Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 62
62 | Fólk 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað „Ég er ekki farinn að sjá til lands ennþá, ég er kannski hálfnaður,“ segir blaðamaðurinn og rithöfundurinn Óskar Hrafn Þorvaldsson um aðra skáldsögu sína sem nú er í smíð- um. Óskar Hrafn gaf úr glæpasöguna Mar- tröð millanna fyrir síðustu jól sem fékk ágætis dóma, þar á meðal þrjár stjörnur í bókablaði DV. Fékk Óskar einnig útgáfusamning við þýskt forlag. Martröð millanna fjallaði að miklu leyti um ruglið sem hér var í gangi í kringum hrun- ið og heldur Óskar áfram í spennunni. „Þetta er svipuð saga og síðast, glæpasaga. Nokkrir af karakterunum úr síðustu bók eru komnir aftur. Söguþráðurinn er kominn og svona. Svo reyni ég að notfæra mér það sem ég lærði af fyrstu bókinni,“ segir Óskar Hrafn. Í viðtali við DV í kringum útgáfu fyrstu bókar sinnar var Óskar svartsýnn á að ná að skrifa aðra bók þar sem hann var kominn aftur í fullt starf sem fréttastjóri á Fréttatíman- um. Hina bókina skrifaði hann eftir að hann hætti sem fréttastjóri Stöðvar 2. „Ég byrjaði aðeins á annarri bókinni og svo var ég bara kominn á þann stað að annaðhvort myndi ég sleppa þessu alfarið eða halda áfram og klára hugmyndina. Ég ákvað að klára þetta. Það væri auðvitað ákjósanlegra að hafa meiri tíma í að skrifa en það er einhvern veginn með þetta allt saman að maður finnur sér alltaf tíma,“ segir Óskar sem ætlar að reyna að gefa bókina út í ár. Fréttastjórinn er heldur betur hlaðinn verkefnum því auk þess að vera í krefjandi starfi og að skrifa skáldsögu og vera með stóra fjölskyldu hefur hann tekið að sér enn eitt verkefnið. Óskar verður annar sérfræð- inga Ríkissjónvarpsins í þættinum Íslenski boltinn í sumar sem fjallar um Pepsi-deildina í fótbolta. Sjálfur spilaði Óskar fótbolta með KR og sem atvinnumaður áður en meiðslin neyddu hann til að hætta ungum að aldri. Eftir það gerðist hann íþróttablaðamaður, þannig að hann þekkir leikinn vel. „Ég veit ekki hvað þetta er, kannski á ég bara svona erfitt með að segja nei. Þetta er alla vega eitthvað sem mér bauðst. Ég hef aldrei verið í sjónvarpi áður og hef ekki nokkra hugmynd um hvernig mér tekst til en það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég verð alla vega að vinna með toppmönnum,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson. tomas@dv.is BÓK OG BOLTI HJÁ ÓSKARI Nóg að gera Óskar Hrafn er fréttastjóri Frétta- tímans, rithöfundur, sérfræðingur Ríkissjónvarps- ins í íslenska boltanum og með stóra fjölskyldu. MYND SIGTRYGGUR ARI Ný spennusaga á leiðinni frá fréttastjóranum: „Ég vel aðeins það besta“ n Á 200 þúsund króna gleraugu n Á þó nokkur til skiptanna n Safnar hött- um, gleraugum og gítörum Björgvin Halldórsson stórsöngvari: É g hef einfaldan smekk og vel aðeins það besta, eins og segir í kvæðinu,“ segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórs- son sem sportar rándýrum og vönduðum gleraugum og á nokkur til skiptanna. „Ég er farinn að þurfa að nota gler- augu við lestur og ýmislegt. Mér var nú bara ráðlagt að fá mér góð gleraugu svo ég gerði það og skammast mín ekkert fyrir. Ég nota svolítið af gleraugum og á nokkur til skiptanna, það er ekkert leyndarmál. Ég fékk þessi umtöluðu hjá honum Kjartani í Optical og er viss um að ég get notað þau lengi og vel.“ Björgvin segist hrifinn af fallegum hlutum. Hann safnar ekki ein- göngu vönduðum gleraugum heldur líka ýmiss konar fatnaði, veiði- græjum, höttum og sólgleraugum. Hann á einnig gott safn gítara sem bættist í þegar hann fagnaði sextugsafmæli sínu eftir afmælistónleika í Há- skólabíói þar sem gjöfunum rigndi yfir hann. Fékk afmælismódelið af Fender Telecaster „Þarna var mikið af góðum gestum, bæði gömlum vinum og samstarfsfélög- um,“ segir Björgvin sem var myndaður ásamt sonardóttur sinni, Þórunni Leu, en hún er dóttir Sigurðar Þórs, elsta sonar Björgvins. Ég fékk nokkra gítara í safnið mitt. Útgefandinn minn, Sena, gaf mér 60 ára módelið af Fender Tele- caster sem er gítar sem kom út einmitt árið 1951. Það er búið að smíða afmæl- isútgáfuna. Svo fékk ég annan dobro-gítar frá hljómsveitinni. „Ég fékk mikið af veiðigræjum enda er ég alveg forfallinn stangveiðimað- ur. Við Óttar veiðum mikið saman og erum í veiðiklúbbi. Ég reyni að fara svona þrjá til fjóra túra á ári,“ segir Björgvin. Plata með Björgvini og Hjartagosunum Björgvin er fyrir löngu orðinn einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar enda ekki margir sem fylla Laugardals- höll margsinnis um hver jól og svo Háskólabíó þrisvar sinnum sömu helgina nokkrum mánuðum síðar. Nú er hann á leiðinni í hljóðver. „Ég fer í stúdíó í sumar og vonandi verð- ur eitthvað orðið til seinna í sumar eða um jólin. Ég er að fylgja eftir síð- ustu plötu með mér og Hjartagosun- um. Þess utan ætla ég að njóta vors og sumars og halda nokkra tónleika á landsbyggðinni.“ „Ekki orðinn 31 árs“ Vinirnir Auðunn Blöndal og Egill „Gillz“ Einarsson eru að vanda alveg óhræddir við að segja hvor öðrum til syndanna. Báðir eru þeir með mjög virkar Twitter-síður þar sem þeir fara í hár saman nánast á hverjum degi. Egill þarf þessa dagana að fara mikið í ljós vegna hlutverks síns í kvikmyndinni Svartur á leik. Birti Auðunn mynd af Gillz með VIP-kort á ljósastofu og skrifaði: „31 árs og með VIP-kort á ljósastofu. Eðlilegt?“ Egill svaraði um hæl og var kjarnyrtur að vanda: „Er ekki orðinn 31 árs, rassandlit!“ Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson gekkst á dögunum undir aðgerð vegna brjóskloss en þetta kemur fram á vefsíðunni menn.is. Brjósklosið hefur verið að plaga hann í nokkur ár, að hans sögn, en honum þótti þó yndislegt að vera svæfður. „Það er yndislegt að vera svæfður, alveg dásamleg víma og gaman að vakna upp skemmtilega ruglaður.“ Andri Freyr hvílist nú heima á sterkjum verkjalyfjum en von er á honum aftur í morgunþáttinn Virkir morgnar sem hann stýrir ásamt Gunnu Dís en þátturinn hefur heldur betur slegið í gegn á Rás 2. ANDRIí uppskurði Flottur Björgvin með 200 þúsund króna gler- augun. MYND BJÖRN BLÖNDAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.