Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 42
Hæðamorðin í L.A.
K
enneth Alessio Bianchi
fæddist 22. maí 1951 í
Rochester í New York.
Móðir hans, þá 17 ára,
var vændiskona og gaf hann frá
sér til ættleiðingar til Bianchi-
hjónanna. Kenneth varð lyga-
mörður strax á unga aldri,
hafði dálæti á söguhetjunni
prins Valíant, átti við svefn-
vandamál að stríða og piss-
aði undir. Einnig átti hann það
til að detta inn í dagdrauma.
Hann var skapstyggt barn og
grunnt var á frekjuköstunum
og fékk hann við sex ára aldur-
inn meðferð vegna sálrænna
vandamála. Ósjálfráð þvaglát
ollu því að móðir hans lét hann
ganga með bleiur og undir-
gekkst hann meðferð vegna
þess vandamáls þegar hann
var átta ára.
Kenneth var færður tvisvar á
milli skóla þegar hann var ell-
efu ára vegna samskiptaörð-
ugleika við kennara og hann
fékk slæma umsögn; var sagð-
ur latur, áhugalaus og grunnt
á reiðinni hjá honum. Reynd-
ar var líka haft á orði að hann
gæti gert mun betur en hann
gerði.
Skólaganga hans var
hvorki fugl né fiskur, en hon-
um tókst þó að útskrifast úr
menntaskóla árið 1971 og
skömmu síðar kvæntist hann
æskuástinni.
Öryggisvarsla í
skartgripaverslun
Hjónabandið entist í heila átta
mánuði og segir sagan að eig-
inkonan hafi gengið á dyr fyrir-
varalaust og án skýringa. Há-
skólaferill Kenneths var ein önn
og við tók röð veigalítilla starfa
þar til hann var ráðinn sem ör-
yggisvörður í skartgripaverslun.
Það var álíka gáfulegt og að
láta mink gæta hænsna því ófá-
ir skartgripir enduðu í vasa Ken-
neths og notaði hann þá síðar til
að tryggja sér tryggð vinkvenna
eða vændiskvenna sem hann lagði
lag sitt við.
Reyndar var það svo með Ken-
neth að hann þurfti oft að færa sig
um set vegna þeirrar áráttu sinnar
að stela öllu sem hönd á festi. Ekki
er loku fyrir það skotið að sú hafi
einmitt verið ástæða þess að hann
fór til Los Angeles og lenti í félags-
skap frænda síns Angelos Buono.
Angelo hafði sterk áhrif á Kenneth
sem hreifst af flottum klæðaburði
frænda síns, skartgripunum sem
hann bar og síðast en ekki síst hve
laginn Angelo var við að komast
yfir þær konur sem hann girntist og
„láta þær vita hver sess þeirra væri“.
Dólgar og dráparar
En fram undan var tími morða,
nauðgana og misþyrminga af hálfu
frændanna. Innan skamms voru
þeir orðnir melludólgar og árið
1977 færðu þeir sig upp á annað
stig, öllu ógeðfelldara.
Kenneth og Angelo rúntuðu
um götur Los Angeles og flögguðu
fölsuðum lögreglumerkjum til að
sannfæra stúlkur og ungar konur
um að þeir væru óeinkennisklædd-
ir lögreglumenn.
Fyrsta fórnarlamb kumpán-
anna, sem síðar fengu nafngiftina
Hæðamorðingjarnir, var Yolanda
Washington, 19 ára vændiskona,
en lík hennar fannst nærri Forest
Lawn-kirkjugarðinum 18. október
1977. Lík hennar hafði verið þrifið
og dauf för eftir reipi voru sjáanleg
á hálsi hennar, úlnliðum og ökkl-
um. Henni hafði verið nauðgað.
Tæpum hálfum mánuði síðar
var lögreglan kölluð til La Cres-
centa en þar hafði fundist lík tán-
ingsstúlku. Af ummerkjum að
dæma hafði stúlkan, Judith Lynn
Miller 15 ára strokustúlka, verið
kyrkt, en hún hafði verið myrt ann-
ars staðar og líkinu fleygt þar sem
það fannst.
Fimm dögum síðar, 6. nóvem-
ber, fannst enn eitt kvenmannslík-
ið og ljóst að um kyrkingu var að
ræða. Um var að ræða Lissu Kastin,
21 árs þjónustustúlku, en hún hafði
síðast sést á lífi kvöldið áður.
Ólík fórnarlömb
Lissa Kastin var ólík hinum fórnar-
lömbunum að því leyti að hún var
„góð stúlka“ og hafði meðfram
þjónustustörfum unnið hjá fast-
eigna- og byggingafyrirtæki föður
síns. Einnig hafði hún lagt stund á
ballett.
Það var deginum ljósara þegar
næstu tvö fórnarlömb fundust að
morðingjarnir einbeittu sér ekki að
konum sem tilheyrðu jaðarsam-
félaginu. Tvær stúlkur, Dolores Ce-
pada, 12 ára, og Sonja Johnson,
14 ára, sáust síðast á lífi þegar þær
stigu úr skólarútunni á leið heim
þann 13. nóvember 1977 og gengu
að kyrrstæðri fólksbifreið. Í bílnum
voru, að sögn vitna, tveir karlmenn.
Sex dögum síðar fann ungur
drengur lík tveggja stúlkna við Dod-
ger-leikvanginn. Báðum stúlkunum
hafði verið nauðgað og þær kyrkt-
ar – líkin voru af Dolores og Sonju.
Síðar sama dag, 20. nóvember 1977,
gekk göngufólk fram á klæðalaust
lík Kristinu Weckler, 20 ára, í hlíð
nærri Glendale. Ólíkt fyrri fórnar-
lömbum bar lík hennar merki mis-
þyrminga. Síðar kom í ljós að rúðu-
úða hafði verið sprautað upp í hana.
Deild sett til höfuðs
Hæðamorðingjunum
Þegar hér var komið sögu var engu
líkara en æði væri runnið á Ken-
neth og Angelo. Þann 23. nóvem-
ber fannst illa farið lík leikkonu að
nafni Jane King. Hennar hafði ver-
ið leitað síðan 9. nóvember og þar
sem líkin hrönnuðust upp sá lög-
reglan sér ekki annað fært en að
setja á laggirnar sérstaka deild til að
hafa hendur í hári Hæðamorðingj-
ans, en á þeim tíma var allt eins tal-
ið líklegt að um einn ódæðismann
væri að ræða.
Sex dögum síðar, 29. nóvember,
fann lögreglan lík Lauren Wagner.
Lauren hafði verið kyrkt og bruna-
sár á líkinu bentu til þess að hún
hefði sætt pyntingum. Þá fór lög-
regluna að gruna að um væri að
ræða fleiri en einn ódæðismann, en
fjölmiðlar héldu þó áfram að skír-
skota til hans í eintölu.
Þrettánda desember fannst lík 17
ára vændiskonu, Kimberley Martin,
og síðasta fórnarlambið í Los Ange-
les fannst 16. febrúar 1978, þegar
þyrluáhöfn rak augun í rauðgula
Datsun-bifreið á Crest-svæðinu. Í
skotti bifreiðarinnar fann lögreglan
lík eigandans, Cindy Hudspeth.
Ein slapp með skrekkinn
Vitað er um eina konu sem slapp
með skrekkinn eftir að hafa lent
í klónum á Kenneth og Angelo.
Einhvern tímann árið 1977 gáfu
þeir Catharine Lorre far með það í
huga að fyrirkoma henni. Það varð
Catha rine til lífs að Kenneth og
Angelo komust að því að hún var
dóttir ungverska leikarans Peters
Lorre, sem var frægur fyrir hlutverk
sitt sem barnamorðingi í mynd
Fritz Lang, M. Þegar þeir komust
að þessu slepptu þeir henni en hún
gerði sér ekki grein fyrir því hve
lánið hafði leikið við hana fyrr en
eftir að kumpánarnir voru hand-
teknir.
Viðamikil rannsókn lögreglunn-
ar hafði loks beint sjónum hennar
að Kenneth og Angelo og gefin var
út ákæra á hendur þeim. Kenneth
hafði þá flúið til Washington en var
fljótlega handtekinn þar eftir að
hafa nauðgað og myrt tvær konur.
Kenneth reyndi að gera sér upp
geðveiki við réttarhöldin en hafði
ekki erindi sem erfiði. Hann gafst
þó ekki upp og samdi um vægari
dóm gegn því að hann vitnaði gegn
Angelo.
Ódámarnir fengu báðir lífstíðar-
dóma og Kenneth Bianchi er í ríkis-
fangelsi Washington í Walla Walla.
Angelo Buono dó úr hjartaslagi 21.
september 2002 í Calipatria-fang-
elsinu í Kaliforníu.
n Kenneth Bianchi var lygamörður og þjófur n Líf hans tók afdrifaríka stefnu eftir að
hann kynntist frænda sínum Angelo Buono n Saman báru þeir ábyrgð á fjölda morða í
Los Angeles á áttunda áratug síðustu aldar n Þeir nauðguðu, misþyrmdu og myrtu„Sex dögum síðar,
29. nóvember, fann
lögreglan lík Lauren Wag-
ner. Lauren hafði verið
kyrkt og brunasár á lík-
inu bentu til þess að hún
hefði sætt pyntingum.
Angelo Buono og
Kenneth Bianchi Í
gervi lögreglumanna
myrtu þeir fjölda ungra
kvenna í Los Angeles.
42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Notuðu chili-pipar til að
særa út illa anda:
Móðir og
klerkur
dæMd
Þann 18. apríl lýsti sjö ára
kongósk-danskur drengur í
Varde í Danmörku því hvern-
ig kongósk móðir hans hafði
nuddað chili-pipar í augu hans
og hvernig honum var gert að
liggja á gólfinu á meðan. Með
móðurinni í ráðum var karl-
maður, samlandi hennar, sem
gaf sig út fyrir að vera andlegur
leiðbeinandi hennar, og fengu
börn hennar tvö bæði um-
rædda chili-meðferð.
Börnin sættu þessari með-
ferð um eins árs skeið, frá sept-
ember 2008 til október 2009,
auk þess sem þau sættu bar-
smíðum, voru bundin á hönd-
um og fótum og var meinað að
skola chili-piparinn úr aug-
unum. Það voru börnin sjálf
sem upplýstu utanaðkom-
andi um meðferðina sem þau
sættu.
Í vikunni féll dómur í mál-
inu í Esbjerg og fékk móðir
drengsins, sem er þrítug, 10
mánaða dóm, þar af sex skil-
orðsbundna, og „klerkurinn“,
sem er 41 árs, sex mánaða
dóm en verður ekki vísað úr
landi að afplánun lokinni eins
og farið var fram á. Karlmað-
urinn dvaldi um tíu ára skeið
í flóttamannabúðum í Sam-
bíu en varð þeirrar auðnu að-
njótandi að vera valinn í 128
manna hóp sem fékk tækifæri
til nýs lífs í
Danmörku árið
2008.
Skötuhjúin
bjuggu sam-
an um skeið
í Danmörku
en hann er
ekki faðir
barnanna. Þau
hafa ekki tekið
ákvörðun um
hvort dómn-
um verði
áfrýjað.
Parið hefur eflaust álitið
að tilgangurinn helgaði með-
alið en með chili-notkuninni
hugðist það reka út illa anda
en reyndar fullyrtu skötuhjúin
að frásögn barnanna byggði
á hugarórum þeirra. Móðirin
viðurkenndi þó að börn henn-
ar hefðu „verið andsetin“ og að
vinur hennar hefði veitt henni
aðstoð með bænum.
Særingar af þessu tagi eru
þekktar í löndum Mið-Afríku
og er ekki nýnæmi á Vestur-
löndum að fólk þaðan beiti
harðneskjulegum aðferðum
til að reka út illa anda. Bresk
skýrsla frá árinu 2006 sýndi
fram á að minnsta kosti 38 til-
vik þar sem börn voru sökuð
um að vera haldin illum önd-
um og voru þau beitt ofbeldi í
því skyni að reka þá á brott.
Konan og klerkurinn voru
einnig sakfelld fyrir að hafa
bundið börnin á höndum og
fótum með nælonsokkum.
Karlmaðurinn var einnig
ákærður fyrir að hafa lagt
hendur á konuna og haft í hót-
unum við hana, meðal annars,
samkvæmt ákæruatriðum, að
hafa hótað henni lífláti. Hann
var einnig sakfelldur fyrir þær
sakargiftir.