Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2012, Page 70
Þ
eir búa yfir sérstökum
eiginleikum,“ segir Erik
Soler, knattspyrnu
stjóri New York Red
Bulls um íslenska
knattspyrnumenn, í sam
tali við The New York Times.
Í grein, sem birtist á vefnum
síðdegis á þriðjudag er fjall
að um ótrúlega útrás íslenskra
knattspyrnumanna. Bent er á
að þrátt fyrir á Íslandi búi að
eins um 320 þúsund manns
leiki á bilinu 75 til 100 íslensk
ir atvinnumenn í knattspyrnu í
mörgum af sterkustu deildum
Evrópu.
Gylfi Þór Sigurðsson, sem
ný verið gekk í raðir Totten
ham, hefur slegið í gegn á und
ir búningstímabil inu. Hann
hefur skorað tvö mörk og lagt
upp þrjú í fyrstu fjórum leikj
um sínum fyrir liðið.
Næsta stórstjarna
Tottenham?
Í greininni er ítarlega fjall
að um Hafnfirðinginn Gylfa
Þór og þá athygli sem hann
hefur vakið. Ýjað er að því að
Gylfi Þór gæti þegar fram í
sækir orðið næsta stórstjarna
liðsins. „Hann er ekki líklegur
til að varpa skugga á goðsagn
ir eins og Glenn Hoddle og
Paul Gascoigne. Allavega ekki
strax.“ Blaðamaður New York
Times hitti Gylfa Þór á Man
hattan í New York á mánu
dag þar sem nokkrir leikmenn
Tottenham (sem var í æfinga
ferð í Bandaríkjunum) voru
að láta mynda sig í tengslum
við útkomu tölvuleiksins Fifa
13. Hann er spurður hvað geri
íslenska knattspyrnumenn
svo góða. „Ég er ekki viss en
ég held að ástæðan sé sú að
við búum yfir góðu hugar
fari, leggjum hart að okkur
og tölum góða ensku.“ Hann
bendir á að fyrir nokkrum
árum hafi verið reistar margar
knattspyrnuhallir sem hafi
gert Íslendingum kleift að
stunda íþróttina allt árið. Áður
hafi knattspyrnumenn bara
getað spilað við góðar aðstæð
ur í fjóra til fimm mánuði á ári.
Telur að Ísland geti
komist á HM
Sigur Chelsea í Meistara
deildinni í vor varð til þess að
Tottenham varð af Evrópusæti
sínu. Gylfi segir í viðtalinu að
það sé hans markmið að spila
í Meistaradeildinni og á HM
með Íslandi. Erfitt sé að gera
upp á milli þeirra keppna.
Hann segist hafa trú á því að
undir stjórn Lars Lagerbeck
geti Ísland komist í lokakeppni
HM. „Ég held að Ísland geti
það. Það er góður möguleiki,“
segir hann en Ísland er í riðli
með Noregi, Slóveníu, Sviss,
Kýpur og Albaníu.
Leggja harðar að sér
Haft er eftir Soler, sem hef
ur fylgst náið með íslensk
um knattspyrnumönnum
allt frá árinu 1990, að á ís
landi sé hægt að næla í góða
knattspyrnumenn fyrir nánast
engan pening. „Ísland er enn
góð uppspretta góðra leik
manna,“ segir Soler. Þá er haft
eftir knattspyrnuþjálfaranum
Teiti Þórðarsyni að íslensk
ir íþróttamenn hafi öðruvísi
viðhorf en leikmenn frá öðr
um löndum. Þeir séu tilbúnir
að leggja harðar að sér en aðr
ir til að ná langt.
„Það er draumur allra ís
lenskra knattspyrnumanna
að gerast atvinnumenn og
Fíflaði fyrirliðann Gylfi skoraði
stórglæsilegt mark gegn New York
Red Bulls í vikunni. Hann fór illa með
vörn liðsins í aðdraganda marksins.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Slær í gegn með Tottenham
Íslendingar í
enska boltanum
Efsta deild
Brynjar Björn Gunnarsson
Reading
Gylfi Þór Sigurðsson Tottenham
Næst efsta deild
Björn Bergmann Sigurðsson
Wolves
Eggert Gunnþór Jónsson Wolves
Aron Einar Gunnarsson Cardiff
City
Heiðar Helguson Cardiff City
Gunnar Þorsteinsson Ipswich
Án félags
Grétar Rafn Steinsson
Hermann Hreiðarsson
Lagerbäck yngir upp
n Tíu leikmenn úr U-21 árs liði síðasta árs
T
íu leikmenn úr U21 árs
liði Íslands frá því í fyrra
eru í nýjasta landsliðs
hópi Lars Lagerbäck.
Liðið mætir Færeyjum í vin
áttulandsleik þann 15. ágúst
næstkomandi. Um er að ræða
fyrsta leik liðsins undir stjórn
Svíans á heimavelli. Allir fram
herjarnir í liðinu og flestir
miðjumennirnir eru úr um
ræddu U21 árs liði. Athygli
vekur að Lagerbäck velur
hvorki Grétar Rafn Steinsson
né Eið Smára Guðjohnsen í
landsliðshópinn. Þeir eru báðir
án félags þegar þetta er skrifað.
Einn nýliði er í hópnum en
það er Ingvar Jónsson, mark
vörður Stjörnunnar. Allir þrír
markmenn hópsins leika á Ís
landi en aðrir leika utan Ís
lands. Meðalaldur liðsins er
25,8 ár.
Markmenn
Gunnleifur Gunnleifsson
FH, 37 ára
Hannes Þór Halldórsson
KR, 28 ára
Ingvar Jónsson
Stjörnunni, 23 ára
Varnarmenn
Ragnar Sigurðsson
FC København, 26 ára
Sölvi Geir Ottesen
FC København, 28 ára
Ari Freyr Skúlason
Sundsvall IF, 25 ára
Indriði Sigurðsson
Viking FK, 30 ára
Kári Árnason
Rotherham, 29 ára
Birkir Már Sævarsson
SK Brann, 27 ára
Bjarni Ólafur Eiríksson
Stabæk IF, 30 ára
Miðjumenn
Aron Einar Gunnarsson
Cardiff, 23 ára
Helgi Valur Daníelsson
AIK, 31 árs
Emil Hallfreðsson
Hellas Verona, 28 ára
Jóhann Berg Guðmundsson
AZ, 22 ára
Rúrik Gíslason
OB, 24 ára
Eggert Gunnþór Jónsson
Wolves, 23 ára
Arnór Smárason
Esbjerg BK, 23 ára
Sóknarmenn
Birkir Bjarnason
Pescara Calcio, 24 ára
Kolbeinn Sigþórsson
AFC Ajax, 22 ára
Alfreð Finnbogason
Helsingborg IF, 22 ára
Gylfi Þór Sigurðsson
Tottenham, 22 ára
Björn Bergmann Sigurðarson
Wolves, 21 árs
„Ég held að
ástæðan sé
sú að við búum yfir
góðu hugarfari, leggj-
um hart að okkur og
tölum góða ensku.
Gylfi í Guðatölu?
54 Sport 3.–7. ágúst 2012 Helgarblað
Enginn Eiður Lars valdi hvorki
Grétar Rafn né Eið Smára í hópinn.
Handboltaæði
rennur á Breta
Þó að breska karlaliðið
hafi ekki riðið feitum hesti
frá viðureignum sínum í
London hefur handbolta
íþróttin vakið mikla athygli á
Ólympíuleikunum. Bresk
ir blaðamenn hafa lagt sér
staka rækt við að skrifa
um íþróttina sem er þeim
sannarlega að skapi. Hand
knattleiksfélög hafa sprottið
upp eins og gorkúlur í að
draganda leikanna. Á vef
síðunni englandhandball.
com er meðal annars hægt
að skoða kort yfir handbolta
félög í Bretlandi; sem orðin
eru fjölmörg talsins. For
sætisráðherrann David
Cameron er á meðal þeirra
sem fylgst hafa spenntir með
handknattleik á Ólympíuleik
unum en meðfylgjandi mynd
var tekin á leik Frakka og
Spánverja í kvennaboltanum.
Þar skemmti hann sér kon
unglega.
Risaafsláttur
í boði „strák-
anna okkar“?
ÓB hefur gefið út þá yfirlýs
ingu að bensínverðið muni
haldast í hendur við gengi
íslenska landsliðsins í hand
knattleik á Ólympíuleikun
um í London. Ísland vann
Argentínu í fyrsta leik með
sex marka mun en daginn
eftir veitti ÓB sex króna af
slátt af lítranum. Afsláttur
inn varð tíu krónur eft
ir glæstan sigur á Túnis á
þriðjudag. Næsti leikur Ís
lands er við Frakkland en
ekki er öruggt að afsláttur
inn verði svimandi hár. Í síð
asta leiknum í riðlakeppn
inni mætir Ísland veiku liði
Bretlands sem hefur tap
að öllum leikjum í riðlin
um með miklum mun. Ef
mið er tekið af frammistöðu
Breta hingað til á mótinu er
ekki ósennilegt að afsláttur
inn gæti numið meira en 20
krónum í kjölfar viðureignar
liðanna.
KR í úrslit
Það verða KR og Stjarn
an sem mætast í úrslit
um Borgunarbikarsins.
Þetta varð ljóst eftir 1–0
sigur KRinga á Grinda
vík á fimmtudagskvöld.
Stjarnan lagði Þrótt úr
1. deild í hinum undan
úrslitaleiknum, 3–0, á
miðvikudagskvöld. Gary
Martin, sem er nýkominn
til KR frá Skagamönn
um, skoraði sigurmark
ið á lokamínútum fyrri
hálfleiks. Hann mun því
mæta sínum gamla félaga
Mark Doninger sem gekk
í raðir Stjörnunnar frá ÍA
á dögunum. Úrslitaleik
urinn fer fram á Laugar
dalsvelli þann 18. ágúst.