Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Blaðsíða 2
H ollywood-leikarinn Tom Cruise sem dvalið hefur á Íslandi undanfarnar vikur fór niður í Þríhnúkagíg í Bláfjöllum um síðustu helgi, samkvæmt heimildum DV. Sam- kvæmt sömu heimildum hefur Cru- ise planað að fara aðra ferð niður í gíginn um helgina en í það skiptið ætlar hann að láta sig síga niður í reipi. Einstakur gíghellir Þríhnúkagígur er staðsettur í norð- austasta Þríhnúknum í Bláfjöllum, skammt frá Reykjavík, og er gríðar- stór gíghellir fyrir neðan gígopið. Þríhnúkahellir er einstakt náttúru- fyrirbæri og gefst fólki kostur á að síga niður í hellinn með sérstakri lyftu sem komið hefur verið þar fyrir. National Geographic hefur meðal annars gert heimildarmyndaþátt um gíginn. Fyrst núna í sumar er boðið upp á ferðir ofan í gíginn og þurfa þeir sem þangað vilja fara að láta sig hafa það að síga 120 metra niður í eldfjallið. Til að komast að fjallinu hefur Cruise þó þurft að ganga um fimm kíló- metra leið – nema hann hafi tekið þyrluna sem hann hefur ferðast um á með sér. Það liggur þó ekki fyrir. Fyrirtækið 3H Travel sér um ferð- irnar niður í gíghellinn. Ekki hefur fengist staðfest að Cruise hafi verið gestur fyrirtækisins um síðustu helgi. „Við höfum ekki tjáð okkur um hverj- ir hafa verið að koma í heimsókn til okkar,“ segir Vignir Guðjónsson, einn af mönnunum á bak við 3H Travel. „Við bjóðum alla sem hafa áhuga á að koma í heimsókn til okkar velkomna en við virðum líka þeirra „ privacy“; að vera ekkert að tala um þá.“ Ferðaplön Cruise á huldu Óvíst er hvenær Tom Cruise fer af landi brott en heimildir Akureyrar Vikublaðs herma að hann sé farinn af Norðurlandi. Sagði blaðið frá því á miðvikudag að nágrannar við húsið Hrafnabjörg, þar sem Cruise bjó, hafi verið tæmt og að gæslubíll sem hafði verið við húsið væri farinn. Óvíst er hverjar áætlanir leikarans þekkta eru varðandi frekari dvöl á landinu en hann fagnar fimmtugsafmæli sínu þann 3. júlí næstkomandi. Áður hef- ur verið greint frá því að Cruise hafi hug á að fagna afmælinu hér á landi en það virðist alls óvíst. Heimildir Vikudags, sem er annað vikublað á Norðurlandi, herma að tökum á kvikmyndinni hafi lokið fyrir norðan í síðustu viku. Cruise hafði þann háttinn á, á meðan hann dvaldi fyrir norðan, að fljúga um helgar til Reykjavíkur. Þar gisti hann samkvæmt heimildum DV á Hilton hótelinu við Suðurlands- braut. Heimildir DV herma að Cruise hafi tekið forsetasvítuna á hótelinu á leigu en á vef hótelsins segir að svít- an sé 110 fermetrar að stærð og með útsýni yfir Esjuna. 2 Fréttir 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað Rauf þögnina 3 Í miðvikudagsblaði DV sagði Ágústa Sif Aðalsteinsdóttir sögu sína af fæðingarþunglyndi. Hún varð móðir fyrir þremur mánuðum en eftir fæðinguna hef- ur hún þjáðst af miklu fæðingar- þunglyndi. Það var ekki fyrr en hún var komin á fremsta hlunn með að gera barni sínu mein að hún átt- aði sig á að eitthvað væri að og bar sig eftir hjálp. Í dag er hún í meðferð við fæðingarþunglyndi og hlakk- ar til að fara að njóta móðurhlut- verksins. Ágústa steig fram til þess að rjúfa þögnina sem ríkt hefur um þennan sjúkdóm sem margar ný- bakaðar mæður þjást af. Lagður í einelti 2 „Honum leið alls ekki vel í skóla. Ég held hann hafi átt erfitt með nám. Og hann var til dæmis oft niður- lægður og lagður í einelti. Kannski var það þess vegna sem það gerðist að þegar hann fór að drekka braust út þessi því- líka reiði. Hann fór að venja komur sínar á veitingastað í Hafnarfirði sem unglingur og þegar hann var í glasi varð hann oft ofbeldis- hneigður.“ Svona lýsti heimildarmað- ur DV æsku Barkar Birgissonar sem situr nú inni á Litla-Hrauni og bíður dóms í fjölmörgum málum. Í mánu- dagsblaðinu var fjallað um Börk sem var í vikunni dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hrækja á dómara. Halda milljarða arði 1 Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, fyrrverandi aðaleigendur eignarhaldsfélagsins Exista, fengu samtals tæplega 8,9 milljarða króna arð út úr félaginu á ár- unum fyrir hrun. Arðgreiðslurnar voru vegna bók- færðs hagnaðar Exista á árun- um 2005 til 2007. Engar arðgreiðsl- ur voru hins vegar greiddar út úr fé- laginu árin 2008 og 2009, sam- kvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2009. Fyrir skömmu keyptu þér hlutabréf í félaginu fyrir fimm millj- arða króna og eiga nú um fjórð- ungshlut í því en vilja eignast það allt. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni LAGÐUR Í EINELTI Í ÆSKURannsókn w w w .d v .i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 25.–26. júní 2012 mánudagur/Þriðjudagu r 7 2 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . BRÆÐURNIR SNúA AfTUR ENdURKomA LýÐS oG áGúSTS mEÐ fULLAR hENdUR fjáR n Ráðgátan um hvaðan þeir fá pening n Svona björguðu þeir sér 10 LEYNISTYRKIR TIL FRAMBJÓÐENDA Versta mál Jóhönnu n Femínistinn sem braut jafnréttislög n Fær l ítinn stuðning 2–3 8 18–19 n Þóra leynir styrkjum fram yfir kosningar n A ndrea og Herdís með opið bókhald Hemmi Gunn Þýskaland vinnur EM! mEÐ SýKINGU EN fÆR EKKI LÆKNINGU 3 4 Lífshætta af vinsælu gigtarlyfi 24 BöRKUR BIRGISSoN 8 Fréttir H ann á konu og ungt barn og reynir að vera fjölskyldunni góður og er það stundum en ég held hann kunni ekki á lífið,“ segir einn þeirra heimildarmanna sem varð fyrir svör- um um líf Barkar Birgissonar. Enginn heimildarmanna kem- ur fram undir nafni og bera við ótta um eigið öryggi. „Honum leið alls ekki vel í skóla. Ég held hann hafi átt erfitt með nám. Og hann var til dæm- is oft niðurlægður og lagður í einelti. Kannski var það þess vegna sem það gerðist að þegar hann fór að drekka braust út þessi þvílíka reiði. Hann fór að venja komur sínar á veitingastað í Hafnarfirði sem unglingur og þegar hann var í glasi varð hann oft ofbeld- ishneigður,“ segir sá sami sem þekkir Börk frá æskuslóðum hans í Hafnar- firði. Afbrotaferillinn hófst snemma Börkur, sem er fæddur 1979, á langan sakaferil að baki sem má rekja allt til ársins 1996, en þá var hann aðeins 17 ára gamall og réðst grímuklædd- ur á afgreiðslukonu í sjoppu og lamdi hana í höfuðið með hamri. Hún hlaut alvarlega áverka á höfði, höfuðkúpu- brotnaði meðal annars. Fyrir tilviljun kom maður inn í söluturninn með- an á árásinni stóð og veitti Berki eft- irför þar sem hann flúði af vettvangi og hann náðist í kjölfarið. Konan sagði í viðtali við DV á sínum tíma að ef maðurinn hefði ekki komið inn í söluturninn þá hefði hann líklega drepið hana. Tilraun til manndráps Ofbeldisverk Barkar urðu sífellt gróf- ari. Árið 2005 var hann dæmdur til 7 og hálfs árs fangelsisvistar fyrir til- raun til manndráps á veitingastaðn- um A. Hansen í Hafnarfirði. Hann réðist að manni vopnaður öxi og hjó hann í höfuðið. Hann hafði að auki rifbeinsbrotið tengdaföður sinn og ráðist á fjóra aðra karlmenn. Þá var hann einnig dæmdur fyrir ólöglegan vopnaburð og umferðarlagabrot. Að mati Héraðsdóms Reykjaness átti Börkur sér engar málsbætur og var árás hans með öxinni sérstaklega ófyrirleitin þar sem tilviljun ein réð því að fórnarlambið komst lífs af. Þá segir að önnur brot hafi verið fólsku- leg, yfirleitt án aðdraganda og beinst að höfði eða andliti þeirra sem fyr- ir þeim urðu. Áður hafði Börkur þrí- vegis verið dæmdur í fangelsi fyr- ir ofbeldisbrot. Meðan á afplánun stóð gerðist hann sekur um alvarleg agabrot og var vistaður í einangrun vegna þeirra. DV greindi frá því árið 2008 að Börkur hefði bæði ráðist á fangaverði og samfanga sína. Nefbraut samfanga Börkur var dæmdur 2007 fyrir að hafa árið áður slegið samfanga sinn á Litla-Hrauni með hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að hann nef- brotnaði. Atvikið átti sér stað á fót- boltavelli við fangelsið í útivistartíma fanga. Hann hlaut einnig dóm fyrir að hafa fíkniefni undir höndum inn- an fangelsisins. Fíkniefnin sem voru gerð upptæk voru 5,5 grömm af hassi sem fundust í klefa hans. Samkvæmt heimildum DV urðu Annþór og Börkur vinir þegar þeir sátu inni á Litla Hrauni. Eftir að hafa hlotið reynslulausn eiga þeir í sameiningu að hafa verið umsvifa- miklir í undirheimum Reykjavíkur. Þeir eru meðstjórnendur í fyrirtæk- inu Mebbakk sem var stofnað í apr- íl í fyrra en Mebbakk rekur meðal annars sólbaðsstofuna Bahamas á Grensásvegi. Annþór sagður stjórna Berki Heimildarmaður DV, kunnur rekstri sólbaðsstofunnar, segir Annþór stýra Berki. Annþór standi á hliðarlínunni þegar Börkur láti til skarar skríða. Hann sé klárari en Börkur og sé stjórnsamur. „Það eru margir hrædd- ir við Börk en það eru líka margir hræddir við Annþór því hann virð- ist stjórna öllu sem hann vill. Líka meðan hann sat inni, bæði föngum og fangaverði. Annþór og Börkur eru hættulegt teymi og enginn óskar sér þess að eiga þá fyrir óvini.“ Sami heimildarmaður segist ekki vilja koma fram undir nafni vegna þess að honum er annt um líf sitt. „Ég vil lifa lengur, þannig er það nú. Ég vil taka það fram að þeir eru fínir strákar þegar þeir eru ekki í neyslu. Í neysl- unni verða þeir stórhættulegir og ég held að hún hafi tekið völdin. Undir restina fór allt í bull.“ „Hann svífst einskis“ Einstaklingur sem þekkir til Barkar segir í samtali við DV að Börkur hafi stundað handrukkun og sé þekktur fyrir að búa til skuldir á fólk, jafnvel á þá sem séu minni máttar. Hann svíf- ist einskis. Sem dæmi um þetta snýr ein af ákærunum á hendur Berki og öðrum þekktum ofbeldismanni, Annþóri Kristjáni Karlssyni, meðal annars að fjárkúgun en í ákæru segir að Börk- ur og Annþór í félagi við aðra menn hafi ráðist með ofbeldi á þrjá einstak- linga, haldið þeim nauðugum og krafist þess að einn mannanna borg- aði þeim hálfa milljón króna daginn eftir en annar var krafinn um að greiða þeim 200 þúsund á mánuði um ótiltekinn tíma. Var mönnun- um hótað frekara ofbeldi ef þeir yrðu ekki við kröfum þeirra. Segir einnig í ákærunni að þremenningarnir, sem urðu fyrir árásinni, hafi ekki átt þess kost að komast út úr íbúðinni vegna hótana, ógnana, nauðungar og ofbeldis. Voru þeir þarna inni í allt að klukkutíma en árásarmennirn- ir yfirgáfu ekki staðinn fyrir en fórn- arlömbin samþykktu að verða við kröfum þeirra um greiðslu fjárins. Margar ákærur Börkur situr nú í einangrun á Litla Hrauni ásamt Annþóri vegna gruns um að þeir hafi orðið samfanga sín- um að bana í maí síðastliðnum. Þessa nýja kæra bætist því í safn mála sem Börkur á yfir höfði sér en hann er ásamt Annþóri meðal annars ákærður fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir, ólögmæta nauðung, frelsissviptingu og tilraunir til fjár- kúgunar. Hrækti á dómara Annþór og Börkur voru handtekn- ir eftir umfangsmikla rassíu lög- reglunnar í undirheimum Reykja- víkur og úrskurðaði héraðsdómur að þeir skyldu afplána eftirstöðvar dóma sem þeir hlutu fyrir nokkrum árum. Við það tækifæri hrækti Börk- ur að dómara og hótaði honum. Börkur hefur enn ekki verið ákærður fyrir athæfið en að hrækja á dómara í starfi flokkast undir brot gegn vald- stjórninni og geta viðurlög við slíku broti varðað allt að sex ára fangels- isvist. Berki er gefið að sök að hafa tvisvar við dómsuppkvaðningu þann 27. apríl síðastliðinn hafa hóstað út úr sér orðunum tussa. Börkur játaði að hafa sagt orðið tussa tvisvar en ekki að hafa beint þeim gegn dóm- aranum heldur hafi þau beinst gegn annarri manneskju í salnum. Ósáttur við dóminn Berki var einnig gefið að sök að hafa hrækt á Söndru Baldvinsdóttur, dómara og viðurkenndi hann það. Hann sagðist hafa gert það vegna þess að með dómi sínum væri dóm- arinn að koma í veg fyrir það að hann kæmist heim til konu sinnar og barns. „Ég var að lýsa vanþóknun minni á þessa ákvörðun dómarans. Í stað þess að fara heim til konunnar minnar og barns klukkan fjögur þá myndi ég fara heim eftir tvö og hálft ár. Eftir að hafa setið saklaus inni í mánuð,“ sagði hann. Hnerraði aftur tussa Sandra sagðist svo hafa verið hálfn- uð með að lesa upp dómsupp- skurðinn þegar Börkur hefði tekið upp á því að hnerra eða hósta orðin tussa í tvígang. Þegar hún hafði svo slitið þinghaldi og var að ganga í átt að dyrum dómaraherbergisins þá hefði hún skynjað að eitthvað væri í uppsiglingu. Ritari við Héraðsdóm Reykjaness, sem bar einnig vitni, sagðist hafa heyrt hann gefa frá sér hljóð sem gaf til kynna að hann væri að fara hrækja og hún hefði beygt sig niður til þess að forðast að fá hrák- ann framan í sig. Sandra sagði svo að Börkur hefði hrækt á sig og hrák- inn lent á hægra handarbaki henn- ar og neðarlega á dómaraskikkjunni. Hráki lenti einnig á andliti verjanda Barkar. Börkur sagðist ekki hafa haft uppi ógnandi tilburði í garð dómarans. „Nei, ég var ekki að ógna henni eða neitt slíkt enda hafði ég ekki í hyggju að gera henni neitt. Ef mig hefði langað þá hefði ég hlaupið til hennar og knúsað hana.“ n var Lagður í eineLti í æsku n Börkur Birgisson sagður svífast einskis n A nnþór sagður stýra Berki til illra verka Álit sálfræðings: „Kannski hefur hann engu að tapa“ „Þetta lýsir gríðarlegum dómgreindarbrest i og hann er að vanvirða réttinn,“ segir sál- fræðingur aðspurður um hegðun Barkar í ré ttinum. Hann tekur fram að hann þekki ekk i feril Barkar Birgissonar persónulega en me tur þetta einungis út frá þeirri lýsingu sem hann fékk af hegðun Barkar í þessum tveim ur fyrrgreindum réttarhöldum. „Kannski hefur hann engu að tapa. Kannski hefur ha nn gengið svo langt að hann hefur bara engu að tapa og hegðar sér þess vegna svo na. Af þessum lýsingum að dæma þá er þetta lítilsvirðing við réttinn og ef hann er margdæmdur þá ætti hann að þekkja reglu r réttarins og vita hvernig á að haga sér þar,“ segir sálfræðingurinn. „Hann lítilsvirðir vitnin með því að vera með einhver hljóð m eðan á vitnisburði þeirra stendur þegar algjör þögn á að ríkja.“ Hann tekur þó fram að hann hafi ekki kynn t sér málið í þaula. „Þetta er ekkert annað en túlkun en miðað við lýsingar þá hagaði h ann sér á óvirðulegan hátt.“ „Hann reynir að vera góður fjöl- skyldunni og er það stundum en ég held hann kunni ekki á lífið. Ósáttur við dóminn Börkur segist hafa hrækt á dómarann því hann hafi verið ósáttur við það að fá ekki fara heim til konu og barns. 25. júní 2012 Mánudagur n Allar mæður geta átt erfitt með að elska nýfædd börn n Ágústa útskýrir hræðileg áhrif fæðingarþunglyndis MÖMMUR SEM EIGA ERFITT w w w .d v .i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 27.–28. júní 2012 miðvikudagur/fimmtuda gur 7 3 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . Bestu tjaldsvæði landsins 18–19 NAUÐSYN LEGT FYRIR FRÍ IÐSELDI 365 HUMMER Jón Ásgeir sniðugur RjúFUM þÖGnInA mistök í ræktinni Lýður veðsetur hús sitt hjá MP n Flutti húsið í einkahlutafélag eftir hrun Hafði fengið nýtt heimili 8 26 HUnDI LÓGAÐ Í FLÝTI Garðar á fast 6 FÆÐA FÁTÆKA Góðverk Elínar og vina 6 Útt ekt „Ég var viss um að fólk myndi dæma mig sem óhæfa móður 10–11 20 4 12 Dreymdi vinn- ingstölurnar Það var berdreyminn miðaeig- andi við Happdrætti Háskóla Íslands sem vann milljón í síð- asta útdrætti. Maðurinn hafði samband við HHÍ og sagði að sig hefði dreymt fyrir stórum vinningi á tiltekið númer og bókstaf. Hann keypti miðann og kvaddi svo. Aðeins nokkrum klukkustundum seinna var dregið og maðurinn fékk einn- ar milljónar vinning á nýja miðann. Þegar starfsfólk HHÍ hafði samband við manninn var hann lítið hissa enda hafði hann búist við vinningnum en „þakkaði kærlega fyrir sig,“ seg- ir á vef HHÍ. 41 sagt upp Vinnslustöðin hf. (VSV) í Vest- mannaeyjum hefur sagt upp 41 starfsmanni til sjós og lands og hefur sett Gandí VE á söluskrá. Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum (VSV) sam- þykkti í gær að segja upp allri áhöfn Gandí VE-171 eða alls 30 manns. Gandí verður lagt að lok- inni makrílvertíð í ár og skipið auglýst til sölu. Eins verður ellefu manns í landvinnslu VSV í Eyjum sagt upp. Með þessum aðgerð- um segist VSV vera að bregðast við samanlögðum áhrifum af yfir helmings skerðingu aflaheimilda í makríl fyrir Gandí VE á þessu fisk- veiðiári. Verðhækkun á heitu vatni Orkuveita Reykjavíkur hefur ákveðið að hækka verð á heitu vatni um 3,5 prósent í sumar. Þetta er þriðja hækkunin á heita vatn- inu síðan ákvörðun var tekin um að hækka verðið um 35 prósent í október 2010. Gjaldskráin hækk- aði haustið 2010 og lýstu stjórn- endur Orkuveitunnar því yfir að gjaldskráin myndi fylgja verð- lagsþróun. Verðið á heita vatninu hækkaði um 8 prósent í apríl 2011 og um 5,3 prósent um síðustu ára- mót. n Tom Cruise fór í hellaskoðun í Þríhnúkagíg n Farinn frá Hrafnabjörgum Tom Cruise í Þríhnúkagíg Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Risastór Gíghellirinn sem heimildir DV herma að Tom Cruise hafi heimsótt er gríðarlega stór. Mynd SigtRygguR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.