Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Blaðsíða 45
Fókus | 45Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011 Skálmöld og Sólstafir með tónleika á Nasa: Nýtt lag klárt um Baldur Tvær stærstu þungarokkssveit­ ir landsins, Skálmöld og Sólstafir, halda sameiginlega tónleika á Nasa á föstudagskvöldið. Þó hljómsveitirnar séu um margt ólíkar eru þær tengd­ ar tryggðarböndum. „Sólstafir hafa verið til í fimmtán ár en þó Skálm­ öld sé ný hljómsveit hefur verið ein­ hver samgangur á milli sveitanna. Svo syngur söngvari Sólstafa á plötunni okkar, Baldur, þannig þetta er ekk­ ert út í loftið,“ segir Snæbjörn Ragn­ arsson, bassaleikari og lagasmiður Skálmaldar. Tónleikagestir gætu dottið í lukku­ pottinn á föstudaginn því Skálmöld er búin að semja nýtt lag um víking­ inn Baldur sem platan þeirra fjallar um. „Það gæti dottið inn. Við erum í stúdíói núna að klára Skálmaldar­ plötuna sem við ætlum að gefa út á heimsvísu. Það er sama platan og við gáfum út um jólin en við bættum við þessu aukalagi um Baldur. Við ákváð­ um þetta á síðustu á æfingu fyrir tón­ leikana,“ segir Snæbjörn. Upprisa Skálmaldar hefur verið mikil undanfarna mánuði en svo virð­ ist sem hljómsveitin hafi fyllt ákveðið tómarúm á íslensku tónlistarsenunni. „Það sem okkur finnst skrítnast er að það eru ekkert bara þungarokkarar sem ná tengingu við okkur. Við ákváð­ um samt upphaflega bara að berja okkur á brjóst og gera almennilega þungarokksplötu áður en við yrðum allir of gamlir. Við ákváðum samt ekk­ ert fyrir fram að enginn vildi hlusta enda varð það ekki raunin. Fólk er að tengja við okkur,“ segir Snæbjörn en spennandi tímar eru á döfinni hjá norðlensku rokkurunum. Þeir spila á Nasa á föstudaginn og næstu helgi á eftir í Færeyjum. Svo tekur við Eistna­ flug og færeysk tónleikahátíð. Í sumar spilar Skálmöld svo á Wacken í Þýska­ landi sem má líkja við tónleikahátíðir á borð við Hróarskeldu. „Það er bara nákvæmlega þann­ ig. Þarna voru 80–90 þúsund manns í fyrra og allir mætir til að hlusta á þungarokk. Í kringum þetta leyti verð­ ur platan komin út á heimsvísu og eft­ ir það, í haust, förum við á Evróputúr,“ segir Snæbjörn Ragnarsson. tomas@dv.is Hvað er að gerast? n Styrktartónleikar með KK Lionsklúbburinn Muninn ætlar að bjóða til styrktartónleika í tilefni 40 ára afmælis klúbbsins. Tónleikarnir verða á föstudags- kvöldið klukkan 20.00 í Salnum í Kópavogi. Sungið verður til styrktar Vímulausri æsku og Foreldrahúss og eru allir hvattir til að mæta. KK mun sjá um að spila á tón- leikunum en miðaverð er 3.000 krónur og rennur ágóðinn til góðs málefnis. Miða má kaupa á midi.is n Suðurlandsskjálfti Það verður heldur betur tónlistarveisla á 800Bar á Selfossi á föstudagskvöldið. Þar fer fram tónlistarhátíðin Suðurlandsskjálfti sem skartar flottum listamönnum. Helgi Valur mun taka lagið ásamt því að tvær af heitustu hljómsveitum landsins, Jónas Sig og Valdimar, stíga á svið. Einnig mun fyndnasti maður Suðurlands, Sigurður Ingi, troða upp. Eftir tónleikana verður svo standandi ball með Ofl og Bjórbandinu langt fram á nótt. n Nína tvítug Í tilefni þess að hið magnaða lag Nína sem hefur unnið hug og hjörtu Íslendinga allt frá árinu 1991 er orðið 20 ára ætla þeir Stebbi og Eyfi að vera með tónleika Nínu til heiðurs. Þar munu faðir og frændi afmælisbarnsins, ásamt fleiri hljóðfæraleikurum, flytja blandaða dagskrá, með sérstakri áherslu á Eurovision-lög. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 en miðinn kostar 3.000 krónur á midi. is. n Bryndís tekur Janis Söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir mun halda tónleika á laugardagskvöldið þar sem hún mun túlka hina mögnuðu Janis Joplin ásamt hljómsveit. Bryndís sló í gegn sem Janis í sýningu um líf hennar sem sýnd var lengi í Íslensku óperunni. Var Bryndís tilnefnd til Grímunnar sem besta söng- kona ársins fyrir þá sýningu. Tónleikarnir á laugardagskvöldið hefjast klukkan 20.00, miðinn kostar 2.900 krónur og er til sölu á midi.is. n Paparnir á Players Það ætti enginn að fara með skeifu á andlitinu út af Players á laugardagskvöldið en þar mun troða upp stuðbandið Paparnir. Paparnir hafa lengi verið ein allra vinsæl- asta hljómsveit landsins. Hún er 25 ára um þessar mundir og ætlar því að bjóða öllum konum frítt inn á Players á laugardags- kvöldið allt til klukkan 23.30. Það vill enginn missa af Pöpunum, svo mikið er víst. n Darri Lorenze í Listasafninu Á laugardaginn klukkan 15.00 verður opnuð sýningin General Factors, innsetning eftir Darra Lorenzen, sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna Hljóðheima í Listasafni Íslands. Darri Lorenzen hefur á liðnum árum virkjað rými með því að höfða til bæði sjón- rænnar upplifunar og tóneyra áhorfandans, með myndum, hreyfingu og hljóði sem beina athyglinni að stað og stund. n Stefan Briem í Listasafninu Í tengslum við sýninguna Hljóðheima í Listasafni Íslands mun Stefan Mayen Briem, listfræðingur og aðstoðarsýningarstjóri, vera með leiðsögn um sýninguna. Ferðin hefst klukkan 14.00 en á sýningunni gefur að líta verk sem eiga það sameiginlegt að vera unnin út frá hljóði eða tónlist. Sýningin samanstendur af innsetningum, fræðslu- erindum, tónlistargjörningum og ýmsum öðrum uppákomum og koma fjölmargir listamenn við sögu á sýningartímanum. 29 apr Föstudagur 30 apr Laugardagur 01 maí Sunnudagur Grjóthart Víkingarokk Skálmöld hefur slegið í gegn hjá metalhausum og öðrum. við. Ég var óþekkur og uppátækja­ samur og með orku á við fimm. Mér fannst gaman að teikna og ætli for­ eldrar mínir hafi ekki séð í því mikla von,“ segir hann og hlær. Villimaður á Akureyri Snorri segist hafa vorkennt foreldr­ um sínum að hafa þurft að glíma við endalaus uppátæki hans í æsku og svo ólætin og óregluna á unglings­ árunum. „Það hefur verið mjög erfitt fyr­ ir foreldra mína að ala mig upp. Gríðar lega erfitt. Það gladdi mig því ákaflega mikið þegar ég fékk símtal frá móður minni fyrir nokkru og hún sagði mér að hún væri stolt af mér. Þetta hélt ég að ég myndi aldrei fá að heyra.“ Snorri segist hafa sótt í slæman félagsskap og sjálfsagt hafi hann sjálfur talist slæmur félagsskapur við aðra. Hann drakk illa og fljótt kom í ljós að hann var haldinn áfengissýki. „Ég á mér fortíð á Akureyri. Ég var alger villingur, eiginlega var ég villimaður,“ segir Snorri. „Verstur var tíminn þegar ég var búinn með forn­ ámið í listaskólanum á Akureyri en vegna þess hvað ég var öfugsnúinn þá var ég einhvern veginn upp á móti öllu. Ég sneri því baki við lista­ mannslífinu og fór á bólakaf í óreglu og alls kyns smáglæpi. Mér tókst mjög vel að koma lífi mínu á ákveðna endastöð og þegar ég var kominn í tveggja vikna gæsluvarðhald fékk ég stærsta tækifæri lífs míns sem var að sjá skýrt til allra átta frá botninum.“ Heppinn að vera alkóhólisti Snorri telur það vera gæfu sína að vera alkóhólisti. Með sjúkdómnum fylgi meðferð sem reynist hinar bestu lífsreglur. „Ég er mjög þakklátur fyrir að vera alkóhólisti og að fylgja 12 spora kerfinu. Þetta eru góðar lífsreglur að fylgja. Þú ert eiginlega með síma­ númerið hjá Guði þegar þú hefur þessa leið. Þegar ég sé börn og ung­ linga sem bera það með sér að þau verði alkóhólistar, hugsa ég bara með mér: En hvað þau eru heppin.“ Löngu eftir að Snorra hafði tek­ ist svo vel að snúa af óheillabraut­ inni var hann beðinn um að halda fyrirlestur í skóla á vegum jafningja­ fræðslunnar. Hann hugsaði með sér hvort hann væri nú heppilegur kost­ ur þar sem hann sæi ekki eftir neinu sem hann hefði gert. „Ég fór nú samt og hélt fyrirlestur­ inn og sagði krökkunum hreinskiln­ islega frá því að allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur hafi haft einhverja þýðingu og orðið til þess að ég hef lært eitthvað nýtt og þroskast. Ég hef fengið mikið út úr lífinu og ekki síst vegna þess að ég er alkóhólisti.“ Íslendingar í kóma Snorri segist trúa því að honum hafi verið ætlað lífshlaupið nákvæmlega eins og það hefur æxlast. „Við erum öll svo ólík. Mér var ætlað að ganga í gegnum þessa hluti og læra af þeim meðan aðrir eru í hvíld í þessari jarð­ vist. Hér á Íslandi á lítið eftir að breyt­ ast vegna þess að fólk er ekki vakandi og neysluumhverfið er sérhannað fyrir fólk í hvíld. Þannig hefur það enga þörf fyrir að vakna. Einhver sagði, við erum bara 30 milljónir sem erum vakandi og erum að vaxa og þroskast. Restin er í einhverju kóma.“ Kjarval var líka grallari Snorri er ómenntaður fyrir utan listnámið sem hann stundaði í fornáminu á Akureyri. Hann not­ ast við innsæi sitt í listsköpun sinni og leyfir því að leiða sig áfram. Spurður hvort hann eigi sér ein­ hverjar fyrirmyndir nefnir hann Kjarval en Snorri hefur helgað eitt verka sinna listamanninum. „Ég er hrifinn af Kjarval, flestir einblína á málverkin hans en ég og margir aðrir dást að honum fyrir svo margt annað. Til dæmis hvernig honum var lagið að stuða fólk. Það eru til svo margar frægar sögur af Kjarval. Einu sinni var hann á gangi og fór að horfa af mikilli athygli upp í himininn eins og hann sæi í raun og veru eitthvað stórmerkilegt þar. Athæfi hans varð til þess að fleiri bættust í hópinn og horfðu eins og hann upp í himininn og leit­ uðu. Þetta er auðvitað skemmti­ legur gjörningur. Önnur fræg saga segir af því þegar Kjarval leiddi hest upp brattar tröppur hjá presti í borginni og gerði mikinn usla. Það þurfti aðstoð lögregluliðs til þess að koma hestinum frá heimili prestsins. Þetta er fyrir mér hluti af list Kjarvals. Þeir sem sjá þetta ekki og hafa ekki áhuga á þessu, þeir sjá ekki Kjarval.“ Skírður í höfuð látins bróður Snorri hefur aldrei notast við lista­ mannsnafn og blaðamaður forvitn­ ast um hvað valdi því. Í ljós kemur að ástæðuna má rekja til tilfinninga en Snorri heitir í höfuð látins bróð­ ur síns. „Bróðir minn dó þegar hann var þriggja ára. Hann var með vatns­ höfuð. Ég var skírður í höfuðið á honum, rétt eins og Salvador Dali. Það er einkennileg staðreynd en hann var líka nefndur í höfuðið á bróður sínum sem dó vegna vatns­ höfuðs. Í fjölskyldunni ríkti mikill harm­ ur vegna þessa og það var lítið tal­ að um þennan látna bróður minn. Það var því ekki fyrr en ég var full­ orðinn sem ég áttaði mig á þeim til­ finningum sem þessu fylgja. Ég hef til að mynda aldrei getað tekið mér upp listamannsnafn. Kannski er það vegna þess að ég fæ ekki af mér að svara öðru nafni.“ Ég er bara stórt barn Snorri hefur oftsinnis fengið að heyra að hann sé geðveikur og for­ eldrar hans og nánir aðstandendur hafa oft þrábeðið hann um að út­ skýra fyrir fólki að hann sé það nú alls ekki. Snorri segir sögu af því þegar barnsmóðir hans og fyrr­ verandi sambýliskona fór til mið­ ils. „Miðillinn spurði hana: „Ég átta mig annars ekki á því hvað maður­ inn þinn er að gera, er hann bara að leika sér?“ Ég hló þegar ég fékk að heyra þetta því þetta er rétt. Ég er bara stórt barn að leika mér. Margir myndlistarmenn eru þannig og það er ekkert að því. Ég er grallari og finn mér farveg til þess að halda áfram ævilangt að vera með óknytti í gegnum listina. Langaði að spegla hégómann Nú nýverið gerði Snorri usla á Ný­ listasafninu. Við opnun sýningar­ innar Koddu klæddi Snorri sig upp eins og skinka og hafði með sér tvo einstaklinga með downs­heilkenni sem voru í gervi hnakka. Snorri var gagnrýndur fyrir að nota þroskahamlað fólk í verk­ ið, hann sé með því að gera lítið úr því. Hann segir forsendurnar fyr­ ir því að fá fólk með þroskahöml­ un í verkið ekki vera aðrar en þær að hann hafi hreinlega beðið eftir góðu tækifæri til að vinna með slíku fólki. „Mér hefur það oft dottið í hug að vinna verk með þeim eftir að ég vann á sambýli uppi í Þverholti fyrir nokkrum árum. Ég hef verið skotin í þeim vegna þess hversu eðlileg þau eru, það er að segja laus við grím­ ur. Grímur þær sem fólk notar í lífs­ gæðakapphlaupinu. Þegar ég fór að velta þessu verki fyrir mér kom ann­ að hvort til greina að nota börn eða þroskahamlað fólk í það. Mig lang­ aði að spegla hégómann og kven­ fyrirlitninguna sem þetta þjóðfélag hefur verið að glíma við. En er ég að gera lítið úr þeim með því að setja þá í þessi hlutverk? Þeir voru fyrst og fremst leikarar og stóðu sig með prýði sem slíkir.“ Mega og eiga að sjást Snorri segir það hafa verið afar áhugavert að fylgjast með viðbrögð­ um fólks við verkinu og spyr sig hvers vegna það sé jafnviðkvæmt og raun ber vitni að þroskahamlaðir einstak­ lingar stígi í sýnilegt hlutverk. „Það er mikilvægt að ólíkir einstaklingar séu sýnilegir, í hverju heilbrigðu samfé­ lagi og í allri þeirri umræðu sem á sér stað innan samfélagsins, þar á með­ al í listum. Sýnileiki hefur bein áhrif á það jafnrétti sem á að ríkja á öllum sviðum lífsins.“ Sá ljósið í gæsluvarðhaldi „Ég hef fengið mik- ið út úr lífinu og ekki síst vegna þess að ég er alkóhólisti. Skinkur og hnakkar Snorri var gagn- rýndur fyrir að nota einstaklinga með þroskahömlun í gjörningi sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.