Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 56
Sérstakur gæslu- maður! Birgitta minnist Sævars n Andlát Sævars Ciesielski hefur snert við mörgum. Alþingiskonan Birgitta Jónsdóttir tjáði sig um fráfall hans á Facebook-síðu sinni og finnst sorglegt að mál hans hafi ekki verið tekið upp að nýju. „Blessuð sé minn- ing hans. Ég þekkti Sævar aðeins – kynntist honum sem unglingur þegar mamma stóð fyrir tónleikum með reglulegu millibili á Litla- Hrauni. Hann var þá í hljómsveitinni Rimlarokk:) Sorglegt að það hafi ekki tekist að fá málið hans tekið upp að nýju,“ skrifaði Birgitta. Eva Hauks- dóttir skrifar athugasemd við færslu Birgittu og bendir henni á undir- skriftalista á netinu þar sem skorað er á yfirvöld um endurupp- töku málsins. Birgitta lét ekki segja sér það tvisvar og skrifaði á listann nokkrum mínútum síðar. Ánægður með fiskisúpuna n Hagfræðingurinn Ólafur Arnarson hefur verið á ferð og flugi um landið að undanförnu og eytt góðum tíma á Vestfjörðum. Ólafur skrifar pistil um ferðina á bloggsíðu sína, en meðal þess sem stóð upp úr er dýrindis fiskisúpa sem hann fékk á Tjöruhús- inu á Ísafirði. „Fiskisúpan var engu lík. Ég hef fengið hina frægu „Soup de Poisson“ á frönsku Rívíerunni en sú hefur ekkert í fiskisúpuna hans Magga Hauks á Tjöruhúsinu. Við Íslendingar þurfum svo sannarlega ekki að þvælast til útlanda til að fá heims- klassamat,“ segir Ólafur. Henry hrekktur n Henry Birgir Gunnarsson, íþrótta- fréttamaður á Fréttablaðinu, lenti illa í klóm félaga sinna á fimmtudag. Þeir settu smáauglýsingu í Fréttablaðið þar sem búslóð hans var auglýst til sölu fyrir slikk. Meðal þess sem boðið var til sölu var 50 tommu Bang & Olufsen sjónvarp á 35 þúsund krónur. Það þykir afar lítið fyrir slíkt tæki. Henry sagði í samtali við DV.is á fimmtudag að varla liðu meira en tvær mínútur á milli símtala. Slíkur væri áhuginn. „Þetta er dagur eitt í steggjun,“ sagði Henry sem gengur í það heilaga á næstunni. „Foreldrar yngri flokkanna í fót- boltanum sjá um gæsluna á vell- inum og þar sem ég er með drengi í yngri flokkum tek ég mínar vakt- ir í gæslunni eins og aðrir,“ seg- ir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, spurður út í mynd sem tekin var á leik ÍA og Leiknis á Skag- anum í vikunni. Þar sést Ólafur Þór ábyrgðarfullur á svip við gæslustörf í gulu vesti sem er ólíkt þeirri mynd sem landsmenn hafa af Ólafi Þór sem sérstökum saksóknara. Ólafur Þór hefur unnið í ýms- um erfiðum málum á vegum embættisins en aðspurður hvort hann hafi lent í hasar eða þurft að beita sér sem gæslumaður segir Ólafur að leikurinn hafi farið vel fram að öllu leyti. „Eins og leikirn- ir eru venjulega. Þetta er allt saman mjög rútínerað. Foreldrar og krakk- ar eru settir á ákveðna pósta og standa þar meðan á leik stendur.“ Hann segist ekki geta logið því að blaðamanni að hann sé mikill fótboltaáhugamaður. „Ég hef nú takmarkað fylgst með fótbolta og enn minna eftir að ég hóf það starf sem ég gegni í dag. Nú er ég hins vegar í sumarfríi og þá gefst stund milli stríða til að taka þessar vakt- ir. Sem ég geri eins og aðrir foreldr- ar sem eiga börn í þessum flokki. Þetta er þó ekkert hálaunastarf,“ segir hann hlæjandi. Þrátt fyrir að Ólafur Þór hafi ekki getað fylgst mikið með fótboltan- um vegna anna segist hann vera harður ÍA-maður. „Ég bý á Akranesi og þá er nánast sjálfgefið að vera ÍA-maður,“ segir hann að lokum. Þess má geta að Skagamenn unnu leikinn 2–0. Ólafur Þór Hauksson fylgist ekki mikið með fótbolta vegna anna í starfi: Saksóknari í gæslunni Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelgarBlaÐ 15.–17. Júlí 2011 80. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr. Sérstakur saksóknari í gæslunni Ólafur Þór stóð vaktina sem gæslumaður á leik ÍA og Leiknis í vikunni. Mynd ÓlAfur ÞÓr HAlldÓrSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.