Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 39
Fókus | 39Helgarblað 15.–17. júlí 2011
Jóhanna Sigurðardóttir opnar miðstöð fræða og menningar:
Garðarshólmi ýtt úr vör
Garðarshólmi, miðstöð fræða og
menningar, verður ýtt formlega
úr vör á mánudag en Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra,
Timo Summa, sendiherra Evrópu
sambandsins, Anders Ljunggren,
sendiherra Svíþjóðar, Bergur Elí
as Ágústsson, sveitarstjóri Norður
þings og Kristen Hastrup, prófess
or við Kaupmannahafnarháskóla
opna miðstöðina.
Á sama tíma verður verða und
irritaðir samstarfssamningar á
milli Garðarshólms og Háskóla Ís
lands, Kaupmannahafnarháskóla
og Háskólans í Stokkhólmi.
Þema Garðarshólms verður
samlíf manns og náttúru. Áhersla
verður lögð á hvernig maður
inn mótar náttúruna og náttúran
manninn en Húsavík og Þingeyj
arsýsla veita fágæt tækifæri til að
fræðast um þetta samband. Starf
semin verður fjölþætt en kjarni
hennar verður sýning sem rek
ur sögu Íslendinga og Íslands frá
landnámi Garðars Svavarsson
ar til okkar daga. Að auki mun
Garðarshólmur vera aðstaða fyr
ir menningarviðburði, ráðstefn
ur, veitingaþjónustu, fundahöld,
kynnisferðir, rannsóknir og fleira.
Fyrsta fyrirlestraröð Garðars
hólms fer svo fram þriðjudaginn
19. júlí í húsi Garðarshólms við
Hafnarstétt. Fyrirlesarar í þessari
fyrstu fyrirlestraröð eru Guðrún
Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
Stofnunar Sæmundar fróða, Krist
en Hastrup, prófessor við Kaup
mannahafnarháskóla, Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri,
Stephan Barthel, Stockholm Re
silience Centre, Þröstur Eysteins
son, sviðsstjóri þjóðskóganna hjá
Skógrækt ríkisins, og Ari Trausti
Guðmundsson, rithöfundur og
vísindamaður.
Fyrirlestraraðir Garðarshólms
nefnast einu nafni Garðarsbrunn
ur og eru ætlaðar leikum sem
lærðum.
Hvað er að gerast?
n Hárið í Hörpu
Hópur valinkunns tónlistarfólks setti upp
söngleikinn Hárið í Hofi fyrir nokkru og nú er
sýningin komin í Hörpu. Miðasala fer fram
á harpa.is en á föstudag hefst sýningin
klukkan 19.00. Meðal leikenda eru Matti
Matt og Jóhannes Haukur.
n Quarashi á Nasa
Hljómsveitin Quarashi snéri aftur á Bestu
útihátíðinni um síðustu helgi og voru
viðtökurnar slíkar að ákveðið var að halda
tvenna aukatónleika á Nasa þessa helgi.
Húsið opnar klukkan 23.00 bæði föstudag
og laugardag. Miðaverð er 3.000 krónur.
n Endurspeglun í Listasal
Mosfellsbæjar
Klukkan 16.00 opnar Sigtryggur Berg
sýninguna Endurspeglun úr heila lista-
mannsins í rými listasalsins í Listasalnum
í Mosfellsbæ. Sýningin stendur til 5. ágúst
en þar sýnir Sigtryggur hluta úr dagbókum
sínum auk málverka í samtali við árstíðirnar.
n Frumsýningarteiti Emmsjé Gauta
Rapparinn Emmsjé Gauti og Illusion standa
fyrir frumsýningarteiti á Café Oliver.
Frumsýnt verður myndbandið við lagið
Hemmi Gunn sem er af nýútkominni plötu
rapparans. Húsið opnar klukkan 22.00 og er
aldurstakmark 20 ár.
n LungA á Seyðisfirði
Hápunktur listahátíðarinna LungA er á
Seyðisfirði á laugardag. Nánast samfleytt
tónleikadagskrá verður frá 16.00 á laugar-
deginum til 00.30. Á meðal listamanna sem
koma fram eru GusGus, Mammút, Berndsen,
Sin Fang, Reptile and Retard og Hanna Von
Bergen. Miðasala fer fram á midi.is.
n Gröndal í Gamla bænum
Söngkonan Ragnheiður Gröndal heldur
tónleika í Gamla bænum við Hótel Reynihlíð
í Laufási á laugardag. Ásamt Hauki Gröndal
á saxófón, Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar, Þor-
grími Jónssyni á bassa og Pétri Grétarssyni á
trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er
aðgangur opinn öllum meðan húsrúm leyfir
n Tónleikar á Gljúfrasteini
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Eva
Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari koma fram
á Gljúfrasteini á sunnudag. Á efnisskránni
eru klassísk verk fyrir píanó og flautu eftir
Bach, Messiaen og Boehm. Tónleikarnir
hefjast klukkan 16.00 og aðgangseyrir er
1000 krónur.
n Vaddý í Eden
Valgerður Ingólfsdóttir, Vaddý, heldur
sína áttundu málverkasýningu í Eden
Hveragerði, dagana 12. júlí til 9. ágúst, næst-
komandi. Málverkin á sýningunni eru fjöl-
breytt, landlagsmyndir, götulíf í Reykjavík
og á Eyrarbakka, hesta- og fuglamyndir svo
eitthvað sé nefnt.
15
júlí
Föstudagur
16
júlí
Laugardagur
17
júlí
Sunnudagur
Ég hef svona í gegnum tíðina ver
ið sá sem hefur mest verið að semja
heima. Við Friðrik gerðum mikið af
því að spila saman úti í skúr þar sem
hann var á trommunum og ég glamr
aði á gítarinn. Síðan lærði Friðrik
á gítarinn sjálfur og svona aðeins í
gegnum mig og fór þá að semja líka,“
en Jón segir þá bræður hafa verið á
sömu bylgju í tónlistinni til að byrja
með. „Hann var svona í þessu gítar
poppi líka. En svo bara fyrir tilviljun
fór hann út í þetta íslenska R&B þeg
ar hann gerði lagið Hlið við hlið. Sem
er bara frábært og hann hefur staðið
sig vel þar. Hann er búinn að vinna
sér inn töluverða virðingu svona
miðað við hvernig þetta var fyrst.“
Hlæja að eigin bröndurum
Jón segir það hafa hjálpað sér í að
koma ferlinum af stað hve vel hefur
gengið hjá litla bróður. „Það er bara
jákvætt.“ Jón gerði eitt lag á plötunni
hjá Friðrik Dór en þess utan hafa
þeir bræður gefið lítið út saman. „Við
spilum þó oft saman. Komum fram
og syngjum lög hvor annars sem
er bara skemmtilegt. Við erum líka
með svipaðan húmor þannig að við
skemmtum okkur vel saman. Segj
um lélega brandara og hlæjum síðan
sjálfir.“
Þó svo að ekkert samstarf hafi
verið ákveðið í augnablikinu segir
Jón það nokkuð öruggt að af því verði
í framtíðinni. „Það væri nú fáránlegt
ef við færum í gröfina án þess að gera
eitthvað magnað saman.“
En hvaðan frá bræðurnir þessa
hæfileika? Jón segir pabba þeirra
oftar en ekki eigna sér heiðurinn af
því. „Hann var söngvari í hljómsveit
inni Frostmark á Laugarvatni. Ég hef
aldrei heyrt neitt með þeirri hljóm
sveit. Hann er samt flottur söngv
ari, karlinn. Hann var nú annar
bassi í Karlakórnum Þröstum hérna
um árið,“ en Jón segir það nokkuð
skondið þar sem þeir bræður sé báð
ir nokkuð mjóróma.
Slakur í Boston
Jón útskrifaðist úr hagfræði frá Bos
tonháskóla vorið 2009 og hann
saknar stundum skóladaganna. „Ég
kunni mjög vel við mig þar. Þetta var
frábær tími. Ég var í fótboltaliðinu
þannig að maður þurfti ekki að hafa
áhyggjur af neinu,“ en Jón leikur í
dag með bikarmeisturum FH. „Mað
ur kynntist strax haug af drengjum í
gegnum liðið og þeir redduðu manni
íbúð og öllu sem þurfti.“
Jón saknar hvað mest nálægðar
innar á skólasvæðinu. „Þar var fólk
ekkert á bílum eins og hérna. Hér
heima er maður alltaf að drífa sig
eitthvert og alltaf að hoppa upp í bíl
til að fara eitthvað. Ég sakna þess
svolítið að geta ekki bara rölt um
skólasvæðið slakur með iPodinn í
eyrunum.
Jón var að byrja í nýju og spenn
andi starfi en hann var að taka sem
ritstjóri tímaritsins Monitor af Birni
Braga Arnarsyni. „Þetta er ótrúlega
spennandi og skemmtilegt starf. Það
er gaman að gera blað sem fjallar
bara um jákvæða hluti. Ég væri
örugglega ömurlegur rannsóknar
blaðamaður.“
Allir syngi með
Jón mun á næstunni fylgja útkomu
plötunnar eftir en stærsta verkefni
sumarsins er að koma fram á Þjóðhá
tíð í Eyjum. „Það verður örugglega
hressandi upplifun. Ég hef sjálfur
farið fimm sinnum á Þjóðhátíð og
alltaf skemmt mér vel.“ Jón Jónsson
og hljómsveit spila á laugardegin
um og telur tímasetninguna henta
sér vel. „Þar sem við strákarnir erum
ekki beint í ballgírnum þá held ég að
þetta sé tilvalin tímasetning þarna á
laugardagskvöldinu. Við tökum lög
af plötunni og nokkur góð coverlög.
Vonandi fáum við fólkið með okkur.
Draumurinn er að fá alla brekkuna
til þess að syngja með í When You're
Around.
asgeir@dv.is
Með Hemma Gunn á línunni Jón er nýr ritstjóri Monitor.
Jón Jónsson Var að
senda frá sér plötuna
Wait for Fate.
Jóhanna opnar Garðarshólm Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er á meðal
þeirra sem opna miðstöðina.