Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Page 55
Sport | 55Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011
syni þjálfara. Fram bætti við sig út-
lendingum, korter fyrir mót. Styrki
hann liðið geta Framarar vel farið
alla leið í toppbaráttuna því Þor-
valdur er snillingur í að kreista það
allra besta út úr sínum leikmönn-
um.
Litlar væntingar til
Suðurnesjaliða
Keflvíkingar voru efstir framan
af móti í fyrra en enduðu í sjötta
sæti. Þeim er spáð neðarlega í ár og
heldur Hjörvar Hafliðason að þeir
gætu verið í miklu basli og sogast
alla leið niður í fallbaráttuna. Liðið
er ekki jafnvel mannað og vanalega
en oft hefur nú Willum Þór Þórsson
gert vel þegar væntingarnar eru
litlar. Það er þó ljóst að lykilmenn á
borð við Guðmund Steinarsson og
Ómar Jóhannsson markvörð verða
að haldast heilir því stutt verður á
milli hláturs og gráts í bítlabænum.
Grindvíkingum er spáð miklu
basli af öllum spekingum DV,
heilt yfir fallbaráttu. Þar vantar til-
finnanlega markaskorara þar sem
markamaskínan Gilles Mbang
Ondo er horfinn á braut. Tékk-
inn Michael Posposil er óreyndur
í Pepsi-deildinni en það er mikið
á hann lagt að halda uppi marka-
skorun þeirra gulu. Ljóst er að allt
verður að ganga upp í Grindavík
eigi ekki illa að fara.
Stjarnan er einnig lið sem all-
ir spekingarnir spá vandræðum.
Bjarni Jóhannsson er talinn sitja í
heitu sæti en trúin á Garðbæingum
er lítil. Stjarnan mætir þó Keflavík og
Víkingi í fyrstu tveimur umferðun-
um og getur þar náð sér í mikilvæg
stig til að koma sér á flug.
Nýliðarnir í basli
Þór og Víkingi, nýliðum Pepsi-deild-
arinnar, er spáð basli af öllum, þó
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA,
haldi að annað hvort þeirra muni
bjarga sér frá falli. Hafi spekingarn-
ir trú á öðru hvoru liðinu eru það
Þórsarar. Hjörvar Hafliðason segir
liðið vera með mun betri mannskap
en fólk heldur og undir það tekur
Gunnlaugur Jónsson. Þórsarar hafa
það einnig með sér að þeir hafa engu
að tapa og fara langt á stemningu og
sínum sterka heimavelli.
Víkingar hafa átt vægast sagt
skrautlegt undirbúningstímabil þar
sem þjálfarinn var rekinn í mars og
Andri Marteinsson tók við liðinu.
Víkingar hafa lítið sem ekkert getað
á undirbúningstímabilinu og vænt-
ingar til liðsins eru engar. Væntingar
Víkinga sjálfra eru þó miklar því lið-
ið ætlar sér í Evrópubaráttu á næsta
ári og Íslandsmeistaratitil 2014. Fyrst
þarf þó að halda sér í deildinni og
ef marka má spekinga DV kann að
muna mjóu í því efni.
TiTillinn afTur í Hafnarfjörðinn
bruun-rasmussen.dk
Bredgade 33
DK-1260 Kbh. K
Tel +45 8818 1111
Verið velkomin á Hótel Holt
5. maí kl. 14-18
Hópur reynslumikilla sérfræðinga frá einu elsta og virtasta
uppboðshúsi Skandinavíu, BRUUN RASMUSSEN, meta gömul
og ný málverk, bækur, silfur, hönnunar- og listmuni, einnig úr,
skartgripi, vín og „design“-húsgögn. Matið er án endurgjalds
og án skuldbindinga með hugsanlega sölu á uppboði í huga.
Við leitum sérstaklega að verkum eftir Jón Stefánsson, Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Svavar Guðnason, Ólaf Elíasson
og marga fleiri.
Ef um stóra hluti er að ræða, er best að koma með ljósmynd.
Einnig er möguleiki á að fá okkur í heimahús þann 6. og 7. maí.
Nánari upplýsingar veita:
Nadia Gottlieb, 0045 8818 1183, nag@bruun-rasmussen.dk
Hvers virði er þetta ?
Ól
af
ur
E
lia
ss
on
: “
Tw
o
ho
t a
ir
co
lu
m
ns
”,
20
05
.
Tv
æ
r h
ög
gm
yn
di
r ú
r r
yð
fr
íu
st
ál
i m
eð
ra
fm
ag
ns
pe
ru
m
.
H
am
ar
sh
ög
g:
2
10
.0
00
d
kr
.
Meistararnir Breiðablik varð meistari í fyrra í
fyrsta skipti í sögu félagsins.
Spáð titlinum FH-ingum er spáð Íslands-
meistaratitlinum af öllum sex spekingum DV.