Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 31
Umræða | 31Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011 V iðbrögð íslenskra púrítana og teprulegra blævængja­ frúa finnst mér satt að segja margfalt fyndnari en teikning Moggans. Mér hefur alltaf þótt svolítið skrít­ ið að sá stjórnmálaflokkur sem harð­ ast hefur barist gegn vændi, semsé VG, skuli stunda það mest allra flokka á Alþingi. Til að komast í ráðherra­ stóla seldu þeir sig Samfylkingunni fyrir slikk. Stefnuskráin, kosningalof­ orðin og „hugsjónirnar“ fylgdu með í kaupbæti, enda var það dótarí fyrst og fremst hugsað sem augnskuggi og varalitur og því ekki mikils virði. En það eru fleiri stjórnmálamellur á Alþingi en bara Vinstri graðir. Hver flokkur uppistendur af pólitískum gleðikonum og gleðimönnum – semsé vændiskörlum. Alþingi er ekki aðeins stærsta gleðihús landsins heldur eina gleðihúsið sem vitað er um sem veldur ógleði. Þetta er því einskonar ógleði­ hús sem gerir út á pólitískt vændi og animalisma, þ.e. hrossakaup. Notaðir þingmenn til sölu, með engri ábyrgð Í afar greindarlegum sænskum lög­ um, sem samþykkt voru á Alþingi Ís­ lendinga í fyrra, stendur að vændis­ konum sé leyfilegt að bjóða sig til kaups en það sé stranglega bannað að kaupa þær. Í pólitíska vændinu er hinsveg­ ar allt leyfilegt. Vinstri graðir mega selja sig Samfylkingunni og Samfylk­ ingin má selja sig Baugi og banka­ mafíum, og útrásarglæpamenn og bankamafíur mega kaupa sér al­ þingishórur úr öllum flokkum. Sjálf­ stæðisflokkurinn má selja sig kvóta­ greifamafíunni og útrásarþjófum og Framsóknarflokkurinn má liggja út­ glenntur undir bændamafíunni og bankaræningjum og hverjum sem er, enda galopinn í báða enda. Allir mega selja sig hverjum sem er á hinu „háa“ Alþingi. Allt gengur þar kaupum og sölum. Allt er falt á Alþingi fyrir rétt verð. Ekki nema von að þessar gjör­ spilltu margkeyptu alþingismell­ ur vilji láta loka á skjöl um eig­ in óþverramál í heil 110 ár, hvorki meira né minna. Svo alvarlegum augum líta þær sjálfar óhæfuverk sín og leynimakk. Það mega heita býsna skuggaleg myrkraverk sem þola ekki dagsljósið í rúma öld. Þyrnirós sannleikans skal haldið sof­ andi langt fram á næstu öld svo lyg­ in geti haldið áfram að blómstra á hinu „nýja Íslandi“. Þetta er víst í dag kallað „gegnsæi“. Sem ég segi: Allt gengur kaupum og sölum í sölum Alþingis, sérílagi þingmenn sjálfir. Það grátlegasta er að kjósendur skuli jafnframt kaupa alla þeirra lygi og blekkingar. Þeir kjósa yfir sig þessar handónýtu yfirstéttarhórur aftur og aftur. Væri kannski skiljanlegt ef þær veittu góðu þjónustu en það er ekki beint hægt að segja að þær gefi hann góðan. Eina sem þær hafa uppá að bjóða er fjárhagsleg eyðni. „Ástandinu“ á Alþingi lýst í skopmynd Svo þegar drátthagur teiknari á Mogganum dregur upp skopmynd af þessu hóreríi þá tryllast alþingis­ mellurnar líkt og frumstæðir villi­ menn sem sjá sjálfa sig í spegli. Þær tryllast ekki yfir vændisstarfsem­ inni sem viðgengst á Alþingi heldur yfir lítilli djókteiknimynd sem lýsir „ástandinu“. Sendiboðinn skal skot­ inn. Þær heimta afsökunarbeiðni frá höfundinum og ritstjóranum í stað þess að heimta að Alþingi biðji þjóðina afsökunar á melluskapnum undanfarin ár. Þær ríghalda í gagn­ rýnilausan 2007­hugsunarháttinn. Þjóðin gerir það líka og nýtur hvers höggs í masókískri meðvirkni með þessum svipulemjandi sadómellum. Nýlega settu hórumömmurnar í ráðríkisstjórninni ritskoðunarlög á fjölmiðla til að þrengja enn frek­ ar að tjáningarfrelsinu í landinu og kæfa niður alla óæskilega opna hvassa umræðu. Allt á að vera á sett­ legum siðprúðum svæfandi nótum að hætti sannra pukurkommúnista. Ritskoðunarráð ríkisins hefur sam­ kvæmt þessum lögum fullt umboð til að drepa hvaða fjölmiðil sem er, sem hinu háæruverðuga leyndarhyggju­ yfirvaldi er ekki þóknanlegur. Kynnið ykkur málið á fjolmidlalog.is. Skopmyndaeftirlit ríkisins Það gleymdist af einhverjum ástæðum að setja í ritskoðunarlögin að skopmyndateiknurum væri stranglega bannað að hafa ádeilu­ myndir sínar þannig gerðar að í þeim fælist broddur og kaldhæðni. Þær mættu alls ekki særa neinn og koma við kaunin á neinum. Þær mættu ekki innihalda skot á veika minnihlutahópa eins og t.d. öryrkja, krypplinga, homma, múslima, negra, femínista og alþingishórur ­ og alls ekki á konur yfir höfuð því þær eru jú svo gasalega kúgaðar af karlpungunum. Skopmyndir eigi að vera pólitískt réttar og sléttar og felldar og flatar og bitlausar og máttlausar og háttprúðar og gagn­ rýnilausar og geldar eins og Alþingi og ríkisstjórnin. Semsé óendanlega leiðinlegar. Úr þessu verður örugg­ lega bætt í viðbótarlögum. „Stóra teiknimyndarmálið“ er líklega hámark móðursýkinnar og húmorsleysisins eftir hrun og sönnun þess að landinn er end­ anlega farinn yfirum. Maður getur reynt að skilja öfgamúslima sem tryllast þegar teiknaðar eru skop­ myndir af heilögum spámanni þeirra, en að tryllast yfir ádeilu­ mynd í anda Spaugstofunnar og Sigmunds af framfylkingarkonu með ESB­brókar sótt er ekkert ann­ að en einn allsherjar brandari. Félag íslenskra framsóknar- lúða, sk.st: FÍFL Vændismyndlíkingar í skopmynd­ um eru augljóslega grafalvarlegt mál þegar konur eiga í hlut. Það virðist hinsvegar í lagi að spauga með karlinn Sigmund Davíð Gunn­ laugsson í teiknimynd í Gulu press­ unni á DV og segja að hann vilji fá það í afturendann, án þess að fram­ kvæmdastjórn Landssambands framsóknarfemínista geri nokkra athugasemd við það. Okkur vantar sárlega fleiri tilskipanir frá Félagi íslenskra framsóknarlúða, skamm­ stafað FÍFL, svo við fáum það alveg á hreint hverju má gera grín að og hverju ekki. Viðbrögð íslenskra pú­ rítana og teprulegra blævængjaf­ rúa finnst mér satt að segja marg­ falt fyndnari en teikning Moggans. Skopmyndateiknari á ekki að biðjast afsökunar ef hann hittir í mark. Ef skopmyndir og ádeilu­ listaverk hreyfa við engum og reita engan til reiði og vekja hvorki grát né hlátur þá er það merki þess að skotin hafi geigað. Pólitískar sadóvændiskonur eru að nauðga þjóðinni (ekki taka þetta bókstaflega) en svo brjálast þjóðin þegar skopast er að nauðgurunum. Á máli geðlæknisfræðinnar kallast þetta Stokkhólmssyndromið. Það má vel vera að Ísland sé stórasta land í heimi en Íslending­ ar sjálfir hljóta að vera litlustu lít­ ilmenni og smáborgarar í heimi. Get ekki annað en tekið undir með Hrafni Gunnlaugs: „Þeir sem halda að Íslendingar séu leiðinleg­ ir drukknir hafa ekki kynnst þeim edrú.“ Gleðihúsið við Austurvöllinn „Alþingi er ekki að- eins stærsta gleði- hús landsins heldur eina gleðihúsið sem vitað er um sem veldur ógleði. Aðsent Sverrir Stormsker Lýður ÁrNASoN Klerkar í æðavarpi Á köflum hefur kirkjan sem stofnun misst sjónar á fagnaðar­ erindinu og gert sig seka um veraldlega íhlutun. Svokallaðar kirkjujarðir er gott dæmi um þetta en slúti þjóðarvilji til aðskilnaðar ríkis og kirkju skulu slíkar samkvæmt samningi falla undir kirkjuna. Eða hvað? Hvernig eru þessi lönd tilkomin og hafi kirkjan greitt fyrir jarðnæðið, þá með hverju? Þjóð sem lifað hefur í guðsótta gegnum aldirnar hlýtur að eiga veraldlegt tilkall til þessara jarða fyrir ómakið. Í það minnsta fremur en klerkastétt sem notið hefur bæði ábúðar og æðavarps. dv.is/blogg/lydur-arnason JeNNý ANNA bALdurSdóttir Fjárskortur Alþingis Vigdís Hauksdóttir er ekki ein af mínum uppáhalds. Svo er hún svo mikill flækju­ fótur konan í eigin tilveru að það er með ólíkindum. Vigdís, Vigdís, Vigdís. Í grein sem hún skrifar í Moggann í dag segir þingmaðurinn að Alþingi sé óstarfhæft vegna fjárskorts. Ertu að djóka? Þvílík tímasetning á þessu væli. Fyrr í vikunni var viðtal við öryrkja sem hefur þrjátíu þúsund krónur til að lifa af mánuðinn þegar lán og annar fastakostnaður er greiddur. Sumir eru enn ver staddir. dv.is/blogg/jennyjarblogg teitur AtLASoN Tryllt stjórnar­ andstaða Ég hef fylgst með stjórnmálum í bráðum 25 ár og man sitt hvað þegar kemur að hæðum og lægðum í stjórnmálum á Íslandi. En ég man ekki eftir harðari andstöðu við neina stjórn eins og þá stjórn sem tók við brunarúst­ unum eftir 18 ára valdatíma Sjálfstæðis­ flokksins. Mér er til efs að þótt lengra sé seilst aftur í söguna að dæmi séu um trylltari stjórnarandstöðu en þá sem nú er starfandi. Það er alveg klárt að stefnan er skýr hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknar­ flokki. Stefnan er að hrekja vinstri stjórnina frá völdum. Hvað sem það kostar. dv.is/blogg/eimreidin Bloggið á DV.is pÁLL ÁSGeir ÁSGeirSSoN Andlegt heróín Svo ætla ég að hlusta á nokkra valda brúðkaupsmarsa meðan ég bíð eftir útsendingunni. Svo skulum við fá okkur sérrí og hafa smá­ kökur í morgunmat. Þú mátt alveg horfa með mér því þetta er hátíðleg stund. Þú þarft bara að komast í samband við þína innri prinsessu og hætta að hugsa um líðandi stund. Sjónvarpið er andlegt heróín hinna þjáðu og við skulum sprauta okkur saman í fyrramálið. Þá getum við gleymt stóra sorptunnumál­ inu og fimmtán metrunum og hætt að kvíða fyrir bók Björns Bjarnasonar um Baugsmálið. Bara svolitla stund. — Kötturinn Jósúa við pál Ásgeir dv.is/blogg/pall-asgeir-asgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.