Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Blaðsíða 27
Forsetakosningar 27Helgarblað 29. júní–1. júlí 2012
Að baki grímunni
Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
„Fjögurra ára úti á sjó með föður mínum
í „hvalalundinum“ eins og ég kallaði það
– þar sem um 30 hvalir dóluðu í kringum
trilluna á Skjálfandaflóa.“
Hvað varst þú að gera síðasta
laugardagskvöld? „Ég var í sumar
bústað með fjölskyldunni.“
Hver var þín fyrsta hugsun í
morgun? „Ég þarf að skrifa pistla í dag,
best að drífa mig á fætur.“
Hvað er það villtasta sem þú hefur
gert? „Ég er gjörn á að færa mig út fyrir
þægindahringinn til að fá meira út úr lífinu
og læra. Einu sinni fór ég í teygjustökk,
það var svakalega erfitt að stíga fram af
pallinum. Einu sinni keyrði ég viljandi af
hraðbrautinni í Washington DC til að villast
– það var ekki sniðugt.“
Við hvað ertu hrædd? „Óttann og
óbreytt ástand.“
Hefur þú reykt kannabis? „Var það
ekki forseti Bandaríkjanna sem svaraði „I
never inhaled“?“
Hefur þú verið nakin í óbyggðum?
„Að sjálfsögðu. Hver hefur það ekki?“
Hefur þú fengið innheimtubréf eða
höfnun á greiðslukorti? „Já.“
Hefur þú upplifað óendurgoldna
ást? „Já, á yngri árum.“
Hefur þú lent í klóm ræningja? „Já, í
martröð (draumi).“
Hefur þú verið tekin af lögreglunni?
„Já.“
Ef þú þyrftir að velja annað land til
búsetu, hvaða land yrði það? „Land
þar sem er öruggt að vera með börn og
ávextir vaxa á trjám. Notalegt loftslag og
hafið innan seilingar.“
Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Sjá? Gera? „Að vera forseti og hafa
góð áhrif á samfélagið og lýðræðið.“
Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
„Manninn minn í morgun þegar ég vaknaði.“
Hefur þú gleymt afmælisdegi ein-
hvers sem skiptir þig máli? „Já.“
Hver er uppáhaldssápuóperan þín?
„Er lítið gefin fyrir sápur.“
Hver er einmanalegasta stundin
sem þú hefur upplifað? „Ég upplifi
sjaldan einmanaleika því mér finnst gott að
vera ein með sjálfri mér.“
Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? „Grillaður lax og humar finnst mér
afskaplega góður.“
Hver er sú versta? „Mér fannst rauðmagi
hræðilegur þegar ég var barn.
Það var skrítið en jafnframt áhugavert
að smakka krókódíla og kengúrukjöt í
Ástralíu.“
Hefur þú svikið einhvern? „Já.“
Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? „Já, stundum,
eftir því hve stór þau eru. Með því að sýna
iðrun og segja frá því.“
Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
séð eða heyrt? „Sylvía Nótt var fyndin.
Gaukur Úlfars semur ágætis leikrit.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
á kvöldin áður en þú ferð að sofa?
„Hugsa.“
Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? „Það er mitt einka
mál – ekki til birtingar í DV.“
Hver er þinn æðsti draumur? „Að hafa
góð áhrif á samfélagið.“
Andrea Ólafsdóttir„Var það ekki
forseti Banda-
ríkjanna sem svaraði
„I never inhaled“?
Keyrði viljandi
af hraðbraut
til að villast
Hverjir styðja hvern?
N
ú þegar kosningabaráttan er
senn á enda er ekki úr vegi að
skoða þá aðila sem hafa stigið
fram og lýst yfir stuðningi sín-
um við forsetaframbjóðendurna op-
inberlega. Fjölmargir frammámenn
og frægðarfólk hefur stigið fram og
sumir jafnvel þeyst fram á ritvöll
netheima og ýmist dásamað sinn
frambjóðanda eða lastað mótfram-
bjóðendur. Að neðan má finna lista
yfir nokkur þekkt nöfn sem hafa tekið
afstöðu.
Herdís Þorgeirsdóttir
n Dögg Pálsdóttir, lögmaður
n Myndlistahjónin Hulda Hákon og Jón Óskar
n Elísabet Rónaldsdóttir, kvikmyndagerðar
kona
n Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona
n Sigurlaug Ragnarsdóttir, systir Ómars
Ragnarssonar
n Natan Kolbeinsson, formaður ungra jafnað
armanna í Reykjavík
n Eiríkur Jónsson, blaðamaður
n Lilja Skaftadóttir, stærsti eigandi DV
n Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur
n Hörður Torfason, tónlistarmaður
n Guðrún Mínervudóttir, rithöfundur
n Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor
n Benedikt Erlingsson, leikstjóri
n Helga Björnsson, fatahönnuður
Andrea J. Ólafsdóttir
n Þórður Björn Sigurðsson, fyrrverandi
formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og
núverandi starfsmaður þingflokks Hreyfingar
innar
n KK, tónlistarmaður
n Ellen Kristjánsdóttir, tónlistarkona
n Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda
n Marinó G. Njálsson, fyrrverandi forsvars
maður Hagsmunasamtaka heimilanna
Ari Trausti Guðmundsson
n Elín Sveinsdóttir, dagskrárgerðarkona og
eiginkona Sigmundar Ernis Rúnarssonar
n Karl Th. Birgisson, fjölmiðlamaður
n Tolli Morthens, listamaður
n Jón Þór Hannesson, stofnandi Saga Film
n Helga Guðrún Johnsen, fyrrverandi frétta
kona
n Svavar Knútur, tónlistarmaður
n Jón Rafnsson, tónlistarmaður
n Sævar Karl Ólason, eigandi herrafata
verslunar
n Stefán Karl Stefánsson, leikari
Hannes Bjarnason
n Ragnar Bjarnason, íþróttakennari og bróðir
Hannesar
n Sveinn Arnar Sæmundsson, bæjarlistamað
ur Akraness
Ólafur Ragnar Grímsson
n Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður
n Bubbi Morthens, tónlistarmaður
n Davíð Þorláksson, formaður Ungra sjálf
stæðismanna
n Snorri í Betel, trúarleiðtogi og kennari
n Snorri Ásmundsson, listamaður
n Gísli Örn Garðarson, leikari
n Nína Dögg Filippusdóttir, leikkona
n Simmi og Jói, eigendur Hamborgarafa
brikkunnar
n Magnús Scheving, íþróttaálfur
n Margrét Dagmar Ericsdóttir, kvikmynda
framleiðandi
Þóra Arnórsdóttir
n Friðjón R. Friðjónsson, fyrrverandi aðstoðar
maður Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins
n Gaukur Úlfarsson, kvikmyndagerðarmaður
n Guðrún Pétursdóttir, fyrrverandi forseta
frambjóðandi
n Inga Lind Karlsdóttir, sjónvarpskona
n Svanhildur Hólm, fjölmiðlakona
n Katrín Bessadóttir, sambýliskona Helga
Seljan
n Andrés Jónsson, almannatengill
n Kristinn Hrafnsson, fyrrverandi fréttamaður
á RÚV og núverandi starfsmaður Wikileaks
n Katrín Júlíusdóttir, ráðherra
n Bergur Ebbi, uppistandari
n Dóri DNA, rappari og uppistandari
n Hallgrímur Helgason, rithöfundur
n Margrét K. Sverrisdóttir, fyrrverandi vara
þingmaður
n Bragi Ólafsson, rithöfundur
n Felix Bergsson, leikari
n Guðrún Agnarsdóttir, fyrrverandi forseta
frambjóðandi
n Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona
n Njörður P. Njarðvík, skáld
n Vilhjálmur Bjarnason, lektor
n Skúli Gautason, leikari
n Ævar Örn Jósepsson, rithöfundur
n Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
n Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi ráðherra
n Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari
Retro Stefson
n Tryggvi Gíslason, fyrrverandi rektor MA
n Sindri Freysson, rithöfundur
n Sigrún Eldjárn, myndlistamaður og dóttir
Kristjáns Eldjárn
n Pálmi Gunnarsson, tónlistarmaður
n Lára Björg Björnsdóttir, rithöfundur og
bloggari
n Kjartan Ragnarsson, leikstjóri
n Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi
n Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Lands
sambands sjálfstæðiskvenna
n Ingunn Snædal, skáld
n Ingimar Karl Helgason, fréttamaður
n Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri
n Hildur Knútsdóttir, rithöfundur
n Ari Sigvaldason, ljósmyndari
n Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkju
prestur
n Sjón, rithöfundur
n Halldóra Geirharðs, leikkona
S
kipta má frambjóðend-
um lauslega í tvær fylk-
ingar. Önnur fylkingin sam-
anstendur af þeim Andreu,
Ólafi og Herdísi. Þau hafa
ögn pólitískari sýn á embættið en
hinir frambjóðendurnir og vilja að
forsetinn taki virkan þátt í opin-
berum ákvörðunum og deilumál-
um samtímans. Til að mynda segist
Andrea ætla að leggja fram þing-
frumvarp um leiðréttingu stökk-
breyttra lána. Ólafi hefur verið tíð-
rætt um það að sökum lítils trausts á
þinginu gegni forsetaembættið sér-
stöku hlutverki um þessar mund-
ir. Jafnframt virðist hann líta svo á
að forsetinn eigi að reka sjálfstæða
utan ríkisstefnu. Herdís hyggst beita
sér fyrir mannréttindum og er afar
jákvæð gagnvart málskotsréttin-
um. Slagorð hennar er: „Lýðræði er
alltaf svarið.“
Hina fylkinguna skipa þau Ari,
Hannes og Þóra. Þau hafa tals-
vert íhaldssamari sýn á forseta-
embættið en hinir frambjóðend-
urnir og vilja frekar að forsetinn
sé sameiningarafl en pólitískur
aðili. Ari Trausti vill að forsetinn
verði nokkurs konar umræðustjóri
þjóðarinnar sem kynnir ólík sjón-
armið fyrir fólki. Hannes leggur
áherslu á að brúa bilið milli borgar
og sveitar og lýsir sér sem fulltrúa
alþýðunnar. Þóra Arnórsdóttir hef-
ur hvatt til sameiningar og vill að
forsetinn sé fulltrúi allrar þjóðar-
innar, en ekki aðeins þeirra sem eru
sammála honum. Jafnframt vill hún
efla samráð forseta við fulltrúa allra
stjórnmálaafla.
Tvær fylkingar
n Ólík sjónarmið takast á í aðdraganda kosninga
Bessastaðir Deilt hefur verið um hlutverk forsetaembættisins.