Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Síða 20
„Það er algjör óþarfi að öll þjóðin viti
af manni. Það er alveg nóg af öðru
fólki sem er hægt að benda á. Ég er
bara flokkaður í hóp stórglæpamanna
og ógæfumanna,“ segir húsráðandi í
íbúð sem lögreglan réðst inn í ásamt
tökuliði þáttanna Löggur, sem nýlega
hófu göngu sína í Mbl Sjónvarpi. „Það
er alveg komið nóg af ógæfu í mínu
lífi og akkúrat þegar ég er að reyna
að gera eitthvað í því þá fara þeir að
rústa lífi manns,“ bætir húsráðandinn
við, en hann vill ekki koma fram undir
nafni.
Fjórir handteknir við leitina
Umræddur þáttur hefur vakið tölu
verða athygli en þar er lögreglu
mönnum að störfum fylgt eftir þar
sem þeir ráðast inn á heimili á höf
uðborgarsvæðinu vegna gruns um
fíkniefnasölu. Í upphafi þáttarins
fullyrðir lögreglumaður nánast að
sala fíkniefna fari fram í íbúðinni.
Andlit húsráðanda, sem segist vera
á skilorði, og þeirra sem voru gest
komandi eru gerð óskýr en ýmislegt
í umhverfi þeirra og útliti gefur vís
bendingar um hverja er um að ræða.
Fjórir voru handteknir við húsleitina
en húsráðandi var sá eini sem var
færður til yfirheyrslu.
Farið með rangt mál í þáttunum
Í þáttunum kemur fram að á vettvangi
hafi fundist fimmtíu grömm af kanna
bisefnum, lítið af amfetamíni, landi
og töluvert magn blöndunarefna sem
notað er til að drýgja amfetamín. Þá
er einnig tekið fram að auk efnanna
hafi fundist vopn í íbúðinni og að hald
hefði verið lagt á ætlað þýfi. Húsleitin
var gerð þann 16. desember síðastlið
inn. Húsráðandi er ósáttastur við að
farið hafi verið með rangt mál í þættin
um en samkvæmt ákæru, sem honum
barst þann 8. mars, er hann ákærður
fyrir að hafa haft 18,23 grömm af marí
júana í vörslu sinni en ekki 50 grömm.
Hann er einnig kærður fyrir vörslu á
0,22 grömmum af amfetamíni og fyr
ir vopnalagabrot, en á heimili hans
fannst svokallað samúræjasverð með
63 sentímetra löngu blaði.
Hald lagt á fjölskyldugrip
Greinileg ummerki um fíkniefna
neyslu í íbúðinni sjást í þættinum. Þá
eru birtar myndir af stórum fötum
sem fullar eru af hvítu dufti, umræddu
samúræjasverði og lögreglumönnum
bera út meint þýfi, þar á meðal stóran
flatskjá. „Allir þessir hlutir sem voru
teknir, ég fékk þá aftur til baka næsta
dag. Það var ekkert þýfi þarna inni.
Þeir láta líta út fyrir að þetta hafi allt
verið þýfi þarna inni,“ segir hann og
leggur mikla áherslu á að þetta hafi
allt verið tæki sem hann eignaðist á
heiðarlegan hátt. Samúræja sverðið
segir hann vera ættargrip frá föður
sínum, sem fylgt hafi fjölskyldunni
í langan tíma. Það sé bitlaust og að
eins til skrauts. „Mér er bara annt um
þennan grip. Ég er ekkert heilagur,
en ég er ekki með nein ofbeldisbrot á
sakaskránni.“
Stundar vöruskipti
Hvíta duftið í stóru fötunum kallar
hann fæðubótarefni. Aðspurður hvaða
efni þetta sé segir hann það vera mjólk
ursykur eða laktósa sem meðal ann
ars sé notað til að drýgja amfetamín.
Fæðubótarefnin fær hann mjög ódýrt
frá aðilum sem flytja það inn, en hann
skiptir þeim út fyrir aðra vöru. „Ég fékk
í rauninni þetta græna í skiptum fyr
ir fæðubótarefnin.“ Með því „græna“
á hann við maríjúna. „Ég var samt að
búa mér til pening þannig, en þetta var
samt bara til einkaneyslu. Þetta voru
vöruskipti, ég var ekkert að selja þetta
beint út.“ Hann er einnig ósáttur við að
ekki hafi komið fram í þáttunum hvaða
efni hafi verið í fötunum. „Ég er látinn
líta út fyrir að vera einhver stórsali en
ég er í rauninni bara að skipta fæðu
bótarefnum,“ segir hann. „En að sjálf
sögðu fylgja því smá hlunnindi. Ríkið
er nú ekki búið að fara vel með mann.
Ég er búinn að vera vinnandi síðan ég
var fjórtán ára,“ bætir hann við. „Ég tók
það fram að þetta væru fæðubótarefni.
Ég væri sáttari ef klippan væri sýnd
eins og hún er. Ég myndi frekar vilja
að þeir sýndu meira af sannleikanum
svo ég líti ekki út eins og eitthvert fífl.“
Þá segir hann að hluti af því sem flokk
að hafi verið sem maríjúana sé í raun
páfagaukafóður, en hann vill meina að
í fóðrinu sé töluvert magn kannabis
fræja.
Gripinn við ólöglega iðju
Í þáttunum kemur fram að hann hafi
komið við sögu hjá lögreglu áður og
hann viðurkennir það fúslega fyr
ir blaðamanni. Hann hefur verið
gripinn við ólöglega iðju sem hann
vill þó ekki fara nánar út í. Hann seg
ist meðal annars hafa verið neyddur
til að sinna ákveðnum „verkefnum“ til
að frelsa sjálfan sig undan fíkniefna
skuldum. Hann var með handrukk
ara á hælunum sem hann segir að hafi
meðal annars ógnað fjölskyldu hans.
Hann segist þó aldrei hafa selt fíkni
efni en viðurkennir að hafa reddað fé
lögum sínum í gamla daga. Það hafi
þó bara komið honum í klandur. „Ég
er hættur þessari vitleysu. Ég fæ mér
stundum að reykja í dag og mér finnst
bara ekkert að því.“
Kallaður stjarna
Hann segist gera sér fyllilega grein fyr
ir því að hann hafi brotið af sér með
því að hafa fíkniefni í vörslu sinni en
vill meina að mannorð hans hafi ver
ið svert að óþörfu fyrir tiltölulega lít
ið brot. Hann segist hafa orðið fyrir
töluverðu ónæði eftir að þátturinn var
sýndur og að ýmsir aðilar séu farnir að
kalla hann stjörnu, sem honum finnst
óþægilegt. Þá hringdi faðir hans strax
í hann og fjölskyldan er mjög ósátt.
Hann veit því að þrátt fyrir að and
lit hans hafi verð gert óskýrt þekktist
hann vel, á göngulagi, fatnaði og öðru
og hann íhugar að kæra málið til Per
sónuverndar.
Gæti reynt á lagaleg sjónarmið
Þórður Sveinsson, lögfræðingur
hjá Persónuvernd, bendir á að það
gæti reynt á ýmis lagaleg sjónarmið
í þáttunum, meðal annars grund
vallarreglu um friðhelgi einkalífs
ins í stjórnarskránni og sjónarmið
um hvernig lögreglan eigi að gæta
meðalhófs í störfum sínum. „Við höf
um ekki fengið þetta til umfjöllunar
og því liggur ekki fyrir formlegt álit
á þessu en ég get alla vega sagt það
að þessi framkvæmd vekur auðvitað
upp álitaefni í þessu sambandi,“
sagði Þórður í samtali við DV fyr
ir páska. Stefán Eiríksson, lögreglu
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, telur
það ekki andstætt lögum að bjóða
fjölmiðlamönnum að fylgjast með
störfum lögreglu. Hann bendir, í
samtali við DV, á að fordæmi séu fyr
ir því að lögreglan taki fjölmiðla með
sér í útköll og á vaktir, líka þegar farið
er í húsleit á heimili fólks.
Nú er þó mál líkt þessu rekið fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur sem sam
býlisfólk höfðaði á hendur íslenska
ríkinu vegna þess sem það telur
ólögmæta húsleit. Þá var töku lið frá
Kastljósi með í för og myndaði leit
ina. Fólkið vill meina að lögreglan
hafi brotið bæði gegn þagnarskyldu
ákvæðum og meðalhófsreglu.
20 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Ósáttur við
að birtast
í Löggum
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Ég var samt að
búa mér til pen-
ing þannig, en þetta var
samt bara til einkaneyslu.
Skjáskot úr Löggum á Mbl – Sjónvarpi
Handtekinn Fjórir voru
handteknir við húsleitina en
húsráðandi var sá eini sem
var færður til yfirheyrslu.
Merki um fíkniefnaneyslu 18,23 grömm
af marijúana fundust við húsleitina og 0,22
grömm af amfetamíni. Þá voru greinileg
merki um fíkniefnaneyslu í íbúðinni.
Hvítt duft Lögreglan
fann fötur með hvítu dufti
í íbúðinni. Húsráðandi segir
efnið vera mjólkursykur eða
laktósa. Hann var ekki
ákærður fyrir að hafa það efni
í sinni vörslu.
Samúræjasverð Húsráðandi var kærður
fyrir vopnalagabrot vegna samúræja
sverðs með 63 sentimetra löngu blaði.
Sjálfur segir hann sverðið bitlaust skraut.
n Fíkniefnaneytandi íhugar að kæra leit lögreglunnar á heimili hans n Segir mannorð
sitt hafa verið svert að óþörfu, þar sem hann birtist í þættinum Löggur