Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 17
Fréttir | 17Helgarblað 15.–17. júlí 2011 Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumað- ur á Selfossi, lét framkvæma nauð- ungarsölu á eign óléttrar konu, þrátt fyrir að hann hefði enga heimild til þess. Þá eru dæmi þess að ákærur hafi verið unnar með hálfum huga, í síðustu viku var til að mynda ákæru um líkamsárás frá embættinu vísað frá vegna formgalla. Ólafur Helgi hefur sætt tölu- verðrar gagnrýni að undanförnu, nú síðast fyrir þá ákvörðun að hneppa ekki níðing í Vestmannaeyjum í gæsluvarðhald, þrátt fyrir að mynd- bandsupptökur hafi fundist af brot- um mannsins. Hann hefur sagt í til- kynningu að þessi ákvörðun hafi verið tekin í samráði við saksókn- ara, en málið hafi verið rætt í óform- legum samtölum á milli embætt- anna. Bauð upp hús óléttrar konu Í dómi sem birtur var á miðvikudag- inn var nauðungarsala sem sýslu- maðurinn lét framkvæma dæmd ógild. Þann 1. mars síðastliðinn lét hann bjóða upp húseign í Þorláks- höfn vegna skulda annars eigenda hússins – einstæðrar móður á þrí- tugsaldri. Skuldin var upp á 80.000 krónur vegna vangreiddra skipulags- gjalda. „Ég hringdi í sýslumanninn til þess að fá nokkurra vikna frest á þessa skuld,“ segir Arnheiður Aldís Sigurðardóttir, enda ekki mjög auð- velt að reiða fram 80.000 krónur með stuttum fyrirvara. Ólafur kvaðst ekk- ert geta gert fyrir hana heldur benti henni á umboðsmann skuldara og þar sótti hún um greiðsluskjól. Sýslumanni var send sérstök til- kynning um málið sem ætluð var til þinglýsingar. Honum barst tilkynn- ingin þann 28. febrúar. En daginn eft- ir fór nauðungarsalan fram. „Ég talaði við umboðsmann skuldara og þau voru mjög hissa á þessu þar,“ segir Arnheiður. Nauðungaruppboðið var því framkvæmt án heimildar. „Mjög ófagmannlegt“ „Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef komið við sögu hjá honum og hann var með hroka og leiðindi við mig. Ég var nú ekkert dónaleg við hann,“ segir hún. Hin umrædda eign hafði áður farið á uppboð og síðar höfðu þær kröfur verið dregnar til baka. Arn- heiður segir að það hafi verið eins og Ólafur hafi verið búinn að ákveða það að húsið yrði selt. Hún sendi honum skriflegt er- indi um málið en þar voru útlist- aðar ástæður fyrir því að lögin um greiðsluskjól giltu ekki í þessu til- felli, þar sem hún ætti bara helm- ingshlut í húsinu. En engin krafa var á hinn eiganda hússins og því var nauðungarsalan í grunninn gerð í heimildarleysi, enda úrskurðaði héraðsdómur á þann veg. Nú hefur hins vegar verið skipt um lása í húsinu og það stendur enn autt. Sýslumaðurinn gaf út upp- boðsafsal á húsinu á meðan málið var í héraði og því er þetta mál að stóru leyti enn óleyst. „Mér finnst allt í sambandi við þetta mjög ófagmannlegt. Ég varð mjög hissa á þessum vinnubrögð- um enda hef ég aldrei komið við sögu hjá honum áður.“ Ákærði eiginmanninn eftir slys Helga Jónsdóttir lögfræðingur sagði frá því í opnu bréfi í Fréttablaðinu árið 2008 að sýslumaðurinn hefði ákært eiginmann hennar fyrir að hafa með gáleysi valdið henni skaða. Hjónin lentu í bílslysi á Suðurlandi og Helga slasaðist alvarlega í slys- inu. Þriggja ára dóttir þeirra var með þeim í bílnum en þau lentu í árekstri við annan bíl á Suðurlandsvegi. Öku- maður hins bílsins slasaðist ekki. Helga segir í bréfinu að í kjölfar slyssins hafi þau verið vöruð við því að maðurinn hennar, sem ók bíln- um, yrði líklega ákærður vegna slyss- ins. Þó að slíkt væri ekki vaninn ann- ars staðar þá yrði líklegast gefin út ákæra, þar sem að þetta hefði gerst í umdæmi Selfoss. Sú varð raunin. Maðurinn hennar var ákærður eftir slysið á grundvelli þess að hafa valdið henni skaða af gáleysi. Þrátt fyrir að Helga hafi sent embættinu bréf þar sem sýslumaður var beðinn um að láta af ákærunni, þar sem fórnarlamb slyssins var ást- vinur þess sem ákæra átti, var ákær- unni fylgt eftir. Greiddu 800 þúsund í máls- kostnað „Ég sendi honum bréf þar sem ég lýsti því hvaða áhrif svona dómsmál myndi hafa á okkur og sendi honum meðal annars vottorð frá lækninum sem hefur annast endurhæfingu mína. Þar kom fram að fólk sem hefði fengið heilaáverka eins og ég væri í aukinni hættu á að fá kvíða og þunglyndi auk þess sem lítið þyrfti til að koma slíkum sjúkling- um úr jafnvægi. Í vottorðinu kemur enn frem- ur fram að ákæra og allt það álag sem málaferlum fylgir myndi vafalítið hafa mjög slæm áhrif á bata minn.“ Þá talaði Helga einnig við hann í síma, í tilraun til þess að fá ákærunni hnekkt. Ákærunni var haldið til streitu og maður Helgu var að end- ingu dæmdur til að greiða henni skaðabætur ásamt því að hjónin þurftu að reiða af hendi hátt í 800.000 krónur í málskostnað. Maður hennar var einnig dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. „Ég höfðaði í einlægni til [Ólafs], eða öllu heldur laganna sem hon- um bar að gæta, fyrir hönd mína og mannsins míns. Svar hans var: Nei.“ Þess má geta að í lögum er heim- ild til þess að falla frá sambærilegum ákærum, séu forsendur fyrir því að telja að ákæra myndi skaða þolanda meira en ella. Ekki sérstaklega til umræðu Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra segir emb- ættisfærslur Ólafs ekki hafa sérstaklega ver- ið til umræðu innan ráðuneytisins. Hörð gagnrýni á vinnu- brögð lögreglu- stjórans hafi borist ráðuneytinu vegna barnaníðsmálsins í Vestmannaeyjum og í kjölfar þess hafi skýringa verið óskað frá ríkissaksóknara. „Ég hef ekki átt neina fundi með sýslumanninum um hans embættis- færslur,“ segir Ögmundur í samtali við blaðamann. „Ég óskaði eftir skýring- um frá ríkissaksóknara vegna máls- ins sem upp kom í Vestmannaeyjum. En það er í eðlilegri framvindu í ráðu- neytinu.“ Gagnrýni vegna málsins barst ráðuneytinu og því hefur eftirlits- aðili sýslumanns verið inntur eftir svörum. „Þarna berst ráðuneytinu hörð gagnrýni vegna þessa máls og ég óska eftir greinargerð ríkissak- sóknara sem hefur með höndum eft- irlitsskyldu á lögreglu- stjóraemb- ættinu,“ segir Ögmundur. Ekki náð- ist í Ólaf Helga við vinnslu út- tektarinnar. n Ákærði eiginmann eftir bílslys n Framkvæmdi nauðungarsölu á húsi óléttrar konu án heimildar n Ríkissaksóknari hefur eftirlit með störfum sýslumanns Afglöp ÓlAfs Hverfisgötu 106 101 Reykjavík S: 551 6688 Þú finnur okkur líka á Facebook! „Mér finnst allt í sambandi við þetta mjög ófagmann- legt. Í maí 2007 fór mál fyrir Héraðsdóm Suðurlands þar sem kona kærði lögregluna á Selfossi fyrir að neyða hana til þess að gefa þvagprufu. Hún kærði lögreglu fyrir kynferðislega áreitni. Sýslumaður vísaði málinu frá. Í janúar 2009 gaf Ólafur út handtökuskipanir á alla vanskilamenn í Árnessýslu. Um var að ræða 370 manns. Hann vildi handtaka alla þá sem ekki hefðu skilað sér í fjárnám hjá embættinu. Fólkið átti að handtaka á heimilum þess eða vinnustöð- um og færa fyrir sýslumann eða hans fulltrúa. Í júní á þessu ári úrskurðaði Hæstiréttur meintan barnaníðing í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Hann hafði níðst á átta ára gamalli stjúpdóttur sinni og myndað athæfið. Málið kom inn á borð lögreglu fyrir rúmu ári síðan og Ólafur tók þá ákvörðun að hneppa hann ekki í varðhald þá. Önnur umdeild mál Þykir refsiglaður Heimildir DV herma að Ólafur þyki óvenju refsiglaður sýslumaður. Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.