Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Page 2
2 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
Fjölþrepa
bakbrettið
• Teygir á hrygg og bakvöðvum
• Minnkar vöðvaspennu
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Glitnir lánaði millj-
arða í gegnum Byr
Eignar-
haldsfélagið
FL Group, stærsti
eigandi Glitnis,
lét bankann lána
sér þrjá milljarða
króna í gegnum
sparisjóðinn Byr
í mars 2008. FL
Group var komið í
erfiðleika vegna endurfjármögnunar
félagsins þegar þetta var og gat ekki
fengið meira lánað frá Glitni þegar
þarna var komið sögu. Viðskiptin
fóru þannig fram að Glitnir lánaði
Byr þrjá milljarða króna og fékk svo
sömu upphæð lánaða frá Byr. Þetta
kemur fram í tölvupóstum, fundar-
gerðum, lánasamningum og fleiri
gögnum sem DV vísaði til í umfjöllun
sinni á mánudag.
„Grafalvarlegt
ástand“
„Þetta
er
auðvitað
grafalvar-
legt ástand.
Bæði fyrir
okkur sem
íbúa hérna
og ekki síst
fyrir ferða-
mannaiðnaðinn, við erum mörg
hérna sem eigum allt undir honum.“
Þetta sagði Elías Guðmundsson, hót-
elstjóri á Hótel Vík, í DV á mánudag.
Skömmu eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags kom hlaup í Múlakvísl
undan Mýrdalsjökli. Talsverður
kraftur var í hlaupinu sem greip með
sér brúna yfir Múlakvísl og er hring-
vegurinn því rofinn. Ferðaþjónustan
óttast að rof hringvegarins muni hafa
slæm áhrif í för með sér.
„Hefði sennilega
látist þarna“
„Dóttir mín
fór á Bestu
útihátíðina á
laugardaginn og
kom til baka með
sjúkrabíl sama
dag.“ Þetta sagði
faðir ungrar konu
í DV á miðviku-
dag. Dóttir hans
veiktist alvarlega á Bestu útihátíðinni
sem haldin var á Gaddstaðaflötum
við Hellu um síðustu helgi. Talið er
að henni hafi verið byrluð ólyfjan.
Konan, sem er 26 ára einstæð móðir,
fór ásamt vinum á útihátíðina á laug-
ardeginum. Sjálf man hún ekkert frá
hátíðinni og er enn að jafna sig eftir
raunirnar.
Fréttir vikunnar í DV
svona var byr
misnotaður
tölvupóstar lýsa leynimakki byrs og fl-group
Viðar Þorkelsson
Sagði Byrslánið komið
frá Glitni
Jón Sigurðsson
Ósáttur þegar Byr vildi ekki lána FL
Ragnar Z.
Samþykkti viðskiptin
Hannes Smárason
Stýrði FL Group í ógöngur
Jón Ásgeir
Skuggastjórnandi
Glitnis
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 11.–12
. júlí 2011 Mánudagur/Þriðjudagur
w
w
w
.d
v
.i
s
7
8
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
n Lánuðu þrjá milljarða til FL n Milljarðar teknir frá Glitni í gegnum Byr
n „Þið hljótið að geta komið til móts við okkur“ n „Bendi a Jon Sig,“ segir Jón Ásgeir
10–12
2–3
20
Bolabíturinn var
mun snyrtilegri en
Ómar Ragnarsson
Andri Freyr þvældist í húsbíl6
Þjófurinn
stal leikriti
úr bifreið
„Ég hafði vonast til að leik-
ritið yrði sett upp í haust“
Lögreglan mætti í grillpartí
Jóns Ásgeirs og Ingibjargar
„Við buðum
í SS-pylsur“
8
Grafalvarlegt ástand vegna Kötluhlaups
Brúin yfir
Múlakvísl
er algjört
forgangsmál
Innanríkisráðherra beitir sér
Fékk
Office 1
aftur
eftir þrot
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 13.–14. júl
í 2011 miðvikudagur/fimmtudagur
w
w
w
.d
v
.i
s
7
9
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
. Kominn
með annan
fótinn
inn í N1
Hægri hönd
athafna-
mannsins inn
í fyrirtækið
10
14–15
Í lÍfsháska á Bestu útihátÍðinni
Byrluð
ólyfjan
n Ung kona á sjúkrahús með hraði
n Fannst með vitundar laus í brekku
n Deyfiefni fundust í blóðinu
n Faðirinn: „Ekki búin að jafna sig“
n Konan man ekkert frá atburðinum
2–3
3
Syngur með
Önnu Mjöll
„Hún líður fyrir að
vera ljóshærð“
Ingunn Wernersdóttir slapp betur
frá hruninu en bræður hennar
Auðkonan á
1,5 milljarða
í Lúxemborg
Lögfræðingar
stórgræða
á skuldurum
500 kall varð að
12.000 krónum
Farangurinn týndur í þrjár vikur
Mæðgur í „draumaferð“ fengu 11 þúsund hvor frá Iceland Express
Skuldir
hurfu
12
4
26
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt
ástand. Bæði fyrir okkur sem íbúa
hérna og ekki síst fyrir ferðamanna-
iðnaðinn, við erum mörg hérna sem
eigum allt undir honum,“ segir Elías
Guðmundsson, hótelstjóri á Hótel
Vík.
Skömmu eftir miðnætti aðfara-
nótt laugardags kom hlaup í Múla-
kvísl undan Mýrdalsjökli. Talsverð-
ur kraftur var í hlaupinu sem greip
með sér brúna yfir Múlakvísl og er
hringvegurinn því rofinn. Um tíma
var óttast að gos væri hafið í Kötlu
og er jafnvel talið að um lítilsháttar
kvikuinnskot hafi verið að ræða og
því hægt að tala um smágos.
Samkvæmt jarðeðlisfræðingnum
Magnúsi Tuma Guðmundssyni er
mjög erfitt að sannreyna hvort um
gos hafi verið að ræða en til að fá úr
því skorið þyrfti í raun að bora í gegn-
um ísinn á jöklinum. „Það yrði mjög
erfitt að sannreyna það.“
Að hans mati er mikilvægast að fá
samgöngur í samt horf, en nú þyk-
ir víst að þetta rumsk í Kötlu sé yfir-
staðið.
„Erum bara botnlangi“
Elías er búinn að vera á ferðinni síð-
an hlaupið átti sér stað en auk þess
að reka Hótel Vík er hann einnig
með verslun og veitingahús á sín-
um snærum. Hann segir að hlaup-
ið hafi sett stórt strik í reikninginn
og að áhrif hlaupsins væru nú þegar
merkjanleg.
„Það er búið að vera talsvert um
afbókanir nú þegar. Þetta er mjög
slæmt fyrir okkur hérna á Suðurlandi
og ég bara trúi ekki að það eigi að
taka tvær til þrjár vikur að opna veg-
inn á ný. Það er of langur tími og ég
tala ekki um því að núna erum við að
detta í háannatíma þegar við eigum
von á sem flestum ferðamönnum.
Nú erum við bara botnlangi við suð-
urströndina og það verður að laga
það sem fyrst.“
Þarf að byggja hærra
Bóndi úr Vestur-Skaftafellssýslu sem
vildi ekki láta nafns síns getið hafði
samband við DV. Hann sagði að það
væri vitað meðal almennings á svæð-
inu að hlaupið gæti í Múlakvísl og að
þá væri brúin í hættu. Hann sagði að
ef brúin hefði verið
hækkuð um tvo
til þrjá metra hefði hún sennilega
haldið.
„Þetta var bara grínhlaup. Það var
enginn kraftur í þessu. Eina ástæðan
fyrir því að brúin fór er að hún var
byggð of lágt. Hún hefði haldið, hefði
hún verið hærri.“
Verður unnið dag og nótt
DV hafði samband við Ögmund Jón-
asson innanríkisráðherra sem sagði
að unnið yrði dag og nótt til að koma
upp brú yfir Múlakvísl til bráða-
birgða.
„Ég fór til Víkur í gær og átti fund
með fulltrúum Almannavarna og
Vegagerðarinnar. Það sem er á okk-
ar borði núna, eftir að ljóst er að allt
virðist vera með kyrrum kjörum í
jöklinum, er að koma samgöngun-
um í samt horf. Það verður unnið
dag og nótt að því að opna veginn á
nýjan leik.“
Ögmundur sagðist ekki geta sagt
með vissu hvenær bráðabirgðabrú-
in yrði komin í gagnið. Hreinn Har-
aldsson vegamálastjóri sagði í við-
tali á laugardag að slík framkvæmd
gæti tekið tvær til þrjár vikur en flest-
ir eru sammála um að það sé alltof
langur tími – þjóðvegurinn geti ekki
verið rofinn svo lengi á háannatíma
í ferðaþjónustunni. Samtök ferða-
þjónustunnar sendu frá sér fréttatil-
kynningu í gær þar sem þau furðuðu
sig á ummælum Hreins.
„Samtök ferðaþjónustunnar lýsa
furðu sinni yfir viðtali við vegamála-
stjóra í gær þar sem hann sagði að
það myndi væntanlega taka 2 til 3
vikur að koma á umferð yfir Múla-
kvísl eftir að brúna tók af í jökul-
hlaupi. Stjórnendur fyrirtækja í
greininni trúa ekki að stjórnvöldum
sé alvara. Það er skýlaus krafa ferða-
þjónustunnar að öllum tiltækum
ráðum verði beitt til að opna leið yfir
Múlakvísl sem allra fyrst. Hver dagur
er mjög dýr þar sem ferðir um hring-
veginn er ein helsta söluvara ferða-
þjónustunnar.“
Í tilkynningunni er skorað á Ög-
mund Jónasson að beita sér af öllu
afli, þar sem um algert neyðarástand
sé að ræða. Ögmundur virðist vera
sömu skoðunar en hann sagði í við-
tali við DV að brúin yfir Múlakvísl
væri algjört forgangsmál.
„Ég get ekki sagt það með vissu en
ég hef heyrt talað um tvær vikur eða
svo. En ég legg áherslu á að við mun-
um vinna eins hratt og nokkur kostur
gefst og það verður unnið hverja ein-
ustu stund uns umferð kemst aftur á
yfir Múlakvíslina,“ sagði Ögmundur
að lokum.
„Alveg ótækt“
DV hafði samband við Ernu Hauks-
dóttur, framkvæmdastjóra Sam-
taka ferðaþjónustunnar. Hún sagði
að ferðaþjónustan gæti ekki unað
við vegrofið enda sé hringvegurinn
helsta söluvara ferðamannaiðnaðar-
ins á Íslandi.
„Það er alveg ótækt að vegurinn
verði rofinn í tvær til þrjár vikur. Við
tökum það bara ekki í mál. Það eru
skilaboðin sem við höfum komið til
stjórnvalda. Það verður að leita allra
mögulegra leiða til að opna veginn á
nýjan leik.“
Flestir rólegir
Margir brostu sennilega út í annað
þegar heyrðist af sóknarprestinum í
Vík í Mýrdal, Haraldi Kristjánssyni,
sem fór með þyrlu frá Vík til Kirkju-
bæjarklausturs en þar þurfti hann að
sjá um jarðarför. Haraldur segir að
þrátt fyrir að hlaupið hafi verið mikið
áfall þá virðist bæjarbúar vera hinir
rólegustu.
„Það má kannski segja að fólkið
sé farið að kannast við það að vera
undir miklu álagi. Þetta hlaup er
auðvitað mjög slæmt og stórt högg
fyrir ferðamannaiðnaðinn. Hér í Vík
höfum við þurft að þola ýmislegt, til
að mynda tvö eldgos með skömmu
millibili. En ég held að við komumst
yfir þetta, mikilvægast er að fá sam-
göngurnar aftur í lag og vonandi
verður það sem fyrst.“
Hræddari við Kötlugos
Haraldur segir að íbúar á Vík hafi
ekki verið óvenjulega óttaslegnir,
enda aðeins um lítið hlaup að ræða.
„Ég held að við yrðum þá hrædd-
ari við Kötlugos. Sú hætta er auðvitað
alltaf fyrir hendi og það vita allir sem
búa hérna við suðurströndina. En ég
held að fólk sé ekkert að stressa sig
of mikið á því heldur. Það eru til við-
bragðsáætlanir um hvað á að gera og
þær höfum við æft margoft. Þannig
að þar vitum við hvað við erum að
gera, eða við höldum það að minnsta
kosti. Það er skárra en ekkert.“
2 | Fréttir
11. júlí 2011 Mánudagur
Fréttir | 3
Mánudagur 11. júlí 2011
Arnþrúður Karlsdóttir neitar út-
varpskonunni Önnu Kristine Magn-
úsdóttur um að fá afrit af útvarps-
þáttunum sem hún gerði sem
dagskrárgerðarmaður á Útvarpi
Sögu. Anna Kristine á ótvíræðan höf-
undarrétt á þáttunum og hefur hún
beðið um aðstoð Blaðamannafélags
Íslands við að fá afrit af þáttunum
afhent frá Útvarpi Sögu. Eiginkona
Ólafs Þórðarsonar tónlistarmanns,
sem varð fyrir hrottalegri árás sonar
síns fyrir tæpum átta mánuðum, hef-
ur beðið um að fá þátt þar sem mað-
ur hennar var í viðtali afhentan en
ekki fengið. Anna Kristine segist allt-
af hafa fengið eintak af öllum sínum
útvarpsþáttum fyrir sig og viðmæl-
endur sína, nema á Útvarpi Sögu.
Höfundarrétturinn óumdeildur
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélagsins, staðfestir í samtali
við DV að Anna Kristine hafi leitað
til félagsins í tilraunum sínum til að
fá þættina afhenta. Hann segist hafa
reynt að hafa milligöngu um það en
að það hafi ekki tekist. „Þetta hefur
ekki skilað niðurstöðu ennþá. Það
er dálítið um liðið en ég þarf að taka
þetta mál upp aftur,“ segir hann að-
spurður hvernig málið standi í dag.
Hann tekur undir með Önnu varð-
andi höfundarréttinn á þáttunum.
„Að mínu viti er það ekki spurning,“
segir hann aðspurður hvort Anna
Kristine eigi ekki ótvíræðan höfund-
arrétt á þáttunum.
Konu Ólafs langar að eiga afrit
af viðtalinu
„Blaðamannafélagið hefur reynt að
tala við hana,“ segir Anna Kristine
aðspurð hvernig málið standi í dag.
„Viðmælendur hafa alltaf fengið af-
rit af viðtalinu við sig sjálfa og ég líka.
Kona Ólafs Þórðarsonar heyrði aldrei
viðtalið sem ég átti við hann um jól-
in 2009 og langar mikið til að eiga
þetta. Þar er mikið um hann og hans
barnæsku,“ segir hún. „Sameiginleg
vinkona hennar og Arnþrúðar hefur
beðið hana um að fá afhentan geisla-
diskinn en hún neitar því.“ Í viðtalinu
fór Ólafur yfir ævi sína og ræddi um
fólkið í kringum sig. Ræddi hann
meðal annars um son sinn, sem
seinna réðst á hann með alvar-
legum afleiðingum.
Starfaði fyrir Arnþrúði í tíu
mánuði
Arnþrúður sagði Önnu Kristine
upp störfum óvænt 13. september
í fyrra en Anna stjórnaði útvarps-
þættinum Milli mjalta og messu á
sunnudagsmorgnum. Arnþrúður
tilkynnti Önnu með tölvupósti að
hún þyrfti að afboða viðmælendur
því þátturinn yrði ekki oftar á dag-
skrá. Í tölvupóstinum sagði með-
al annars: „Menn vilja sjá harðari
fréttatengda umfjöllun á þessum
tíma eins og Bylgjan gerir og ég hef
Anna mín verið að tala þínu máli
en varð alveg undir í þessu þ.e.a.s.
á þessum útsendingartíma.“ Síðan
þá hafa deilurnar um útvarpsþætt-
ina staðið og sér ekki enn fyrir end-
ann á þeim.
Kona Ólafs fær
ekki afrit af viðtali
Heldur þáttunum
Arnþrúður Karlsdóttir vill ekki
afhenda neinum þættina.
n Anna Kristine Magnúsdóttir stendur í deilum við Útvarp Sögu
vegna eigin útvarpsþátta n Hefur ekki fengið afrit af þáttunum
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Kona Ólafs
Þórðarsonar heyrði
aldrei viðtalið sem ég átti
við hann um jólin 2009
og langar mikið til að
eiga þetta.
„Það verður unn-
ið hverja einustu
stund uns umferð kemst
aftur á yfir Múlakvíslina.
Starfsmönnum
bannað að fara
á netið
Starfsmönnum á Útvarpi Sögu er bannað
að skoða netmiðla og hlusta á útvarpið
á vinnutíma. Þessar reglur voru kynntar
starfsmönnum á miðvikudag, sama
dag og DV fjallaði um starfsmannamál
útvarpsstöðvarinnar. Ekki hefur náðst
í Arnþrúði Karlsdóttur, útvarpsstjóra á
Útvarpi Sögu, vegna málsins. Sam-
kvæmt heimildum DV voru starfsmenn
stöðvarinnar, sem eru rúmlega 20 talsins,
boðaðir á fund með Svanhildi Ásgeirs-
dóttur, markaðsstjóra stöðvarinnar, þar
sem þessi nýbreytni var tilkynnt. Arn-
þrúður sat sjálf ekki fundinn.
Í DV á miðvikudag, sama dag og starfs-
mannafundurinn á útvarpsstöðinni var
haldinn, var fjallað um uppsögn Hauks
Holm, fréttastjóra stöðvarinnar, og
Sigurðar Þ. Ragnarssonar, veðurfræðings
og starfsmanns fréttastofunnar. Þá var
farið yfir sérstæðar aðferðir Arnþrúðar
við að segja upp starfsfólki sínu en hún
hefur ýmist sent því SMS-skilaboð eða
tölvupóst með uppsögn. Þá voru einnig
birt ummæli sem Arnþrúður lét falla í
tölvupósti til lögmanns síns þar sem hún
kallaði brottrekið starfsfólk sitt rusl.
Aldrei verið vandamál fyrr en núna Anna Kristine segist alltaf
hafa fengið útvarpsþætti sína afhenta en hún var um árabil með þátt
sinn Milli mjalta og messu í Ríkisútvarpinu. Mynd RAKEl ÓSK SiguRðARdÓttiR
M Ý R
d A
l S
S A
n
d
u
R
Vík
Hvolsvöllur
1
Katla
Mýrdalsjökull
Eyjafjallajökull
Skógar
Þórsmörk
Helstu leiðir jökulhlaupa úr Kötlu
dV gRAFÍK JÓn ingi
1
Séð yfir Múlakvísl Brúin er farin og hringvegurinn rofinn. Ljósmynd IngóLfur júLíusson
n Hringvegurinn rofnaði þegar jökulhlaup tók með sér brúna yfir Múlakvísl n Mikið áfall fyrir ferðamanna-iðnaðinn n Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að unnið verði dag og nótt við að smíða nýja brú
„Grafalvarlegt ástand“
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Sótsvartur jökull Eldgos undangenginna ára hafa sett svip sinn á jökulinn. Ljósmynd LandheLgIsgæsLan
Sig í jöklinum Á myndinni má sjá hvernig jökullinn hefur sigið. Ljósmynd LandheLgIsgæsLan
1 2 3
Brúin yfir Múlakvísl:
Líklega tilbúin á
undan áætlun
Á fimmtudagsmorgun voru öll okin
fyrir bráðabrigðabrú yfir Múlakvísl
komin og var í kjölfarið lokið við að
leggja stálbita á þau. Brúin verður
156 metra löng, en búið er að leggja
um 50 metra af trégólfi brúarinnar
og stefnt var að því að allt gólfið yrði
komið upp í lok dags á fimmtudag.
Þá hófst einnig vinna við að setja
upp vegrið á brúna og að leggja slit-
gólf ofan á trégólfið. Jafnframt var
unnið að stífingum og festingum á
brúnni.
Stefnt er að því að hleypa vatninu
undir nýju brúna aðfaranótt laugar-
dags. Þar sem mikil dægursveifla er
í vatnsmagninu er hægast um vik að
hleypa vatninu undir þegar það er
minnst undir morgun.
Unnið er af krafti við vegtengingu
brúarinnar að vestanverðu og koma
þar upp garði með grjótvörn við brú-
arendann.
Þá er verið að ýta upp efni úr ánni
að austanverðu, efni sem fljótið ber
með sér, en það mun nýtast í varnar-
garðana og vegagerðina. Byggður
verður varnargarður að austanverðu
til að verja vegtenginguna við brúna
þar en ekki þarf að lengja langa
varnargarðinn að austan fyrr en í
kjölfarið á því.
Miðað við þennan framgang má
búast við að hægt verði að hleypa
umferð á bráðbirgðabrúna um
miðja næstu viku eins og áætlað var.
Fljótið ræður þó miklu um hvernig
gengur að koma upp varnargarði að
austanverðu og tengja brúna þeim
megin.
Á Fjallabaksvegi nyrðri er búið að
fjölga mjög umferðarmerkjum en alls
verða sett upp um 70 skilti. Flest eru
aðvörun um beygjur og um leiðbein-
andi hraða í beygjum en nokkuð hef-
ur verið um að ökumenn aki of hratt
í beygjum. Einnig hafa verið sett upp
hraðamerki en hámarkshraði er 60
km/klst. Leiðbeinandi hraði við vöð
er 5 km/klst. Sama verður gert í dag
á Dómadalsleið og verður verkinu
lokið í síðasta lagi á morgun.
Brúarvinnuflokkar Vegagerð-
arinnar gefa því ekkert eftir þessa
dagana frekar en aðrir starfsmenn
Vegagerðarinnar sem vinna hörð-
um höndum að því að koma upp
bráðabirgðabrúnni yfir Múlakvísl og
tengja Hringveginn við hana.
Löggan keypti
iPad fyrir milljón
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur keypt ellefu iPad-spjaldtölv-
ur það sem af er ári en þeim var út-
hlutað til þeirra lögreglumanna sem
sjá um Facebook-síðu lögreglunnar.
Ódýrasta gerð af Ipad kostar 85.000
krónur og kosta tölvurnar því emb-
ættið tæpa eina milljón króna. Rekst-
ur lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu hefur verið erfiður undanfarin ár
og embættið hefur þurft að grípa til
margvíslegra aðgerða til að láta enda
ná saman. Sem dæmi má nefna var
lögreglumönnum fækkað um 60 á
árunum 2009 til 2010.
Tilraunaverkefni
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
segir spjaldtölvurnar nýtast vel til að
koma upplýsingum hratt og örugg-
lega til almennings. Því sé þess-
um fjármunum vel varið. Þær séu
eign embættisins og ekki ætlaðar til
einkanota. „Þetta er tengt því að lög-
reglan er að sinna þessu verkefni á
Face book og þeir nota iPad til þess.
Þetta er ákveðin tilraun af okkar hálfu
og til dæmis geta lögreglumenn-
irnir verið með þessi tæki í bílunum
þegar þeir eru úti að sinna eftirlits-
störfum og sett inn upplýsingar. Til
dæmis ef að það er lokuð einhver
gata vegna umferðarslyss eða eitt-
hvað slíkt.“ Aðspurður hvort það sé
á döfunni að kaupa fleiri iPad-a og
hafa þá í öllum lögreglubílum segir
hann lögregluna ekki getað svarað
fyrir það. „Það er ríkislögreglustjóri
sem sér um lögreglubílana og sér um
að koma tækjum fyrir í þá. En það er
held ég á stefnuskránni að sjá til þess
að það séu tölvur af þessari tegund
eða sambærilegri í lögreglubílunum
til þess að sinna meðal annars þess-
um verkefnum lögreglu.“
Fjármunum vel varið
Aðspurður hvort honum finnist ekki
fullmikið að kaupa ellefu spjald-
tölvur í þetta Facebook-verkefni í
ljósi þess að lögreglan hefur þurft
að kljást við mikinn niðurskurð á
undanförnum árum svarar hann
því neitandi. „Ekki til að sinna þessu
verkefni, nei. Það eru yfir ellefu þús-
und áhangendur hjá lögreglunni á
Facebook og við náum þarna mjög
góðum tengslum við fólk. Við getum
komið upplýsingum mjög hratt og
örugglega til almennings í gegnum
þetta. Þessi tilraun hefur gefist vel
og hefur ekki kostað okkur annað en
kaup á þessum tækjum. Við teljum
því að fjármunum embættisins sé
vel varið í því að miðla upplýsingum
hratt og örugglega til almennings.
Það er eitt af lykilatriðunum í okkar
rekstri að almenningur fái góðan og
greiðan aðgang að lögreglunni. Lög-
reglan á að vera sýnileg og hún á að
vera aðgengileg. Þetta er liður í því.
Þetta er því algjörlega í samræmi við
stefnu embættisins.“
„Lögreglan á að
vera sýnileg og
hún á að vera aðgengileg.
Þetta er liður í því. Þetta
er því algjörlega í sam-
ræmi við stefnu embætt-
isins.
n Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu keypti ellefu iPad-spjald-
tölvur á árinu n Kostar embættið tæpa milljón króna
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
IPad IPad er nýjasta tækniundrið frá Apple.
Lögreglan á tækniöld Stefán Eiríksson,lög-
reglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
segir iPad-spjaldtölvurnar nýtast vel til að koma
upplýsingum hratt og örugglega til almennings