Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 44
44 | Fókus 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað Áttunda hátíð Listar án landamæra: Fjallabræður ásamt táknmálskór Á föstudaginn hefst hátíðin List án landamæra í áttunda skiptið en það er samstarfsverkefni Fjölmenntar – fullorðinsfræðslu fatlaðra, Átaks – fé- lags fólks með þroskahömlun, Hins hússins, Landssamtakanna Þroska- hjálpar og Öryrkjabandalags Íslands. Nýr aðili að stjórninni í ár er Banda- lag íslenskra listamanna. „Listahátíðin List án landamæra er listahátíð fjölbreytileikans. Kröftug rödd sem brýtur niður múra. Á hátíð- inni vinna ólíkir aðilar saman að alls- konar list með frábærri útkomu. Það hefur leitt til auðugara samfélags og aukins skilnings manna á milli,“ segir í fréttatilkynningu. Þátttakendur á hátíðinni er fólk með skrýtin áhugamál, fólk með geð- ræna sjúkdóma, fólk frá Finnlandi, fólk með stóra fætur og litla fætur, kvenfélög, hæfingarstöðvar, fólk með mikla hreyfihömlun, listasöfn, dreif- býlingar og þéttbýlingar, sjálfstæðir leikhópar, fólk með þroskahömlun, leikarar, fólk sem er börn, fólk sem er fullorðið. Hátíðin verður sett á föstudag- inn klukkan 17 í Ráðhúsi Reykja- víkur en þar mun fjöldinn allur af glæsilegum listamönnum stíga á svið. Meðal annars mun vestfirski karlakórinn Fjallabræður koma fram ásamt táknmálskórnum sem „syng- ur“ á táknmáli. Diddú kemur fram ásamt Aileen Svensdóttur og Fjöl- listamennirnir Helgi Magnússon og Lárus Sveinbjarnarson láta gamm- inn geisa í rímnaflæði ásamt Birki Halldórssyni [Byrki B] meðlimi rapp- sveitarinnar Forgotten Lores. Meðal viðburða á hátíðinni í ár eru sýningar og uppákomur úti og inni í Norræna húsinu í sam- starfi við Vatnsmýrarhátíð. Á flöt Norræna hússins mun rísa risa- vaxin blómabreiða en einnig verða þar íslensk eldfjöll, séð með augum finnskra listamanna. Í Þjóðminja- safninu verður sýning og málþing og í Iðnó verður boðið upp á leik- sýningu og tónlistaratriði. Þá mun risastór trjávörður taka sér bólfestu í Kjarnaskógi, frábær dagskrá verð- ur á Egilsstöðum og fleira til. Nánari upplýsingar má finna á listanlanda- maera.blog.is. tomas@dv.is Hvað ertu að gera? mælir með... kvikmynd Source Code „Það er ekki á hverjum degi sem góðar sci-fi kvikmyndir rata á hvíta tjaldið og er Source Code klárlega í þeim hópi.“ – Jón Ingi Stefánsson tölvuleikur Killzone 3 PS3 / Xbox 360 „Killzone 3 gerir nákvæmlega það sem hann þarf að gera, án þess þó að verða einhver flugeldasýning.“ – Einar Þór Sigurðsson kvikmynd Arthur „Arthur er ekkert hundleiðinleg og getur alveg sloppið fyrir einhvern. Hins vegar veldur hún vonbrigðum vegna einhvers sem virkar eins og fljótfærni.“ – Erpur Eyvindarson Þórunn Antonía magnúsdóttir Leik- og söngkona. Hvaða bók ertu að lesa? „Ég er á milli bóka í augnablikinu en fer að byrja á Heiðarbýlinu eftir Jón Trausta sem ég fékk í gjöf frá ömmu Bettý.“ Hvaða tónlist er í uppáhaldi þessa dagana? „Uppáhaldslagið mitt í augnablikinu Swim Good með Frank Ocean úr Odd Future og Wounded Rhymes, ný plata indiepopp- prinsessunnar Lykke Li, er mjög skemmtileg. Annars hlusta ég rosamikið á gamla tónlist og kveiki oftar en ekki á Gullbylgjunni heima.“ Hvert ferðu út að borða ef þú mátt ráða? „Tapas-barinn og Fiskmarkaðinn. Sushi-ið þar er guðdómlegt.“ Hvaða bíómynd sástu síðast og hvernig líkaði þér hún? „A Bronx Tale og mér fannst hún geðveik af því að ég er með nett mafíublæti.“ Hvað ætlarðu að gera um helgina? „Semja texta fyrir plötuna mína og syngja á útskriftartónleikunum hjá Völu Gestsdóttir í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17.00 á laugardaginn.“ Semur texta um helgina Guðrún Bergsdóttir Er listamaður Listar án landamæra 2011. Verk hennar prýða allt kynningarefni hátíðarinnar. Hún sýnir í Hafnarborg ásamt J.B.K. Ransu. mælir ekki með... kvikmynd Sucker Punch „Fyrir mér er málið einfalt. Myndin er mannskemmandi. Ekki fara á hana nema að þú viljir ögra þér á einhvern undarlegan máta. Og ekki fara með unglingana ykkar á þessa mynd. Þeir bíða þess varla bætur.“ – Kristjana Guðbrandsdóttir kvikmynd Limitless „Ég held að byrjunarsenan sé minnisstæðasti parturinn af ræmunni. Og svo var poppið ágætt líka.“ – Erpur Eyvindarson Á rið 1994 var Snorri hand- tekinn og settur í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnamis- ferli. Snorri hafði verið í sukki árum saman og nokkrum sinnum reynt að snúa á rétta braut en ekki tekist það. Í gæsluvarðhaldinu, breyttist hins vegar lífið hjá Snorra til frambúð- ar. Hann sá ljósið og skynjaði æðri mátt innra með sér sem veitti honum stuðning til að feta réttan veg. „Ég hugsaði í fyrsta skipti um það af alvöru hvort ég ætlaði mér að verða glæpamaður eða listamaður,“ segir Snorri um þessa stund. „Ég var á botninum, ef svo má segja. Þegar maður er á botninum þá sér maður allt mjög skýrt og ég gat tekið yfirveg- aða ákvörðun um líf mitt. Ég ákvað að verða listamaður og hef fylgt þess- ari ákvörðun um líf mitt síðan.“ Orkumikill óþekktarangi Snorri er alinn upp á Akureyri og segist hafa verið hvattur óspart til þess að verða listamaður og telur for- eldra sína varla hafa séð aðra mögu- leika en þann. Foreldrar Snorra eru Ólöf Snorra- dóttir hjúkrunarfræðingur og Ás- mundur heitinn Jónsson, lögfræð- ingur. „Foreldrar mínir voru mjög hvetjandi, sérstaklega faðir minn,“ segir Snorri. „Hann hvatti okkur systkinin til að skoða ýmsar leiðir í lífinu. Eiginlega allar aðrar en lög- fræði. Lögfræðingar eru skúrkar og glæpamenn, var hann vanur að segja. Sjálfan dreymdi hann alla tíð um að verða sjómaður en lét aldrei verða af því. Það ætluðust allir til þess að ég yrði listamaður frá því ég var lítið barn. Ég var einhvern veginn þannig innréttaður að það lá beinast Sá ljósið í gæsluvarðhaldi Gjörn i n gar listama n n si n s Snorra Ásmundssonar hafa ávallt vakið mikla eftir- tekt og komið róti á samfélagið. Hann vill snúa á hvolf, toga og teygja og stríða. Markmið með verkum hans er að hafa bein áhrif á samfélagið en Snorri hefur ekki alltaf verið sá fyrirmyndarborgari og listamaður sem hann er í dag. Eitt sinn var hann glæpamaður og það var enginn gjörningur. Snorri settist niður með kristjönu Guðbrandsdóttur og ræddi við hana um lífið fyrir og eftir listina. „Það gladdi mig því ákaflega mikið þegar ég fékk símtal frá móður minni fyrir nokkru og hún sagði mér að hún væri stolt af mér. Hefur fengið mikið út úr lífinu Listamað- urinn Snorri Ásmundsson segist heppinn að vera alkóhólisti. Meðferðin við sjúkdómnum innihaldi bestu lífsreglur sem kostur er á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.