Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Blaðsíða 50
50 Lífsstíll 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað Grillað inni Það hefur lengi verið reynt að fanga hið eftirsótta grillbragð án þess að þurfa notast við grillið sjálft. Sleppa þannig við reykinn, sótið og umstangið sem fylgir. Tækjaframleiðandinn Element tel- ur sig hafa fundið lausnina með Indoor Smokeless BBQ-grillinu. Um er að ræða lítið „grill“ sem er bæði gas og rafmagnshella. Grillið hitar breiðu af hraunmolum og á að skapa grillbragðið eftirsótta en vera um leið laust við reyk og sót. Þá er það sérstaklega hannað til að fanga fituna sem kemur frá matn- um. Kostar ytra 225 dollara eða 28.500 krónur. Svalur undir sænginni Ef þér er alltaf of heitt á nóttunni en vilt samt geta verið með sæng eða lak þá gæti nýja rúmviftan frá Brookestone verið lausnin. Viftan stendur við endann á rúminu og blæs hlýju eða köldu lofti und- ir sængina hjá þér. Fjarstýrður rofi er svo á náttborðinu til þess að kveikja og slökkva. Viftan fæst meðal annars á amazon.com og kostar 99 dali eða um 12.500 kr. Google skerst í leikinn Það er ekki bara Microsoft sem er að senda frá sér spjaldtölvu. Google sendir á næstunni frá sér spjaldtölvuna Nexus 7 en hún verður með android-stýrikerfi líkt og símarnir frá Google. Tölvan er unnin í samvinnu við Asus sem hefur verið leiðandi í fartölvum undanfarin misseri. Ýmsum upp- lýsingum um vélina og mynd- um var lekið á netið nýlega en ekkert af því hefur verið staðfest af Google. Samkvæmt því mun skjárinn verða með 1280 x 800 upplausn, 1,3 GHz Tegra 3 örgjafa, 1GB af RAM og 12-core GeForce GPU. Spjaldtölvan verður fáanleg með 8GB og 16GB minni. iPad fær samkeppni H ugbúnaðarrisinn Microsoft kynnti um síðustu helgi nýjustu afurð sína; spjald- tölvuna Surface. Microsoft, sem lengst af hefur framleitt hugbúnað á borð við Windows og Office, hefur í auknum mæli einbeitt sér að tölvum og farsímum undan- farin ár. Surface er spjaldtölva í anda iPad og gæti veitt Apple og Samsung mikla samkeppni á þeim markaði. Tæknifrumskógurinn Fyrir hinn venjulega síma- og tölvu- notanda getur tæknifrumskógurinn verið ansi ógnvænlegur. Til að draga upp einfalda mynd af honum má skipta honum í þrennt um þessar mundir. Þar að segja spjaldtölvu- og farsímamarkaðnum. Valið stendur í dag á milli þriggja stýrikerfa; Apple, Android og Windows. Apple framleiðir iPhone og iPad, Samsung, auk fjölda annarra, notast við Android-stýrikerfi og Microsoft og Nokia til dæmis notast við Windows-stýrkikerfið. Það nýjasta er Windows 8 og er það væntanlegt innan skamms. Hingað til hafa iPhone og Android-símar, aðallega Samsung, haft yfirburði á snjallsímamarkaðn- um. iPad hefur hins vegar haft mikla yfirburði á spjaldtölvumarkaðnum. Samsung hefur verið að gera ágæt- is hluti með spjaldtölvu með Android-viðmóti en ekki komist ná- lægt Apple í sölutölum. Microsoft hefur hins vegar verið að sækja í sig veðrið á þessum markaði og mik- ið af gagnrýninni sem Windows 7 fékk, verið svarað með Windows 8. Nú kemur svo spjaldtölvan Surface sem sameinar borðtölvuna, snjall- símann og Xbox 360 leikjatölvuna. Þetta er í raun einu skrefi lengra en Apple því þar ertu með sama við- mótið í iPad, iPhone og iPod en ekki þegar kemur að borðtölvunni, þó það sé svipað. Apple stefnir þó hik- laust í þessa átt líka með samræmd- um stýrikerfum. Brúar bilið Greg Harper, sem heldur úti síðunni harpervision.tv, sérhæfir sig í um- fjöllun og gagnrýni á því nýjasta sem gerist í tækniheimum. Hann sagði í viðtali við ABC-fréttastofuna um síð- ustu helgi að Surface og Windows 8 væri bilið á milli Apple og Android. „Það sem Apple hefur haft fram yfir Android er þessi heildarupplifun og öryggið. Það er að segja tengingin á milli tækjanna, sameiginlega við- mótið og öryggið sem fylgir þessu lokaða kerfi. Android er mun opnara og almennara. Sem er meira heill- andi fyrir hugbúnaðarframleiðend- ur en því fylgja líka vírusar og önn- ur öryggisvandamál. Microsoft er þarna mitt á milli og býður núna upp á þessa sömu heildarupplifun og Apple. Það er að segja að þú ert með sama viðmótið í borðtölvunni, spjaldtölvunni, símanum og jafnvel leikjatölvunni. Auk þess að vera með meira öryggi. En á endanum snýst þetta allt um „apps“ og þar hefur Apple hingað til haft vinninginn, í spjaldtölvunum að minnsta kosti,“ en til eru um 250 þús- und „apps“ eða forrit fyrir iPad og önnur 500 þúsund fyrir iPhone sem einnig er hægt að nota í iPad. Kostir Surface Eitt af því sem vakti hvað mesta athygli við kynninguna á Microsoft Surface hjá hinum almenna notanda var hönnunin. Skjárinn er meira „Wide Screen“ en á öðrum spjald- tölvum og bakhliðin er gerð úr efni sem á ekki að geta rispast. Þá er hægt að taka út hluta af bak- hlið tölvunnar til að láta hana standa og fer því ekkert fyrir honum þegar hann er ekki í notkun. Mesta athygli vakti þó hulstur tölvunnar sem ver skjáinn. Það er fest á með segli en er um leið lykla- borð. Þannig að þegar þú ert með fótinn úti og hulstrið á tölvunni á borðinu ertu með lyklaborð áfast tölvunni. Ekkert auka dót og ekkert vesen en það er einmitt það sem hef- ur fælt suma notendur frá spjaldtölv- um hingað til. Surface mun koma í tveimur út- gáfum; Surface og Surface Pro. Sú fyrrnefnda verður keyrð á Windows RT-stýrikerfi sem eru takmark- aðra en Windows 8-stýrikerfið. Surface Pro verður hins vegar með Windows 8 og getur því keyrt sömu forrit og hvaða PC borðtölva sem er. Þannig að „apps“ munu ekki skipta jafn miklu máli og með „venjulegu“ Surface-vélina. Hvort Microsoft nær að veita Apple verðuga samkeppni verð- ur tíminn að leiða í ljós en það er ljóst að Surface kemur með ýms- ar skemmtilegar nýjungar á mark- aðinn. Það sem mun hafa mikið að segja er hvort Microsoft geti laðað hugbúnaðarframleiðendur að „app- borðinu“. asgeir@dv.is n Microsoft kynnir spjaldtölvu n Brúar bilið á milli Apple og Android Steven Sinofsky Forseti Windows- og Windows Live-deildar Microsoft kynnir gripinn. Microsoft Surface Hér sést hversu örþunn vélin er og hvernig hún lítur út með hulstrinu sem einnig er lyklaborð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.