Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 26
26 | Umræða 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
endalok sparisjóðanna
Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar
Bókstaflega
Hallur undir Engilbert
n Athafnaðurinn
Engilbert Runólfsson
hefur fengist við eitt
og annað í gegnum
tíðina og ekki farið
troðnar slóðir. Hann
mun nú vera með
stórvirki á teikni-
borðinu. Sérstaka
athygli vekur hver
er nýr félagi hans
og ráðgjafi. Þar er
á ferðinni sérfræðingurinn Hallur
Magnússon sem veit öðrum meira
um fasteignamál. Hallur hefur verið
áberandi í Framsóknarflokknum og
starfaði lengi við ráðgjöf á sviði fast-
eignaviðskipta. Hermt er að sam-
starf þeirra Engilberts sé líklegt til
að vekja gríðarlega athygli.
Lýðskrum Ömma
n Þráinn Bertelsson alþingismaður
er ófeiminn við að skamma þá sem
honum finnst verða sér til minnk-
unar. Nú síðast tók hann Ögmund
Jónasson innanríkisráðherra á bein-
ið fyrir að vilja ekki flytja flugvöllinn
í Reykjavík og ganga þannig gegn
stórum hluta VG. Þráinn setti inn
athugasemd á DV.is þar sem ekkert
var gefið eftir. „Ótrúlegt lýðskrum.
Við sama tækifæri væri upplagt að
þjóðin kysi um hvort ekki sé best að
flytja innanríkisráðuneytið til Tré-
kyllisvíkur, Húsdýragarðinn til Vest-
mannaeyja, Alþingishúsið til Akur-
eyrar og Ögmund til Bessastaða.“
Gutti til í slaginn
n Uppáhaldsráðherra Jóhönnu Sig-
urðardóttur, Guðbjartur Hannesson,
er sagður ganga með þann draum í
maganum að verða sjálfur forsætis-
ráðherra. Gutti, eins og forsætis-
ráðherra kallar hann, mun þó aldrei
fara gegn húsmóður sinni.
Hvíslað er um það í
Samfylkingunni
að hann hafi látið það
berast út að hann sé
til í að taka slaginn ef
Jóhanna ákveður að
víkja og hart verði lagt
að honum sjálfum að
gefa kost á sér.
Sýslumaður í
rennibraut
n Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, er vanafastur
maður. Þessi þekktasti aðdáandi
Rolling Stones á Íslandi hefur
þann sið að fara í sund á morgn-
ana. Hermt er að hann endi jafnan
sundferðina á að fara í rennibraut-
ina og taka eina salibunu. Hermt er
að aðrir sundlaugargestir gæti þess
þá að verða ekki í vegi sýslumanns-
ins. Sú saga gengur að á dögunum
hafi ekki betur viljað til en svo að
eldri borgari var að lóna við enda
rennibrautarinnar þegar sýsli kom
á ógnarhraða. Hlaust af ákeyrsla og
féll sá eldri um koll. Ekki mun þó
hafa hlotist af mikill skaði ef frá er
talið áfallið.
Sandkorn
B
laðamaðurinn Agnes Braga-
dóttir er einn sá frjóasti á Ís-
landi. Agnes hefur marga fjör-
una sopið í þjónustu Moggans.
Hún hefur gjarnan gert út á sannfær-
ingu sína í fréttum þótt á stundum
hafi staðreyndir legið til grundvallar.
Þ
essa dagana er Agnes sann-
færð um að Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra vilji
alls ekki fá forsætisráðherra
Kína í heim-
sókn.
Mun Kín-
verjinn, ef
marka má
Mogg-
ann,
nánast
hafa far-
ið nið-
ur á fjóra
fætur til að
grátbiðja um að
fá að koma í
heimsókn
á þessa
eyju við
ysta
haf.
En
Jóhanna eyjadrottning mun vera
því andsnúin. Mogginn hefur lýst
því sem svo að Jóhanna hafi fundið
ótal aðra hnappa til að hneppa þeg-
ar Kínamaðurinn vildi koma í heim-
sókn. Þetta er, eins og segir í einum af
fjölmörgum leiðurum Moggans um
málið, „dæmalaust klúðurmál“.
S
jálf hefur Jóhanna sagt að mál-
ið eigi sér enga stoð. Sendiráð
Kína hefur tekið í sama streng.
En þetta er auðvitað sam-
ræmdur lygavaðall eins og Mogginn
hefur bent á í einum raðleiðaranum:
„Vondur málstaður versnar bara ef
ósannindi eru meginvopnin í vörn-
inni“. Svarthöfði er algjörlega sam-
mála leiðarahöfundi Moggans. Þetta
er klúður sem nær alla leið til Kína og
aftur til baka. Mogginn hefur lært það
af Göbbels heitnum að ef eitthvað er
endurtekið nógu oft verður það satt
í huga þeirra sem á hlýða. Og Svart-
höfði er einmitt sú manngerð
sem hlustar og efast
í fyrstu en trúir og
kyngir þegar nógu
oft er tuggið ofan í
hann.
N
ú er svo komið að Svarthöfði
er genginn í náhirð Sjálf-
stæðisflokksins. Það er bein-
línis skelfilegt að Jóhanna
skuli ekki treysta sér til að taka á
móti Kínamanninum og sendi-
nefnd hans sem tel-
ur hundruð
manna sem
allir hafa
það mark-
mið að efna
til viðskipta
við eyja-
skeggja. það
er ekki von að
landið rísi nema
í eldgosum þeg-
ar svona er á
málum haldið.
Agnes og Dav-
íð eru á vakt-
inni á með-
an Jóhanna
sefur af sér
tækifærin
og hrek-
ur frá sér
góðvilj-
uð stór-
veldi.
Mikil er
skömm
hennar.
M
eð kaupum Íslandsbanka á
sparisjóðnum Byr hafa þrír
stærstu sparisjóðir landsins
runnið inn í viðskiptabank-
ana þrjá á árunum 2010 og 2011. Inn-
og útlán Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis runnu inn í Arion banka í
fyrra og er sjóðurinn í slitameðferð;
Landsbankinn yfirtók starfsemi Spari-
sjóðs Keflavíkur, sem samsettur var
úr fjórum sparisjóðum, í mars, og nú
hefur Íslandsbanki keypt sparisjóðinn
Byr fyrir fjárhæð sem fæst ekki upp-
gefin. Ekki má gleyma því að Byr varð
til við samruna fjögurra sparisjóða á
árunum 2006 og 2007: Sparisjóða Vél-
stjóra, Hafnarfjarðar, Norðlendinga og
Kópavogs. Því má segja að fjórir minni
sparisjóðir undir hatti Byrs séu að
renna inn í Íslandsbanka.
Þeir sparisjóðir sem eftir standa
sem sjálfstæðar einingar eru ein-
ungis tíu talsins og allir fremur smá-
ir. Bankasýsla ríkisins á helming eða
meira í fimm þeirra og hefur lítinn
áhuga á að sparisjóðirnir starfi áfram
í óbreyttri mynd sökum þess hversu
mikið óhagræði er innan sparisjóða-
kerfisins, ef marka má viðtal við Elínu
Jónsdóttur, forstjóra Bankasýslu ríkis-
ins, í Viðskiptablaðinu í vikunni.
„Við hefðum gjarna viljað sjá spari-
sjóðina sameinaða í einn, einnig þeg-
ar SpKef var enn inni í myndinni,“
segir Elín í viðtalinu en með yfirtöku
Sparisjóðsins í Keflavík minnkaði
efnahagsreikningur sparisjóðakerfis-
ins um helming – fór úr 120 milljörð-
um króna niður í 60.
Þessi sameiningarleið er önnur
þeirra leiða sem Bankasýsla ríkisins
vill helst fara varðandi framtíð spari-
sjóðakerfisins. Hin er sú, líkt og gerst
hefur í tilfelli þriggja stærstu spari-
sjóðanna, að sparisjóðirnir tíu sem
eftir lifa renni inn í viðskiptabankana.
Þessi lausn væri því í reynd sú sama og
í tilviki Sparisjóðs Reykjavíkur, Kefla-
víkur og nú síðast Byrs. Þetta myndi
þýða að til yrðu þrír stórir viðskipta-
bankar í landinu en engir sparisjóðir.
Starfshópur um framtíð spari-
sjóðakerfisins, sem unnið hefur að því
að finna leiðir til að hagræða innan
þessa kerfis, hefur hins vegar valið þá
leið að stefna að því að búnir verði til
þrír til fimm landshlutabundnir spari-
sjóðir. Hvaða leið sem farin verður á
endanum í einstökum tilfellum þýða
þessar breytingar á eignarhaldi spari-
sjóðanna að sparisjóðakerfið eins og
það hefur verið til um árabil er liðið
undir lok.
Inn í þessar hræringar spilar að
upplýsingafyrirtækið Teris, sem unnið
hefur að upplýsingaþjónustu fyrir alla
sparisjóði landsins, er að tæplega 40
prósentum í eigu Byrs en færist vænt-
anlega yfir til Íslandsbanka með spari-
sjóðnum. Átján starfsmönnum var
sagt upp hjá Teris við yfirtöku Lands-
bankans á Sparisjóði Keflavíkur í mars
og er ekki ólíklegt að fækka þurfi hjá
fyrirtækinu vegna sameiningar Ís-
landsbanka og Byrs. Þetta veikir Teris
enn frekar en rúmlega 50 starfsmönn-
um hefur verið sagt upp hjá fyrirtæk-
inu frá bankahruninu vegna breytinga
á eignarhaldi sparisjóða í landinu. Þá
sá Byr um alla innlenda greiðslumiðl-
un fyrir sparisjóðina í landinu eftir að
Sparisjóðabankinn var tekinn til slita-
meðferðar árið 2009. Þessi greiðslu-
miðlun færist því væntanlega yfir til
Íslandsbanka með kaupunum á Byr.
Sparisjóðakerfið, og ýmislegt sem því
tengist, verður því að stóru leyti komið
í eigu og umsjá Íslandsbanka og hinna
viðskiptabankanna.
Kínamanni úthýst
Svarthöfði
„Svakalega æstur í að fá
að hitta okkur.“
Leikstjórinn Gaukur
Úlfarsson um Michael
Moore sem valdi á
dögunum mynd hans
Gnarr, sem fjallar um
borgarstjóra Reykjavíkur, á
kvikmyndahátíðina Travers
City Film Festival. -DV.
„Mér hefur alltaf þótt
Anna Mjöll líða fyrir að
vera ljóshærð.“
-Bubbi Morthens um
söngkonuna Önnu Mjöll
Ólafsdóttur. Hann hefur
fengið hana til liðs við sig
á jólaplötu sem hann
hyggst gefa út fyrir næstu jól.
-DV.
„Ég fæ að heyra hljóð-
dæmi af hræðilegri teknó-
tónlist og hræðilegu rappi
alla nóttina.“
-Íbúi við Skólabrú sem segir lokun
Austurstrætis fyrir vélknúnum ökutækjum
hafa fært alla umferð í litlu götuna sem
hann býr við. Hann segist ekki lengur geta
opnað þá glugga sem snúa út að götunni
vegna hávaða og mengunar. DV.
„Allt snýst þetta um að
geta treyst rafrænum
samskiptum.“
-Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytis-
stjóri í innanríkisráðuneytinu, um stýrihóp
sem settur hefur verið á laggirnar um
netöryggi. -Morgunblaðið.
E
itt sinn bjuggu bræður tveir,
bóndasynir, í plássi fyrir vest-
an eða austan. Þeir höfðu á
langri ævi haft þann háttinn á
að deila aldrei. Eldri bróðirinn hefði
gefið móður þeirra það loforð, þegar
sú gamla var í þann mund að hverfa
undir græna torfu, að hann myndi
alla tíð veita bróður sínum allt hið
besta í lífinu.
Líf þeirra bræðra hafði þokast
fram með þeim hætti, að eldri bróð-
irinn hafði komið þeim yngri á bestu
spena samfélagsins. Sá hinn yngri
þurfti aldrei að kvarta því eldri bróð-
irinn hafði efnt þann eið, sem hann
hafið gefið fársjúkri móður. Hann
hafði ávallt gefið bróður sínum bestu
bitana og meira að segja látið honum
eftir besta skikann á landareigninni.
En þegar kom að efri árum þeirra
bræðra gerðist það að einhver árans
slæmska hljóp í geðslag yngri bróð-
urins. Hann varð önugur og sá svarta
púka í hverju horni og hverjum hól.
Móðurbetrungurinn lét sér þó hvergi
bregða, hann sinnti bróður sínum af
kostgæfni og veitti honum enn sem
fyrr allt hið besta. En þar eð sálsýki
yngri mannsins ágerðist, fór svo að
fólmennska varð hans aðalsmerki.
Og nú hóf hann þann ljóta leik, að
finna að ýmsu sem eldri bróðirinn
hafði gert um dagana. Sá yngri lét
þess getið, í votta viðurvist, að ein-
hverju sinni hefði eldri bróðirinn
sussað á hann, nánast án tilefnis.
Hann sagðist muna eftir tilvikum í
æsku, þar sem eldri bróðirinn hefði
í tvígang haft rangt við í spilum; fyrst
í ólsen-ólsen og svo í hornafjarðar-
manna. Og hann sagðist muna það,
að eitt sinn hefði eldri bróðirinn far-
ið með fleipur þegar veðurfar hafði
borið á góma. Svo sagði hann að eitt
sinn hefði hann verið neyddur til
að fara um stofugólf með hálffullan
búkött af grænsápublöndu og skúr-
ingasófl. Þá hafði hann mátt þola
þá raun að horfa á bróður sinn þrífa
stofuna hátt og lágt.
Nú magnaði yngri bróðirinn upp
slíkar illdeilur, vegna alls þess sem
ranghugmyndir hans drógu fram í
dagsljósið, að hið hálfa hefði ver-
ið rúmlega nóg. Hann gleymdi öllu
því góða sem bróðirinn hafði gert en
leyfði sparðatíningi sínum að lita líf-
ið sterkum litum.
Grös þeirra bræðra visnuðu án
þess að uppskera kæmist heim í
hlað, skepnur þeirra drápust úr hor
og að þremur misserum liðnum sátu
þeir bræður sárir eftir; slippir og
snauðir.
Af reynslunni á lífi löngu
ég lært það hef og veit
að munur er á gleðigöngu
og gæfuríkri leit.
Skáldið skrifar
Kristján
Hreinsson
Bræðraböl „Hann varð önugur
og sá svarta púka
í hverju horni og hverjum
hól.