Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Side 20
20 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað É g er mjög ánægður með þá vinnu sem hefur verið unnin hingað til og þá fagmennsku sem hefur einkennt hana,“ segir Stefán Haukur Jóhann- esson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið. Mánudaginn 27. júní síðastliðinn hófust eiginlegar að- ildarviðræður um fjóra fyrstu samn- ingskafla regluverks ESB en þeir eru alls 35 talsins. Stefán segir að um tímamót hafi verið að ræða en tek- ur einnig fram að nú taki við mikil- vægar samningaviðræður í mögu- lega stærsta máli stjórnmálasögu Íslands. Blaðamaður DV settist nið- ur með Stefáni á skrifstofu hans í ut- anríkisráðuneytinu til að ræða gang mála. Víðtæk reynsla að baki „Minn bakgrunnur er sá að ég út- skrifaðist úr lagadeild Háskóla Ís- lands árið 1985 og hóf störf hjá utan ríkisþjónustunni 1986 og hef verið þar síðan, eða svo gott sem all- an minn starfsferil, en lengst af hef ég verið að fást við Evrópumál og við- skiptamál.“ Eins og áður segir leiðir Stefán íslensku samninganefndina í aðildarviðræðum við ESB. Íslending- ar eru ef til vill forvitnir um reynslu Stefáns þegar kemur að samninga- viðræðum, þegar jafn mikilvægt mál er á sjóndeildarhringnum og aðild- arviðræðurnar óneitanlega eru. „Frá 2001 til ársins 2005 var ég sendiherra Íslands gagnvart Alþjóðaviðskipta- stofnuninni (WTO), EFTA og fleiri alþjóðastofnunum í Genf í Sviss, en frá 2005 og allt þangað til í janúar á þessu ári hef ég gegnt starfi sendi- herra Íslands gagnvart Evrópusam- bandinu í Brussel.“ Fjölmörg viðamikil mál hefur rekið á fjörur Stefáns á þessum tíma. Hann hefur meðal annars verið for- maður gerðardóms hjá WTO í máli Bandaríkjanna við ESB, Kína, Japan og fleiri ríki um tolla á stáli. Þá var hann formaður samninganefnd- ar WTO um aukið frelsi í vöruvið- skiptum í heiminum sem var hluti hinna nafntoguðu Doha-viðræðna. Þá hefur hann verið formaður samn- inganefndar WTO um aðild Rúss- lands að stofnuninni, en þeirri nefnd stýrir hann ennþá. „Þetta eru senni- lega stærstu málin sem ég hef tekið að mér, auk þess að síðan í nóvem- ber 2009 hef ég verið aðalsamninga- maður Íslands í aðildarviðræðum við ESB.“ Ánægður með starfið hingað til „Skipulagið á starfinu hérna heima hefur gengið mjög vel. Skipað var í tíu samningahópa sem taka fyrir sér- stök svið auk aðalsamninganefnd- arinnar. Í samningahópunum sitja meðal annars fulltrúar hagsmuna- aðila, þar eru til að mynda LÍÚ og Sjómannasamtökin með sína full- trúa í sjávarútvegshópnum, í land- búnaðarhópnum eru Bændasam- tökin með sína fulltrúa, svo dæmi séu tekin. Þá koma ýmsir sérfræð- ingar einnig að málum sem bjóða fram sína þekkingu. Að mínu mati eru þetta því mjög vönduð vinnu- brögð og þetta hefur gengið vel upp.“ Ísland sótti formlega um aðild að Evrópusambandinu þann 23. júlí árið 2009, þegar Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra afhenti Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar og þáverandi formanni ráðherraráðs ESB, aðildarumsókn Íslands. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og eru nú formlegar aðildarviðræð- ur hafnar. En í hverju felast breyt- ingarnar fyrir Stefán og samninga- nefndina? „Fyrsti liðurinn í þessu er að ESB skrifar heilmikla skýrslu um Ísland, um hversu vel landið er í stakk búið til að ganga til viðræðna og gerast mögulega aðildarríki. Þessari vinnu lauk í febrúar 2010 og á grundvelli skýrslunnar er tekin formleg ákvörð- un um að ganga til viðræðna við okk- ur. Sú ákvörðun var tekin í júní árið 2010 og mánuði síðar má segja að viðræður hafi hafist þegar rýnivinna hófst í að yfirfara löggjöf Íslands og kanna að hve miklu leyti hún sam- ræmdist löggjöf ESB. Þessi vinna hófst í nóvember síðastliðnum og lauk nú í júní. Þar var farið yfir alla 35 kaflana í regluverki ESB og hvern- ig þeir samræmast íslenskri löggjöf, bæði af hálfu okkar sérfræðinga og sérfræðinga sambandsins. Sú vinna gekk vel, og staðfestir enn og aftur að Ísland er mjög vel í stakk búið til að tileinka sér löggjöf ESB. Það er ekki síst vegna EES-samningsins, sem tók gildi fyrir 17 árum og Schengen- samningsins.“ „Þurfum að undirbúa okkur vel“ Það sem brennur þó einna helst á Íslendingum eru tvímælalaust sjávarútvegsmálin, en þau standa utan samningsins um EES. Sömu- leiðis má nefna landbúnaðarmál, sem hafa löngum verið rædd á til- finningalegum nótum hér á landi. Hvernig hyggst samninganefndin tækla þessar viðræður? „Þau mál sem standa utan EES- samningsins höfum við afmarkað. Við höfum lagt áherslu á að skilja þau mál betur og það sama hefur reyndar ESB gert. Sambandið hefur sent hingað sérfræðinga til að ræða við hagsmunaaðila og sérfræðinga hér á landi, til að auka skilning ESB á aðstæðum okkar.“ En er Stefán á sama máli og ut- anríkisráðherra, að mikilvægt sé að opna þessa „erfiðu kafla“ sem fyrst í samningaferlinu? „Ég tel mjög æskilegt að það verði gert. Til þess að við getum það þurf- um við auðvitað að undirbúa okkur mjög vel og móta samningsafstöðu okkar í einstökum málaflokkum. ESB þarf auðvitað að gera það líka, því þar eru 27 aðildarríki sem þurfa að fjalla um einstök málefni.“ Vinnum með sjónarmið hagsmunaaðila Það hefur ekki verið launungarmál að hagsmunasamtök í sjávarútveg- inum á borð við LÍÚ, sem og bænda- forystan öll, hefur tekið mjög ein- dregna stefnu í Evrópumálum og eru í stuttu máli andvíg aðild að ESB. Í síðustu viku var til að mynda hald- inn blaðamannafundur á vegum Bændasamtakanna þar sem kynnt var rit eftir lögfræðinginn Stefán Má Stefánsson. Þar var fullyrt að engar undanþágur væru í boði fyrir Íslend- inga í sjávarútvegs- og landbúnaðar- málum. Getur slík umræða heima fyrir veikt samningsstöðu Íslands? „Það er ekkert óeðlilegt við að fólk hafi mismunandi skoðanir, enda er þetta stórmál. Við sáum það að þegar Finnar, Svíar og Austurríkis- menn gengu til liðs við ESB árið 1995 þá var þetta mjög umdeilt mál. Þar náðu samninganefndir þó að tala sig niður á sameiginlega niðurstöðu, meðal annars með aðkomu hags- munaaðila. Hér hafa þessir aðilar beina aðkomu að samningaborðinu í gegnum samningahópana og þar geta þeir komið fram sjónarmiðum n Stefán Haukur Jóhannesson er aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum við ESB n Segir hagsmuna- aðila hafa greiðan aðgang að samningaborðinu í gegnum samningahópa n Skýr fordæmi fyrir sérlausnum„Það er þjóðin sem ákveður hvort verði fallist á aðildar- samning eður ei. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Löng og ströng leið inn í ESB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.