Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 42
42 | Lífsstíll 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
LungA á Seyðisfirði
Listahátíðin LungA fer fram á Seyðisfirði dagana 11.–17. júlí. Meðal þeirra
sem koma fram á hátíðinni eru President Bongo úr Gus Gus ásamt Högna
Egilssyni, Daníel Ágústi, Urði
Hákonardóttur (Earth) og Davíð
Þór Jónssyni og munu þau leika
sérútbúið prógramm fyrir LungA.
Ekkert aldurstakmark er á tón-
leikana og frítt er inn fyrir 50 ára
og eldri. Á LungA eru einnig margir
viðburðir opnir öllum án endurgjalds.
Öllum viðburðum LungA lýkur fyrir
eða á miðnætti en ýmsar uppákomur
eru í bænum í tengslum við hátíðina
en selt er inn á þær sér.
Bræðslan á Borgarfirði eystra
Tónlistarhátíðin Bræðslan
fer fram á Borgarfirði eystra í
sjöunda skipti dagana 22.–24.
júlí. Í gegnum tíðina hafa komið
fram á Bræðslunni tónlistar-
menn á borð við Emilíönu Torrini,
Damien Rice, Belle & Sebastian,
Megas og Senuþjófana, Lay
Low, KK og Ellen svo fáeinir
séu nefndir. Í ár koma fram á
hátíðinni írski óskarsverðlauna-
hafinn Glen Hansard, hinir marg-
rómuðu Hjálmar, hamingjuboltinn Jónas Sigurðsson ásamt hljómsveit sinni
Ritvélum framtíðarinnar, austfirsku gleðirokkararnir í Vax og trúbadorinn
geðþekki Svavar Knútur.
Fiskidagurinn mikli á Dalvík
Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldin árlega í Dalvíkurbyggð en
þar bjóða fiskverkendur og aðrir íbúar bæjarfélagsins landsmönnum upp
á dýrindis fiskrétti. Matseðillinn breytist ár frá ári en ávallt er boðið upp
á ákveðna vinsæla rétti. Þar ber hæst fiskborgarana sem grillaðir eru á
lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir á átta
metra leið. Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðarlagsins
gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum og görðum. Afar vönduð
og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina.
Danskir dagar í Stykkishólmi
Danskir dagar eru gott dæmi
um öflugt mannlíf og menningu
í Stykkishólmi en þeir fara fram
árlega og í ár verða þeir haldnir
dagana 12.–14. ágúst. Dagskráin
er fjöbreytt og ættu allir í fjöl-
skyldunni að finna eitthvað við
sitt hæfi. Endanleg dagskrá verður
kynnt innan skamms en meðal
þess sem gert er ráð fyrir að verði
á dagskrá eru fótboltamót, gönguferðir um Stykkishólm með leiðsögn,
brekkusöngur, flugeldasýning og skrúðganga.
Í túninu heima í Mosfellsbæ
Bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin árlega síðustu helgina í ágúst. Hátíðin
er fjölskylduhátíð sem stendur í þrjá daga. Fjöbreyttir menningarviðburðir
eru í boði, meðal annars tónleikar,
myndlistarsýningar, útimarkaðir
og íþróttaviðburðir. Hátíðin hefst á
föstudagskvöldi á miðbæjartorgi
Mosfellsbæjar en þaðan er farið í
karnivalskrúðgöngu í Ullarnesbrekkur
á milli Varmár og Köldukvíslar. Þar er
tendraður varðeldur og brekkusöngur
fer fram. Hápunktur hátíðarinnar er svo
á laugardeginum þegar tónleikar fara
fram á miðbæjartorginu.
Bæjar- og útihátíðir
um allt land í sumar
n Nóg í boði fyrir þá sem vilja ferðast um landið n Bæir landsins lifna við á skemmti-
legum útihátíðum n Tónleikar, listviðburðir, grillveislur og fleira um allt land
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er haldin árlega í Herjólfsdal um verslunar-
mannahelgina. Hátíðin er ein fjölmennasta útihátíð sem haldin er hér á
landi og mætir einvalalið tónlistarmanna yfirleitt þangað. Meðal þeirra sem
fram koma í ár eru Ari Eldjárn skemmtikraftur, Bjartmar og Bergrisarnir, Páll
Óskar Hjálmtýsson, Jón Jónsson, Fjallabræður og Ingó úr Veðurguðunum.
Ein með öllu á Akureyri
Ein með öllu verður haldin um verslunarmannahelgina á Akureyri. Hátíðin
í ár verður mjúk og elskuleg eins og undanfarin ár. Lögð verður áhersla á að
bæði bæjarbúar og gestir njóti lífsins og upplifi sanna Akureyrarstemningu.
Í ár hefst hátíðin á trúbadorakvöldi á fimmtudagskvöldinu. Á föstudeginum
verða óskalagatónleikar að vanda, á laugardeginum verða mömmur og
möffins í Lystigarðinum og endað verður á sparitónleikum á sunnudags-
kvöld. Dagskráin verður ævintýralega fjölbreytt og skemmtileg, flottar
hljómsveitir og fullt af skemmtiatriðum og kærleiksríku fólki.
Innipúkinn í Reykjavík
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tíunda skipti í miðborg Reykjavíkur
um verslunarmannahelgina. Innipúkinn teygir sig að þessu sinni yfir þrjá
daga og fer fram föstudags- til sunnudagskvölds. Hátíðin fer í ár fram í hinu
sögufræga húsnæði Iðnó. Jafnan er mikið um dýrðir á meðan að Innipúkinn
stendur yfir. Auk sjóðheitrar tónlistardagskrár á Iðnó verður ýmislegt
til gamans gert í miðborginni og gamlir kunningjar á borð við pop-quiz,
markað, veitingasölu og hinn margrómaða Cocktel-zeit kíkja í heimsókn.
Innipúkinn hefur farið víða síðan hátíðin var fyrst haldin árið 2002.
Edrú útivistarhátíð í Hvalfirði
Edrú útivistarhátíðin í Hvalfirði verður haldin um verslunarmannahelgina
en hátíðin er haldin á vegum SÁÁ og í samstarfi við aðra. Boðið verður
upp á hugleiðslur, jóga, 12 spora fundi, fimmrithmadans, spádóma, svett
og fyrirlestra um hamingju, gleði og gæsku auk þess sem farið verður í
fjallgöngur, hjólreiðar, sjósund, grasaferðir, fjöruferðir, morgunleikfimi og
víðavangshlaup. Það verður einnig skemmtidagskrá fyrir börnin en haldin
verður söngvakeppni fyrir krakka, farið í leiki, íþróttamót, listasmiðju,
spurningakeppni og knúskeppni. Þá mun Leikhús Lottu, Björgvin Franz og
félagar, KK, Vintage Caravan, Of Monsters and Man meðal annars koma
fram á kvöldvöku sem haldin verður við varðeld. Öll vímuefni eru bönnuð á
hátíðinni.
Unglingalandsmót
UMFÍ á Egilsstöðum
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmanna-
helgina. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð.
Allir á aldrinum 11–18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalands-
mótinu. Samhliða íþróttakeppninni verður fjölbreytt skemmtidagskrá í
boði fyrir alla fjölskylduna á daginn. Þar má nefna að skemmtidagskrá
verður í Tjarnargarðinum alla daga. Sprelligosa- og fjörkálfaklúbbar, leik-
tæki fyrir börn og unglinga og gönguferðir með leiðsögn alla daga fyrir þá
sem eldri eru. Þá verða fjölbreyttar kvöldvökur og síðan flugeldasýning á
sunnudagskvöldið eins og venja er.
Mýrarboltinn á Ísafirði
Mýrarboltamótið er haldið ár hvert á Ísafirði. Sex eru inni á í einu, en jafnan
eru liðin þó skipuð níu til fimmtán manns, því drullan þreytir menn fljótt.
Vinahópar taka sig saman og mynda lið, einstaklingar taka þátt með
skrapliðum svokölluðum. Á föstudeginum er skráningarkvöld, pepp-
skemmtun og ball, ókeypis fyrir þátttakendur. Skemmtistaðir eru opnir
á föstudeginum og laugardeginum á Ísafirði. Á sunnudeginum er matur
og dúndurball. Íþróttafélögin BÍ og KFÍ sjá um stóran hluta undirbúnings
keppninnar, en mótið er þó rekið og skipulagt af Mýrarboltafélagi Íslands,
félagasamtökum Ísfirðinga sem eru ekki í þessu vegna peninganna heldur
skemmtunarinnar og bjórsins eftir á. 18 ára aldurslágmark er fyrir þátttöku,
nema börnum er leyft að taka þátt í drulluteygjunni.
Verslunarmannahelgin