta sér markvisst þær fjölmörgu upplýs- ingar sem fyrirliggjandi eru til að bregðast við og bæta aðbúnað og stöðu barna hér á landi. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „ ...mikilvægt atriði að hags- munir barnsins séu hafðir að leiðarljósi. Réttindi barna og unglinga Stjórnvöld eru hvött til að gera kynningu og fræðslu um Barnasáttmálann markvissari og öflugri. MyNd: UNICEF á ÍSlANdI Stefán Ingi Stefánsson Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að ákveðnir hópar búi ekki við rétt sinn. MyNd: BRAGI ÞóR JóSEFSSoN Úr skýrslunni: n Birting Barnasáttmálans og þjálfun Stjórnvöld eru hvött til að gera kynn- ingu og fræðslu um Barnasáttmálann markvissari og öflugri. Móta þarf stefnu í þjálfun þeirra sem vinna með börnum þannig að þeir þekki Barnasáttmálann og þau réttindi sem hann tryggir. (Má þar nefna kennara, lögreglu, barnaverndar- starfsmenn, o.s.frv.) n Bann gegn mismunun Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoð- unar frá því í ágúst 2010 fær þjónusta sem fötluðum stendur til boða af hálfu sveitarfélaga falleinkunn. Það er afar mikilvægt að stjórnvöld myndi sér heild- arstefnu sem tryggja jafnan rétt fatlaðra til allrar almennrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga og að eftirlit verði eflt og aukið. Þá er afar brýnt að fylgja eftir í framkvæmd þeirri stefnu sem mótuð hefur verið í málefnum innflytjenda og einnig eru stjórnvöld hvött til að vinna að forvörnum gegn kynþáttahatri. n Hagsmunir barnsins Ástæða er til að óttast að hags- munir barna í forsjárdeilum séu fyrir borð bornir. Svo virðist sem réttur barnsins til umgengni við foreldra sé á stundum færður frá barninu yfir til foreldris en það fer gegn hagsmunum barnsins. Það er ákaflega mikilvægt að hlusta eftir skoðunum barnsins, sérstaklega eftir því sem það eldist og þroskast. n Menntun og tómstundastarf Brýnt er að kanna ástæður fyrir brottfalli ungmenna úr framhaldsskóla og hvaða hópar það eru helst sem hætta. Finna verður leiðir til að sporna við brottfalli barna af erlendum uppruna úr skólum og bæta þjónustu við þann hóp. Tryggja þarf að fatlaðir hafi sömu tækifæri til náms, hvar sem þeir búa á landinu. n Sérstakar varnaraðgerðir Stjórnvöld verða að tryggja fjármagn til þeirra úrræða sem ætluð eru til aðstoðar eða verndar börnum. Vinnuálag starfs- manna er oft og tíðum óviðunandi. Þá er ástæða til að hafa áhyggjur af börnum sem hvergi eru til í kerfinu og fá þar af leiðandi ekki þá grunnþjónustu sem Barnasáttmálinn tryggir þeim. Þá verður að vinna sérstaka mansalsáætlun fyrir börn eða endurvinna núgildandi mansalsáætlun með börn í huga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.