Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 54
54 | Fólk 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
Grét þegar
Dobby dó
Leikarinn og útvarpsmað-
urinn Ævar Þór Benedikts-
son var með tárin í augunum
á miðvikudag þegar hann fór
á tvöfalda sýningu á Harry
Potter og dauðadjásnunum
en seinni hluti myndarinnar
var forsýndur þá. Deildi hann
með Facebook-vinum sínum í
hléi á milli myndanna hvernig
stemningin væri í salnum.
„Mynd 1 var ad klárast og
salurinn tárvotur eftir dauda
húsálfsins Dobby. Ég þori ekki
ad hugsa til þess hvernig þetta
verður eftir mynd 2,“ sagði
hann áður en seinni hlutinn
byrjaði.
Bergþór
að skúra
Stórsöngvarinn Bergþór Páls-
son er þekktur fyrir einstaka
snyrtimennsku og kurteisi.
Hann reyndi þó engu að síður
að sannfæra sjálfan sig og
Face book-vini sína um að
hann gæti ekki ryksugað gólfin
heima hjá sér á fimmtudag.
„Skv. heimilisplaninu á ég
gólfin í dag, verð eiginlega að
fresta því, þarf nefnilega að
æfa franska þjóðsönginn af
kappi fyrir móttöku sendiráðs-
ins í tilefni þjóðhátíðardags-
ins. Eða er ég kannski bara að
reyna að finna mér afsökun?
Ertu að meina að ég geti alveg
æft þjóðsönginn, skúrað og
ryksugað líka? Og farið létt
með?“ sagði hann á Facebook-
síðunni sinni og bætti við:
„Jæja þá.“
Gaf stera-
tröllinu rödd
Rithöfundurinn Mikael Torfa-
son fór mikinn í viðtali í út-
varpsþættinum Harmageddon
á X-inu á fimmtudaginn. Fór
hann ítarlega yfir fjölmiðla-
sviðið og skaut þar í allar áttir.
Mikael var ritstjóri DV en þar
kynnti hann til leiks tvær pers-
ónur sem hafa farið mikinn
í fjölmiðlum undanfarin ár.
Bæði réð hann Tobbu Marinós
í sitt fyrsta starf sem blaða-
mann og þá var það Mikael
sem kynnti Gillzenegger fyrst
til leiks sem pistlahöfund.
„Ertu ánægður með það?“
var hann spurður. „Maður vill
veita einhverjum rödd sem
hefur enga rödd. Þarna fékk
hann að tala, steratröllið og
vitleysingurinn sem hékk bara
í ljósabekkjum og var að gera
grín að sjálfum sér og öðrum.“
Þ
að er bara stórkost-
legt. Þetta gengur
bara vel,“ segir Katrín
Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra að-
spurð hvernig það sé að vera í
fæðingarorlofi. Hún eignaðist
sinn þriðja son þann10. júní
síðastliðinn. „Þetta er bara
merkilega skemmtilegt allt
saman,“ segir hún og bætir við
að allt gangi vel.
„Ég get allavega ekki
kvartað yfir neinu.“
Drengurinn fékk nafnið
Ármann Áki fljótlega eftir að
hann fæddist. Fyrra nafnið er
úr fjölskyldu Katrínar en það
seinna út í loftið. „Ég á bróð-
ur sem heitir Ármann og svo
átti ég afa sem hét Ármann.
Svo er Áki bara gott skandi-
navískt nafn, þekkt frá land-
námi.“
Hún er alsæl í fæðingarorlof-
inu en viðurkennir þó að það
sé mikið að gera á stóru heim-
ili. „Ég hef reyndar aldrei skil-
ið fólk sem lítur á þetta sem
frí. Þetta er mikil vinna, sér-
staklega þegar maður er með
tvo aðra herramenn, 3 ára og
5 ára, þá er nóg að gera,“ segir
Katrín hlæjandi og bætir við:
„Ég dáist að konum um aldur
og ævi sem hafa verið að ala
upp börn.“
Pólitíkin er þó enn í huga
hennar þó hún sé í fæðing-
arorlofi. „Ég fylgist með en
svona öðruvísi. Það er allt
öðruvísi að vera í fæðingar-
orlofi og bera ekki ábyrgð á
því sem er að gerast. Maður
hlustar á fréttirnar með öðru
hugarfari. Ég er ekta svona
týpan núna sem situr heima í
sófanum og er með skoðanir
á öllu.“
Hún segir þó auðvelt að
gleyma pólitíkinni. „Það er
alveg hættulega auðvelt að
hætta að hugsa um pólitíkina
og hugsa bara um barnaupp-
eldi.“
Fjölskyldan er hamingju-
söm með nýjustu viðbótina
og allir una sér vel. „Við erum
bara orðin mjög góð. Við
erum komin yfir vístölustærð-
ina. Það eina sem við þurf-
um að hafa áhyggjur af er að
kaupa stærra hjónarúm. Það
enda eitthvern veginn allir á
þeim stað,“ segir Katrín.
Ráðherrann hefur ekki
ákveðið hvenær hún snúi aft-
ur til starfa og nýtur þess að
vera heima með strákunum
sínum þangað til. „Það kem-
ur með haustinu einhvern
tímann en það er engin dag-
setning komin á það enn.“
viktoria@dv.is
n Nýtur þess að vera í fæðingarorlofi með yngsta syninum n Fékk nafnið Ármann Áki
n Fylgist með pólitíkinni heima í stofu n Skilur ekki fólk sem lítur á fæðingarorlof sem frí
„Hættulega auðvelt
að gleyma pólitíkinni“
Svala ekki á leið heim í bráð og losar þess vegna úr geymslunni:
Selur fötin sín á Íslandi
„Ég er bara að selja föt sem
ég á hérna heima á Íslandi.
Ég er að losa geymslu sem ég
er með á Íslandi sem er full
af fötum,“ segir söngkonan
Svala Björgvinsdóttir en hún
heldur fatamarkað á laugar-
daginn. Hún er núna í stuttri
heimsókn á Íslandi eftir að
hafa verið á tónleikaferða-
lagi í Evrópu með hljómsveit
sinni Steed Lord. Hún ætl-
ar að nota tækifærið meðan
hún er á Íslandi til selja föt-
in sem hún skildi eftir þegar
hún flutti út.
„Núna hef ég búið í LA
í tvö ár og er ekkert á leið-
inni að flytja til Íslands í
bráð. Sum fötin eru ónotuð
og þau sem eru notuð hef ég
kannski farið í þrisvar, fjór-
um sinnum á ævinni.“
Svala er þekkt fyrir að vera
mikil tískudrós og hefur sér-
stakan áhuga á svokölluð-
um „vintage“ fatnaði. Það
verður því vafalaust hægt að
finna einhverja gullmola úr
geymslunni hjá henni.
„Ég ætla að selja þetta
rosalega ódýrt því ég vil losa
mig við öll fötin. Vonandi
geta sem flestar stelpur kom-
ið og fundið eitthvað flott á
sig.“
viktoria@dv.is
Stutt stop Svala er í stuttri heimsókn á landinu og nýtir tímann til að selja fötin sín.
Fæðingarorlof er ekkert frí Þriggja barna
móðirin og menntamálaráðherrann Katrín kann
vel að meta að vera í fæðingarorlofi með yngsta
soninn. Hún fylgist með pólitíkinni af hliðarlínunni
en snýr aftur til starfa með haustinu.