Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 6
6 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? í Múrbúðinni Reykjavík - Suðurnes Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjar VEGLEG VERKFÆRI DURATOOL Rafhlöðuborvél 18V 2.990 kr. NOVA 18V Rafhlöðuborvél 2 hraðar 4.990 kr.Verkfærasett 33 hlutir 1.495 kr. NOVA TWISTER 4,8V Skrúfvél og skrúfbitar 1.790 kr. Verkfærasett 5 hlutir 395 kr. Flísasög 800w, sagar 52 cm 19.900kr. 1400W 360 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki Sápubox Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 13.900 kr. Beðið um nöfn þeirra 50 sem fá hæstu lífeyrisgreiðslurnar: LSR neitar að birta listann Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), Haukur Hafsteinsson, neitar að gefa DV upp­ lýsingar um þá 50 einstaklinga sem fá hæstu mánaðarlegu greiðslurnar frá lífeyrissjóðnum. Sjóðurinn hafði áður neitað stjórnlagaráði um þessar upp­ lýsingar. DV óskaði eftir upplýsing­ unum í lok síðasta mánaðar og sagð­ ist myndu kæra synjun á beiðninni til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Í svari Hauks við beiðni DV kem­ ur fram að upplýsingarnar varði per­ sónuleg málefni þeirra sem um ræðir og því sé ekki hægt að verða við beiðni blaðsins: „LSR telur sér ekki heimilt að veita umbeðnar upplýsingar enda varða þær persónulega hagi viðkomandi sjóðfélaga.“ Í svari Hauks segir jafnframt að upplýsingalög taki eingöngu til ríkis og sveitarfélaga en ekki til til lífeyris­ sjóða sem starfa á vegum hins vegar opinbera, líkt og LSR: Upplýsingalög­ in gildi því ekki um starfsemi LSR: „Í 1. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 kem­ ur fram að þau taki til ríkis og sveitar­ félaga. LSR fer ekki með opinbert vald í skilningi upplýsingalaga en til hlið­ sjónar er bent á dóm Hæstaréttar frá 17. janúar 2008, mál nr. 286/2007, þar sem fram er tekið í forsendum dómsins að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 taki ekki til Lífeyrissjóðs Reykjavíkurborgar.“ Enn frekar tekur Haukur það fram að jafnvel þó að upplýsingalög ættu við um starfsemi sjóðsins gæti sjóð­ urinn ekki veitt umræddar upplýsing­ ar vegna persónuverndarsjónarmiða. DV mun engu að síður kæra synj­ unina til úrskurðarnefndar um upp­ lýsingamál. Hæstu lífeyrisgreiðslurnar DV bað LSR um upplýsingar um þá 50 sem fá hæstu lífeyrisgreiðslurnar frá sjóðnum. Líklegt má telja að Davíð Oddsson, og fleiri stjórnmála- menn sem hafa unnið hjá hinu opinbera um áralangt skeið í ýmsum mismunandi störfum, séu á listanum. Tölvupóstur sem DV hefur undir höndum sýnir hvernig Glitnir kynnti Stím­verkefnið fyrir öðrum fjárfest­ um, meðal annars fjármálafyrirtækj­ um, með það fyrir augum að þeir fjárfestu í því. Tölvupósturinn var sendur frá Glitni og virðast undir­ tökurnar hafa verið dræmar miðað við hvernig endanlegur hluthafa­ listi Stíms leit út. Lítill áhugi virðist hafa verið fyrir þátttöku í félaginu og endaði Glitnir sjálfur á því að þurfa að halda utan um stærsta hlutinn í félaginu auk þess sem stórir hlutir voru seldir til viðskiptavina Glitnis. Stím var einkahlutafélag í eigu ýmissa fjárfesta sem keypti hluta­ bréf í Glitni og FL Group fyrir um 25 milljarða króna í nóvember 2007, þar af voru tæpir 20 fengnir að láni frá Glitni. Um var að ræða kúlulán til 12 mánaða á 20 prósenta vöxtum. Félagið keypti í Glitni fyrir tæpa 16,5 milljarða og í FL Group fyrir rúma 6,5 milljarða. Um var að ræða hluta­ bréf sem Glitnir hafði keypt og þurfti helst að losna við. Þessi viðskipti Stíms hafa ver­ ið til rannsóknar hjá embætti sér­ staks saksóknara vegna gruns um að markaðsmisnotkun hafi átt sér stað: Að tilgangur viðskiptanna hafi verið að halda uppi hlutabréfaverði í Glitni og stærsta hluthafa hans, FL Group, sem kominn var í umtalsverða erfið­ leika vegna taprekstrar. Hlutafé átti að vera lítið Í bréfinu, sem ber yfirskriftina „Proj­ ect Stím“, segir: „Áformað er að sam­ an komi hópur fjárfesta sem setji fjármagn í félag sem stofnað er til kaupa á hlutum í FL Group og Glitni. Þar sem gert er ráð fyrir að hlutafé félagsins sé fremur lítið miðað við efnahag þess, þá er það eindregin ráðlegging lánveitenda að lán verði í ISK, a.m.k. fyrst um sinn. Gert er ráð fyrir að lánin séu veitt til tveggja ára, sem þá sé áætlaður tímarammi verkefnisins. Á miðju tímabilinu, eða eftir eitt ár, megi þó greiða upp lánin og slíta félaginu þannig að hver fjár­ festir leysi til sín hluti í FL Group og Glitni í hlutfalli í eign sín [sic]. Gert er ráð fyrir að neðangreindir fjár­ festar kaupi félagið FS37 ehf. og auki hlutafé þannig að það verði tveir milljarðar króna eftir aukningu (fyr­ ir utan þegar innborgað lágmarks­ hlutafé).“ Alveg frá upphafi var því gert ráð fyrir að hlutafé Stíms væri lítið og að hluthafar þess þyrftu ekki að leggja því til mikið hlutafé. Stím var því hugsað sem einhvers konar eigna­ lítil skel sem átti að halda utan um hlutabréf sem erfiðlega gekk að selja vegna lægðar á markaði. Samherji og Saga stærst Samkvæmt tölvupóstinum átti út­ gerðarfyrirtækið Samherji hf. á Ak­ ureyri að vera stærsti hluthafi Stíms með 45 prósenta eignarhluta. Þetta rímar við frétt sem DV birti um Stím­ viðskiptin sumarið 2009. Þá hafði blaðið samband við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, sem varð stjórnarformaður Glitnis í byrjun árs 2008 og átti að reyna að snúa rekstri hans til betri vegar. Þor­ steinn gekkst við því að Samherji hefði ætlað að kaupa í Stími: „Við skoðuðum einhvern tímann einhver mál sem sjálfsagt síðar meir kunna að hafa orðið að Stími. En það voru ekki forsendur fyrir okkur að fara út í það... Við skoðuðum kaupin á bréf­ unum en keyptum ekki bréfin í þessu tilfelli,“ sagði Þorsteinn. Ekki var hins vegar vitað að Samherji hefði átt að að eiga svo mikið í Stími. Saga Capital átti að verða næst­ stærsti hluthafinn með 25 prósenta eignarhluta. Fjárfestingabankinn endaði hins vegar á því að eiga ein­ göngu rúm 6 prósent auk þess sem viðskiptavinir bankans áttu 8,75 prósent. Saga átti því einnig talsvert minna í Stími en gert var ráð fyrir í upphafi. Þá áttu Jakob Valgeir Flosa­ son, útgerðarmaður í Bolungarvík, og viðskiptavinir Glitnis að eiga 30 prósent í félaginu. Endanlegur hluthafahópur Stíms var hins vegar þannig að félag í eigu Glitnis var stærsti hluthafinn með rúm 30 prósent og viðskiptavinir Glitnis áttu svo bróðurpartinn af af­ gangi bréfanna, auk Sögu Capital. Sala á hlutabréfum Stíms gekk því ekki eins vel og bankinn hafði ætl­ að, bæði Samherji og Saga hættu við þessar stóru fjárfestingar sínar, og bankinn sat sjálfur eftir sem stærsti hluthafi félagsins. Samherji átti að eiga 45 prósenta hlut í Stími n Tölvupóstur sýnir hvernig Glitnir ætlaði að fá fjárfesta að Stími n Félagið átti að vera með lítið hlutafé n Samherji og Saga Capital áttu að vera stærstu hluthafarnir„Við skoðuðum ein- hvern tímann ein- hver mál sem sjálfsagt síðar meir kunna að hafa orðið að Stími. 32,5% Félag stofnað af gamla Glitni sem ætlað var til endursölu 15,0% Gunnar Torfason 10,0% SPV fjárfesting hf. 10,0% BLÓ ehf. – félag í eigu Óskars Eyjólfssonar 10,0% Ofjarl ehf. félag í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingvarssonar 8,75% Viðskiptavinir Sögu Capital fjárfestingabanka 6,25% Saga Capital fjárfestingabanki 2,5% Jakob Valgeir Flosason 2,5% Ástmar Ingvarsson 2,5% Flosi Jakob Valgeirsson Endanlegur hluthafalisti Stíms Átti að eiga 45 prósent Samherji Þorsteins Más Baldvinssonar átti upphaflega að eiga 45 prósenta hlut í félaginu Stími sem fjárfesti í hlutabréfum Glitnis og FL Group síðla árs. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Skortur á blóði í Blóðbankanum: Gleymum ekki að gefa blóð „Það sem gerist alltaf á þessum tíma árs er að það gengur verr að ná í blóðgjafa. Þó svo skurðstofur séu lokaðar eða þó dregist hafi saman fjöldi fyrirhugaðra aðgerða, þá er alltaf eitthvað sem gerist. Slys eru tíðari á þessum tíma,“ segir Sigríður Ósk Lárusdóttir, hjúkrunarfræðingur í Blóðbankanum. Það er töluverður skortur á blóði í Blóðbankanum þessa dagana og því mikilvægt að blóðgjafar gefi sér tíma til að heimsækja bankann. Þeir flokkar sem vantar hvað mest af eru O­ og A­flokkar en allir eru þó hvatt­ ir til að leggja sitt af mörkum. „Lagerstaðan var mjög bág á mánudaginn en það hefur komið ágætlega inn í vikunni. Við hvetj­ um þó fólk til að muna eftir okkur í næstu viku,“ segir Sigríður og bætir við að oft gleymist þetta hjá fólki yfir sumartímann. Hún biður því þá sem hafa hug á að gefa blóð að muna eftir því áður en farið er í frí. „Staðan er betri hjá okkur á vet­ urna en við þurfum þó að hafa að­ eins fyrir því og minna á okkur,“ segir Sigríður Ósk en vert er að minna á að bankinn þarf um 70 gjafa á dag til að anna eftirspurn. Blóðbankinn er staðsettur við Snorrabraut 60 og er opinn á mánu­ dögum og fimmtudögum á milli 11 og 19 en á þriðjudögum og miðviku­ dögum á milli 08 og 15. Lokað er á föstudögum. 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.